Morgunblaðið - 03.10.2006, Side 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 23
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
3
7
5
6
SKJÁREINN næst í gegnum Skjáinn og Digital Ísland
Innlit/útlit
Í kvöld kl. 21.00 á SKJÁEINUM
Börn læra í gegnum leik og það á líkavið um stærðfræðina,“ segjasænsku leikskólakennarnir MikaelaSundberg og Susanne Håden. Þær
komu hingað til lands fyrir skömmu og héldu
fyrirlestur á vegum skólaþróunarsviðs
kennaradeildar Háskólans á Akureyri um
nám og starf yngstu barna í leikskólum og
lögðu sérstaka áherslu á stærðfræðina.
„Í kjölfar umræðu um slaka útkomu Svía í
nokkrum alþjóðlegum stærðfræðikönnunum
ákváðum við árið 2004 að skoða leikskólastarf
1-3 ára barna með „gleraugum stærðfræðinn-
ar“ og kanna hvort gera mætti námið sem lyti
að því markvissara,“ segja Sundberg og Hå-
den sem starfa í leikskólasamfélaginu Kärr-
torp-Enskededalen í Stokkhólmi. Alls tóku
leikskólakennarar á 22 leikskóladeildum þátt í
verkefninu. ,,Markmiðið með þróunarstarfinu
var að hjálpa börnunum að uppgötva stærð-
fræðina í umhverfi sínu. Bæði bjuggum við til
efnivið, eins og tréhringi, en notuðum líka
hversdagslega muni eins og bolla og skeiðar.
Slæm upplifun af stærðfræði
Þær segja að áður en verkefnið hófst hafi
leikskólakennararnir rætt um sína reynslu og
upplifun af stærðfræðikennslu í skólakerfinu.
„Leiðinleg,“ sögðu margir, „óskiljanleg“ sögðu
sumir, „erfið“ sögðu aðrir. Upplifun kennar-
ana hafði í heildina verið fremur neikvæð svo
að meginspurningin sem sett var fram í upp-
hafi var einfaldlega: Hvernig getum við gert
stærðfræði að spennandi viðfangsefni í augum
lítilla barna? Þeir leituðu víða fanga, fengu
stærðfræðikennara til að halda fyrirlestra um
táknmál stærðfræðinnar, settu upp gleraugu
stærðfræðinnar og fóru að skoða umhverfi sitt
eins og lítil börn gera, sem reyna allt í senn að
skilja það, móta og aðlaga sig að.
„Börn eru langflest mjög áhugasöm um um-
hverfi sitt,“ segir Håden en þau skynja það
bæði og kanna á annan hátt en fullorðnir.
„Börn á aldrinum 1–3 ára nota öll skynfærin,
þau snerta, þreifa, lykta, hlusta, horfa, teikna,
syngja og dansa. Tjáning þeirra er sömuleiðis
frjálsari og sköpunargáfan ríkari.Hún er ekki
eins formföst og fullorðinna. Þetta er mik-
ilvægt að hafa í huga þegar farið er að huga
að því að kenna börnum stærðfræði, því hún
snýst um annað og meira en bara tölur.
Stærðfræði snýst líka um mynstur og rými,
hugtök eins og stórt og lítið, þykkt og þunnt
og breitt og mjótt.“ segir Sundberg.
Samræðurnar lykilatriði
,,Það var lærdómsríkt fyrir okkur kennar-
ana að fylgjast með tveimur telpum, nær
þriggja ára í einu verkefninu. Þær fengu yfir
nokkurra mánaða tímabil að leika sér að tré-
hringjum, í tveimur litum en mismunandi
stærðum í herbergi sem var án allra annarra
leikfanga. Telpurnar dreifðu úr hringjunum,
flokkuðu eftir stærð, litum, bjuggu til ýmis
mynstur, byggðu síðan turn úr þeim, auk
þess að búa til ímyndaðan garð og kastala.
Samræðurnar voru lykilatriði. Þær ræddu
saman hvernig og hvers vegna þær ætluðu
að nota hringina, leituðu ráða hvor hjá ann-
arri varðandi verklagið eða komust að mála-
miðlunum. Leikskólakennari var inn í her-
berginu, til þess að skrá hvað telpunum fór á
milli og hvernig þær leystu hinar ýmsu
stærðfræðiþrautir, því að öðrum þræði var
þetta líka rannsókn. Hann hafði hins vegar
sárasjaldan afskipti af leiknum. Ef telpurnar
áttu í erfðileikum með að finna lausnir spurði
hann opinna spurninga en leiddi þær að öðru
leyti ekki áfram. Á veggjum herbergisins
héngu líka myndir af fyrri lausnum, þ.e.
byggingum, og stundum benti leikskólakenn-
arinn á þær ef vandræði komu upp. Hann
lagði einnig fyrir þær þrautir eða spurði vís-
vitandi heimskulegra spurninga eins og hvað
væru mörg horn á hring, til að fá þær til þess
að orða hugsun sína og þekkingu.“
Håden segir að telpurnar hafi ekkert síður
lært hver af annarri en af sjálfum sér eða
leikskólakennurunum. „Samræðurnar og
sögurnar sem þær bjuggu til í kringum
byggingu bæði turnsins og garðsins festu
auk verklagsins ákveðin hugtök í sessi eins
og „ofan á“, „við hliðina á“, „hærri“ og
„lægri.“
Þær eru sannfærðar um að uppgötvunar-
nám af þessu tagi sé árangursríkt. „Það er
mikilvægt að rétta umhverfið sé til staðar,
börnin sjá um uppgötvanirnar.“
Leikskólabörn seig í stærðfræði
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ögrun Þessi kubbahrúga breyttist fljótlega í stærðfræðilegt viðfangsefni.
Snjall Kubbar eru börnum efniviður í
skemmtilegar byggingar.
Börn á leikskólaaldri eru eins og
svampar sem soga til sín þekk-
ingu. Umhverfið er þeim enda-
laus uppspretta rannsókna og
athugana – líka í stærðfræði.