Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 31

Morgunblaðið - 03.10.2006, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 31 Notkun ökutækja, umferð-armannvirki og sam-göngur á landi almennt,hefur síaukin áhrif á daglegt líf þegnanna. Ökuréttindi þykja sjálfsögð og eru flestum sem þau hafa, verðmæt persónuréttindi og öðrum grundvöllur lífsvið- urværis. Þeir sem glata þeim lýsa mikilli skerðingu lífsgæða og óhag- ræði. Um nauðsyn greiðra sam- gangna nægir að vísa í sívakandi umræðu um umferðarmál, og ekki síður umferðaröryggismál. Umferð- armál eru meira rædd nú en oftast áður og þá ekki síst skuggahliðar þeirra. Áberandi var nú síðsumars umfjöllun um ofsaakstur bifhjóla- manna, gáleysi eða ásetning öku- manna flutningabifreiða við hæð- artakmarkanir, hættulega vegi o.s.frv. Aðilar í stjórnsýslunni; hjá lögreglunni og víðar hafa rætt um- ferðarmálin. En hvernig er þessi málaflokkur samansettur? Hverjir koma að málum og hversu samstiga eru þeir sem koma að þessum mála- flokki? Í þessari grein og tveimur öðrum, sem munu birtast hér á síð- um Morgunblaðsins, verður leitast við að varpa ljósi á nokkur atriði umferðar- og umferðaröryggismála. Umferðarlagabrot – algengust brota Óvíst er að vegfarendur velti því mikið fyrir sér hversu algeng brot á umferðarlögum eru og enn síður hvort smávægilegar „yfirsjónir þeirra eða ásetningsbrot, hafi áhrif á umferðaröryggið. Af umræðunni um afbrot eins og hún birtist má ætla að algengustu afbrotin hér á landi séu fíkniefnabrot, ofbeldisbrot í miðbæ höfuðborgarinnar, kynferð- isbrot eða jafnvel skattsvik! Allt eru þetta alvarlegir brotaflokkar, hver á sinn hátt. Ef hins vegar er litið til tölfræðinnar kemur í ljós að brot gegn umferðarlögum eru fyrirferða- mikil. Þau eru algengustu afbrotin sem koma til kasta hins opinbera. Þar með má álykta að „brotamenn- irnir séu fleiri í þeim málum en í öðrum. Afbrotatölfræði Ríkislög- reglustjórans (RLS) sýnir að árið 2004 voru mál tengd umferð- arlagabrotum 74% allra skráðra brota hjá lögreglu en hafði þó fækk- að um 6% frá meðaltali fjögurra ára þar á undan (ath. fækkun brota er ekki örugg vísbending um bætta stöðu – þar getur tími sá sem lög- regla hefur til að sinna málunum skipt máli). Um raunverulegan fjölda umferðarlagabrota sem fram- in eru er útilokað að fullyrða. Í skýrslu Rannsókarnefndar umferð- arslysa um banaslys árið 2001 segir á blaðsíðu 25 „...Ekki er gerlegt að slá á fasta tölu umferðarlagabrota sem framin eru en ljóst að fjöldi þeirra ár hvert á Íslandi skiptir milljónum …“1) Þessi orð voru sett fram í ljósi umræðu um banaslys árið 2001 þar sem tengsl þess að hlíta ekki ákvæðum umferðarlaga og slysa- tíðni, eru rædd í samhengi. Brot á umferðarlögum og öllu því reglu- verki sem þeim fylgir, snertir um- hverfi flestallra sem landið byggja. Flestir ökumenn og aðrir vegfar- endur brjóta ákvæði umferðarlaga vísvitandi eða óvart. Það vekur upp spurningar um það hvort fjöldi brota, sem framin eru, hafi áhrif á viðhorf almennings til þeirra? Hefur það e.t.v. þau áhrif að almenningur skynji ekki að um afbrot sé að ræða? Eru skilaboðin sem send eru til almennings í formi refsinga þess eðlis að þau virka illa? Áður en lengra er haldið er rétt að huga að lagaumhverfinu. Lagaumhverfi Umferðarlögin eru frá árin 1987 og tóku gildi 1. mars árið eftir. Þau eru sérrefsilög en nokkuð sérstök þó vegna þeirra tengsla sem þau hafa við daglegt líf flestra okkar. Lögunum fylgir myndarlegur hópur reglugerða sem ráðherra gefur út. Útgáfa reglugerða með umferð- arlögunum tók kipp með aðildinni að EES árið 1993 og frá þeim tíma hefur íslensk umferðarlöggjöf verið enn frekar samræmd evrópskri með innleiðingu Evrópureglna auk þess sem alþjóðasamningar hafa áhrif. Meðal þeirra reglugerða sem settar hafa verið má nefna ítarlega reglu- gerð um ökuskírteini, ásamt við- aukum, en hún lýsir kröfum til öku- manna, ökuprófa og skilgreinir ökuréttindi; efnismikil reglugerð um gerð og búnað ökutækja sem lýsir kröfum til ökutækja um ástand o.fl.; reglugerð um umferðarmerki o.s.frv. Reglugerðir taka oft breyt- ingum og nýjar eru samdar og birt- ar. Lögin, reglugerðirnar og önnur stjórnvaldsfyrirmæli um umferð- armálefni eru mikil að umfangi, mörg hundruð blaðsíður af laga- og reglugerðartexta, og gefur auga leið að það er vart á færi nokkurs manns að kunna það allt til hlítar þótt ætlast sé til að vegfarendur þekki þar vel til. En hver eru aðal- atriðin í málaflokknum og hvernig er kynningu til almennings háttað? Kynning nýmæla og breytinga Þrátt fyrir að margir sem um um- ferðarmál fjalla, bæði opinberir að- ilar og aðrir, haldi úti öflugu kynn- ingarstarfi er ljóst að breytingar á regluverkinu í málaflokknum ná misvel til almennings. Þetta er bagalegt þar sem reikna má með að flestir vilji vita hverjar reglurnar eru svo unnt sé að fara eftir þeim og tryggja öryggi og réttarstöðu. Vissulega eru lög og reglugerðir með þeim birt eins og lög kveða á um. Stjórnartíðindi eru aðgengileg á Veraldarvefnum og er það eft- irtektarvert framtak hjá dóms- málaráðuneytinu. Þetta er þó ekki efni sem þorri almennings les og fylgist með og breytingar í umferð- armálaflokknum hafa „læðst inn án þess að þeir sem eftir þeim eiga að fara, en vilja fylgja umferð- arreglum, fái örugglega af því spurnir. Þetta hef ég sem starfandi lögreglumaður og leiðbeinandi í Lögregluskólanum oftsinnis rekið mig á. Ný verkefni og auknar vald- heimildir til Vegagerðarinnar Samgönguráðuneytið fékk aukin verkefni á sviði umferðarörygg- ismála við breytingar á stjórnsýsl- unni í málaflokknum um áramótin 2004. Undirstofnun þess, Vegagerð- in, hefur nú meiri eftirlitsskyldur, og um leið vald, til að framfylgja þeim skv. nýjum ákvæðum í umfl. Þannig geta eftirlitsmenn Vega- gerðarinnar stöðvað tiltekin öku- tæki án aðkomu lögreglunnar og hafið rannsókn. Áður unnu eftirlits- menn og lögreglan saman við raun- eftirlit úti á vegum en Vegagerðin hefur um árabil haft ýmsar aðrar eftirlitsskyldur hjá fyrirtækjum á sviði flutningastarfsemi, könnun á aksturs- og hvíldartíma atvinnubíl- stjóra og með úrvinnslu gagna. For- ráðamenn Landssamband lögreglu- manna (LL) og fyrirsvarsmenn hjá Vegagerðinni hafa skipst á skoð- unum um það sem samtök lögreglu- manna hafa kallað lögregluvald eft- irlitsmanna Vegagerðarinnar. LL hafði op- inberlega skoð- anir á lagafrum- varpinu sem upphafleg kom fram og telur sig hafa haft nokk- urn sigur sbr. frétt á heimasíðu LL þann 14. febrúar sl. þar sem það lýsir því yfir að árangur hafi orðið af baráttu þess að koma í veg fyrir of rúmar valdheimildir vegagerðarmanna sem forysta LL taldi geta verið skaðlegar. Þessu hefur verið vísað á bug af Vegagerðinni og því haldið fram að eftirlitsmönnum hennar sé ekkert að vanbúnaði að hafa eftirlit og kalla þá til lögreglu ef þarf. Þá hefur hún vakið athygli á að með þjálfun og fræðslu verði unnt að koma í veg fyrir mistök sem LL hefur haldið fram að gætu átt sér stað þar sem lögreglan er ekki viðstödd eftirlitið. Eftirlit Vegagerðarinnar hefur á undanförnum árum verið að breyt- ast og aukast. Löng hefð er fyrir samvinnu eftirlitsmanna Vegagerð- arinnar og lögreglu. Starfsmenn sem sinntu þessum verkefnum voru gjarnan kallaðir „vigtarar“ enda fólst starfið að hluta í að fylgjast með því að ökutækjum væri ekki ekið of þungum um viðkvæmt vega- kerfið. Hin síðari ár hefur verið í gildi sérstakur samningur milli lög- reglu og Vegagerðar um eftirlit á vegum úti. Það eftirlit beindist fyrst og fremst að stórum ökutækjum, stærð þeirra og þyngd, aksturs- og hvíldartíma ökumanna en einnig var fylgst með þeim verkefnum sem upp komu þótt minni ökutæki ættu í hlut. Lögreglumaður, sem var starfsmaður Ríkislögreglustjóra, fór með lögregluvaldið en naut aðstoðar og fulltingis eftirlitsmanns Vega- gerðarinnar sem lagði til sérþekk- ingu sína. Við undirbúning þessara skrifa var rætt við stjórnendur hjá lögreglu og Vegagerðinni og var viðurkennt hjá báðum aðilum að samningur þessi hafi ekki staðið undir væntingum. Þessu fyr- irkomulagi hefur nú verið breytt þannig að eftirlitsmönnum Vega- gerðarinnar hefur verið fengið vald til afskipta af stærri ökutækjum, án þess að lögreglan komi þar við sögu í upphafi. Þeir geta stöðvað ökutæki á vegum úti, kyrrsett og kallað til lögreglu ef mál þróast öndvert við það sem ætlað var. Eftirlitsdeild Vegagerðarinnar sér nú um ýmiss konar eftirlit og stjórnsýslu í sam- göngumálum sem snúa bæði að inn- heimtu en ekki síður að umferðarör- yggi eins og t.d. með innköllun bókhaldsgagna, m.a. um aksturs- og hvíldartíma. Vegagerðin hefur, að sögn deild- arstjóra eftirlitsdeildarinnar, ein- sett sér að fara rólega af stað og nýta nýfengnar auknar heimildir til að stöðva ökutæki á þjóðvegunum og skoða stærð þeirra og þyngd, hleðslu, frágang og merkingar á farmi og aksturs- og hvíldartíma af hófsemi og gæta þess að stíga skref- in hægt og örugglega. Hann tekur fram að þrátt fyrir að eftirlitsmenn Vegagerðarinnar hefðu nú fengið stöðvunar- og kyrrsetningarvald yf- ir ökumönnumá vegum úti þá væri í engu vegið aðþví lögregluvaldi sem lögreglan hefði lögum samkvæmt og það sem meira er, hún væri alls ekki leyst undan þessum þætti umferð- areftirlitsins eins og einstaka lög- reglumaður virtist halda. Eftirlit Vegagerðarinnar kæmi sem hrein viðbót við eftirlit lögreglu. Þessi breyting á valheimildum eftirlitsmanna Vegagerðarinnar, tók gildi 3. júní sl. og unnið er að út- færslu hennar. Vegagerðin telur að ágæt reynsla hafi verið af þessu fyr- irkomulagi og það gengið vand- ræðalaust. Markvisst sé unnið að þjálfun og menntun eftirlitsmanna Vegagerðarinnar og unnið er eftir aðgerðaráætlun. Verkefni Vega- gerðarinnar í eftirlitsmálum aukast jafnt og þétt, bæði með rauneftirliti á vegum úti, með reglulegum fyr- irtækjaheimsóknum og með inn- köllun gagna. Að mati deildarstjóra eftirlitsdeildarinnar stuðlar aukið eftirlit eins og Vegagerðin fram- kvæmir nú að auknu umferðarör- yggi. Umferðaröryggismál »Umferðarmál eru meira rædd nú en oftast áður og þá ekki síst skuggahliðar þeirra. 1) Það ár sem skýrslan nær til skráði lög- reglan um 67.000 brot í umferðinni í málaskrá sína Höfundur er yfirlögregluþjónn í Lög- regluskóla ríkisins og hefur um árabil komið að ráðgjöf og fræðslu um um- ferðaröryggismál innan lögreglunnar og utan. Eftir Eirík Hrein Helgason Úr ljósmyndasafni lögreglunnar Umferðalagabrot Sjálfbjargarviðleitni ökumanna hefur skuggahliðar. Þessi ökumaður brýtur nokkuð mörg ákvæði umferðarlaganna um leið og hann sækir sér byggingarefni.                          ' ()*+( (, , 2   0    0 > 0 2I   2I   2I   @0 AB-,,C-,,) Eiríkur Hreinn Helgason Til sölu falleg 4ra herb. íbúð á 3. og efstu hæð, ásamt bílskúr, samtals 130,6 fm. Allar innréttingar úr mah- óní. Rúmgóð stofa með útgengi á flísalagðar svalir. Baðherbergi flísa- lagt, gólf og veggir, baðkar, sturta og innrétting. Parket er á flestum gólfum. Fataskápar í hjóna- og öðru barnaherberginu. Sérgeymsla í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu. Góð staðsetning, stutt í alla þjónustu. Verð 27,9 millj. LAUTASMÁRI - 4RA HERB. FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250 • Borgartúni 31 • www.fjarfest.is Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.