Morgunblaðið - 03.10.2006, Side 16

Morgunblaðið - 03.10.2006, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÁRIÐ 1860 blés upp leifar af kumli frá bænum Bald- ursheimi í Mývatnssveit. Fundurinn reyndist af- drifaríkur þar sem hann varð kveikjan að því að stofnað yrði íslenskt forngripasafn en áður höfðu forngripir verið sendir til Danmerkur til varðveislu. Arngrímur málari skrifaði skýrslu um fundinn og teikn- aði nákvæmar myndir af haug- fénu. Guðmundur Ólafsson segir í dag klukkan 12.10 frá Baldursheimskumlinu í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins og sýnir myndir Arngríms sem ekki hafa áður komið fyrir sjónir almennings. Sérfræðileiðsögn Kveikjan að fornminjasafni Hnefatafl úr kumlinu. VEFSAMFÉLAGIÐ MySpace verður með sérstök kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum á Iceland Airwaves-hátíðinni sem hefst 18. október. Stjórn- endur MySpace áttu frum- kvæðið að samstarfinu og verður hátíðin auglýst á sér- stökum tónlistarsíðum MyS- pace meðan á henni stendur. Þá hefur sá orðrómur komist á kreik að annar tveggja stofnenda MySpace muni sækja tónlist- arhátíðina en fjölmiðlakóngurinn Robert Mur- doch keypti fyrirtækið fyrir um 580 milljón dali árið 2005. Sjá slóðina www.myspace.com/icelandairwaves. Tónlist MySpace á Iceland Airwaves HRÓÐUR teiknimyndasmiðs- ins Hugleiks Dagssonar fer víða. Útgáfufyrirtækið Pengu- in tryggði sér nýverið réttinn á Forðist okkur eftir Hugleik og kemur hún út innan skamms í Englandi undir nafninu Should you be laughing at this. Harper Collins í Bandaríkjunum mun síðan gefa hana út þar í landi og í síðustu viku keypti helsta forlag Noregs, Gyldendal, út- gáfuréttinn þar í landi. Breska stórblaðið The Guardian hefur svo jafn- framt keypt réttinn á að birta teiknimyndirnar í blaði sínu. Teiknimyndir Teikningar Hug- leiks í Guardian Hugleikur Dagsson Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is BALTASAR Kormákur, Gretar Reynisson og Gunnar Eyjólfsson fengu afhenta styrki úr Minning- arsjóði frú Stefaníu Guðmunds- dóttur fyrir leikárið 2005 til 2006 við hátíðlega athöfn í Iðnó í gær- kvöldi. Allir þrír eiga það sameig- inlegt að hafa komið nálægt leik- ritinu Pétri Gaut á einn eða annan hátt. Baltasar Kormákur er leik- stjóri og höfundur leikgerðar þeirrar uppfærslu sem nú er í sýn- ingu í Þjóðleikhússins og Gretar Reynisson höfundur leikmyndar. Gunnar Eyjólfsson lék svo sjálfan Pétur Gaut í Þjóðleikhúsinu árið 1962. Þeir fengu allir afhentan styrk að upphæð 400.000 kr. 130 ára fæðingarafmæli Saga Minningarsjóðs frú Stef- aníu Guðmundsdóttur á rætur sín- ar að rekja til 1938 þegar hjónin Anna Borg, dóttir frú Stefaníu, og Poul Reumert komu hingað frá Danmörku og tóku þátt í leiksýn- ingum í Iðnó. Áður en þau sneru heim lögðu þau öll laun sín inn á sparisjóðsbók sem var merkt Minningarsjóður frú Stefaníu Guð- mundsdóttur en frú Stefanía er talin hafa verið einn stórbrotnasti sviðslistamaður þjóðarinnar á fyrri hluta síðustu aldar. Sjóðurinn var formlega stofnaður árið 1965, eftir andlát Önnu Borg. Framlög Geirs Borg, sonar frú Stefaníu, lögðu síðan grunn að batnandi hag sjóðsins. Fyrsta úthlutunin úr sjóðnum fór fram árið 1970 þegar Helga Bachmann hlaut styrkinn, en að meðtöldum þeim þremur sem fengu styrkinn í gær hafa alls 25 leiklistarmenn hlotið hann. Í til- efni þess að 130 ár eru liðin frá fæðingu frú Stefaníu á þessu ári lét stjórnin gera veglegan minja- grip, sem er hannaður af Þorsteini Gunnarssyni arkitekt og leikara, handa öllum styrkþegum frá upp- hafi og var þeim eða staðgenglum þeirra afhentur gripurinn í gær- kvöldi. Mikill heiður og rausn „Að vera valinn úr stórum hópi listamanna sem starfa í þessum geira og boðinn slíkur styrkur er bæði mikill heiður og rausn auk þess að vera yfirlýsing um að ég hef verið að gera gott í starfi,“ segir Gretar Reynisson, einn verð- launahafanna. „Það er mikil vinna sem liggur að baki hverri sýningu og því er alltaf gaman og gott að einhver nær að draga athyglina að því sem vel er gert. Þessi sjóður frú Stefaníu þykir mér merki- legur, á bak við hann er fjölskylda sem kemur úr grunninum á ís- lensku leikhúsi og er að styrkja það nýjasta sem hefur komið fram, sjóðurinn er ekki eins og stofnun sem horfir bara til síns tíma.“ Spurður hvort það sé algengt að leikmyndahöfundar fái slíka styrki segir Gretar að auðvitað detti flestum í hug leikarar á sviði þeg- ar talað sé um leikhús en margir fleiri komi að hverri sýningu sem njóti yfirleitt ekki sömu athygli og leikarar, en hann sem leikmynda- höfundur hafi fengið ýmsar við- urkenningar í gegnum árin. „Ég er ekki að búa til skraut heldur eitthvað sem virkar og gefur takt- inn að leiksýningunni og þegar vel er gert er strax tekið eftir því,“ segir Gretar, ánægður með við- urkenninguna. 1970 Helga Bachmann 1971 Arnar Jónsson 1972 Þorsteinn Gunnarsson 1974 Sigurður Skúlason 1977 Þóra Friðriksdóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir 1978 Sigurður Sigurjónsson 1979 Steinþór Sigurðsson 1980 Stefán Baldursson 1984 Sunna Borg 1989 Edda Heiðrún Backman, Helgi Björnsson, Valdimar Örn Flygenring, Þór H. Tulinius 1997 Halldóra Geirharðsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Jón Viðar Jónsson 2000 Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir, Hilmir Snær Guðna- son, Ingvar E. Sigurðsson 2005 Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir 2006 Baltasar Kormákur, Grét- ar Reynisson, Gunnar Eyjólfs- son STYRKÞEGAR FRÁ 1970 Leikhús | Styrkir úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur afhentir Komu allir að Pétri Gaut STYRKÞEGAR leikársins 2005 til 2006 úr Minningarsjóði frú Stefaníu: Leik- myndahönnuðurinn Gretar Reynisson og leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Baltasar Kormákur. Þeir fengu allir styrk að upphæð 400.000 krónur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Til minningar um frú Stefaníu FJÖLMARGIR kvikmynda- gagnrýnendur létu í ljós von- brigði sín þegar aðalverðlaun al- þjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í San Sebastian á Norður-Spáni, Gullna skelin, voru afhent um helgina. Nokkrir þeirra hrópuðu upp yfir sig og aðrir sýndu með látbragði að val dómnefndarinnar væri þeim lítt að skapi, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Það var myndin Mon Fils a Moi, eða Sonur minn, í leikstjórn hins franska Martial Fougeron, sem hlaut hina Gullnu skel þetta árið sem besta myndin. Meiri sátt virtist ríkja um myndina sem lenti í öðru sæti, Hálfmána, eftir kúrdísk-íranska leikstjórann Bahman Ghobadi. Hin bandaríska Delirious hreppir tvenn verðlaun Argentínska myndin El Camino de San Diego, eða Vegurinn til San Diego, fékk sérstaka við- urkenningu dómnefndar hátíð- arinnar. Bandaríkjamaðurinn Tom Dicillo var valinn besti leik- stjórinn fyrir mynd sína Delirious (Með óráði) en myndin fékk einn- ig verðlaun fyrir besta handritið. Fyrir hlutverk sitt í Vete de Mi (Farðu frá mér) fékk spænski leikarinn Juan Diego verðlaun sem besti karlleikarinn og hin franska Nathalie Baye, úr Mon Fils a Moi, var valinn besta leik- konan. Leikararnir Max von Sydow og Matt Dillon hlutu Donostia- heiðursverðlaunin. Kvikmyndahátíðin í San Seb- astian var fyrst haldin árið 1953 og er í dag talin fjórða mikilvæg- asta hátíðin í Evrópu, eftir hátíð- unum í Cannes, Berlín og Fen- eyjum. Baulað í San Sebastian Gagnrýnendur óhress- ir með sigurmynd kvikmyndahátíðar Sigurvegari Hinn bandaríski Tom Dicillo vann Gullnu skelina sem besti leikstjórinn. DAGSKRÁ: Þriðjudag 3. okt. HÁSKÓLABÍÓ Salur 1 Kl. 15.45 A Soap Kl. 20.00 Dead Man’s Cards Kl. 22.30 The Secret Life of Words HÁSKÓLABÍÓ Salur 2 Kl. 18.00 Our Daily Bread Kl. 20.00 Four Minutes Kl. 22.15 Summer Palace HÁSKÓLABÍÓ Salur 3 Kl. 18.00 Destricted Kl. 20.00 Clean Shaven Kl. 22.30 Destricted HÁSKÓLABÍÓ Salur 4 Kl. 20.00 Falling Kl. 22.00 Northern Skirts TJARNARBÍÓ Kl. 14.00 Hotel Harabati Kl. 15.45 Falkenberg Farewell Kl. 18.00 Grbavica Kl. 20.10 The Road to Guantanamo Kl. 22.15 Red Road IÐNÓ Kl. 14.00 Innocence Kl. 16.00 Smiling in a Warzone Kl. 18.00 Human Rights Conference Kl. 20.00 The Girl is Mine Kl. 22.00 Rolling like a Stone Dómar um myndir Kvik- myndahátíðar eru á síðum 46 – 49 Kvikmyndahátíð í Reykjavík TENGLAR .............................................. www.filmfest.is Landssamband sjálfstæðiskvenna efnir til opins umræðufundar um ástæður og áhrif hás vaxtastigs á Íslandi. Fundurinn fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á morgun, miðvikudaginn 4. október, og hefst kl. 17.00. Framsögumenn: Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Þóra Helgadóttir, hagfræðingur í greiningardeild KB banka. Fundarstjóri: Ásta Möller, alþingismaður og formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna. Öll velkomin! Landssamband sjálfstæðiskvenna Vaxtastefna á villigötum? RIFF Úr kvikmyndinni The Secret Lifes of Words sem sýnd er á Al- þjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja- vík í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.