Morgunblaðið - 26.09.2006, Side 29

Morgunblaðið - 26.09.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 29 UMRÆÐAN SKATTFRJÁLS verslun erlendra ferða- manna í miðborginni hefur aukist gífurlega í sumar, miðað við sum- arið 2005, – svo mikið að jafnvel er talað um sprengingu í ferða- mannaverslun. Þróun- arfélag miðborg- arinnar fagnar þessum gleðilegu tíðindum. Verslun erlendra ferðamanna í miðborg- inni hefur aukist ár frá ári, enda hefur mið- borgin verið á uppleið undanfarin ár. Versl- unum og veit- ingastöðum í miðborg- inni hefur fjölgað og sífellt fleiri sækja í mið- borgina til að spóka sig, hitta kunningjana, versla, njóta góðra veit- inga, menningar og lista. Þróunarfélagið hafði nýlega sam- band við endurgreiðslufyrirtækin Global Refund og Iceland Refund til að kanna stöðu endurgreiðslna virð- isaukaskatts til erlendra ferðamanna í miðborginni og samanburð við síð- asta sumar. Rúmlega fjórðungs aukning „tax-free“-sölu Hjá Global Refund telja menn að aukning á ferðamannaverslun sé a.m.k. 20% frá fyrra sumri að með- altali og hafi jafnvel farið upp í 30 – 35% hjá sumum verslunum í mið- borginni. Iceland Refund, sem hefur meirihlutann af tax-free markaðinum, sendi yfirlit sem sýnir að aukning á skattfrjálsri sölu til ferðamanna í miðborginni fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra er 26,2%, ef miðað er við fjárhæðir, en 21,4% ef miðað er við fjölda ávís- ana. Þá er athyglisvert að meðalfjárhæð ávís- ana hefur hækkað um 5% frá í fyrrasumar. Mest varð aukningin milli ára í apríl, 45,9% hærri fjárhæð og 33,1% fjölgun ávísana. Þetta eru samanlagðar tölur frá 153 verslunum í mið- borginni. Í skýrslu Iceland Ref- und kemur fram, að aldr- ei hafi verið verslað meira „tax-free“ en á þessu ári og margt stuðli að því, – fjölgun ferðamanna, hagstæðara gengi en í fyrra, fleiri endurgreiðslu- staðir og að sífellt verði einfaldara að versla „tax-free“ í miðborginni. Ice- land Refund rekur tvo endur- greiðslustaði í miðborginni. Meira en þriðjungur af verslun ferðamanna hér á landi, sem fer í gegnum fyr- irtækið, á sér stað í miðborginni. Oft hefur verið rætt um nauðsyn þess að byggja viðlegukant fyrir skemmtiferðaskip í gömlu höfninni við miðborgina. Hugmyndir og til- lögur um slíka framkvæmd í Austur- höfninni voru m.a. ræddar í tengslum við undirbúning að byggingu tónlist- ar- og ráðstefnuhússins þar. Þróunarfélag miðborgarinnar sendi nýlega áskorun til borg- arstjórnar og stjórnar Faxaflóahafna, þar sem eindregið er hvatt til þess nú í lok metsumars í komum skemmti- ferðaskipa, að sem allra fyrst verði hafinn undirbúningur að hönnun og byggingu nýs viðlegukants fyrir skemmtiferðaskip í Austurhöfninni, þannig að öll slík skip, stór og smá, geti lagst að bryggju steinsnar frá miðborg Reykjavíkur. Ekki þarf að orðlengja hvílík lyfti- stöng slík framkvæmd yrði fyrir mið- borgina. Farþegar gætu gengið beint frá borði og upplifað stemmninguna í hjarta borgarinnar, í stað þess að þurfa að ferðast þangað með rútum úr Sundahöfn, eins og nú er. Versl- anir, veitingahús, söfn og önnur þjón- ustufyrirtæki myndu njóta góðs af auknum ferðamannastraumi í mið- borginni. Ferðamenn sem koma hingað með skemmtiferðaskipum staldra flestir stutt við og vilja vera í miðborginni þegar þeir dveljast í Reykjavík. Nýr viðlegukantur í Austurhöfninni myndi breyta mjög til hins betra ásýnd borgarinnar að þessu leyti og gera þessum ferðamönnum viðdvöl- ina auðveldari og eftirminnilegri en ella. Gífurleg aukning í verslun ferðamanna í miðborginni Einar Örn Stefánsson skrifar um erlendra ferðamenn í mið- borginni » Skattfrjáls verslun er- lendra ferða- manna hefur aukist gíf- urlega... Einar Örn Stefánsson Höfundur er framkvæmdastjóri Þró- unarfélags miðborgarinnar. ÞRÓUNARSAMVINNU- STOFNUN Íslands (ÞSSÍ) hefur síðan árið 2000 í samvinnu við malavísk stjórnvöld stutt við uppbyggingu heilsugæslustarfs á Monkey Bay svæðinu í Mangochi héraðinu í sunnanverðu Malaví. Aðstoð ÞSSÍ hefur m.a. falist í byggingu nýs svæðissjúkrahúss í Monkey Bay bæn- um. Batnandi um- gjörð þjónustunnar hefur m.a. leitt til þess að þar er síðan í apríl 2005 ráðgjaf- armóttaka fyrir þá sem vilja vita smit- stöðu sína varðandi alnæmi og fá síðan viðeigandi ráðlegg- ingar á grunni nið- urstöðu blóðprófs. Síðan í júní 2006 er einnig mögulegt að bjóða þunguðum kon- um sem reynast smit- aðar með alnæm- isveirunni meðferð til að minnka líkur á smitun til barnsins og fólk með einkenni um alnæmi fær viðeigandi lyfjameðferð. Auk þessa hefur ÞSSÍ stutt við og eflt sam- skipti svæðissjúkra- hússins við fjórar heilsugæslustöðvar á svæðinu, m.a. með kaupum og rekstri á sjúkrabíl, bifhjólum og uppsetn- ingu á talstöðvakerfi. Mannauður og fagleg þekking Það er auðvelt að staðfesta að umgjörð þjónustunnar á Monkey Bay svæðinu hefur batnað til muna. Mannauður heilsugæsl- unnar er þó afgerandi ef einhver viðvarandi árangur á að nást. Auk bygginga á starfsmannabústöðum styður ÞSSÍ við símenntun fag- lærðs og ófaglærðs starfsfólks á öllu svæðinu sem lið í að bæta gæði þjónustunnar. Stofnunin hef- ur einnig haft íslenskan lækni og ljósmóður á staðnum til að styðja við og efla hið daglega heilbrigð- isstarf á svæðinu. Til að efla faglegar stoðir heilsu- gæslustarfsins hefur ÞSSÍ styrkt malavíska læknanema og íslenska háskólanema til rannsóknarvinnu á Monkey Bay svæðinu. Um er að ræða rannsóknir sem snerta grundvallaratriði í þjónustu við mæður og börn, eins og mæðra- vernd, fæðingarhjálp og getn- aðarvarnanotkun, meðferð nýbura og veikra barna, bólusetningar og framkvæmd heilbrigðisþjónusta í afskekktum þorpum. Rannsóknir um forvarnir og þjónustu vegna alnæmis og malaríu hafa einnig verið framkvæmdar eða eru í und- irbúningi. Land á stærð við Ísland Malaví liggur í sunnanverðri Afríku og er meðal fátækastu ríkja í heimi. Landið er á stærð við Ís- land með um 12 milljónir íbúa og er tæpur helmingur þeirra yngri en 14 ára. Á Monkey Bay svæðinu þar sem búa 110.000 manns eru auk svæðissjúkrahússins fjórar heilsugæslustöðvar. Heilbrigðisyf- irvöld í Malaví sjá um og kosta starfsmannahald heilbrigðisþjón- ustunnar á svæðinu. Þannig sinna malavískir læknatæknar (e. clini- cal officers), læknaliðar (e. medical assistants) og hjúkrunartæknar (e. nurse technicians) móttöku veiks fólks á Monkey Bay svæðinu. Á svæðisjúkrahúsinu er lítil rann- sóknarstofa þar sem meðal annars er möguleiki á því að meta blóð- hag fólks, leita að malaríu snýkju- dýrum í blóði, flokka og gefa blóð ásamt því að athuga smitstöðu varðandi alnæmisveir- una. Framundan er meðal annars bygging á skurðstofu og bætt aðstaða fyrir rann- sóknarstofuna og meðferð vegna al- næmis. Umfangsmikil starfsemi Til marks um um- fang starfseminnar má nefna að árið 2005 voru komur rúmlega 70.000 vegna þjónustu sem var veitt af starfs- fólki svæðissjúkrahúss- ins í Monkey Bay. Þar er um að ræða þjón- ustu við 150-200 veika einstaklinga á hverjum virkum degi, bólusetn- ingar barna, mæðra- vernd, ráðgjöf og að- stoð við getnaðarvarnir og fæðingarhjálp. Einnig er í þessum töl- um umfangsmikil þjón- usta í afskekktum þorpum þar sem börn eru vigtuð og bólusett og þungaðar konur fá viðeigandi aðstoð. Auk þessa starfs eru tugir veikra barna og fullorð- inna inniliggjandi á sjúkrahúsinu á hverjum degi. Í ljósi þessa er aðstoð Íslendinga mikilvægur stuðningur við al- menna heilsugæslu fyrir þúsundir fátækra einstaklinga á svæðinu. Við alvarlegri sjúkratilvik er fólki vísað áfram til héraðssjúkrahúss- ins í bænum Mangochi, miðstöð Mangochi héraðsin, en þar búa um 750.000 manns. Starfar einn full- menntaður almennur læknir þar ásamt læknatæknum og hjúkr- unarfólki en sjúkrahúsið þjónar öllu héraðinu. Þúsaldarmarkmiðin og aðstoð Íslendinga Aðstoð okkar Íslendinga er mik- ilvæg fyrir svæði eins og Monkey Bay. Hún er í fullu samræmi við átta Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2000. Rauður þráður þeirra er barátta gegn fá- tækt. Þrjú þeirra snerta heilbrigð- ismál beint og árangur hinna sam- tvinnast á margvíslegan hátt við árangur á því sviði. Aðstoð Íslend- inga er auk þess í fullu samræmi við áttunda markmiðið um al- þjóðlega samvinnu. Stuðningur Íslendinga við heilsugæsluna í Monkey Bay snertir mikilvæga uppbyggingu á grunneiningu hins opinbera heil- brigðiskerfis í Malaví. Aðstoð okk- ar hefur áhrif á daglegt líf fátækra einstaklinga sem eru að berjast fyrir því að börnin lifi, að konur geti fætt börn án þess að hætta lífi sínu og veikt fólk fái viðeigandi meðferð. Því er ánægjulegt að finna fyrir vaxandi umræðu og áhuga hér á landi um þann vanda sem fátæk lönd standa frammi fyr- ir hvað varðar almenna heilbrigð- isþjónustu. Áhersla á aðstoð við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu og menntakerfis er mikilvægt framlag okkar Íslendinga sem þátttakendur í hinu alþjóðlega samfélagi, fátæku fólki og börnum þeirra til hagsbóta til framtíðar. Heilsugæsla í Malaví og stuðning- ur Íslendinga Geir Gunnlaugsson fjallar um stuðning Íslendinga við heilsu- gæslu í Malaví » Aðstoð okk-ar hefur áhrif á daglegt líf fátækra ein- staklinga sem eru að berjast fyrir því að börnin lifi, að konur geti fætt börn án þess að hætta lífi sínu og veikt fólk fái viðeigandi meðferð. Geir Gunnlaugsson Höfundur er barnalæknir og for- stöðumaður Miðstöðvar heilsuvernd- ar barna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.