Morgunblaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 1
ÍSLENSKUR GLÆPUR
MÝRIN EFTIR ARNALD Í LEIKSTJÓRN BALTASARS
KORMÁKS FRUMSÝND Á FÖSTUDAG >> 40
RAUÐHETTUR
ENGAR REGLUR NEMA
GAMANIÐ EITT
DAGLEGT LÍF >> 22
Seoul. AFP. | Ráðamenn í Bandaríkjunum,
Kína og fleiri löndum lögðu í gær fast að
stjórnvöldum í Norður-Kóreu að sprengja
ekki fleiri kjarnorkusprengjur í tilrauna-
skyni. Áður hafði kommúnistastjórnin í
Pyongyang lýst því yfir að refsiaðgerðir
Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorku-
tilraunar N-Kóreumanna jafngiltu „stríðs-
yfirlýsingu“.
Tony Snow, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, gaf til kynna að stjórnvöld í Wash-
ington byggjust við því að Norður-Kóreu-
menn sprengdu aðra kjarnorkusprengju í
tilraunaskyni.
Franska stjórnin sagði að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna yrði að íhuga frekari
refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreumönnum
ef þeir sprengdu aðra kjarnorkusprengju.
Kínversk stjórnvöld, helstu bandamenn
Norður-Kóreumanna, sögðust ekki hafa
fengið upplýsingar um að þeir væru að
undirbúa aðra kjarnorkutilraun en hvöttu
stjórnina í Pyongyang til að forðast hvers
konar aðgerðir sem gætu aukið spennuna.
Búast við
nýrri kjarn-
orkutilraun
Vara N-Kóreu við
fleiri sprengingum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hvalveið-
ar í atvinnuskyni hefjist á nýjan leik
og verður leyft að veiða níu lang-
reyðar og 30 hrefnur á yfirstand-
andi fiskveiðiári 2006–2007. Kemur
þessi kvóti til viðbótar þeim 39
hrefnum sem veiddar verða á næsta
ári vegna vísindaveiða Hafrann-
sóknastofnunar. Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra tilkynnti
þetta á Alþingi í gær og hélt Hvalur
9 á miðin vestur af landinu í gær-
kveldi. Var hann væntanlegur þang-
að um hádegisbil.
við eigum að hefja hvalveiðar,“ segir
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals
hf.
„Í okkar augum er þetta bara enn
ein atlagan að ferðaþjónustunni á
Íslandi. Þarna er verið að fara á stað
í eitthvað allt annað en vísindaveiðar
á nokkrum hrefnum. Það er verið að
fara í stórhveli sem hafa mjög
sterka ímynd erlendis,“ sagði Ás-
björn Björgvinsson, formaður
Hvalaskoðunarsamtakanna.
Sjávarútvegsráðherra sagði að í
raun væri um lítið skref að ræða,
enda væri það stefna íslenskra
stjórnvalda að stíga varlega til jarð-
ar í hvalveiðimálum. Þjóðréttarleg-
ar heimildir væru til hvalveiða í at-
vinnuskyni og Ísland gæti hafið þær
veiðar líkt og ríki eins og Bandarík-
in, Rússland, Japan og Noregur.
„Ánægjulegt að menn hafi tekið
af skarið. Einar K. Guðfinnsson er
búinn að keyra þetta mál af fullum
krafti eins og hans er von og vísa,
enda hefur hann haft þá skoðun að
Morgunblaðið/ÞÖK
Tilbúnir í slaginn Unnið var að því í gærkvöldi að gera klárt fyrir hvalveiðarnar. Meðal annars var byssunni komið fyrir á sínum stað.
Hvalur 9 væntanlegur á
miðin um hádegisbilið
Í HNOTSKURN
» Hvalveiðar skiluðu um2% af útflutningsverði
sjávarafurða síðustu árin
sem þær voru stundaðar frá
hvalstöðinni í Hvalfirði.
» Að meðaltali 234 lang-reyðar, 68 sandreyðar og
82 búrhvalir voru veidd ár-
lega hér á árunum 1948-
1982.
Ákvörðunin um að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni vekur sterk viðbrögð
Morgunblaðið / ÞÖK
Hvalveiðar | 10–12
Peking. AP. | Kínverskur háskóli hefur tek-
ið upp þá nýbreytni að skylda alla nema í
lögfræði, viðskiptafræði og fleiri fögum
til að læra golf.
Haft er eftir rektor háskóla í borginni
Xiamen í suðausturhluta Kína að hann
vilji „bjóða yfirstéttarfólki upp á bestu
mögulegu menntun“ og golf sé mik-
ilvægur þáttur í því.
Rektorinn segir golfkennslu nauðsyn-
lega til að undirbúa nemana fyrir við-
skiptalífið vegna þess að margir samn-
ingar séu gerðir á golfvöllunum.
Golfkennslan á að hefjast eftir tvo
mánuði, að sögn kínversku fréttastof-
unnar Xinhua, sem hefur eftir rektornum
að nemar í hagfræði og tölvufræði verði
einnig skyldaðir til að læra golf.
Golf gert að
skyldugrein
inum, um 170 tonnum á mínútu, og
fer í um 240 tonn á mínútu um
helgina en gert er ráð fyrir að dæl-
ingin standi yfir samtals í um þrjá
mánuði.
Fyrirtækið At-Afl verktakar sér
um framkvæmdirnar og steypustöð
BM Vallá um steypuþáttinn. „Þetta
er gríðarlega flókið verkefni,“ segir
Sigurþór Jóhannesson stöðvar-
stjóri. | 20
UM helgina verður plata í grunni
íbúðablokkar í Hafnarfirði steypt
og fara um 1.300 rúmmetrar af
steypu í plötuna. Fjórar steypu-
stöðvar verða undirlagðar vegna
verksins og 27 steypubílar sjá um
að koma steypunni á réttan stað.
Byggingin rís við norðurbakkann
í Hafnarfirði gegnt veitingahúsinu
A. Hansen. Undanfarna tvo mánuði
hefur vatni verið dælt úr grunn-
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Flókið verkefni Um 1.300 rúmmetrar af steypu fara í plötuna.
Tuttugu og sjö
steypubíla þarf til BLÓÐSÚTHELLINGUNUM í
Írak gæti lokið „innan nokkurra
mánaða“ ef Bandaríkjamenn hæfu
samstarf við Írana og Sýrlendinga
um að koma á friði í landinu, að sögn
Jalals Talabanis, forseta Íraks.
Talabani sagði í viðtali við breska
ríkisútvarpið, BBC, að samstarf við
Írana og Sýrlendinga myndi „marka
upphafið að endalokum hryðju-
verkastarfseminnar“.
Hermt er að nefnd, sem nýtur
stuðnings Bandaríkjaforseta, íhugi
að leggja til að leitað verði eftir sam-
starfi við Írana og Sýrlendinga.
Vill aðstoð
grannríkja
♦♦♦
STOFNAÐ 1913 283. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is