Morgunblaðið - 14.10.2006, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2006 23
Atvinnurekendur, stjórnendur,
vinnumiðlarar, rannsakendur og
áhugafólk um íslenskan vinnumarkað athugið!
Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni
miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.
Fyrsti fundur af þremur verður á Grand hótel,
Hvammi, þann 17. október nk. kl. 8:30-10:00.
Dagskrá:
1. Ávarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra.
2. Sigurður Guðmundsson skipulagsfræðingur í
fjármálaráðuneytinu fjallar um aldursskiptingu í
atvinnugreinum.
3. Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar og
Rakel Ýr Guðmundsdóttir starfsmannastjóri
SPRON fjalla um stefnu fyrirtækja með tilliti til
aldursdreifingar á vinnustað.
4. Umræður.
Fundarstjóri Elín R. Líndal.
Nánari upplýsingar um starf verkefnisstjórnarinnar og funda-
röðina er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar
www.vinnumalastofnun.is
Morgunverður verður framreiddur frá kl. 8:00, verð kr. 1.400.
Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á
netfangið: margret.gunnarsdottir@vmst.is
Kallar framtíðin á breyttar
áherslur?
Skiptir aldurssamsetning á
vinnustað máli?
Er æskudýrkun á þínum
vinnustað?
SÖLUSÝNING Á HÁGÆÐA HANDGERÐU KÍNVERSKU POSTULÍNI
Úti- eða inniblómapottar - myndir - lampar - vasar - skálar og fleira
LÚXUS GJAFIR OG SÖFNUNAR VÖRUR - GÓÐ FJÁRFESTING
Frábært
verð
Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum HELGAR
KYNNING
White like jade
Bright as mirror
Thin as paper
Sound like a chime
Ármúla 42
sím1 895 8966
Opið alla daga frá kl. 10-18
Þorlákshöfn | Strengjasveitamót
er haldið í Þorlákshöfn um helgina.
Mótið hófst í gær og því lýkur á
sunnudag og setja tónlistarnem-
endurnir svip á bæinn þessa daga.
Mótið er haldið á vegum Tónlist-
arskóla Árnesinga en tuttugu og
einn tónlistarskóli af öllu landinu
sendir nemendur á mótið. Þetta er
sennilega í fyrsta skipti sem svo
fjölmennt mót er haldið í Þorláks-
höfn og hafa um 250 nemendur
skráð sig. Með þeim koma yfir
tuttugu foreldrar og kennarar.
Nemendur leggja undir sig íþrótta-
hús og grunnskóla Þorlákshafnar
og er æft stíft á hverjum degi und-
ir stjórn þeirra Maríu Weiss, fiðlu-
leikara og kennara í Tónlistarskóla
Árnesinga og Tónskóla Sigur-
sveins, Sigursveins Magnússonar,
skólastjóra Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar og hljómsveita-
og kórstjóra, og Martin Frewer,
fiðluleikara og stjórnanda.
Á kvöldin verður slakað á og
haldnar kvöldvökur þar sem boðið
verður upp á skemmtiatriði.
Þetta er þriðja stóra strengja-
sveitamótið sem haldið er á Íslandi,
en fyrsta mótið var haldið í
Reykjanesbæ. Komin er hefð á að
halda strengjasveitamót annað
hvert ár og er það nú í fyrsta skipti
haldið á vegum Tónlistarskóla Ár-
nesinga.
Mót sem þessi eru talin vel til
þess fallin að auka áhuga tónlistar-
nemenda á náminu, þroska hæfni
til samspils, auka samkennd nem-
enda og ekki hvað síst að veita
spilagleðinni útrás.
Á þriðja hundrað á
strengjasveitamóti
LANDIÐ
Eftir Davíð Pétursson
Reykholt | Aldamótaskógur hefur
verið formlega opnaður í Reykholti.
Af því tilefni var athöfn í skóginum
fyrr í vikunni.
Fyrir norðan kirkjuna, við hinn
nýja göngustíg til skógarins, er búið
að reisa upplýsingaskilti. Þar segir
að í tilefni þúsaldamóta árið 2000 og
70 ára afmæla Skógræktarfélags Ís-
lands og KB banka hafi verið stofnað
til Aldamótaskóga. Fyrir valinu urðu
fimm svæði, eitt í hverjum lands-
hluta. Aldamótaárið 2000 gróður-
settu sjálfboðaliðar og starfsmenn
skógræktarfélaga liðlega 280 þús-
undir skógarplantna, eina fyrir
hvern Íslending. KB banki lagði til
plöntur og áburð.
Aldamótaskógum er ætlað að vera
lifandi minnisvarði um tímamót í
sögu þjóðarinnar og merkisafmæli
samstarfsaðilanna tveggja. Í fram-
tíðinni er markmiðið að þessi fimm
svæði verði þekkt sem útivistar-
svæði almennings og verður unnið að
merkingu og kynningu þeirra.
Reykholt var skóglaust
Eins og flestir hlutar Íslands var
Reykholt orðið skóglaust þegar kom
fram á 20. öld. Endurheimt skógar
hófst á 4. áratugnum þegar Þorgils
Guðmundsson, kennari við Reyk-
holtsskóla, hóf að fara með skóla-
börn í gróðursetningu. Árið 1948
hófst svo trjárækt hjá afkomendum
og ættingjum hjónanna séra Einars
Pálssonar og Jóhönnu K.K. Egg-
ertsdóttur, en Einar var prestur í
Reykholti 1908–1930. Hefur ræktun
þeirra staðið nær óslitið síðan.
Skógræktarfólk frá Norðurlönd-
um gróðursetti í Reykholti árið 1990,
en það kom til Íslands í skiptiferð á
vegum Skógræktarfélags Íslands.
Norðmenn hafa komið í aðra skipti-
ferð til að gróðursetja og hlú að
plöntum.
Aldamótaskógurinn í Reykholti er
um 5 hektarar að stærð og kom
skógræktarfólk af öllu Vesturlandi
saman til gróðursetningar ásamt
fjölþjóðlegum hópi ungmenna. Gróð-
ursett var neðan og ofan þáverandi
skógar. Gróðursetning Aldamóta-
skógarins hefur verið unnin í sam-
vinnu Skógræktarfélags Borgar-
fjarðar, Skógræktarfélags Íslands
og Reykholtsstaðar, með stuðningi
KB banka.
Að loknum ávörpum við opnun
skógarins var gengið að Eggertsflöt
þar sem brúðkaup Eggerts Ólafs-
sonar og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur var haldið 1767. Á Eggerts-
flöt fundu menn fyrir ágæti
skógarins, því hér var stafalogn og
besta veður en heima á staðnum var
norðaustan kuldastrekkingur.
Aldamótaskógur
opnaður í Reykholti
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Frásögn Séra Geir Waage segir frá við opnun Aldamótaskógar í Reykholti.
Aldamótaskógar eru útivistarsvæði á fimm stöðum á landinu.
Í HNOTSKURN
»Reykholt var orðið skóg-laust þegar komið var
fram á 20. öldina.
»Endurheimt skógar hófst áfjórða tug aldarinnar.
»Þar er nú einn af fimmaldamótaskógum landsins.
Borgarnes | Lögreglan í Borgarnesi fékk nýverið staf-
ræna myndavél að gjöf frá Svavari Sigurðssyni, baráttu-
manni gegn fíkniefnavandanum á Íslandi. Við afhend-
inguna sagði Svavar að gjöfin væri viðurkenning hans á
öflugu starfi lögreglunnar að fíkniefnarannsóknum.
Að sögn Theodórs Þórðarsonar yfirlögregluþjóns
kemur þessi gjöf sér mjög vel fyrir lögregluna. Öll hald-
lögð fíkniefni þarf að ljósmynda og sá búnaður sem lög-
reglan átti fyrir þurfti endurnýjunar við. Góðum árangri
í að upplýsa fíkniefnamál, sagði Theodór helst að þakka
góðri og virkri liðsheild og ekki mætti heldur gleyma
fíkniefnaleitarhundinum Tíra sem nýst hefur afar vel.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur aldrei
verið lagt hald á meira af fíkniefnum en það sem af er
ári. Alls hafa komið upp 38 fíkniefnamál. Í þessum mál-
um hefur samtals verið lagt hald á rúmlega 11 kíló af
kannabisefnum, 222 kannabisplöntur og 25 grömm af
amfetamíni.
Gjöf Svavar Sigurðsson afhendir Theodór Kr. Þórð-
arsyni myndavélina. Á milli þeirra er Laufey Ó. Gísla-
dóttir lögreglukona með fíkniefnahundinn Tíra.
Veitt viðurkenning
fyrir góðan árangur