Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 39

Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 39 Atvinnuauglýsingar Milljón á mánuði? Ertu fær í samskiptum og með ríka þjónustu- lund? Einstakt tækifæri í sölu og markaðssetn- ingu á fasteignamarkaði. Metnaður og vand- virkni í vinnubrögðum frumskilyrði. Reynsla á fasteignamarkaði ákjósanleg. Aðeins 25 ára og eldri koma til greina. Sendið ítarlegar uppl. um menntun og fyrri störf til auglýsingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar „M — 18900“. Fjölbreytt starf Heimavinna Gagnavinnsla á netinu, sala, markaðssetning og margvísleg verkefni fyrir heimavinnandi manneskju með vinnuaðstöðu, síma og bíl. Sveigjanlegur vinnutími. Góð ensku- og tölvu- kunnátta. Góðir samskiptahæfileikar og sjálf- stæði í vinnubrögðum. Fyrirspurnir sendist á info@market.is Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Aðalstræti 20A, 01-01010, Akureyri (214-4654), þingl. eig. Veigar Örn Ingvarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Ásgarður, Svalbarðsstrandarhreppur (152881), þingl. eig. Haukur Laxdal Baldvinsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Bjarkarbraut 5, íb. 01-0301, Dalvíkurbyggð, (215-4691), þingl. eig. LMS ehf., gerðarbeiðendur Ræsir hf. og Tollstjóraembættið, föstu- daginn 29. september 2006 kl. 10.00. Einholt 24, Akureyri (228-2210), þingl. eig. Sigurgeir Bragason, gerð- arbeiðandi Akureyrarkaupstaður, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Hafnarstræti 20, 01-0202, Akureyri (214-6871), þingl. eig. Jórunn Viggósdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Kaupþing banki hf., Sýslumaðurinn á Akureyri og Tollstjóraembættið, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Hafnarstræti 79, íbúðarherbergi 01-0101, Akureyri (214-6927), þingl. eig. Árni Steinar Jóhannsson, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Hjallalundur 7a, 01-0101, Akureyri (214-7439), þingl. eig. Ólöf Vala Valgarðsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Hvammur, Hrísey, Akureyri (215-6376), þingl. eig. Kristján Ingimar Ragnarsson, gerðarbeiðandi Samkaup hf., föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Kjalarsíða 16f, 01-0206, Akureyri (214-8281), þingl. eig. Enikö Reynis- son og Pétur Ingimar Reynisson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Strandgata 49, 02-0103, Akureyri (225-4639), þingl. eig. Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Höfðhverfinga, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Strandgata 49, geymsla 02-0104, Akureyri (225-4640), þingl. eig. Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Höfðhverfinga, föstu- daginn 29. september 2006 kl. 10.00. Strandgata 49, geymsla 02-0105, Akureyri (225-4641), þingl. eig. Björgvin Ólafsson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Höfðhverfinga, föstu- daginn 29. september 2006 kl. 10.00. Tunga, Svalbarðsstrandarhreppi , þingl. eig. Haukur Laxdal Baldvins- son, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Akureyri, föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Þingvallastræti 18, Akureyri (215-1850), þingl. eig. Anna Kristín Hans- dóttir, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., föstudaginn 29. september 2006 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 25. september 2006. Eyþór Þorbergsson, ftr. Styrkir KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is Menningarstarf í Kópavogi • Lista- og menningarráð Kópavogs aug- lýsir eftir umsóknum um styrki til verk- efna /viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi. Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir geta sótt um styrki úr sjóðnum. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum um- sóknareyðublöðum fyrir 9. október nk., ásamt fylgiskjölum. Eyðublöðin fást á skrifstofu Tómstunda- og menningarsviðs Fannborg 2, 2. hæð og á heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is Lista- og menningaráð Kópavogs veitir styrki til menningarstarfs í Kópavogi tvisvar á ári, í október og apríl. Tilkynningar Efling - stéttarfélag Fulltrúakjör til ársfundar Alþýðusambands Íslands Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör fulltrúa á ársfund Alþýðusambands Íslands sem haldinn verður í Reykjavík dagana 26. og 27. október 2006. Tillögur vegna ársfundar Alþýðusambands Íslands með nöfnum 50 aðalfulltrúa og jafn- mörgum til vara, ásamt meðmælum 120 full- gildra félagsmanna, skulu hafa borist skrifstofu Eflingar-stéttarfélags fyrir kl. 12.00 miðvikudag- inn 4. október nk. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags. Félagslíf  Hamar 6006092619 I Fjst.  EDDA 6006092619 I Fjhst. I.O.O.F. Rb. 1  1569268- Raðauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR SIF Ríkharðsdóttir varði doktorsritgerð sína í almennri bók- menntafræði og ensku við Washington University í St. Louis í Bandaríkjunum 12. apríl síðastliðinn. Rit- gerðin ber heitið „Cultural Transform- ations in Medieval Translations: French into Norse and Eng- lish.“ Doktorsrannsóknin beindist að því að skoða hvernig þjóð- félagsleg gildi og skilningur á samfélaginu birtast og lýsa sér í þeim bókmenntaverkum sem sköpuð eru innan hvers menn- ingarheims. Í ritgerðinni voru forn- enskar og fornnorskar þýðingar á fornfrönskum bók- menntum skoðaðar með það í huga að kanna hvaða áhrif inn- lendar bókmennta- hefðir og samfélags- skilningur höfðu á endursköpun franskra verka á Englandi og Norðurlöndum á síð- miðöldum og hvort hægt væri að rekja slíka útbreiðslu í ljósi textalegra hliðstæðna og samlíkinga. Með því að skoða þær breytingar sem verða þegar textar eru fluttir á milli menningarsvæða má greina ákveðin þjóðfélagsleg við- horf, hefðir, og þá hugmyndafræði sem mótar hvert samfélag fyrir sig. Þau hegðunarmynstur sem þá birt- ast auka skilning okkar á menn- ingu og hugmyndaheimi miðalda- manna. Í rannsókninni voru samfélög lesenda (reading communitites) af- mörkuð, þ.e. sá hópur lesenda og áheyrenda sem búa yfir ákveðinni sameiginlegri bókmenntahefð og þekkingu sem mótar síðan nýsköp- un bókmenntaverka og skilning á þeim. Innan hvers málasvæðis geta mörg slík samfélög verið til, þá sér- staklega í þeim þjóðfélögum þar sem margar stéttir lifa saman sem og mörg þjóðarbrot með eigin hefð- ir og sögu. Þær breytingar sem eiga sér stað þegar bókmenntaverk eru endursköpuð eða þýdd frá öðr- um mála- eða menningarsvæðum bera þarafleiðandi vitni um þá þætti sem móta hið nýja samfélag, þ.e. tungumál, bókmenntahefðir og félagsleg gildi. Þá var hugtakið „menningarleg heimsvaldastefna“ (cultural imperialism) einnig rann- sakað í ljósi áhrifa hins ríkjandi franska hámenningarheims á nær- liggjandi þjóðsvæði, segir í frétt um doktorsvörnina. Foreldrar Sifjar eru Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur, og Ida Sveinsdóttir, lífeindafræðingur. Sif lauk BA prófi í bókmenntafræði og íslensku frá Háskóla Íslands 1996 og MA prófi í bókmennta- fræði og þýsku frá University of North Carolina at Chapel Hill 1998. Hún kenndi þýsku og ítölsku við University of North Carolina og bókmenntir við Washington University. Hún kennir nú bók- menntafræði við Háskóla Íslands. Sif er gift Alexander Picchietti sér- fræðingi í fjarskiptamálum og eiga þau tvö börn, Tjörva 5 ára og Sess- elju 3 ára. Doktor í bókmenntafræði og ensku Sif Ríkharðsdóttir DEILDARRÁÐ læknadeildar Há- skóla Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: „Í samstarfi við heilbrigðisvís- indadeildir Háskóla Íslands mynd- ar Landspítali – háskólasjúkrahús stærsta mennta- og rannsóknaset- ur landsins í heilbrigðisvísindum þar sem um 1000 nemendur fá starfsmenntun árlega. Starfsmenn sjúkrahússins þurfa því í daglegum störfum sínum að samflétta klín- íska þjónustu við sjúklinga, mennt- un heilbrigðisstétta og rannsókna- vinnu sem er undirstaða þróunar heilbrigðisþjónustunnar. Starfsemi Landspítala – háskóla- sjúkrahúss er nú margskipt og dreifð víða um borgina og telja má að orsakir margra þeirra vanda- mála sem við er að etja í dag felist í óhagræði þessarar dreifingar. Deildarráð læknadeildar telur afar þýðingarmikið fyrir þjóðina að byggt verði nýtt háskólasjúkrahús sem fyrst, svo unnt verði að ljúka sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík og hvetur til samstöðu allra innan sem utan Landspítala – háskólasjúkrahúss um uppbygg- ingu háskólaskólasjúkrahússins og heilbrigðisvísindadeilda á einum stað. Deildarráð hvetur jafnframt til þess að sú þekking og aðstaða, sem fyrir hendi er utan Landspítala – háskólasjúkrahúss, verði einnig nýtt við klíníska kennslu, þjálfun og rannsóknir nemenda í heilbrigð- isvísindagreinum.“ Hvetja til samstöðu um nýjan spítala Í KVÖLD, þriðjudaginn 26. sept- ember kl. 20, verður fræðslufundur í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands við Sturlugötu, þar sem rætt verður um tryggingamál þeirra sem veikjast af krabbameini. Fundarboðendur eru sjö stuðn- ingshópar krabbameinssjúklinga og aðstandenda: Góðir hálsar, Kraftur, Ný rödd, Samhjálp kvenna, Stóma- samtökin, Stuðningshópur kvenna með krabbamein í eggjastokkum og Styrkur. Vilhelmína Haraldsdóttir læknir verður fundarstjóri. Rannveig Bjarnfinnsdóttir leik- skólakennari segir frá reynslu sinni af því að vera tryggð og Páll Jens Reynisson verkfræðinemi ræðir um reynslu sína af því að vera ótryggð- ur, Margrét Jónsdóttir félagsráð- gjafi og forstöðumaður þjónustu- miðstöðvar Tryggingastofnunar ríkisins fjallar um öryggisnet al- mannatrygginga og Bjarni Krist- jánsson forstöðumaður sölu og þjónustu hjá KB líf hf. kynnir sjón- armið tryggingafélags. Í lokin verða umræður með þátttöku frum- mælenda. Fundurinn er meðal annars hald- inn vegna umræðna í fjölmiðlum í sumar um að þeir sem hafa farið í meðferð vegna krabbameins eigi ekki kost á að fá sjúkdómatrygg- ingar og líftryggingar. Áður en fundurinn hefst og að honum loknum verða veittar upp- lýsingar um stuðningshópana og starf þeirra. Fundurinn er ætlaður öllum sem vilja fræðast um mál- efnið og hópana. Eru tryggingar ekki fyrir alla?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.