Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
þriðjudagur 3. 10. 2006
íþróttir mbl.isíþróttir
Fulham hafnaði góðu tilboði í Heiðar Helguson >> 3
BARÁTTUGLAÐIR
LETTAR HAFA VALIÐ LANDSLIÐSHÓP SINN SEM TEKUR
Á MÓTI ÍSLENDINGUM Í RIGA Á LAUGARDAGINN >> 4
,,Ég fann fyrir þessu í leiknum við
Valladolid og gat ekki spilað á móti
Teka í deildinni í síðustu viku og
heldur ekki Evrópuleikinn á móti
Pick Szeged. Ég held að þetta séu
ekki alvarleg meiðsli en líklega mun
ég hvíla þessa vikuna. Það er eitt-
hvað klemmt inni í öxlinni en ef
þetta lagast ekki fer ég myndatöku,“
sagði Ólafur við Morgunblaðið.
Ciudad Real hóf titilvörnina í
Meistaradeildinni með sigri á ung-
verska liðinu Pick Szeged á útivelli,
20:25, um helgina en liðið mætir Al-
geciras í deildinni annað kvöld og
leikur við svissneska liðið Schaffhau-
sen í Meistaradeildinni á heimavelli
um næstu helgi. Ólafur reiknar ekki
með að spila þessa tvo leiki vegna
meiðslanna.
Athygli hefur vakið að þjálfari
Ciudad Real, Talant Dujshebaev,
hefur tekið fram skóna að nýju en
þessi frábæri handknattleiksmaður,
sem lagði skóna á hilluna fyrir síð-
ustu leiktíð og tók við þjálfun liðsins,
hefur spilað síðustu tvo leiki liðsins.
,,Hann ákvað að koma inn í þetta
eftir að miðjumaðurinn Uros Zorm-
an sleit krossband í hné og verður
ekki með okkur fyrr en í mars. Dujs-
hebaev ákvað bara að skella sér í
skóna aftur í stað þess að fá ein-
hvern útlending. Hann gjörþekkir
liðið og öll kerfin og er bara í fanta
formi enda æfir hann alltaf eins og
skepna,“ sagði Ólafur, sem er fyr-
irliði íslenska landsliðsins.
Eiður stendur sig vel
Fyrirliði knattspyrnulandsliðsins,
Eiður Smári Guðjohnsen, hefur gert
það gott með Barcelona og segist
Ólafur hafa orðið var við það. ,,Eiður
stendur sig vel og það er gaman að
sjá hvað hann smellur vel inn í þetta
frábæra lið,“ sagði Ólafur sem
skellti sér á Santiago Bernabeu,
heimavöll Real Madrid, í fyrradag
og sá Madridarliðin Real Madrid og
Atletico Madrid gera 1:1 jafntefli.
22. þessa mánaðar er risaslagur
Real Madrid og Barcelona á San-
tiago Bernabeu. Ólafur sagðist því
miður ekki geta farið á þann leik þar
sem Ciudad Real á leik þessa sömu
helgi gegn svissneska liðinu Kadet-
ten Schaffhausen í Meistaradeild-
inni.
Öxlin að
angra Ólaf
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skyttan Ólafur Stefánsson skorar úr hraðaupphlaupi í leik gegn Norðmönnum á EM í Sviss.
ÓLAFUR Stefánsson, fyrirliði
landsliðsins í handknattleik, hefur
ekki getað leikið tvo síðustu leiki
spænska liðsins Ciudad Real vegna
meiðsla í öxl. Þess má geta að Ólaf-
ur var nýbúinn að jafna sig af há-
sinarmeiðslum þegar hann meidd-
ist í öxlinni. Talant Dujshebaev,
þjálfari liðsins, hefur ákveðið að
láta Ólaf hvíla sig á meðan hann er
að jafna sig – vill ekki tefla á tvær
hættur, að meiðsli Ólafs verði al-
varlegri en þegar er orðið.
„Ef þetta lagast ekki fer ég í mynda-
töku,“ sagði Ólafur Stefánsson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
RUUD van Nistelrooy, fram-
herji Real Madrid og Mark
van Bommel, miðjumaður hjá
Bayern München, afþökkuðu
sæti í hollenska landsliðinu
fyrir leiki þess gegn Búlgör-
um og Albönum í undan-
keppni EM sem fram fara 7.
og 11. október.
Van Bommel var valinn í 20
manna hóp sem Marco van
Basten landsliðsþjálfari Hol-
lendinga tilkynnti fyrir helgi,
þrátt fyrir að Van Basten
hefði sagt
eftir HM í
sumar að
hann ætti
enga fram-
tíð með
landslið-
inu. Van
Nistelrooy
var hins
vegar ekki
valinn í
hópinn en leitað var til hans
eftir að ljós kom að Klaas Jan
Huntelaar getur ekki tekið
þátt í leikjunum vegna
meiðsla. ,,Van Bommel ætlar
ekki að spila með hollenska
landsliðinu undir stjórn
þeirra manna sem eru þar í
dag,“ segir í tilkynningu frá
Van Bommel. Basten hafði
samband við Van Nistelrooy
og óskaði eftir því að fá hann í
hópinn. Eins og við mátti bú-
ast afþakkaði Van Nistelrooy
en hann hefur gagnrýnt þjálf-
arateymi landsliðsins.
Ruud van
Nistelrooy
Van Nistelrooy og Van
Bommel sögðu; Nei!
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
JALIESKY Garcia, hand-
knattleiksmaður hjá Göppin-
gen í Þýskalandi, varð fyrir
þeirri ólukku að slíta kross-
band í öðru hné á æfingu á
föstudag. Gengst Garcia undir
aðgerð á morgun og er reikn-
að með að hann verði að
minnsta kosti sex mánuði frá
keppni. Þar af leiðandi verður
Garcia ekki með íslenska
landsliðinu á heimsmeistara-
mótinu sem fram fer í Þýska-
landi í lok janúar og í byrjun
febrúar á næsta ári og er
skarð fyrir skildi þar sem
Garcia er sterkur varnarmað-
ur auk þess sem hann hefur
verið atkvæðamikill í sóknar-
leik Göppingen í haust.
Þetta er mikið áfall fyrir
Göppingen sem hefur byrjað
afar vel í þýsku 1. deildinni.
Það vann fyrstu fimm leiki
sína en tapaði á sunnudags-
kvöldið fyrir Magdeburg.
Þetta verður þriðja stórmótið
í röð sem Garcia missir af með
íslenska landsliðinu. Hann var
ekki með á HM í Túnis 2004
vegna andláts móður sinnar.
Þegar kom að EM í Sviss í
byrjun þessa árs var Garica
tábrotinn. Eftir að hafa jafnað
sig á tábrotinu í vor þá rist-
arbrotnaði Garcia og missti
þar af umspilsleikjunum við
Svía í júní en í þeim tryggði
Ísland sér sæti á HM.
Garcia frá keppni í sex
mánuði og missir af HM
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Menning 16, 40/44
Veður 8 Leikhús 42
Staksteinar 8 Umræðan 28/30
Úr verinu 12 Forystugrein 26
Viðskipti 13 Viðhorf 28
Erlent 14/15 Minningar 32/37
Akureyri 18 Dagbók 44/49
Austurland 18 Víkverji 48
Suðurnes 19 Velvakandi 48
Landið 19 Staðurstund 46/47
Daglegt líf 20/25 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Alþingi Íslendinga, 133. löggjaf-
arþing var sett í gær, en þingið verð-
ur óvenjustutt vegna komandi þing-
kosninga, og verður því frestað 15.
mars nk. Sólveig Pétursdóttir var
endurkjörin forseti Alþingis. » 11
Framlög ríkisins til samgöngu-
mála aukast verulega á næsta ári, að
því er fram kemur í fjárlögum fyrir
árið 2007, sem kynnt voru í gær.
Gert er ráð fyrir því að 18,7 millj-
ónum króna verði varið til vegamála,
og að vegaframkvæmdir verði um
55,5% af heildarfjárfestingu ríkisins
á árinu. » 10
Fyrsta vélasamstæða Hellisheið-
arvirkjunar hóf stöðuga framleiðslu
á sunnudag. Fara nú 45 MW af raf-
orku frá virkjuninni inn á kerfi
Landsnets hf. Stefnt er að því að
næsta vélasamstæða verði komin í
notkun eftir þrjár vikur. » 1
Erlent
Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra
Suður-Kóreu, styrkti í gær stöðu
sína sem líklegasti eftirmaður Kofis
Annans, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, þegar hann fékk
14 „hvetjandi“ atkvæði og eitt hlut-
laust í óformlegri kosningu örygg-
isráðs SÞ. » 1
Rúmlega þrítugur maður skaut
þrjár stúlkur til bana og tók síðan
eigið líf í litlum skóla í eigu Amish-
fólks í bænum Nickel Mines í Penn-
sylvaníu í Bandaríkjunum í gær. Sjö
stúlkur voru fluttar mjög særðar á
spítala og lést ein þeirra af skotsár-
um skömmu síðar. »1
Yfirvöld í Georgíu slepptu í gær
fjórum rússneskum herforingjum
sem höfðu verið handteknir og sak-
aðir um njósnir í landinu. Fyrr um
daginn ákváðu rússnesk stjórnvöld
að loka öllum samgönguleiðum milli
landanna vegna deilunnar. » 14
Stjórn Austurríkis féll um
helgina eftir að jafnaðarmenn fengu
flest greiddra atkvæða í þingkosn-
ingunum á sunnudag.
Kosningarnar voru einhverjar þær
tvísýnustu í sögu landsins. » 14
Efna þarf til annarrar umferðar
forsetakosninganna í Brasilíu eftir
að Luiz Inacio Lula da Silva forseta
mistókst að ná hreinum meirihluta
atkvæða í fyrstu umferðinni um
helgina. » 14
Viðskipti
Verðbólga verður 4,5% á næsta
ári ef þjóðhagsspá fjármálaeftirlits-
ins, sem kynnt var í gær, gengur eft-
ir. Spáir ráðuneytið að hagvöxtur
næsta árs verði 1,0% og 2,6% á árinu
2008. Viðskiptahallinn verði 18,7%
af vergri landsframleiðslu í ár en
muni minnka hratt og verði 10,7% á
árinu 2007. Þá er tekjuafgangur rík-
issjóðs á næsta ári áætlaður 15,5
milljarðar króna samkvæmt fjár-
lögum.
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
RÓIÐ er nú öllum árum að því að
tryggja áframhaldandi verslunar-
rekstur í Grímsey, að sögn Dónalds
Jóhannessonar skólastjóra. Hann
segir að ein fjölskylda á staðnum hafi
verið að íhuga alvarlega að taka að
sér reksturinn en endanlegt svar
liggi ekki fyrir.
Dónald skipulagði fjölmennan
borgarafund í Grímsey á dögunum
þar sem rætt var um þá stöðu sem
upp er komin þar, en rekstraraðilar
Grímskjara, einu matvöruverslunar-
innar á staðnum, hafa tilkynnt að
rekstri hennar verði hætt.
Nærri því allir íbúar Grímseyjar
mættu á borgarafundinn enda tekur
fjóra tíma að sigla eða hálftíma að
fljúga til Dalvíkur eða Akureyrar
þar sem næstu verslun er að finna.
Ljóst er því að búseta í eyjunni yrði
mun erfiðari ef verslunin legðist af.
Dónald segir að tvær vikur séu
þangað til að versluninni verði lokað
og allt kapp sé nú lagt á að fá heima-
menn til að taka verkið að sér. Hins
vegar séu eyjarskeggjar sammála
um að takist það ekki verði leitað til
verslana „á meginlandinu“ eins og
hann orðar það. Efasemdir séu hins
vegar uppi um að verslanakeðjur fá-
ist til að taka að sér rekstur á jafn fá-
mennu svæði og í Grímsey. „Þetta
væri þá í mesta lagi áhugamál hjá
einhverri keðjunni,“ segir Dónald og
bætir við að hann hafi raunar þegar
haft samband við eina verslana-
keðju. Hann bíði hins vegar eftir
svörum við hugmyndinni.
„Okkar félagsmiðstöð“
„Best væri hins vegar að fá heima-
fólk í þetta,“ segir Dónald sem telur
afar mikilvægt fyrir byggð í eyjunni
að matvöruverslun sé á staðnum.
„Mannlífið fer niður á leiðinlegra
stig ef verslunin fer,“ segir hann.
„Þetta er svo stór þáttur í samfélag-
inu að hafa verslun hér enda er þetta
í raun okkar félagsmiðstöð, hér hitt-
ast eyjarskeggjar og ræða saman á
meðan þeir kaupa í matinn.“
Grímseyingar íhuga
að taka að sér verslun
Hafa einnig leitað til aðila „á meginlandinu“
Í HNOTSKURN
»Tilkynnt var á dögunumað til stæði að loka Gríms-
kjörum, einu versluninni í
Grímsey, 15. október nk.
»Eigendur verslunarinnarhafa rekið verslunina í sex
ár en hætta rekstri af per-
sónulegum ástæðum.
»Heimamenn leggja miklaáherslu á að halda verslun
í eyjunni enda langt í næstu
verslun.
EHUD Barak, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels,
snæddi kvöldverð með Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands, að Bessastöðum á helsta hátíðisdegi gyð-
inga, yom kippur, sem haldinn var hátíðlegur í gær.
Barak var forsætisráðherra Ísraels frá maí 1999 til
mars 2001 en hann átti að baki langan feril í ísr-
aelska hernum áður en hann sneri sér að stjórn-
málum.
Ísraelskir stjórnmálamenn hafa ekki verið tíðir
gestir hér á landi en árið 1993 kom Shimon Peres,
þáverandi utanríkisráðherra Ísraels, í opinbera heim-
sókn hingað til lands.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Ólafur snæddi með Barak
BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja fól í
gær Elliða Vignissyni bæjarstjóra
að fara fram á það við heilbrigðis-
ráðuneytið að samningi við Lands-
flug um sjúkraflug verði tafarlaust
rift. Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á dögunum hefur Landsflug
þegar sagt upp samningnum með 9
mánaða fyrirvara.
Krafan kemur í kjölfar þess að
skýrsla starfshóps heilbrigðisráðu-
neytisins um sjúkraflugið var gerð
opinber, og segir í bókun bæjarráðs
að ljóst sé að verulegar vanefndir
hafi verið á framkvæmd samnings
um sjúkraflugið af hálfu Landsflugs.
Í ljósi þess hve alvarlegar afleiðingar
slíkar vanefndir geti haft fyrir líf og
heilsu þeirra sem þurfi að nota þjón-
ustuna ætti því að rifta samningnum.
Elliði staðfesti í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að hann hafi
þegar sent bréf til ráðuneytisins.
Ljóst sé að slíkar vanefndir hafi ver-
ið á samningi um sjúkraflugið að rétt
sé að rifta honum tafarlaust, og
semja við annan flugrekanda um að
sinna sjúkrafluginu, í stað þess að
bíða þess að uppsagnarfresturinn
renni út eftir 9 mánuði.
Hann segist ekki spá neinu um
viðbrögð ráðuneytisins, því beri
fyrst og fremst að huga að öryggi
þeirra sem þurfi á sjúkrafluginu að
halda, og hljóti þar með að hafa
áhyggjur af þeim vanefndum sem
verið hafi á framkvæmd samningsins
um sjúkraflugið.
Ríkið rifti samn-
ingi tafarlaust
KONAN sem
lést í umferðar-
slysi á Miklu-
braut aðfaranótt
sunnudags hét
Ragnheiður
Björnsdóttir, til
heimilis á
Kleppsvegi 126.
Ragnheiður
var 55 ára, fædd
10. júní 1951, og
lætur eftir sig sambýlismann og
uppkominn son.
Ragnheiður var á gangi á Miklu-
braut þegar slysið varð en hún
lenti fyrir bifreið á austurleið og
talið er að hún hafi látist sam-
stundis. Þetta var 21. banaslysið í
umferðinni það sem af er ári.
Ragnheiður
Björnsdóttir
Lést í um-
ferðarslysi á
Miklubraut
þriðjudagur 3. 10. 2006
bílar mbl.is
vinnuvélar
Fyrirtækið Sturlaugur & Co. hefur flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði » 12
KÓNGULÓ Í KÓPAVOGI
EIN SÉRSTAKASTA VINNUVÉL Á ÍSLANDI >> 40
SÉRHÆFÐ JEPPASALA HJÁ ARCTIC TRUCKS >> 6