Morgunblaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.10.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 19 ERLENT Sjálfvirk hnakka- púðastilling, aðeins í Stressless – Þú getur lesið eða horft á sjónvarp í hallandi stöðu. Ótrúleg þægindi. Sérstakur mjóbaks- stuðningur samtengdur hnakkapúða- stillingu. Þú nýtur full- komins stuðnings hvort sem þú situr í hallandi eða uppréttri stöðu. Ármúla 44 108 Reykjavík Sími 553 2035 www.lifoglist.is THE INNOVATORS OF COMFORT ™ Réttu sætin fyrir heimabíóið Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ÍSLENSK og norsk stjórnvöld þurfa að auka samvinnu sína vegna varna og eftirlits með Norður-Atl- antshafi nú þegar varnarliðið er end- anlega farið frá Íslandi. Margt brennur á í þeim efnum, t.d. aukin umferð olíuskipa á hafsvæðinu norð- ur af Íslandi, segir Thorbjørn Jagl- and, forseti norska Stórþingsins. Jagland, sem er fyrrverandi for- maður norska Verkamannaflokks- ins, er staddur hér á landi um þessar mundir í opinberri heimsókn ásamt eiginkonu sinni í boði forseta Alþing- is. Hann var forsætisráðherra á ár- unum 1996 – 1997, og utanríkisráð- herra 2000 – 2001, og situr nú í varnarmál – nefnd norska þingsins. „Við stöndum frammi fyrir ann- arri stöðu eftir að herinn fór, en það eru einnig breytingar á Norður-Atl- antshafinu sem ekki tengjast því. Þar er skipaumferð að aukast, eink- um til og frá Barentshafi þar sem eru miklar olíu- og gaslindir. Leið skipana sem flytja þessi hráefni ligg- ur frá Barentshafi til Bandaríkjanna eða Evrópu,“ segir Jagland. „Það er í það minnsta ljóst að um- ferð slíkra skipa er að aukast, og nú þegar Bandaríkjamenn eru farnir kallar það á aukna samvinnu milli til dæmis Íslands og Noregs, vegna mögulegra björgunaraðgerða og að- gerða til að takast á við mengun frá slysi. Þegar hefur verið ráðist í upp- lýsingaöflun og stjórnvöld hér á landi og í Noregi eru að kanna með hvaða hætti það getur orðið.“ Hvað varðar aðra samvinnu þjóð- anna segir Jagland sjá fyrir sér að hún haldi áfram að vera mikil á milli stjórnvalda, en aukist mjög milli fyr- irtækja í einkaeigu. íslenskt við- skiptalíf sé til að mynda í mikilli út- rás um þessar mundir. „Íslenskir aðilar hafa þegar keypt tvo norska banka, svo ég sé fram á aukna sam- vinnu á því sviði, og það ætti að verða báðum aðilum til hagsbóta.“ Verða alltaf hnökrar Ísland og Noregur hafa undanfar- ið deilt um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, og segir Jagland að þó það sé miður þá sé það eðlilegt. „Það verða alltaf einhverjir hnökrar þegar tvö lönd sem leggja mikla áherslu á fiskveiðar deila stofnum. En staðurinn til að leysa slík mál er alltaf við samningaborðið, hingað til höfum við náð að semja um þessi mál, og ég reikna með að það takist líka í framtíðinni. Við verðum bara að gera okkur grein fyrir mismun- andi sjónarmiðum í þessu máli.“ Íslensk og norsk stjórnvöld eiga einnig sameiginlega hagsmuni sem snúa að Evrópusambandinu (ESB), þar sem bæði löndin standa utan við sambandið. Löndin tvö eru í EFTA og þurfa því að beita kröftum sínum á samræmdan hátt til að hafa áhrif inn í sambandið, segir Jagland. Nýlegar kröfur ESB um að EFTA löndin borgi háar upphæðir til sam- bandsins við inngöngu nýrra aðild- arríkja eru allt of háar að mati Jagl- and, en hann segir ljóst að hvorki Ísland né Noregur geti skotið sér undan því að greiða meira til sam- bandsins vegna stækkunarinnar. Hann bendir á að eftir síðustu stækkun, þar sem mun fleiri lönd gengu í ESB, hafi Noregur greitt um 2 milljarða norskra króna á ári. 91 milljarður til ESB „Við síðustu stækkun greiddum við Norðmenn mikið, samtals hefur verið ákveðið að Noregur greiði 9 milljarða norskra króna [um 91 milljarð ISK]. Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að greiða eitthvað líka vegna næstu stækkunar, en ekki jafn mikið og far- ið hefur verið fram á,“ segir Jagland. Jafnaðarmannaflokkar á Norður- löndunum hafa farið halloka undan- farið í Svíþjóð, og eru í stjórnarand- stöðu í Danmörku og á Íslandi. Jagland segir þetta eðlilegt, á Norð- urlöndunum sé reynslan sú að það séu öldur og dalir í fylgi flokka sem aðhyllist jafnaðarstefnu. Það sé eðli- legt í lýðræðisþjóðfélögum. „Kjarninn í norrænum lýðræðis- hugmyndum er að það sé blanda af opinberum rekstri og rekstri á opn- um markaði. Þegar einkavæðing og skattalækkanir hafa verið á dagskrá í einhvern tíma fær fólk nóg af því og snýr sér aftur að jafnaðarstefnu. Þannig gengur þetta fyrir sig, og það er styrkur Norðurlandana, þessi blanda af jafnaðarstefnu og mark- aðshagkerfi,“ segir Jagland. Sjóflutningar kalla á samvinnu Ný staða komin upp eftir að varnarliðið fór frá Íslandi segir Thorbjørn Jagland Morgunblaðið/Kristinn Jafnaðarstefna „Þegar einkavæðing og skattalækkanir hafa verið á dag- skrá í einhvern tíma fær fólk nóg af því,“ segir Thorbjørn Jagland. ÁSTANDIÐ inn- an sænsku stjórn- arinnar versnar enn og ásökunum um eitt og annað misjafnt hjá nýju ráðherrunum fjölgar dag frá degi. Segja sum- ir, að Fredrik Reinfeldt for- sætisráðherra hafi ekki neina stjórn á atburðarásinni. Komið hefur fram, að Andreas Carlgren umhverfisráðherra er sak- aður um að hafa gefið ranglega upp til skatts og þrír aðrir, Cecilia Stegö Chilo menningarráðherra, Maria Borelius viðskiptaráðherra og Tobi- as Billtröm, sem fer með málefni flóttamanna, eru sakaðir um hafa ekki greitt afnotagjald af ríkisfjöl- miðlum í langan tíma og Billström aldrei. Ætlaði sænska ríkisútvapið að kæra þau þrjú fyrir vanræksluna. Það nýjasta er, að svo virðist sem félag í skattaparadísinni Jersey sé skráð fyrir sumarbústað Borelius- hjónanna og hefur það vakið upp spurningar um skattamál þeirra al- mennt. Hefur flokkur hennar, Hægriflokkurinn, hafið sjálfstæða rannsókn á málinu og á henni að ljúka í næstu viku. Þá er það nýtt um Chilo, að Claes Borgström, umboðs- maður jafnréttismála, segir, að hún hafi reynt að komast hjá því að skýra frá stöðu þeirra máli í Fritt Närings- liv, sem hún veitti áður forstöðu. Jafnaðarmenn hóta að kæra Rein- feldt fyrir stjórnarskrárnefnd þings- ins vísi hann ekki Chilo og Billström úr stjórn. Reinfeldt í vanda Fredrik Reinfeldt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.