Morgunblaðið - 26.09.2006, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.09.2006, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ menning Sumarbústaður í Snæfoksstaðalandi við Vaðnes Glæsilegt útsýni – Mikill gróður Þessi fallegi sumarbústaður er til sölu. Bústaðurinn stendur í landi Skógræktarfélags Árnes- sýslu við Vaðnes í um 45 mín. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hann er að mestu leyti á einni hæð en auk þess er steyptur kjallari undir hluta bústaðarins. Á 1. hæð er m.a. stór stofa, eldhús, bað, 3 herbergi, forstofa o.fl. Í kjallara er inntak fyrir hitaveitu, geymslurými o.fl. Við bústaðinn er sólpallur (sólpallar) um 150 fm að stærð og þar er heitur pottur og dúkkuhús. Öll húsgögn í bústaðnum fylgja. Bústaðurinn stendur á 11.000 fm gróinni lóð sem er vaxin miklum birkigróðri, grenitrjám, öspum, furu, lerki o.fl. Glæsilegt útsýni m.a. yfir Hvítá og land Skógræktarinnar. (Bústaðurinn stendur milli 2ja golfvalla í um 5-15 mín. akstursfjarlægð). Stjörnuskoðunarturn við bústaðinn getur fylgt. Þessi sumarbústaður stendur á einu eftirsótt- asta sumarbústaðasvæði sunnanlands. Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Bubbi og Bill Á ÉG AÐ VERA FANGI HJÁ INDJÁNUM? © DARGAUD JÁ, OG ÉG VERÐ INDJÁNINN! OG BUBBI VERÐUR HJÁ ÞÉR TIL ÞESS AÐ VERNDA ÞIG! ÉG ER MEÐ MIKLU BETRI HUGMYND... HEYRÐU, NEI! VIÐ SKULUM FREKAR SPYRJA BUBBA. HANN ÁKVEÐUR HVAÐ VIÐ GERUM! EF ÞÚ VERÐUR MEÐ MÉR ÞÁ SKAL ÉG GEFA ÞÉR SYKURMOLA VOFF PSST! HVAÐ SAGÐIRÐU EIGINLEGA VIÐ ÞENNAN SVIKARA? AÐ PABBI MINN VÆRI KJÖTKAUP- MAÐUR! Risaeðlugrín © DARGAUD ÞAÐ ER BEST AÐ VERA BARA ÞOLINMÓÐUR! Með þessum fundi viljumvið vekja athygli á ogkalla á opna umræðuum tryggingamál fólks sem veikst hefur af alvarlegum sjúk- dómum á borð við krabbamein,“ seg- ir Páll Jens Reynisson, einn af að- standendum fundarins Eru trygg- ingar ekki fyrir alla? sem haldinn verður í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, í dag, þriðjudag, kl. 20. „Það er nær ófrávíkjanleg vinnu- regla hjá íslenskum tryggingafélög- um að hafi einstaklingur veikst af sjúkdómi á borð við krabbamein get- ur hann hvorki fengið sjúkdóma- tryggingu né líftryggingu hjá félag- inu. Gildir einu þótt sjúklingurinn hafi náð fullum bata og þverrandi líkur séu á að sami sjúkdómur taki sig upp aftur. Þess þekkjast aðeins sárafá dæmi að tekist hafi að ná samkomulagi á þá leið að tryggt er fyrir öðrum sjúkdómum en þeim sem hugsanlega gæti tekið sig upp að nýju.“ Að fundinum standa stuðnings- hópar innan Krabbameinsfélags Ís- lands: Góðir hálsar, Kraftur, Ný- rödd, Samhjálp kvenna, Stoma samtökin, Styrkur og Stuðnings- hópur kvenna með krabbamein í eggjastokkum. Fyrst tekur til máls Rannveig Bjarnfinnsdóttir úr Krafti sem fjallar um reynslu sína af að vera með réttar tryggingar þegar alvar- leg veikindi bar að. Næstur mun Páll Jens segja frá hlutskipti þess sem veikist alvarlega en er ekki tryggð- ur, og að erindi hans loknu mun Margrét Jónsdóttir, félagsráðgjafi hjá Tryggingastofnun, fjalla um það öryggisnet sem almannatryggingar veita. Að endingu mun Bjarni Kristjáns- son, forstöðumaður sölu og þjónustu KB-Líf hf., greina frá sjónarmiðum tryggingafélaganna. „Okkur þykir mjög vænt um hans innlegg, því hingað til hafa trygg- ingafyrirtækin ekki viljað ræða um þessi mál, en umræða er nauðsynleg svo finna megi lausn sem allir geta fallist á,“ segir Páll. Sjálfur greindist Páll með krabba- mein í kviðarholi á 17. aldursári, og segir hann stuðning Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna verið bæði honum og aðstandendum hans ómetanlegur meðan á veikindunum stóð. Um var að ræða sérstaka gerð krabbameins sem engar líkur eru á að taki sig upp að nýju í Páli, en engu að síður meina trygginga- félögin honum að kaupa sér líf- eða sjúkdómatryggingu: „Þetta er ein- staklingum í minni stöðu mikið kappsmál, því ef veikindi koma upp duga greiðslur almannatrygginga skammt og nægja í fæstum tilvikum til að sjúklingurinn geti áfram fram- fleytt fjölskyldu sinni. Gefur auga- leið að þegar fólk er komið með hús, bíl, maka og börn, skiptir sköpum að geta keypt viðbótartryggingu sem komið getur í veg fyrir að allt fari í óefni komi upp alvarleg veikindi,“ segir Páll: „Við vitum að tryggingar- félögin ráða sjálf vinnureglum sín- um, og leggjum því áherslu á að málsaðilar komi saman og leitist við að finna sameiginlega lausn sem allir geti unað við.“ Fundurinn í dag er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Nánari upplýs- ingar er að finna á www.kraftur.org. Heilsa | Fundur um tryggingamál krabba- meinssjúklinga í Öskju í dag kl. 20 Eru tryggingar ekki fyrir alla?  Páll Jens Reynisson fædd- ist 1981 og ólst upp í Hafnardal við Ísafjarðar- djúp. Hann lauk stúdentsprófi frá FNV 2002 og leggur nú stund á nám í véla- og iðnaðarverkfræði við HÍ. Páll er ritari Vélarinnar og hefur með námi m.a. starfað sem mælinga- maður. Foreldrar Páls eru Reynir Snæfeld Stefánsson og Ólöf Brynja Jónsdóttir. Hlíðasmára 11, Kóp. sími 517 6460 www.belladonna.is Réttu stærðirnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.