Morgunblaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fegursta borg Eystrasaltsins
Helgarferð til
Tallinn
18. eða 26. október
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í helgarferðum til
Tallinn í Eistlandi 18. eða 26. október. Gríptu þetta frábæra tækifæri á
helgarferð til þessarar einstöku borgar á frábærum kjörum.
Fjölbreyttir gistimöguleikar í boði í miðborginni.
Verð kr.29.990 – helgarferð
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í
tvíbýli með morgunverði, 18. okt.
í 4 nætur eða 26. okt. í 3 nætur á
Hotel L’Ermitage Ótrúlegt
helgartilboð
– aðeins 40 sæti
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Það er toppstykkið, doktor, toppstykkið, það snýr alltaf aftur á Grímsa.
VEÐUR
Opinberar umræður hér á Íslandifara oft út um víðan völl og erf-
itt að henda reiður á því hver af-
staða einstakra stjórnmálamanna
er til þeirra málefna, sem til um-
ræðu eru hverju sinni.
Afleiðingin er sú, að sumir stjórn-málamenn telja að þeir geti
sagt eitt í dag og annað á morgun í
trausti þess að enginn haldi fyrri
afstöðu þeirra til haga.
Í sumum öðrum löndum hafa fram-takssamir einstaklingar eða
hagsmunasamtök tekið upp á því að
fylgjast með og setja á netið upplýs-
ingar um ummæli einstakra stjórn-
málamanna og hvernig þeir greiði
atkvæði í tilteknum málum.
Þessar upplýsingar eru gagn-legar að því leyti til, að þá geta
borgararnir fylgzt með því, hvort
stjórnmálamaður hefur skipt um
skoðun og þá jafnframt hvaða rök
sá hinn sami notar til þess að út-
skýra breytingu á afstöðu sinni.
Opinn aðgangur almennings aðslíkum upplýsingum er líklegur
til að veita stjórnmálamönnum að-
hald í opinberum umræðum.
Það er tími til kominn, að ein-hverjir einstaklingar eða fé-
lagasamtök taki sig til og safni upp-
lýsingum sem þessum saman. Það
gæti t.d. verið fróðlegt fyrir hin
kraftmiklu náttúruverndarsamtök
að safna saman upplýsingum af
þessu tagi um afstöðu einstakra
stjórnmálamanna til Kára-
hnjúkavirkjunar, sem er svo mjög
til umræðu nú eins og hún hefur
komið fram t.d. á Alþingi og í borg-
arstjórn Reykjavíkur, bæði í um-
ræðum og í atkvæðagreiðslum.
Við þurfum að gera átak í því aðkoma opinberum umræðum á
hærra og málefnalegra plan. Það er
hundleiðinlegt fyrir alla að liggja
stöðugt í skotgröfum og halda uppi
skipulagslausri og gagnslausri
skothríð á hinar skotgrafirnar.
Þessar baráttuaðferðir enda að lok-
um í öngstræti.
STAKSTEINAR
Samantekt upplýsinga
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
''
-.
'/
-.
'/
-(
0
(
-'
1
2'
)
%
)
%
3!
4 3!
)
%
3!
3!
3!
4 3!
)*3!
3!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
1
1
-0
-0
-5
-1
-2
-5
-'
-2
6
4 3!
3!
3!
3!
3!
7 )*3!
3!
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
-/
(
--
--
-/
8-
6
'
-0
-/
-'
7 9
3!
3!
9 %
4 3!
9
)
%
3!
3!
4 3!
9! :
;
!"#$
%&'
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
:;
=
#-
5
* <
=
8
<
4
8
= %
:! >-/8-(:
!
=8 >8
<
8
<
7 %
*?8
/ 5 < 8
!! @ )>8
= *
7 ?A
>8* %
<
* 4!
=
0 ( <
%
B= *3
*?
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A"
5'2
'/6
-<5
/<1
-'//
-'.
0/-
(01
-(20
1-1
.02
-5-.
-25.
-55-
'-/-
(-0
('5
(/(
105
-(-'
-(-/
-152
-10/
'/0/
''2'
2<-
-<5
-</
-<1
-<6
/<.
/<1
-</
-<1
-<'
-<0
/<.
/<5
RÍKISSTJÓRNIN sýndi fullkomið ábyrgðarleysi
í efnahagsmálum á framkvæmdatíma Kára-
hnjúkavirkjunar og álversins á Reyðarfirði með
alvarlegum afleiðingum fyrir bæði atvinnulíf og
heimili, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar, í umræðum um Kára-
hnjúkavirkjun á Alþingi á fimmtudag. Ingibjörg
telur að draga verði lærdóm af undirbúningi og
framkvæmd við virkjunina og ráðast ekki í stór-
framkvæmdir sem hafa veruleg áhrif á efnahags-
mál, veruleg ruðningsáhrif, án þess að axla póli-
tíska ábyrgð á mótvægisaðgerðum.
„Undirbúningur virkjunarinnar endurspeglaði
örvæntingu ríkisstjórnarflokk-
anna í aðdraganda síðustu
kosninga,“ sagði Ingibjörg m.a.
í ræðu sinni. Hún telur að
standa verði betur að rann-
sóknum á jarðfræði þeirra
svæða sem tekin eru til virkj-
unarnota og að ekki eigi að ráð-
ast í virkjanir á svæðum sem
ekki hafa verið rannsökuð til
fullnustu frá náttúruverndar-
gildi til framtíðar. „Svæði geta
haft mikið gildi þótt þau hafi kannski ekki verið
fjölsótt. Í því sambandi vil ég vísa til Brennisteins-
fjalla þar sem sótt er um rannsóknar- og nýting-
arleyfi. Það er ekki fjölsótt svæði en áreiðanlega
gríðarlega mikilvægt þegar til framtíðar er litið.“
Ingibjörg telur auk þess mistök að stofna ekki
sérstakt félag um Kárahnjúkavirkjun, annaðhvort
félag sem hefði getað fjármagnað sig á markaði og
þyrfti því að lúta eðlilegum arðsemiskröfum eða
sérstakt félag sem hefði getað verið í eigu Lands-
virkjunar. „Þetta er auðvitað kjörið verkefni þar
sem orkan fer öll í eitt álver, er í raun óbein fjár-
festing í áliðnaði og hefði átt að byggjast á við-
skiptasjónarmiðum.“
Sýndi fullkomið ábyrgðarleysi
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
LÖGREGLAN í Keflavík handtók
þrjá einstaklinga á fimmtudag vegna
gruns um innbrot í þrjú fyrirtæki á
Suðurnesjum, auk þess sem talið er
að þeir séu viðriðnir fleiri lögbrot.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni er um að ræða 29 ára karl-
mann, 18 ára stúlku og 14 ára dreng
en engin fjölskyldutengsl eru á milli
fólksins. Þau hafa öll komið við sögu
lögreglu áður og eiga við fíkniefna-
vanda að stríða.
Aðfaranótt fimmtudags brutust
þau inn í fyrirtæki í Garði og stálu
borðtölvu, í Vogum tóku þau far-
tölvu, borðtölvu og myndavél og að
auki komu þau við í Golfskálanum á
Vatnsleysuströnd og stálu þar raf-
magnsverkfærum. Að sögn lögreglu
er rannsókn málanna ekki lokið en
fólkið hefur neitað sök í einhverjum
tilfellum. Telja má víst að auðgunar-
brotin séu framin til að fjármagna
fíkniefnaneyslu.
Aðfaranótt föstudags handtók lög-
reglan í Keflavík tvo unga menn
vegna gruns um fíkniefnamisferli.
Voru þeir stöðvaðir við reglubundið
umferðareftirlit og við leit í bifreið
þeirra fundust kannabisefni og of-
skynjunarsveppir.
Fóru um
rænandi
Fjórtán ára í fíkni-
efnum og slagtogi
við glæpamenn