Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 19

Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 19
Framkvæmdir Árni Sigfússon fékk góð ráð gröfumanns við upphaf framkvæmda. Reykjanesbær | Framkvæmdir við fyrsta áfanga kappakakstursíþróttasvæðis Ice- land MotoPark í Reykjanesbæ hófust um helgina. Í þessum áfanga verður körtu- braut sem kemur í stað núverandi körtu- brautar sem fer undir stórhýsi. Við athöfnina fór fram fyrsta gröfu- keppnin hérlendis. Ellefu gröfur frá sex verktakafyrirtækjum röðuðu sér upp með- fram fyrirhugaðri körtubraut. Eftir að Árni Sigfússon bæjarstjóri hafði tekið fyrstu gröfustunguna hófst keppnin. Sig- urvegari varð Ragnar Þór Baldursson. Kappakstursbraut í framhaldinu Verktakafyrirtækið Toppurinn stendur fyrir framkvæmdinni í samvinnu við er- lenda aðila. Akstursíþróttasvæðið verður á 370 ha lands og þar er meðal annars gert ráð fyr- ir 4,2 km langri kappakstursbraut sem byggð verður eftir öllum skilyrðum FIA, alþjóða akstursíþróttasambandsins. Einn- ig ökugerði, hóteli og raðstefnusölum, auk körtubrautarinnar. Framkvæmdir hófust með gröfukeppni MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 19 SUÐURNES LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Höfn í Hornafirði | „Það var tap fyrsta árið okkar en síðan höfum við rekið hótelið með hagnaði. En þetta er erfitt, maður gengur ekki að neinu vísu í þessu,“ segir Gísli Már Vil- hjálmsson, einn af eigendum Hótels Hafnar í Hornafirði. Hótel Höfn hef- ur starfað í fjörutíu ár og var haldið upp á tímamótin með veislu um helgina. Tvenn hjón keyptu reksturinn fyr- ir tæpum sex árum, Gísli Már og Þórdís Einarsdóttir og Óðinn Ey- mundsson og Elísabet Jóhannes- dóttir. Gísli Már og Óðinn eru mat- reiðslumeistarar og vinna allir eigendurnir við fyrirtækið. Þrá til breytinga Þau ráku áður veitingastaðinn Ós- inn á Höfn. „Það var kominn tími til að taka Ósinn í gegn og ákveðin þrá í okkur að fara út í eitthvað stærra,“ segir Gísli Már, þegar hann er spurður um aðdragandann að kaup- um þeirra á Hótel Höfn. Þau voru að athuga aðra möguleika þegar þeim bauðst að kaupa hótelið sem þá var komið í rekstrarvanda. „Okkur hefur gengið vel. Aðalinn- koman er að sjálfsögðu yfir sumarið en markmið okkar yfir veturinn er einfalt, að tapa ekki peningum. Það hefur gengið ágætlega,“ segir Gísli Már. Þau hafa átt aðild að skemmt- unum Hornfirska skemmtifélagsins og hefur það skapað töluverð við- skipti á veturna. Næsta sýning er American Graffiti og verður hún frumsýnd 14. október. Þau eru einn- ig aðilar að fleiri verkefnum, svo sölu ævintýra- og norðurljósaferða. Þá njóta þau góðs af kvikmyndum og auglýsingum sem alltaf er verið að taka upp á svæðinu og skapa veruleg viðskipti, auk hefðbundins ráð- stefnuhalds, funda og árshátíða. Hugað að stækkun Hótel Höfn er eina hótelið í sveit- arfélaginu sem rekið er með fullri þjónustu allt árið. Það er með 36 her- bergi og tvö veitingasali og þar er opinn veitingastaður allt árið. Það er fullnýtt allt sumarið og getur því ekki bætt miklu við sig á þeim tíma, en á móti er lögð áhersla á vorið og haustið. Gísli Már segir að eigend- urnir séu nú að bræða með sér hug- myndir um stækkun hótelsins. „Það er áhyggjulaust fyrir okkur að láta þetta malla svona áfram en spenn- andi kostur að bæta við. Ég hugsa að ekki verði langt í að niðurstaða okk- ar liggi fyrir,“ segir Gísli Már. Eigendurnir íhuga stækkun hótelsins Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson Tímamót Hótelfólkið á Höfn er ánægt. F.v.: Óðinn Eymundsson, Elísabet Jóhannesdóttir, Þórdís Einarsdóttir og Gísli Már Vilhjálmsson. Rekstur Hótels Hafnar hefur blómstrað hjá nú- verandi eigendum Í HNOTSKURN »Árni Stefánsson og Þór-hallur Dan Kristjánsson byggðu Hótel Höfn og ráku með fjölskyldum sínum. Flug- leiðir keyptu hótelið fyrir ára- tug og ráku undir nafni Ice- landair hótelkeðjunnar. »Núverandi eigendur hafatvöfaldað veltuna. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | „Ég hef aldrei fengið svona kröftuga byrjun,“ segir Guðjón Vilhelm, hnefaleika- þjálfari hjá BAG, Hnefaleikafélagi Reykjaness. Tuttugu börn og ung- lingar koma nú á æfingar hjá félag- inu sem er þrisvar til fjórum sinn- um meira en undanfarin haust. Fjöldinn hefur sprengt utan af sér æfingaaðstöðuna. Guðjón Vilhelm getur ekki skýrt til fulls þennan skyndilega áhuga á hnefaleikum. Nefnir þó að nú sé í fyrsta skipti boðið upp á æfingar fyrir 8 til 12 ára börn. Þá segir hann að fjölgað hafi í bænum og margir iðkendur komi úr nýju hverfunum. „Bæjaryfirvöld hafa hvatt til þátttöku barna og ung- linga íþróttum. Það spyrst út að krökkunum líkar að taka þátt og æfingarnar hafa mikið uppeldis- legt gildi fyrir þau. Svo virðast hnefaleikar vera í tísku um þessar mundir,“ segir Guðjón Vilhelm. Einbeitir sér að börnunum Guðjón Vilhelm hefur þjálfað hnefaleikamenn í nokkur ár og ver- ið með í Hnefaleikafélagi Reykja- ness frá upphafi. Hafa keppnis- menn sem hann hefur þjálfað náð langt í íþróttinni. Nú eru hins veg- ar að verða breytingar í elsta hópn- um, meðal annars vegna aðstöðu- leysis, og ákvað Guðjón því að leggja meiri áherslu á uppeldis- starfið enda segist hann hafa mikla ánægju af starfi með börnunum. Æfingarnar eru í gömlu fiski- húsi á Básvegi í Keflavík. Aðstaðan er frumstæð. Húsnæðið rúmar ekki að hafa uppistandandi keppn- ishring og snyrti- og búningsað- staða í lágmarki. Þá er aðkoman og umhverfið varla boðlegt. Guðjón segir að bæjaryfirvöld hafi alltaf verið jákvæð í garð starfseminnar og hefur hann óskað eftir aðstoð við að komast í stærra og hentugra húsnæði. Hefur hann nefnt mögu- leikann á að komast í einhvern íþróttasalinn á Keflavíkurflugvelli, til bráðabirgða á meðan verið sé að huga að málum til framtíðar. „Þarna stendur góð aðstaða ónotuð og við þurftum ekkert annað en lykilinn til að geta byrjað.“ Um sjötíu börn og unglingar mæta á æfingar hjá Hnefaleikafélagi Reykjaness Sprengja utan af sér húsnæðið Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Æfing Unglingarnir eru fljótir að ná töktunum í hnefaleikaíþróttinni og æfingapúðarnir fá að kenna á því. Sippað Stúlkur mæta ekki síður en strákar á hnefaleikaæfingar. MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 E N N E M M / S IA • N M 22 92 7 Beint morgunflu g frá 39.095 kr.* 39.095 kr. * Hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð 7. eða 14. mars, á Club Maspalomas II. Netverð á mann. 43.195 kr. - 2 vikur Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-ll ára, í íbúð m/2 svefnh. á Parquemar, 3. eða 10. jan. í 2 vikur. Bókaðu núna! Ótrúlegt verð! Kanarí 200 sæta tilboð! í vetur *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.