Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 17
Washington. AFP. | George W. Bush
Bandaríkjaforseti skrifaði í gær und-
ir umdeild lög sem heimila starfsemi
leynifangelsa og harðar yfirheyrslu-
aðferðir og sérstakan herdómstól yf-
ir meintum hryðjuverkamönnum.
„Það er sjaldgæfur atburður að
forsetinn geti undirritað lög sem
hann veit að muni bjarga bandarísk-
um mannslífum. Ég hef notið þeirra
forréttinda,“ sagði Bush við athöfn í
Hvíta húsinu.
Báðar deildir Bandaríkjaþings
samþykktu lögin í síðasta mánuði, en
þau urðu tilefni til mikilla umræðna
um aðferðir Bush-stjórnarinnar í
hryðjuverkastríðinu svokallaða.
Lögin voru samin í kjölfar úr-
skurðar Hæstaréttar landsins í júní-
mánuði um að Bush hefði farið út yf-
ir valdsvið sitt og brotið ákvæði
Genfar-sáttmálans þegar hann
heimilaði sérstakan herdómstól fyrir
meinta hryðjuverkamenn.
Umrædd lög verða framvegis höfð
til viðmiðunar við yfirheyrslur en
þau banna „grimmilega og óvenju-
lega“ meðferð á föngum án þess að
útskýra það nánar. Jafnframt eru
þau talin munu greiða leiðina fyrir
því, að réttað verði í málum nokkur
hundruð fanga í Guantanamo-fanga-
búðunum á Kúbu.
Gagnrýnir lögin harðlega
Anthony Romero, framkvæmda-
stjóri Bandarísku borgararéttinda-
samtakanna (ACLU), var harðorður
í garð Bandaríkjaforseta í gær og
sagði „nýju lögin eitthvert versta
skref í mannréttindamálum í sögu
Bandaríkjanna“.
Samþykkir ný
lög um fanga
Bush heimilar starfsemi leynifangelsa
TVEIR meintir hryðjuverkamenn
eru nú á flótta undan breskum
stjórnvöldum eftir að hafa sloppið
undan eftirlitsmönnum þeirra. Málið
þykir hið vandræðalegasta fyrir
stjórn Tonys Blairs forsætisráð-
herra sem hafði áður sagt mennina
svo hættulega að þeir yrðu að sæta
ströngu eftirliti. Til að gera illt verra
viðurkenna yfirvöld að þau hafi ekki
hugmynd um hvar mennirnir eru
niður komnir, að því er breska dag-
blaðið Guardian skýrði frá í gær.
Þar kemur einnig fram, að annar
maðurinn, Íraki sem var grunaður
um að tengjast hryðjuverkastarf-
semi, hafi fyrir tveimur mánuðum
sloppið undan eftirlitsmönnum sem
sinna gagn-hryðjuverkastarfsemi.
Hafði stjórnin áður lýst honum svo,
að hann væri svo hættulegur að rétt-
lætanlegt væri að skerða frelsi hans
án ákæru eða réttarhalda.
Hinn maðurinn, Breti sem er
grunaður um að vera meðlimur hóps
sem tengist al-
Qaeda hryðju-
verkanetinu, flúði
fyrir tveimur vik-
um út um glugga
geðhjúkrunar-
deildar, þar sem
öryggisgæsla var
talin örugg.
Málið þykir
óheppilegt fyrir
John Reid innanríkisráðherra sem
lofaði í maí, þegar hann tók við emb-
ætti af Charles Clarke, að koma á
nauðsynlegum umbótum á ráðuneyt-
inu, eftir að fjölda erlendra brota-
manna hafði verið sleppt úr fangelsi í
embættistíð forvera hans án þess að
þeim hefði verið vísað úr landi.
Lögðu til eftirlit kennara
Til að bæta gráu ofan á svart fyrir
stjórn Blairs kemur málið upp
nokkrum dögum eftir að Guardian
birti frétt um skýrslu sem hafði verið
lekið til blaðsins, þar sem var m.a.
fjallað um þá tillögu stjórnvalda, að
hvetja háskólakennara til að fylgjast
með íslömskum nemendum og þeim
sem „litu út fyrir að vera frá Asíu“.
Var markmiðið að auka eftirlit með
hugsanlegum hryðjuverkamönnum.
Sluppu úr greipum
breskra stjórnvalda
Mistök við eftirlit afhjúpa göt í gagnhryðjuverkaneti Blairs
John Reid
Í HNOTSKURN
»Blair hefur lagt áherslu áeftirlit með meintum
hryðjuverkamönnum.
»Reid boðaði umbætur áinnanríkisráðuneytinu
þegar hann tók við því í maí.
»Eftirlitið átti að auka ör-yggi breskra ríkisborgara.
»Stjórnarandstaðan telurmálið vera til skammar.
IÐKENDUR Shaolin-sjálfsvarnarlistarinnar sýna færni sína við setningu
heimsmeistarakeppni í listinni nálægt Shaolin-musterinu í Kína í gær. Um
15.000 kung fu-iðkendur tóku þátt í setningarathöfninni.
Shaolin-keppni í Kína
AP
HUBBLE-sjónaukinn náði fyrir
skömmu einstæðum myndum af
árekstri tveggja vetrarbrauta.
Myndirnar, sem voru fyrst birtar í
gær, sýna úr fjarska þegar millj-
arðar stjarna rekast hver á aðra.
Vetrarbrautirnar tvær sem um
ræðir tóku að nálgast hvor aðra
fyrir 500 milljónum ára.
AP
Hægfara hamfarir í himingeimnum
N‡ju umbú›irnar eru einstaklega flægilegar.
fiær fl‡ta fyrir matseldinni og henta vel í fjölbreytta
rétti – en innihaldi› er a› sjálfsög›u sami frískandi
og hitaeiningasnau›i s‡r›i rjóminn.
Ger›u fla› gott me› s‡r›um rjóma – frá MS.
Nú fæst 10% s‡r›i rjóminn
frá MS í handhægum sprautuflöskum