Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 29

Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 29 Í FRÉTTABLAÐINU á laug- ardag er frétt með yfirskriftinni Vinstri græn höfnuðu Smára Geirssyni þar sem fjallað er um kjör formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Steinunn Valdís Óskarsdóttir gerir því ennfremur skóna í Morgunblaðinu í gær að Vinstri græn hafi rofið samstöðu félagshyggjufólks á þinginu. Þar sem undirrituð sat í kjörnefnd fyr- ir þingið er rétt að nokkur atriði séu dregin fram í dagsljósið. Þegar á fyrsta fundi nefndarinnar í sum- ar voru tvö nöfn nefnd til for- mennsku, þ.e. nafn Smára Geirs- sonar og Árna Þórs Sigurðssonar. Almennt var gerður góður rómur að hæfi og vægi aðilanna beggja en þó komu fram sjónarmið eins og búseta og kyn, síður umræður um flokksskírteini. Þegar í byrjun gerði ég það ljóst í kjörnefndinni að útilokað væri að Vinstri græn gætu staðið að tillögu um Smára Geirsson sem formann í ljósi þess að þar færi einn harðskeyttasti stóriðjusinni landsins. Það þarf ekki mikla greiningarhæfileika til að sjá að við blasir, þegar umdeild- asta framkvæmd Íslandssögunnar er á lokastigum, þúsundir manna mótmæla þvert á flokkslínur, að sameiningartákn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga getur ekki jafnframt verið slíkur fánaberi stóriðjustefnunnar sem Smári Geirsson er. Satt að segja fannst mér þá þegar sæta furðu að Sam- fylkingin, flokkur Fagra Íslands, færi fram með slíkt framboð. Við í VG hefðum getað stutt ýmsa karla og konur úr röðum Samfylkingar til embættis formanns og gerði ég fjölda Samfylkingarfólks grein fyrir þeirri afstöðu í aðdraganda þingsins. Slík nöfn voru hinsvegar aldrei lögð fram á fundum nefnd- arinnar. Það var ekki fyrr en á þinginu sjálfu að nafn Halldórs Halldórssonar var nefnt formlega og þá fljótlega ljóst að til kosn- ingar kæmi milli þeirra Smára og Árni drægi sig í hlé. Samfylkingin glataði hér sögulegu tækifæri til að hafa áhrif á hver leiddi sam- bandið með því að gera engar til- raunir til að ná samstöðu um fram- bjóðanda við okkur Vinstri græn. Eftirmælin hafa verið þung orð og jafnvel fúkyrði í okkar garð. Slíkt er engum til sóma. Svandís Svavarsdóttir Gegn stóriðju í orði og á borði Höfundur er borgarfulltrúi. FLUG okkar Íslendinga hefur ver- ið ein mikilvægasta atvinnugreinin um áratuga skeið. Hún hefur vaxið og dafnað og veitir í dag hundruðum og þús- undum manna störf auk þess sem starf- seminni tengjast beint og óbeint þús- undir annarra starfa. Framsýnir menn, sem lærðu flug, stofn- uðu flugfélög og hófu flugrekstur til að tengja byggðir lands- ins. Fljótlega sóttu þeir einnig til útlanda og þannig bættist við ný flutninga- og sam- gönguleið. Landið var því vel í sveit sett hvað varðar flug og siglingar til umheims- ins og hefur svo verið í marga áratugi. Flugið verður okk- ur áfram mikilvægt. Við þurfum að halda vel á spöðunum til að hlúa að þessari starf- semi áfram og vera áfram samkeppnishæf við erlenda að- ila hvað varðar flugreksturinn sjálfan og alla þjónustu við flugið. Mjög hröð þróun hefur verið í flugi í þau rúmlega 100 ár sem maðurinn hefur getað nýtt sér þessa tækni. Tæknivæðing hvers konar, bæði við smíði flugvéla, rekstur þeirra og flug- leiðsögu hefur gert þennan ferða- máta æ hagkvæmari. Við gætum ef- laust ekki hugsað okkur heiminn í dag án flugsamgangna. Allt frá ár- dögum flugs hafa öryggismál einnig verið ofarlega á baugi. Með því reyn- um við að tryggja slysalausan rekstur af fremsta megni. Jafnframt hefur síðustu árin þurft að verja mikilli orku í flugvernd, að freista þess að fyrirbyggja ógnir og hermdarverk í flugi. Á morgun boða sam- gönguráðuneytið og Flugmálastjórn til flug- þings í áttunda sinn. Þar verða íslensk flugmál í brennidepli. Erindi verða flutt um kröfur sam- félagsins til flugsins, tækifæri, skipan flugmála og rekstur íslenska flug- samgöngukerfisins. Á fyrri flugþingum hefur meðal annars verið fjallað um framtíð íslenskra flugmála í Evrópu, um- hverfismál og flugöryggi. Flugþing eru nauðsyn- legur vettvangur til að staldra við og kanna hvort við erum á réttri leið. Það gerum við einnig nú og vil ég hvetja þá sem tengjast flugstarfsemi til að sækja þingið. Í lokin vil ég einnig minna á góðan gest sem ávarpar flugþingið og flytur einnig fyrirlestur í dag. Dr. Assad Kotaite, fyrrverandi forseti Alþjóða flug- málastofnunarinnar, ICAO, fjallar í dag kl. 16 í hátíðarsal Háskóla Ís- lands um framtíð alþjóðlegs flugs. Dr. Kotaite hefur eftir áratuga störf að flugmálum mikla yfirsýn og verður forvitnilegt að heyra hvernig hann sér fyrir sér flug framtíðarinnar. Mikilvæg atvinnu- grein í áratugi Sturla Böðvarsson skrifar í tilefni af flugþingi Sturla Böðvarsson »Mjög hröðþróun hefur verið í flugi í þau rúmlega 100 ár sem mað- urinn hefur get- að nýtt sér þessa tækni. Höfundur er samgönguráðherra. MORGUNBLAÐIÐ tekur upp hanskann fyrir starfsmenn Landsvirkjunar í leiðara í gær. Tilefnið eru þau ummæli Kristjáns Kristjáns- sonar, verkefn- isstjóra öryggis-, heilbrigðis- og um- hverfismála við bygg- ingu Kárahnjúka- virkjunar, í Morgunblaðinu deg- inum áður, að „Það er ljóst að Lands- virkjun er ekki vin- sælasta fyrirtæki landsins þannig að þegar maður segir hvar maður vinnur fær maður stundum að heyra hvað fólki finnst um fyr- irtækið.“ Morgunblaðið spyr: „Styrinn um Kárahnjúkavirkjun hefur beint kastljós- inu að Landsvirkjun og í umræðunni hef- ur fyrirtækið nánast runnið saman við virkjunina. Er það maklegt? Auðvitað er það maklegt. Landsvirkjun sótti virkjunarleyfi við Kárahnjúka af mikilli hörku. Þrátt fyrir að Skipulagsstofnun hafnaði framkvæmdinni þann 1. ágúst 2001 eftir mat á umhverfis- áhrifum í samræmi við umsagnir fagstofnana umhverfisráðuneyt- isins og Landgræðslu ríkisins, auk virtra fræðimanna. Viðbrögð þáverandi forsætisráðherra, Dav- íðs Oddssonar, við úrskurðinum voru afar illskeytt í garð stofn- unarinnar og hann lýsti úrskurð hennar ólöglegan án frekari rök- stuðnings. Þáverandi utanrík- isráðherra, Halldór Ásgrímsson, fullvissaði lesendur Morgunblaðs- ins um að þrátt fyrir úrskurðinn væru stjórnvöld ákveðnari í því en nokkru sinni fyrr að ráðast í Kárahnjúkavirkjun. Landgræðslu- stjóri var í kjölfarið beittur mikl- um þrýstingi af hálfu þriggja ráð- herra – forsætis-, utanríkis-, og landbúnaðarráðherra – til að fá stofnuna til að breyta umsögn sinni í kæruferlinu. Úrskurður umhverf- isráðherra var því fyr- irfram gefinn. Landsvirkjun hefur staðið fyrir linnulausri áróðursherferð fyrir virkjunum og jafnvel gengið svo langt að beina áróðri sínum að skólabörnum. Óhróður um náttúruvernd- arhreyfinguna og tals- menn hennar er enn hluti af þeirri áróð- ursherferð. Á vefsíðu fyrirtækisins var ný- lega hampað grein þar sem skrifum Andra Snæs Magnasonar er líkt við hugmyndir um Þriðja ríki nazista. Slík skrif eru fyr- irtækinu ekki til vegs- auka og hljóta að valda starfsmönnum þess óþægindum. Eða, hver getur verið stolt- ur af slíkri framgöngu eigin fyrirtækis? Umfjöllun Morgunblaðsins s.l. sunnudag um það álag sem starfs- menn Landsvirkjunar eru undir vegna gagnrýni á fyrirtækið er góðra gjalda verð. Á hinn bóginn er það ekki trúverðugt þegar að- stoðarkynningarfulltrúi Kára- hnjúkavirkjunar, Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir, heldur því fram að andstæðingar virkjunarfram- kvæmda takmarkist við 101 Reykjavík. Bendir gangan mikla niður Laugaveginn til þess? Slíkar fullyrðingar aðstoðarkynningafull- trúa Kárahnjúkavirkjunar varpa rýrð á allt kynningarstarf Lands- virkjunar. Aðalatriðið er þó að ekki verður dregin sú ályktun af úttekt blaðs- ins s.l. sunnudag að náttúruvernd- arhreyfingin á Íslandi hafi með nokkrum hætti ráðist að starfs- mönnum Landsvirkjunar. Engin dæmi eru nefnd um slíkt enda hafa Náttúruverndarsamtök Ís- lands kappkostað að ástunda mál- efnalega umræðu í gagnrýni sinni á virkjanastefnu stjórnvalda. Því ber leiðarahöfundum Morg- unblaðsins að halda til haga. Á Landsvirkjun bágt? Árni Finnsson gerir athugasemd við leiðara Morgunblaðsins Árni Finnsson » Lands-virkjun hef- ur staðið fyrir linnulausri áróð- ursherferð fyrir virkjunum og jafnvel gengið svo langt að beina áróðri sín- um að skóla- börnum. Höfundur er formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. og olíu. Sé sverð þitt stutt þá gakk feti framar, sagði hernaðarþjóðin Spartverjar. Hvernig væri að ganga feti framar og fram fyrir skjöldu sem friðarstillar? Nota herstöðina fyrrverandi sem „basa“ fyrir slíkt? Það er svosem ekkert nýtt við þessa hugmynd. Hún er tæplega þrjú þúsund ára gömul. Hebreska þjóðfélagsrýninn Jesaja dreymdi í riti sínu um samskipti þjóðanna: „Og þær munu smíða plógjárn úr sverð- um sínum og sniðla úr spjótum sín- um.“ Kannski getur þessi forni draumur ræst í herstöðinni á Mið- nesheiði. » Lítil dúfa með ólífu-viðarblað í goggi hvíslaði því hins vegar að mér að best væri að breyta herstöðinni miklu í ratsjárstöð frið- arins. Höfundur er prestur og fyrrverandi forsetaritari. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali. SÉRBÝLI Í SMÁRAHVERFI KÓPAVOGI ÓSKAST Til mín hefur leitað fjölskylda sem óskar eftir 220 fm sérbýli í Smárahverfi, Kópavogi. Æskilegt að eignin hafi a.m.k. fjögur svefnherbergi. Um er að ræða traustan og fjársterkan aðila sem er tilbúinn að veita ríflegan afhendingartíma sé þess óskað. Allar nánari upplýsingar veitir Hákon Svavarsson í síma 898 9396. Hákon Svavarsson lögg. fasteignasali gsm - 898-9396 Arnartangi10 – 174,2 m2 einbýlis- hús. Mjög fallegt og að- laðandi 138,6 m2 einbýlishús á einni Arnartangi 10 174,2 fm einbýlishús Mjög fallegt og aðlaðandi 138,6 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 35,6 fm bíl- skúr á mjög fallegri hornlóð með timburveröndum í Mosfellsbæ. Þetta er hent- ugt skipulag, svefnherbergi eru aðskilin frá stofu og borðstofu og eldhús tengt svefnálmu. Stórt hellulagt bílaplan fyrir framan húsið og tvær timburverandir í suðurátt. **Verð kr. 39,9 m.**Einar Páll Kjærnested löggiltur fasteignasali. Sími 586 8080 • Fax 586 8081 www.fastmos.is kvíða og/eða þunglyndi. Og það að vita að maður er ekki einn er mjög mikilvægt. Seinna fór ég að gera mér grein fyrir hvað það hjálpaði mér mikið að borða hollan mat, hreyfa mig reglulega og hafa snyrtilegt í kring- um mig. Mamma sagði mér meira að segja um daginn að hún væri farin að taka eftir því að um leið og herbergið mitt væri ekki í topp- standi færi mér að líða illa. Mér líð- ur nefnilega stundum illa eins og öðru fólki, þó að ég sé á bataleið. En þó að þetta geti talist eðlileg vanlíðan þá verð ég til dæmis mjög hrædd um að festast í sama horfi og ég var í en þá er bara málið að rífa sig upp og fara að gera eitt- hvað annað, alveg sama hversu erf- itt það er. Minn bati hefði örugglega orðið meiri á skemmri tíma ef ég hefði ekki verið svona hrædd við þessa fordóma. Það er því mjög mik- ilvægt að fræða þjóðina um geð- sjúkdóma. Höfundur er menntaskólanemi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.