Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 22
daglegt líf
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÁÍslandi er enginn starfandiljósfaðir um þessar mundirog hefur ekki verið í lang-an tíma. „Við erum langt á
eftir öðrum Norðurlandaþjóðum í
þessum efnum. Í Svíþjóð eru fimmtíu
starfandi ljósfeður en þar þykir það
jafn mikilvægt að auka fjölda karla í
starfi ljósfeðra eins og að auka hlut
kvenna í stjórn fyrirtækja. Enda er
ein hlið jafnréttisbaráttunnar sú að
auka hlut karla í kvennastörfum,“
segir Erla Dóris Halldórsdóttir sem
vinnur að doktorsverkefni í sagn-
fræði þar sem hún rannsakar sögu
ljósfeðra á Íslandi frá 1776–1933.
„Ég er búin að finna upp undir
þrjátíu karla sem sátu yfir fæðandi
konum hér á landi, en þeir voru ýmist
nefndir yfirsetumenn eða ljósfeður.
Enginn þeirra starfaði í höf-
uðstaðnum Reykjavík. Vart þarf að
taka fram að á þessum tíma fóru allar
fæðingar fram inni á heimilum og
sumir þessara manna hafa allt að sex
hundruð fæðingar að baki. Þetta voru
ómenntaðir menn en ekki karlkyns
læknar. Þeir voru allir kvæntir, áttu
börn og voru meira megandi, ýmist
stórbændur eða prestar, eins og til
dæmis séra Sigfús Jónsson í Und-
irfellsprestakalli sem tók meðal ann-
ars á móti hinni nafnfrægu Halldóru
Bjarnadóttur sem fæddist árið 1873
en hún varð kvenna elst og náði 108
ára aldri. Séra Sigfús átti margar
fæðingar að baki og Halldóra kallaði
hann því fallega nafni „Ljósi minn“.
Hjálpuðu skepnum við burð
Erla segir að ekkert sé hægt að
fullyrða um hvers vegna karlmenn
tóku að sér þessi störf. „Eflaust hefur
neyðin og dreifbýlið eitthvað með það
að gera, það hefur hreinlega verið
skortur á konum til starfsins. Ef um
erfiðar fæðingar var að ræða, þá var
frekar kallað í ljósföður en ljósmóður.
Margir þeirra áttu líka annaðhvort
mæður eða eiginkonur sem voru ljós-
mæður og hafa eflaust lært af þeim.
Og þar sem þeir voru bændur þá
höfðu þeir reynslu af því að hjálpa
skepnum sínum við burð.“
Aðeins einn íslenskra ljósfeðra,
Jón Halldórsson, bóndi í Þingeyj-
arsýslu, var með ljósmæðrapróf sem
hann tók fyrir 230 árum, árið 1776.
„Það er svolítið merkilegt að á
sama tíma og Jón fer í þetta nám, þá
eru karlar í Evrópu að sækja inn á
þetta svið, en tilkoma fæðing-
artangarinnar er talin hafa átt þar
hlut að máli. Svokallaðir bartskerar í
Evrópu voru kallaðir til ef kona gat
ekki fætt, því þeir einir áttu og máttu
nota áhöld, einhvers konar króka til
að ná börnunum út. Þannig var hægt
að bjarga konunni en börnin komust
aldrei lifandi frá slíku.“
Tengist karlmennskunni
Erla hefur reynt að finna út hvers
vegna það hefur lagst af hér á landi
að karlmenn sinni þessu starfi. „Það
er eitthvað í menningunni sem veld-
ur. Ég er ekki frá því að það hafi eitt-
hvað með karlmennskuna að gera að
karlmenn sækja ekki inn á þetta svið í
dag. Til þess þarf mikinn kjark, því
þeir sem það gera þurfa að brjóta upp
fastmótaða staðalímynd karlmennsk-
unnar. Nú til dags virðist líka vera lit-
ið á fæðingu sem hluta af kynferði
konunnar. Við getum líka velt því fyr-
ir okkur hvort karlmönnum finnist
þeir ekki eiga erindi í þessa stétt sem
hefur að mestu leyti verið í höndum
kvenna frá upphafi mannkyns. Það er
einhver rómantísk dulúð sem tengst
hefur fæðingu og fæðingarhjálp.
Þetta eru hin helgu vé.“
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Nýtt líf Starf þeirra sem vaka yfir fæðandi konum og taka á móti nýju lífi er hjúpað mildi og fegurð.
Sveinn Magnússon
bóndi í Vestur-Barðastrand-
arsýslu, f. 1849, var mjög
sóttur til ljósmóðurstarfa,
einkum ef lærða ljósmóður
vantaði. Smáskammtalæknir
og hreppsnefndarmaður.
Amtmaður samþykkti að
þókna honum fyrir fæðing-
arhjálp árið 1888.
Jónas Jónsson
bóndi, f. 1840, starfaði sem
ljósfaðir í Skagafirði í ára-
tugi og tók á móti 600 börn-
um. Sagt er að eftir að hann
missti eiginkonu og barn í
fæðingu, hafi hann farið að
kynna sér ljósmóðurfræðin
og gengið í starf ljósföður.
Átti sjálfur 30 börn. Smá-
skammtalæknir og hrepps-
nefndarmaður.
Eyjólfur Runólfsson,
f. 1847, bóndi í Saurbæ og eig-
andi Saurbæjarkirkju, var
starfandi yfirsetumaður á
Kjalarnesi og í nágrenni, eftir
lát móður og til efri ára. Hlaut
heiðurslaun úr sýslusjóði Kjós-
arsýslu fyrir læknis- og ljós-
móðurstörf.
khk@mbl.is
Þeir vöktu yfir ljósinu
Karlmenn eru fáséðir í
stétt þeirra sem taka á
móti börnum þegar þau
líta dagsins ljós fyrsta
sinni. Kristín Heiða
Kristinsdóttir forvitn-
aðist um íslenska ljós-
feður, karla sem sátu yfir
fæðandi konum.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Doktorsverkefni Erla Dóris
Halldórsdóttir rannsakar sögu ís-
lenskra ljósfeðra.
MARGAR FÆÐ-
INGAR AÐ BAKI