Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 42

Morgunblaðið - 26.09.2006, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ er nýjasta Disney-myndin Óbyggðirnar (The Wild) sem sit- ur í fyrsta sæti listans yfir mest sóttu myndir síðustu helgar. Kvikmyndin er bæði sýnd með ís- lensku og ensku tali og rúmlega 3 þúsund Íslendingar, ungir sem aldnir, skemmtu sér á henni um helgina. Christof Wehmeier hjá Sambíó- unum segir að fullt sé út úr dyr- um á öllum barna- og fjölskyldu- sýningum og að krakkarnir láti vel af, enda sé myndin virkilega skemmtileg og vel teiknuð. Í öðru sæti er einnig að finna nýja mynd, John Tucker Must Die. Hér er um að ræða gam- anmynd um þrjár vinkonur sem standa saman í að hefna sín á fyrrverandi kærasta. Rúmlega 2.200 bíógestir sóttu myndina sem skartar Sophiu Bush úr One Tree Hill í aðalhlutverki. Í þriðja sæti er það svo „deit“- mynd ársins eins og segir í aug- lýsingu eða Step Up. Myndin fell- ur um eitt sæti á milli vikna en heildarfjöldi gesta er orðinn ná- lægt 12 þúsundum sem verður að teljast nokkuð gott og er þar með næstmest sótta mynd topp 10 listans á eftir Clerks 2 en þá mynd hafa rúmlega 18 þúsund bíógestir sótt. Það er svo hasarmyndin Crank með hinum eitursvala Jason Stat- ham í aðalhlutverki sem situr í fjórða sætinu. Tæplega 1.500 manns sóttu þá mynd um helgina. Fjórðu frumsýningarmynd síð- ustu helgar The Alibi tekst hins vegar ekki að komast inn á topp 10 listann og endar í 14. sæti. Myndin skartar þeim Rebeccu Romijn og Steve Coogan í aðal- hlutverkum en myndin er aðeins sýnd í Sambíóinu Álfabakka. Kvikmyndir | Vinsælustu kvikmyndirnar á Íslandi Óbyggðirnar kalla                    ! "# $%  ' (   )* &* +* ,* -* .* /* 0* 1* )2*             Reuters Teiknimynd Óbyggðirnar (The Wild) eru í fyrsta sæti bíólistans yfir vin- sælustu myndir síðustu helgar á Íslandi. HINIR sívinsælu Asnakjálkar (Jac- kass) náðu toppsætinu um helgina í Bandaríkjunum með annarri mynd sinni og skutu þar með bardaga- mynd Jets Li ref fyrir rass. Í mynd- inni gefur meðal annars að líta þá félaga reka hvor annan með eldi- brandi og þá fær einn asnakjálkinn blóðsugu í augað. Keyptu bíógestir helgarinnar miða á myndina fyrir um 28 milljónir dala. Toppmynd síðustu helgar Grid- iron Gang með Dwayne „The Rock“ Johnson hafnaði í þriðja sæti en sú kvikmynd er byggð á sönnum at- burðum þar sem hópur vandræða- unglinga kemst á beinu brautina við að spila bandarískan ruðnings- bolta. Flugásamyndin Flyboys hafnaði í fjórða sæti eftir sýningar helg- arinnar en þar er á ferðinni stríðs- mynd sem gerist í fyrri heimsstyrj- öldinni. Teiknimyndin Everyone’s Hero er svo að finna í fimmta sæti. Mynd- in fjallar um ungan strák sem ferðast þvert yfir Bandaríkin til að skila kylfu hafnaboltahetjunnar Babe Ruth. Myndinni var leikstýrt af Christopher Reeve heitnum. Í sjöunda sæti er svo að finna vonbrigði vikunnar en það er kvik- myndin All the Kinǵs Men með Sean Penn í aðalhlutverki. Kvik- myndin hefur fengið afleita dóma hjá gagnrýnendum þar vestra og á opnunarhelginni tók myndin ekki nema 3,8 milljónir dala í kassann. Bjuggust framleiðendur mynd- arinnar við að sú tala yrði að minnsta kosti helmingi hærri, sér í lagi þar sem myndin skartar stór- stjörnum á borð við Jude Law og Kate Winslet í aukahlutverkum. Þegar aðsókn síðustu þriggja helga er miðuð við sama tíma á síð- asta ári er árangurinn í ár 6 milljón dölum lakari. Hins vegar jókst að- sókn á milli vikna nú um 52%. Asnakjálkar á toppnum Topp 10 listinn 1. Jackass Number Two 2. Jet Li’s Fearless 3. Gridiron Gang 4. Flyboys 5. Everyone’s Hero 6. The Black Dahlia 7. All the King’s Men 8. The Covenant 9. The Illusionist 10. Little Miss Sunshine Reuters Kjánar Mynd Asnakjálkanna vekur lukku meðal Bandaríkjamanna. Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar í Bandaríkjunum Eins og fjölmiðlar greindu fráhélt Hugo Chavez, forseti Venesúela, berorða ræðu frammi fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dög- unum, þar sem hann úthúðaði George W. Bush Bandaríkja- forseta. Í ræðu sinni sýndi Chavez fundargestum, og um leið heim- inum öllum, eintak af bók eftir hinn virta rithöfund, málfræðing og stjórnmálarýni Noam Chomsky og mælti sterk- lega með því að bandaríska þjóðin kynnti sér efni bókarinnar. Bókin hefur enska titilinn Hegemony or Survival: America’s Quest for Glo- bal Dominance og er, eins og vænta má, sérlega gagnrýnin á utanrík- isstefnu Bandaríkjanna. Áhrif ræðu Chavez voru slík að bók Chomskys selst nú sem aldrei fyrr. Var bókin í 26.000. sæti á sölulista vefbókasölunnar vinsælu Amazon.com, en eftir ræðuna stökk bókin rakleiðis í 1. sæti. Vinsælasta bókin á sölulista Amazon áður en bók Chomskys komst í fréttirnar var bókin The Greatest Story Ever Sold: The Decline and Fall of Truth from 9/11 to Katrina eftir greinahöfundinn Frank Rich, en sú bók er sömuleið- is sérlega gagnrýnin á bandarísk stjórnmál og samfélag. Samfélagsgagnrýni virðist eiga upp á pallborðið hjá viðskiptavinum Amazon því í þriðja sæti metsölu- listans er Letter to a Chistian Na- tion eftir Sam Harris sem gagn- rýnir þar kristin trúargildi Bandaríkjanna. Fólk folk@mbl.is RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 30/9 kl. 14 Sun 1/10 kl. 14 Sun 8/10 kl. 14 Sun 15/10 kl. 14 VILTU FINNA MILLJÓN? Lau 30/9 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20 Fös 13/10 kl. 20 Sun 15/10 kl. 20 FOOTLOOSE Fim 28/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 UPPS. Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20 HVÍT KANÍNA Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt verk eftir hópinn. Mið 27/9 kl. 20 Fim 28/9 kl. 20 Fös 29/9 kl. 20 Lau 30/9 kl. 20 BANNAÐ INNAN 16 ÁRA. Engum hleypt inn án skilríkja. FRÍTT FYRIR 12 ÁRA OG YNGRI Börn 12 ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum* *Gildir ekki á söngleiki og barnasýnin- gar. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is MEIN KAMPF Mið 27/9 kl. 20 UPPS. Fös 29/9 kl. 20 Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20 Lau 14/10 kl. 20 ÁSKRIFTARKORT Endurnýjun áskriftarkorta stendur yfir! 5 sýningar á 9.900 kr. Mein Kampf e. George Tabori Amadeus e. Peter Shaffer Fagra veröld e. Anthony Neilson Dagur vonar e. Birgi Sigurðsson Söngleikurinn Grettir e. Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin Eldjárn og Egil Ólafsson Lík í óskilum e. Anthony Neilson Ronja ræningjadóttir e. Astrid Lind- gren Viltu finna milljón? e. Ray Cooney Belgíska Kongó e. Braga Ólafsson Manntafl e. Stefan Zweig Alveg brilljant skilnaður e. Geraldine Aron Íslenski dansflokkurinn og margt, margt fleira. Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is www.leikfelag.is 4 600 200 Kortasala í fullum gangi! Áskriftarkort er ávísun á góðan vetur. Vertu með! Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu Lau. 30.sept. kl. 14 3.kortasýn. - UPPSELT Lau. 30. sept. kl. 15 Aukasýning - nokkur sæti laus Sun. 1. okt. kl. 14 4.kortasýn. - UPPSELT Sun. 1. okt. kl. 15 Aukasýning - UPPSELT Sun. 1. okt. kl. 16 Aukasýning - UPPSELT Sun. 8. okt. kl. 17 5.kortasýn. - örfá sæti laus Sun. 15. okt. kl. 14 Næstu sýningar: 15/10, 22/10, 29/10 Mike Attack - sýnt í Rýminu Fös. 29.sept. kl. 21 1.kortasýn. - örfá sæti laus Lau. 30.sept. kl. 21 2.kortasýn. Næstu sýningar: 05/10, 06/10, 12/10, 13/10, 14/10 Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. BROTTNÁMIÐ ÚR KVENNABÚRINU - eftir W. A. Mozart Frumsýning fös. 29. sep. kl. 20 2. sýn. sun. 1.okt. kl. 20 – 3. sýn. fös. 6. okt. kl. 20 – 4. sýn. sun. 8. okt . kl. 20 5. sýn. fös. 13. okt. kl. 20 - 6. sýn. sun. 15. okt. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Kynning fyrir sýningu í boði Vinafélags íslensku óperunnar kl. 19.15 Námskeið um Mozart og Brottnámið úr kvennabúrinu hjá EHÍ hefst 3. október. Skráning í síma 525 4444 – endurmenntun@hi.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.