Morgunblaðið - 03.10.2006, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lagt er til í fjárlagafrumvarpinu
að fjármálaráðherra fái heimild til
að kaupa hlut Reykjavíkurborgar
og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun.
Fjármálaráðherra óskar eftir
heimild Alþingis til að kaupa jarðir
vegna stækkunar þjóðgarðsins við
Snæfellsjökul.
Lagt er til að fjármálaráðherra
fái heimild til að selja hluta af land-
svæðum ríkisins við Litla-Hraun og
ráðstafa andvirðinu til endurbóta á
fangelsinu.
Framlag til Fornleifasjóðs verður
hækkað um 20 milljónir og verður
25 milljónir. Eftir sem áður þýðir
þetta verulega lækkun á framlagi
til fornleifarannsókna, en í ár varði
Kristnihátíðarsjóður um 60 millj-
ónum til fornleifarannsókna. Sjóð-
urinn hefur hætt starfsemi.
Framlög til þróunaraðstoðar
nema 993,7 milljónum króna á
næsta ári. Þetta er hækkun um
334,8 milljónir.
Í frumvarpinu er reiknað með að
tekjur Jarðasjóðs af sölu jarða í
eigu ríkisins verði 200 milljónir á
næsta ári, en í ár var reiknað með
að jarðasala skilaði 40 milljónum.
Dómsmálaráðuneytið áætlar að
kostnaður við alþingiskosningar á
næsta ári verði 57,7 milljónir.
Framlög til Landhelgisgæsl-
unnar hækka um 523 milljónir milli
ára og verða rétt rúmlega 2 millj-
arðar. Kostnaður við að efla þyrlu-
björgunarsveitina í kjölfar brott-
farar varnarliðsins er áætlaður 596
milljónir.
Lagt er til að varið verði 168
milljónum til fangelsisbygginga, en
þetta er hækkun um 118 milljónir
milli ára. Fjármagnið verður fyrst
og fremst notað til að ljúka end-
urbótum á fangelsinu á Akureyri
og Kvíabryggju.
Bætur vegna lífeyristrygginga
eru áætlaðar 41,3 milljarðar á
næsta ári og hækka um 7,5 millj-
arða. Í sumar var gert samkomulag
við samtök aldraðra um hækkun
bóta sem skýrir þessa hækkun að
stærstum hluta.
Verja á 19 milljónum til bifreiða-
kaupa fyrir Stjórnarráðið, en í ár
er 10 milljónum varið í þennan
fjárlagalið. Í frumvarpinu segir að
flestar ráðherrabifreiðirnar séu frá
2003 og 2004 og nauðsynlegt sé að
endurnýja þær.
Reiknað er með að tekjur ÁTVR
verði 17,4 milljarðar, en það er
hækkun um 800 milljónir milli ára.
Áætlað er að tekjur af sölu áfengis
aukist um 3%, en tekjur af sölu tób-
aks minnki um 2%.
Menntaskólinn í Borgarnesi fær
fjárveitingu á fjárlögum í fyrsta
skipti, 50 milljónir króna.
Gengið er út frá þeirri forsendu
að 20.085 nemendur stundi nám í
framhaldsskólum á næsta ári, en
það er fjölgun um rúmlega 1.000
nemendur milli ára. Rekstur skól-
anna mun kosta ríkissjóð rúmlega
15,6 milljarða á næsta ári, sem er
9,6% hækkun milli ára.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að áfram verði haldið undirbúningi
fyrir nýtt fangelsi, en ekki er gert
ráð fyrir framkvæmdum á næsta
ári.
Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
Landspítala – háskólasjúkrahúss
nemi 30,2 milljörðum króna á næsta
ári sem jafngildir 127,7 milljóna
króna hækkun frá fjárlögum þessa
árs. Er í frumvarpinu m.a. gert ráð
fyrir 50 milljóna króna fjárveitingu
til að efla mönnun við hjúkrun og
15 milljónum króna til að efla og
auka geðheilbrigðisþjónustu aldr-
aðra.
Framlag til Samskiptamiðstöðvar
heyrnarlausra og heyrnarskertra
hækkar um 4 milljónir króna fyrir
utan launa- og verðlagshækkanir
vegna aukins umfangs táknmáls-
túlkunar fyrir heyrnarlausa í dag-
legu lífi þeirra.
Veitt er tímabundið framlag að
fjárhæð 12,4 milljónir króna á ári
næstu sex ár til viðgerða á turni
Hallgrímskirkju eða samtals um 74
milljónir króna. Heildarkostnaður
er áætlaður 222 milljónir og er gert
ráð fyrir að ríki, borg og kirkjuráð
styrki framkvæmdina að jöfnu.
Molar
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Við höfum á undanförnumárum beitt aðhaldi, af-gangur ríkissjóðs hefurverið mikill og dregið var
úr framkvæmdum á vegum ríkisins,
en núna, þegar við sjáum fram á það
að stóriðjuframkvæmdum er að
ljúka, þá verður farið í hina áttina og
ríkissjóður mun þá auka umsvif sín og
hefur til þess fjármuni til reiðu.“
Þetta sagði Árni M. Mathiesen fjár-
málaráðherra er hann kynnti fjár-
lagafrumvarp ársins 2007 í gærmorg-
un. Ráðherra sagði að einkum yrðu
samgönguframkvæmdir auknar, þó
ekki í sama mæli á næsta ári og fyr-
irhugað var. Samtals er í frumvarp-
inu gert ráð fyrir 11 milljarða króna
lækkun útgjalda frá því sem áður var
ráðgert en á móti koma ófyrirséðir
útgjaldaliðir, t.d. kostnaður vegna
brotthvarfs varnarliðsins og sam-
komulags við eldri borgara.
Samdráttur í tekjum
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 15,5
milljarða króna tekjuafgangi á ríkis-
sjóði á næsta ári eða sem nemur 1,3%
af landsframleiðslu. Tekjuafkoman
verður samkvæmt þessu um 23 millj-
örðum króna betri en áætlað var í
langtímaáætlun sem fylgdi fjárlaga-
frumvarpi síðasta árs, en þá var
reiknað með 7,1 milljarðs króna halla.
Skýrist það aðallega vegna meiri
skatttekna af tekjum og hagnaði ein-
staklinga og fyrirtækja. Tekjuafkoma
næsta árs dregst þó talsvert saman
frá árinu 2006 í samræmi við spár um
minni hagvöxt.
„Við höfum verið að fara í gegnum
tvö gríðarlega mikil vaxtar- og veltu-
ár með tilheyrandi tekjum fyrir rík-
issjóð,“ sagði Árni. „Við gerum ráð
fyrir að það hægist á á næsta ári og
við verðum komin á jafnari grund.“
Áætlað er að handbært fé frá
rekstri verði rúmir 13 milljarðar
króna og lánsfjárafgangur rúmlega
16 milljarðar. Gert er ráð fyrir að rík-
issjóður greiði niður skuldir sem
nemur 25 milljörðum árin 2006 og
2007. Er áætlað að nettó skuldastaða
verði komin niður í 16% af landsfram-
leiðslu í lok næsta árs en hún var 46%
árið 1997.
„Það eru fá dæmi um viðlíka árang-
ur í ríkisfjármálum hjá öðrum vest-
rænum ríkjum undanfarinn áratug,“
sagði Árni. „Aðhaldið endurspeglast í
því að skuldir lækka og eignir í Seðla-
bankanum eru yfir 100 milljarðar
króna. Ég held ég geti næstum fullyrt
að ríkissjóður hefur aldrei átt 100
milljarða króna í Seðlabankanum.“
Útgjöld aukast um 9,8%
Gert er ráð fyrir að heildartekjur
ríkissjóðs verði 373,4 milljarðar
króna á næsta ári og lækki um 1,7
milljarð króna miðað við áætlaða út-
komu ársins 2006. Koma þar fram
áhrif minni umsvifa á næsta ári og að
einkaneysla dregst saman. Áætlað
er að skatttekjur lækki um 4,4 millj-
arða króna sem svari til lækkunar úr
31% í 29,2% af landsframleiðslu.
Heildarútgjöld ríkissjóðs eru áætl-
uð 357,8 milljarðar króna og aukast
þau um 31,8 milljarða frá áætlaðri út-
komu ársins 2006 eða um 9,8% eða
um 5% að raungildi miðað við al-
mennt verðlag. Áætlað er að útgjöld
verði 30,4% af landsframleiðslunni.
Rekstrargjöld aukast um 11 milljarða
eða 2%, mest vegna hjúkrunarheim-
ila, menntamála, öryggis- og lög-
reglumála auk samgöngumála vegna
brotthvarfs varnarliðsins, sem mun
kosta ríkissjóð 2 milljarða.
Aðgerðir til lækkunar útgjalda
Í frumvarpinu eru ýmsar aðgerðir
til að lækka útgjöld ríkissjóðs frá því
sem áður hafði verið ráðgert. Dregið
var úr áformuðum vexti rekstrar-
gjalda til helstu málaflokka þannig að
gert er ráð fyrir 2% minni vexti
þeirra á næsta ári en ráðgert var,
nema í mennta-, félags- og heilbrigð-
ismálum þar sem samdrátturinn
verður 1%. Samtals er í frumvarpinu
gert ráð fyrir 11 milljarða króna
lækkun útgjalda frá því sem áður var
ráðgert. Á móti hafa komið ný út-
gjaldatilefni sem ekki voru fyrirséð,
t.d. kostnaður vegna brotthvarfs
varnarliðsins, útgjöld vegna sam-
komulags við eldri borgara og hækk-
un launa í umönnunar- og hjúkrunar-
störfum.
Á næsta ári verða tekjuskattar ein-
staklinga lækkaðir um eitt prósentu-
stig og persónuafsláttur hækkaður
um tæp 11%. Skattleysismörk verða
eftir breytingarnar um 90 þúsund
krónur á mánuði og hafa þá hækkað
um 14%. Áætlaður tekjuskattur ein-
staklinga nemur skv. frumvarpinu 74
milljörðum króna sem er tæplega 4
milljarða króna lækkun frá árinu
2006. Hins vegar er gert ráð fyrir að
fjármagnstekjuskattur einstaklinga
aukist um 1 milljarð og skili 19 millj-
örðum króna.
Barnabætur hækka um 1,7 millj-
arða króna milli ára, m.a. vegna lækk-
unar skerðingarhlutfalla og að bæt-
urnar munu ná til 18 ára aldurs.
Áætlað er að útgjöld vegna almanna-
trygginga og þjónustu við aldraða
aukist um sjö milljarða króna á næsta
ári.
Áfram spáð stöðugleika
Tekjuafgangur ríkissjóðs sam-
kvæmt langtímaætlun verður 17,9
milljarðar á næsta ári ef ráðstöfun á
söluandvirði Símans er undanskilin.
Miðað við sömu forsendur verður af-
gangurinn 7,2 milljarðar árið 2008,
5,4 milljarðar 2009 og 8,8 árið 2010.
„Þetta sýnir okkur að staða ríkis-
sjóðs er góð og mun verða góð næstu
árin, þó auðvitað séu óvissuþættir í
þessu,“ sagði Árni. „En sú ályktun
sem hægt er að draga af þessu er að
það er svigrúm fyrir ríkissjóð til þess
að ráðstafa fjármunum sem nemur
einhverju í samhengi við þessar töl-
ur.“
Skoða beri t.d. áform um aðgerðir
til lækkunar matarverðs með þessar
tölur í huga sem og frekari skatta-
lækkanir, komi til þeirra. Áfram spáir
fjármálaráðuneytið stöðugleika í
efnahagsmálum og að verulega dragi
úr viðskiptahalla samhliða því að hag-
vöxtur lækkar í 1% árið 2007 en
hækkar síðan aftur í 2,5–3%.
Fjármunir til reiðu til að
auka umsvif ríkissjóðs á ný
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ánægður „Það eru fá dæmi um viðlíka árangur í ríkisfjármálum hjá öðrum vestrænum ríkjum undanfarinn ára-
tug,“ sagði Árni M. Mathiesen er hann kynnti blaðamönnum fjárlagafrumvarp ársins 2007 á Hótel Selfossi.
!" #
$ %
&%
'% (
!
"
!
$%&'
)
($&
$&)
*&%
) $&$
) )&+
)*&,
)
)+&,
)
))&)
-&'
) ($&
'$&$
$&$
)
(&(
%&(
FRAMLÖG ríkisins til samgöngu-
mála aukast verulega á næsta ári,
en þó ekki jafn mikið og áður var
ráðgert, að sögn Árna M. Mathie-
sen fjármálaráðherra. Áætlað er að
vegaframkvæmdir verði um 55,5%
af heildarfjárfestingu ríkisins á
árinu 2007. Samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu fyrir árið 2007 er gert
ráð fyrir að 18,7 milljörðum króna
verði varið til vegamála, 1,9 millj-
örðum til flugmála, 1,3 til siglinga-
mála og 242 milljónum króna til
póst- og fjarskiptamála.
Heildargjöld samgöngu-
ráðuneytisins eru áætluð um 23,2
milljarðar króna samanborið við 18
milljarða í ár. Viðhalds- og stofn-
kostnaður er áætlaður 14,7 millj-
arðar á næsta ári og er það um 4,4
milljarða króna hækkun milli ára.
Stærstu breytingarnar eru 4,2
milljarða króna hækkun til fram-
kvæmda Vegagerðarinnar. Þá
hækka viðhaldsliðir Vegagerð-
arinnar um 188,2 milljónir og út-
gjöld til framkvæmda flugmála um
rúmlega 88 milljónir.
Í frumvarpinu er því spáð að
framlög til vegamála stóraukist á
næstu árum, verði um 24 milljarðar
árið 2008, 19,3 árið 2009 og 18,2 ár-
ið 2010. „Framlög til samgöngu-
mála verða væntanlega þau hæstu
sem við höfum séð og síðan eru
áætlanir um enn meiri aukningu á
næstu árum,“ sagði fjármálaráð-
herra í gær.
Vegaáætlun er í undirbúningi og
er áætlað að hún komi út í október.
Ríkisstjórnin ákvað í júní sl. að
fresta öllum framkvæmdum á veg-
um ríkisins sem ekki voru þegar
farnar í útboð. Þeirra á meðal voru
vegaframkvæmdir víða um landið. Í
stefnumörkun í ríkisfjármálum er
enn stefnt að því að draga úr fram-
kvæmdum um 5,5 milljarða króna
frá því sem ráðgert var í lang-
tímaáætlun á síðasta ári. Gert er
ráð fyrir að framkvæmdir verði aft-
ur auknar árið 2008.
Meira lagt til vegamála
Eftir aðhaldssöm ár er
nú svigrúm til aukinna
framkvæmda á vegum
ríkissjóðs að sögn fjár-
málaráðherra sem lagði í
gær fjárlagafrumvarp
ársins 2007 fram á Al-
þingi. Útgjöld munu
aukast á næsta ári, eink-
um vegna samgöngu-
framkvæmda.
.
! " #
# $"
$
$%
!$!