Morgunblaðið - 03.10.2006, Side 49

Morgunblaðið - 03.10.2006, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 49 eeeee LIB - topp5.is eeee HJ, MBL eeee Tommi - Kvikmyndir.is / KRINGLAN HARSH TIMES kl. 8 - 10:30 B.i. 16.ára. BÖRN kl. 6 - 8 - 10:15 B.i.12.ára. ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl tali kl. 6 LEYFÐ UNITED 93 kl. 10:15 B.i.14.ára. BJÓLFSKVIÐA kl. 8 B.i.14.ára. AN INCONVENIENT TRUTH kl. 6 LEYFÐ / AKUREYRI BEERFEST FORSÝNING kl. 6 - 8 - 10 B.I. 12 NACHO LIBRE kl. 8 - 10 B.i. 7 ÓBYGGÐIRNAR Ísl tal. kl. 6 Leyfð / KEFLAVÍK NACHO LIBRE kl. 8 - 10:10 B.i. 7 STEP UP kl. 8 - 10 B.i. 7 MEÐ HINUM EINA SANNA JACK BLACK OG FRÁ LEIKSTJÓRA “NAPOLEON DYNAMITE” KEMUR FRUMLEGASTI GRÍNSMELLURINN Í ÁR. eee E.B.G. Topp5.is E.T. kvikmyndir.is THE ALIBI Hann var meistari á sínu sviði þar til hann hitti jafnoka sinn. BÖRN KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON eee ÓLAFUR H. TORFASON RÁS2 eeee HEIÐA MBL FRAMLAG ÍSLENDINGA TIL ÓSKARSVERÐLAUNA! FRÁ EINHVERJUM MEST SPENNANDI LEIKHÓP SEM ÍSLENDINGAR EIGA Í DAG, VESTURPORT, KEMUR HREINT ÚT SAGT MÖGNUÐ KVIKMYND BÖRN! eeee VJV eeee Roger Ebert eee L.I.B. Topp5.is eee S.V. Mbl. BJÓLFSKVIÐAeeeH.J. - MBL eeeeblaðið 30.09.2006 3 14 19 23 37 1 3 2 2 0 0 1 7 5 7 17 27.09.2006 7 19 28 29 30 35 3925 42 Reykjavík International Film Festival Sept 28 Okt 8 2006 Fjórar mínútur Evrópufrums ýning Háskólabíó 20:00 filmfest.is Four Minutes Sigurvegarinn á kvikmyndahátíðinni í Sjanghæ, Fjórar mínútur, er Evrópufrumsýnd á Íslandi í kvöld. Tjarnarbíó 14:00 | Harabati hótelið 15:45 | Bless Falkenberg 18:00 | Grbavica 20:10 | Leiðin til Guantanamo 22:15 | Rauður vegur Iðnó 14:00 Sakleysi 16:00 | Brosað á stríðssvæði 18:00 | Málþing um fangabúðirnar á Guantanamo 20:00 | Stúlkan er mín 22:00 | Eins og Rollingarnir Háskólabíó 17:45 | Sápa 18:00 | Vort daglegt brauð 18:00 | Ótakmarkað 20:00 | Með dauðann á hendi 20:00 | Fjórar mínútur 20:00 | Hreinn, rakaður 20:00 | Fallandi 22:00 | Sumarhöllin 22:00 | Ótakmarkað 22:00 | Norðurkjálkinn 22:30 | Leynilíf orðanna Hrútur (21. mars - 19. apríl)  „Lánuð“ vandræði eru yfirleitt sú teg- und vandræða sem maður væri ekki í ef maður hefði vit á því að þegja. Hrút- urinn hefur svo sannarlega heppnina með sér ef hann leyfir öðrum að glíma sjálfum við vandamál sín. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er svo sannarlega gremjulegt að sitja og bíða. En það er ekki alveg jafn svekkjandi ef maður situr og borðar sal- at, svo dæmi sé tekið. Himintunglin hjálpa þér við að gera óspennandi eða leiðinleg verkefni að einhverju góm- sætu. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Eitthvað sem tvíburinn hefur hugsað í þaula er nú að byrja að verða að veru- leika. Það er orðið að sálrænni hold- tekningu í heilanum á þér og segulsvið í anda þínum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Einbeitingarhæfileikar krabbans eru tilkomumiklir. Viðleitni hans getur af sér einhvers konar töfra. Ekki er víst að lofið hellist yfir þig, en ekki örvænta, þú færð svo mikla athygli innan tíðar að þér á eftir að þykja nóg um. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Mistök fortíðarinnar voru víst lexíur. En í seinni tíð kennir sagan þér að sag- an er ekki sérlega góður kennari. Hafðu ánægju af þínum eigin heimskupörum, ekki dæma. Svona er bara mannlegt eðli. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þó að hugmynd þinni sé ekki sérlega vel tekið er ekki þar með sagt að hún sé vond. Jafnvel bestu hugmyndum er tek- ið með tortryggni. Dæmi: margir héldu að netið myndi aldrei ná fótfestu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin þarf alls ekkert að láta ganga á eftir sér. Hennar önnum kafni og glæsi- legi lífsstíll ber með sér að hún sé ekki beinlínis á lausu. Hvort sem málið snýst um ást, peninga eða annað skaltu bara vera þú sjálf og leyfa því að koma til þín. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Stjörnurnar lýsa á feimnina sem býr innra með sporðdrekanum. Þú ert elsk- aður hvort sem þú þegir eða talar. Mað- ur kemur miklu í verk í einrúmi og þögn. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Neyddu sjálfan þig til þess að gera ein- mitt það sem þig langar alls ekki. Þann- ig öðlastu nægan sjálfsaga til þess að koma jafnvel enn meiru í verk. Þú átt skilið að slappa af í kvöld. Einhver í vog- armerki er þinn bandamaður. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Upplýsingar sem steingeitin hefur hald- ið leyndum leka nú af vörum hennar áð- ur en henni tekst að loka munninum. En óvænt! Það gerir reyndar ekkert til, þú átt eftir að hitta fólk sem er þér sam- mála. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn punktar hugsanlega eitt- hvað niður í tölvupósti sem hann getur ekki tjáð í eigin persónu. Rafræn miðl- un er hin fullkomna blanda nándar og fjarlægðar. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Himintunglin varpa ljósi á tilfinningu fisksins fyrir samfélaginu. Í seinni tíð er hann ekki viss um hversu mikið hann vilji leggja af mörkum og í hve miklu sambandi hann vilji vera við fólk. Þú ert ekkert skuldbundinn, gerðu það sem þér finnst rétt. Mars og Neptúnus eru í heillavænlegri afstöðu til þess að styðja okkur í þeirri viðleitni að breyta draum- um í gerðir og veruleika í drauma, ef út í það er far- ið. Einföld og fáguð staðreynd verður augljós: Hvar sem við erum stödd núna er það afleiðing tilfinninga okkar og hugsana. Ef við beinum þeim á einhvern annan hátt verður niðurstaðan önnur. stjörnuspá Holiday Mathis ÞAÐ kemur manni svo sem ekki á óvart að kínversk yfirvöld hafi dæmt Lou Ye í fimm ára leik- stjórnarbann fyrir Sumarhöllina. Myndin fjallar umbúðalaust um samfélag kínverskra stúdenta í Peking undir lok síðustu aldar og þó að hin pólitíska ádeila sé að miklu leyti undir niðri, veitir þessi mynd fágæta sýn inn í kínverskt samfélag síðustu 20 ára. Í stuttu máli fjallar Sumarhöllin um ástina og gerir það af ótrúlegu næmi og nærgætni. Lou Ye hefur nálgast handritið af mikilli virðingu og hvergi vantar upp á að senur ljúki sér eða þá að úrlausnarefnið virki losaralegt. Sagan spannar þar á ofan áhugavert tímabil í kín- verskri og evrópskri sögu þar sem mótmælin á Torgi hins himneska friðar og fall Berlínamúrsins flétt- ast inn í söguna. Ýmsum kynni að finnast Sum- arhöllin langdregin á köflum og sannarlega er myndin löng, en eftir á að hyggja er ekki margt í mynd- inni sem hefði mátt missa sín. Gríð- arlega vel gerð kvikmynd sem skil- ur mikið eftir sig. KVIKMYNDIR RIFF 2006: Háskólabíó Leikstjórn: Lou Ye. Aðalhlutverk: Lei Hao, Xiaodong Guo. Sumarhöllin -  Höskuldur Ólafsson Ástin mannanna Í HEIMALANDI mínu endar ekk- ert vel,“ er haft eftir serbneska leik- stjóranum Goran Paskaljevic og sömu sögu er að segja um kvik- mynd hans Púðurtunnuna. Fárán- leiki lífsins og tilgangsleysi er um- fjöllunarefnið í þessari mynd sem myndar þríleik með Draumi á Þor- láksmessunótt og Hinum bjartsýnu en þær eru einnig sýndar á RIFF. Paskaljevic nálgast verkið úr tragíkómískri átt þar sem öm- urlegri, en að sama skapi kómískri tilveru persónanna er fylgt eftir í eina kvöldstund í höfuðborginni Belgrad. Í heild spannar myndin líklega á annan tug sjálfstæðra sagna sem fléttast meira eða minna inn í hver aðra og sá tæknilegi hlut- ur myndarinnar er sérstaklega skemmtilega leystur. Paskaljevic tekst að skapa einskonar míkrókos- mos þar sem allt stendur meira eða minna á haus en tilfinningar hans til móðurlands- ins leyna sér ekki. Leikstjórninni er á köflum ábóta- vant enda persónur mjög margar en þó er eitthvað í hráleikanum sem heillar á móti. Þá virkaði enska þýð- ingin ósannfærandi á köflum. Ógleði lífsins Höskuldur Ólafsson KVIKMYNDIR RIFF 2006: Háskólabíó Leikstjórn: Goran Paskaljevic Púðurtunnan -  Fréttir á SMS Söngvarinn James Blunt geturglaðst yfir því að lag hans „Good- bye My Lover“ er það lag sem flestir Bretar myndu vilja láta spila í jarð- arför sinni þegar þar að kemur. James Blunt getur státað af tveim- ur Brit-verðlaunum auk þess sem fyrsta plata hans, Back To Bedlam, seldist vel beggja vegna Atlantshafs- ins. Í annarri könnun í Bretlandi þótti meirihluta aðspurðra Blunt þó meira pirrandi en hávaðasamir nágrannar og fasteignasalar í könnun um hvað færi mest í taugarnar á fólki. Lagið „Angels“ með Robbie Willi- ams var númer tvö á listanum yfir jarðarfararlögin og í þriðja sæti „Íve Had the Time of My Life“ með Jenni- fer Warnes og Bill Medley. Önnur lög á listanum góða voru „Wind Beneath My Wings“, „Pie Jesus“, „With Or Without You“, „Tears in Heaven“, „Every Breath You Take“ og „Unc- hained Melody“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.