Morgunblaðið - 03.10.2006, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
GAMANMYNDIN Talladega
Nights: The Ballad of Ricky Bobby
var mest sótta kvikmyndin í íslensk-
um bíóhúsum síðastliðna helgi.
Myndin skartar Will Farrell og
John C. Reilly sem félögunum Ricky
Bobby og Cal Naughton Jr, sem kalla
sig líka Shake og Bake. Þeir eru
ósigrandi kappaksturshetjur og skipa
sér iðulega í efstu sæti slíkra keppna
um allan heim. Þegar franska Form-
úlu 1 kappaksturhetjan Jean Girard
skorar þá Shake og Bake á hólm
verða þeir að berjast með kjafti og
klóm til að halda stalli sínum sem af-
burða ökuþórar. Það er enginn annar
en Sacha Baron Cohen sem fer með
hlutverk hins franska ökuþórs en
hann er þekktastur sem hugarfóstur
sín Ali G og Borat.
Teiknimynd í öðru sæti
Í öðru sæti aðsóknarlistans er vin-
sælasta mynd síðustu viku, The Wild.
Þar lenda teiknaðar fígúrur í ýmsum
ævintýrum úti í óbyggðunum.
Í þriðja sæti er svo unglingamynd-
in John Tucker Must Die, þar sem
kvennabósinn Tucker verður að vara
sig á fyrrverandi kærustum sem eiga
harma að hefna gegn honum.
Fjórða vinsælasta mynd vikunnar
var svo Harsh Times, sem frumsýnd
var síðastliðinn föstudag. Þar fer
Cristian Bale með hlutverk fyrrver-
andi hermanns sem leiðist út af beinu
brautinni.
Í næstu sætum á eftir röðuðu sér
svo Börn Ragnars Bragasonar og
Vesturports, Step Up, Nacho Libre,
Grettir 2, Crank og heimildamyndin
Þetta er ekkert mál.
Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar í íslenskum bíóhúsum
Ricky Bobby og félagar
fyrstir í mark
Svalir Þeir félagar Shake og Bake kalla ekki allt ömmu sína á kappakst-
ursbrautinni en yfir þeim vofir franskur keppinautur.
LEIKARINN Ashton Kutcher er
þess heiðurs aðnjótandi að fara með
hlutverk í tveimur vinsælustu
myndunum í bandarískum kvik-
myndahúsum um helgina. Beint á
toppinn skaust teiknimyndin Open
Season. Hún segir frá hópi villtra
dýra sem leita sér skjóls vegna þess
að veiðitímabil mannanna er að
hefjast í heimkynnum þeirra. Auk
Kutcher ljá leikararnir Martin Law-
rence og Debra Messing sögu-
hetjum raddir sínar auk Billy Con-
nolly sem talar fyrir leiðtoga reiðra
íkorna. Sá ber heitið McSquizzy og
gólar í sífellu ýmsar skipanir með
skoskum hreim.
Kutcher og kjánaprikin
Í öðru sæti aðsóknarlistans var
myndin The Guardian þar sem þeir
Kutcher og Kevin Costner fara með
hlutverk strandgæslumanna sem
lenda í erfiðum aðstæðum við að
bjarga fólki úr sjávarháska.
Í þriðja sæti voru svo kjánaprikin
sem kenna sig við Jackass með aðra
mynd sýna sem ber það frumlega
heiti Jackass: Number Two.
Fjórða sætið vermir svo ný mynd,
School for Scoundrels, þar sem Billy
Bob Thornton fer með hlutverk
manns sem vinnur ákaft í að byggja
upp lélegt sjálfstraust sitt. Myndin
Fearless, sem skartar Jet Li í aðal-
hlutverki, fellur um þrjú sæti frá
síðustu viku og vermir það fimmta.
Í fimm næstu sætum eru svo
myndirnar Gridiron Gang, The Ill-
utionist, Flyboys, The Black Dahlia
og Little Miss Sunshine.
Kutcher vinsæll í kvik-
myndahúsum vestra
Vinsælustu myndirnar í bandarísk-
um bíóhúsum um helgina:
1. Open Season.
2. The Guardian.
3. Jackass Number Two.
4. School for Scoundrels.
5. Fearless.
6. Gridiron Gang.
7. The Illutionist.
8. Flyboys.
9. The Black Dahlia.
10. Little Miss Sunshine.
Skelkaður Dýrunum í skóginum líst fæstum vel á að veiðitímabil mann-
anna sé að hefjast og hyggjast leggja á flótta.
Kvikmyndir | Bandaríski bíólistinn
www.leikfelag.is
4 600 200
Kortasala enn í gangi!
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Sun 8. okt kl. 17 UPPSELT - 5. kortasýn
Lau 14. okt kl. 14 Aukasýning - í sölu núna!
Sun 15. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 15. okt kl. 15 UPPSELT
Sun 15 okt kl. 16 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 15
Næstu sýn: 29/10, 5/11, 12/11,
Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu
Fim 5. okt kl. 20 3. kortasýn
Fös 6. okt kl. 20 4. kortasýn
Fim 12. okt kl. 20 5. kortasýn
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Sun 8/10 kl. 14 Sun 15/10 kl. 14
Sun 22/10 kl. 14 Sun 29/10 kl. 14
VILTU FINNA MILLJÓN?
Fös 6/10 kl. 20 UPPS. Fös 13/10 kl. 20
Sun 15/10 kl. 20 Fös 20/10 kl. 20
FOOTLOOSE
Lau 7/10 kl. 20 UPPS. Sun 8/10 kl. 20
Fim 12/10 kl Lau 14/10 kl. 20
HVÍT KANÍNA
Nemendaleikhúsið frumsýnir nýtt verk
eftir hópinn.
Fim 5/10 kl. 20 Fös 6/10 kl. 20
Lau 7/10 kl. 20 Sun 8/10 kl. 20
BANNAÐ INNAN 16 ÁRA.
Engum hleypt inn án skilríkja.
MEIN KAMPF
Lau 7/10 kl. 20
Sun 8/10 kl. 20
Lau 14/10 kl. 20
Lau 21/10 kl. 20
Fös 27/10 kl. 20
AMADEUS
Lau 21/10 kl. 20 frums. UPPS. Bleik kort.
Fim 26/10 kl. 20. 2.sýning Gul kort.
Lau 4/11 kl. 20. 3.sýning Rauð kort.
Sun 12/11 kl. 20. 4.sýning Græn kort
Lau 18/11 kl. 20. 5.sýning Blá kort
Sun 19/11 kl. 20. 6.sýning
VIÐ ERUM KOMIN-Íd
Októbersýning Íd, 2 ný verk:
Við erum komin e. Ólöfu Ingólfsdóttur
og Hver um sig e.Vaðal.
Fim 12/10 kl. 20 fumsýning UPPS.
Fös 13/10 kl. 20
Sun 15/10 kl. 20
Fim 19/10 kl. 20
FÍLHARMÓNÍA
SÖNGSVEITIN
Carl Orff
Tónleikar í Langholtskirkju
sunnudag, 1. október kl. 17
miðvikudag, 4. október kl. 20
Stjórnandi: Magnús Ragnarsson
Guðríður St. Sigurðardóttir, Kristinn Örn Kristinsson
Píanóleikarar:
Hallveig Rúnarsdóttir, Bergþór Pálsson, Einar Clausen
Einsöngvarar:
Miðasala við innganginn og á www.midi.is, nánar á www.filharmonia.mi.is
6 manna slagverkssveit, Drengjakór Kársnesskóla
CARMINA
BURANA
Bandaríski leik-arinn Leon-
ardo DiCaprio
segir frægðina sem
hann öðlaðist í kjöl-
far kvikmyndar-
innar Titanic hafa
stigið sér til höfuðs
og farið langt með
að gera sig hrokafullan. Hann hafi átt
erfitt með að takast á við hólið og
áhrifin sem fylgt hafi frægðinni. Hún
geti leitt til ranghugmynda manns
um eigið mikilvægi.
Þetta kemur fram í viðtali við Di-
Caprio, sem er 31 árs, í breska
blaðinu Independent.
„Þegar fólk fer að hæla manni og
maður fer að hafa meiri áhrif en
nokkru sinni fyrr er ef til vill ekki að-
almálið að maður verði hrokafullur
skratti heldur að maður fyllist rang-
hugmyndum um eigið mikilvægi,“
segir DiCaprio. „Maður er kominn út
á hálan ís þegar maður er farinn að
halda að maður hafi beinlínis breytt
gangi veraldarsögunnar.“
DiCaprio viðurkennir að hann hafi
orðið frægur svo skyndilega að hann
hafi ekki ráðið við það. Engin kvik-
mynd hefur hlotið jafn mikla aðsókn
og Titanic.
Fólk folk@mbl.is