Morgunblaðið - 03.10.2006, Síða 18

Morgunblaðið - 03.10.2006, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI AUSTURLAND Í VERKEFNAVINNU Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um stöðu og áherslur í málefnum íbúa af erlendum uppruna í fjórðungn- um, hefur sérstakur hópur fjallað um menntunarmál á öllum skóla- stigum. Þær Laufey Eiríksdóttir hjá Þekkingarneti Austurlands og Ruth Magnúsdóttir hjá Skólaskrif- stofu Austurlands hafa leitt þá vinnu. „Fyrst og fremst er að viður- kenna sérstöðu þessara nemenda“ sagði Ruth á málþingi um fjöl- menningarlegt Austurland fyrir skömmu. „Efla þarf þekkingu allra starfsmanna skólakerfisins, ekki aðeins kennara, á fjölmenningar- legum málefnum og þ.m.t. kennslu. Áherslan er vonandi að færast af því að laga þessa nemendur að því að verða „íslenskir nemendur“ og til þess að vinna með allan hópinn; að þetta sé gagnkvæm aðlögun og við þurfum öll að venjast þessum breytingum. Skólinn verður að taka mark á þeim lýðfræðilegu breytingum sem eru að eiga sér stað.“ Aðgengi að túlkum mikilvægt Afar brýnt þykir að foreldrar og nemendur af erlendum uppruna eigi kost á öllum upplýsingum um skólastarfið á sínu tungumáli fyrstu skólaár barns. Mikilvægt sé og að skilja við hvaða tækifæri beri að nota túlk. „Við þurfum t.d. að virða rétt beggja foreldra til upp- lýsinga um barn og gengi í skóla og því þarf að boða túlk í viðtöl jafnvel þó annað foreldrið sé íslenskt,“ sagði Ruth. Hún brýnir hið opin- bera til að viðurkenna hversu fé- lagsleg aðlögun nemenda ef er- lendum uppruna sé mikilvægt atriði, að komið sé til móts við þá og þeim náð inn í samfélagið sem þátttakendum í félags- og tóm- stundastarfi. „Rannsóknir sýna að sterk tök á fyrsta máli, s.s. móð- urmálinu, styrkja máltöku í öðru máli. Við verðum að hafa gögn til að bjóða nemendum á sínu móð- urmáli svo þeir geti haldið áfram að bæta við sinn þekkingargrunn, jafnframt því sem þeir tileinka sér nýtt tungumál.“ „Þegar nemandi af erlendum uppruna hefur gengið í gegnum leik- og grunnskólastig, staðið sig með ágætum og er kominn í fram- haldsskóla fara erfiðleikar oft að gera meira vart við sig“ segir Lauf- ey. „Brottfall þeirra er óvenju hátt. Skýringin er m.a. að þá hættir oft stuðningur vegna íslenskukennslu, hugtakaþjálfunin verður flóknari og nemandinn hefur e.t.v. misst af þeirri þekkingu úr sínu eigin móð- urmáli og þar verður eyða. Stór- auka þarf íslenskukennslu á fram- haldsskólastigi og miða nám við hvern einstakling og af hvaða mál- svæði hann kemur.“ Laufey segir Þekkingarnet Austurlands hafa séð um alla íslenskukennslu fyrir fullorðna frá Bakkafirði til Horna- fjarðar síðan 2002. „Eins og íbúaþróun hefur verið á Austur- landi er slík kennsla orðið æ um- fangsmeiri og nú á haustönn eru um 190 nemendur í íslenskunámi í 17 hópum á þessu svæði. Það er fjölgun um 70 nemendur frá því á vorönn og 15 kennarar sjá um þessa kennslu. Við viljum að litið sé á þessi námskeið sem starfsmennt- un, þau fari fram í dagvinnutíma en ekki á kvöldin og að þau séu nem- endum að kostnaðarlausu.“ Það virðist sama hvert litið er í þessum efnum, eðlileg framvinda í því að mæta grunnþörfum nemenda af erlendum uppruna virðist stranda að miklu leyti á takmörkuðu fjár- magni, þrátt fyrir góðan vilja. „Skólinn verður að taka mark á lýðfræðilegum breytingum“ Austfirðingar rýna í menntun nemenda af erlendum uppruna Ljósmynd/ÞNA Jón Svanur Máltaka Fullorðnir íslenskunemendur á Eskifirði hjá Þekkingarneti Austurlands þar sem þeir stunda nám að löngum vinnudegi loknum. Í HNOTSKURN »Efla þarf þekkingu á fjöl-menningu með öllum starfsmönnum innan skóla- kerfisins. »Aðlögun vegna erlendranemenda er gagnkvæm og þarf að sinna frá báðum hlið- um. »Skólakerfið þarf að skil-greina þörf á túlkun til upplýsingagjafar. »Viðurkenna þarf mikilvægifélagslegrar aðlögunar samhliða skólastarfi og vinna markvisst að slíku. Egilsstaðir | Nk. laugardag hefjast kyrrð- arstundir á vegum áhugahóps um kyrrð- arstarf í Vallaneskirkju. Stefnt er að því að þær verði annan hvern laugardag í vet- ur og standi frá kl. 11 til 14. Kyrrð- arstundir hefjast á léttum málsverði og leiðsögn og henta, að sögn aðstandenda, jafnt fólki sem hefur reynslu af kyrrð- arstarfi og þeim sem vilja leita andlegrar upplifunar, meiningar lífsins og persónu- legrar uppbyggingar. Kristin íhugun hef- ur líklega verið hluti af daglegu lífi í Ágústínusarklaustrinu á Skriðuklaustri og vel við hæfi að halda því starfi áfram. Allir eru velkomnir og er máltíðin og fræðslan fólki að kostnaðarlausu. Íhugunaræfingar í Vallaneskirkju Egilsstaðir | Bygg- ingu annars áfanga kennsluhúss Mennta- skólans á Egilsstöðum er lokið og var hið nýja kennsluhúsnæði tekið formlega í notk- un sl. laugardag. Aðalverktaki var Tréiðjan Einir ehf. Helgi Ómar Bragason, skólameistari, segir nýbygginguna vera um 1.100 fer- metra og bæti hún aðstöðu nemenda, kennara og annars starfsfólks. Nýbygg- ingin hýsir stjórnunaraðstöðu, 5 kennslustofur og 79 sæta fyrirlestarsal með hallandi gólfi. Ýmis starfsemi flyst úr alls konar kompum í heimavistarbyggingu og þar eykst aftur pláss fyrir félagsaðstöðu nemenda. Bókasafn verður áfram í heimavistarbyggingunni. Mennta- málaráðherra var viðstaddur vígsluna ásamt fjölda annarra góðra gesta. Nýtt kennsluhúsnæði Menntaskólans á Egilsstöðum í notkun MIKIÐ tjón varð í eldsvoða í íbúðar- húsinu að Hamragerði 25 á Akureyri í fyrrinótt. Þrennt var flutt á sjúkra- hús vegna gruns um reykeitrun en allir fengu að fara heim strax um nóttina og engum varð meint af. Þrjár íbúðir eru í húsinu, þar af tvær litlar á neðri hæðinni og eld- urinn kom upp í annarri þeirra, í lok- uðu herbergi þar sem var logandi kerti. Innbú mæðgina í umræddri íbúð er að öllum líkindum gjörónýtt en annars staðar í húsinu varð tjón ekki verulegt, en þó eitthvað vegna reyks og sóts. Mæðginin, Sigríður Sveinsdóttir og fjórtán ára sonur hennar, sátu í stofunni og horfðu á sjónvarpið þeg- ar ljósin slökknuðu skyndilega. „Við uppgötvuðum ekki eldinn fyrr en rafmagnið fór. Þá heyrði ég snark inni í herberginu, opnaði dyrnar og þá var kominn mikill eld- ur. Glugginn var opinn þannig að hitinn hafði ekki náð fram að dyr- unum,“ sagði Sigríður í samtali við Morgunblaðið í gær. Það var fimm mínútum eftir mið- nætti sem tilkynning barst til Slökkviliðs Akureyrar. Strax voru sendir tveir dælubílar og sjúkrabíll af stað. Þegar slökkviliðið kom á staðinn stóð íbúðin í ljósum logum en allir íbúar hússins voru komnir út af sjálfsdáðum. Vel gekk að slökkva eldinn og var því lokið á um það bil 20 mínútum. Um leið og mæðginin urðu eldsins vör létu þau aðra íbúa hússins vita, en hjón á áttræðisaldri búa á efri hæðinni og einn maður í hinni íbúð neðri hæðarinnar. „Við Loftur [maðurinn á efri hæð- inni] reyndum að komast inn í íbúð- ina með slökkvitæki en það var ekki hægt því reykurinn var svo mikill. Ég fór svo með slökkvitækið á bak við hús og sprautaði úr því inn um gluggann en það hafði ekki mikið að segja því eldurinn var svo mikill,“ sagði Sigríður við Morgunblaðið. Reykkafarar voru sendir inn í húsið strax og slökkviliðið kom á staðinn, til þess að ganga úr skugga um að þar væri örugglega enginn og það var fljótlega staðfest. Sigríður óttaðist reyndar um kött- inn sinn, sem hún varð ekki vör við, en um morguninn, þegar að var komið, sat kisi hinn rólegasti við matarskálina sína í íbúðinni. Hafði náð að forða sér um nóttina. „Það er allt í lagi með hana og hún er í góðum höndum á dýraspít- alanum,“ sagði Sigríður við Morg- unblaðið. Sigríður sagði það „vægast sagt“ hræðilegt að lenda í lífsreynslu eins og þessari og áfallið væri vitaskuld mjög mikið. „Við sluppum reyndar vel sjálf. Maður er auðvitað í sjokki en ég er í rauninni rétt að átta mig á því hvað ég hef misst. Við höfum bara rétt farið inn í íbúðina aftur til þess að skoða en það er að minnsta kost öruggt að allur fatnaður og öll húsgögn eru ónýt,“ sagði Sigríður. Mjög mikið áfall en samt afar þakklát fyrir að ekki fór verr Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gjörónýtt Eldurinn kom upp í þessu herbergi og skemmdir þar eru gríðarlegar eins og annars staðar í íbúðinni. Eldur kviknaði út frá kerti í lokuðu herbergi og kraumaði góða stund SENDIHERRA Rússlands á Ís- landi, Victor Ivanovich Tatarintsev, flytur í dag fyrirlestur á Lögfræði- torgi við Háskólann á Akureyri. Í erindinu ræðir sendiherrann um möguleika á auknu samstarfi þjóð- anna í öryggismálum, baráttunni gegn alþjóðlegum hryðjuverkum, gagnkvæma fjárfestingamöguleika og tvíhliða viðskipti og samstarf í menntunarmálum, vísindum og menningu. Sendiherrann mun einnig gera grein fyrir forgangsröð Rússa í utanríkismálum með sérstöku tilliti til núverandi forystu Rússa í G8 og Evrópuráðinu. Tengsl Rússlands og Íslands eru meiri en margan grunar. Bæði ríkin eru aðilar að Heimskautaráðinu (Arctic Council), Barentshafsráðinu (Barents Sea Council) og Eystra- saltsráðinu (Baltic Sea States Coun- cil). Fyrirlesturinn verður í stofu L201 á Sólborg og hefst kl. 16.15. Fyrirlestur sendiherra Rússlands AÐALFUNDUR Sögufélags Eyfirð- inga verður haldinn á lestrarsal Amtsbókasafnsins í kvöld kl. 20. Að loknum venjubundnum aðalfund- arstörfum flytur erindi Sigurður Bergsteinsson, minjavörður Norð- urlands eystra, um hina dularfullu konu á Austfjarðaheiðum sem ein- hverntíma á fyrri hluta 10. aldar lagði skartbúin á heiðina en komst aldrei til byggða aftur. „Í fórum sínum hafði hún meðal annars 500 perlna fjársjóð. Hvað var konan að gera á heiðinni? Hver var hún?“ er spurt í tilkynningu frá félaginu. Hver var þessi kona á heiðinni? ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.