Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur
heldur tónleika í Neskirkju í
kvöld kl. 19.30. Aðaleinleikari
verður hollenski slagverksleik-
arinn Frank Aarnink en hann
leikur einleik á marimbu í
Concertino fyrir marimbu og
blásara eftir Alfred Reed.
Nýtt verk, Spaugelsi, eftir
Báru Sigurjónsdóttur verður
frumflutt á tónleikunum, en
önnur verk á efnisskránni eru
eftir Eric Swiggrs, Alan Parsons, Earth wind and
Fire, og fleiri. Stjórnandi Lúðrasveitar Reykja-
víkur er Lárus Halldór Grímsson. Aðgangur er
ókeypis og öllum frjáls meðan húsrúm leyfir.
Tónleikar
Spaugelsi á Lúðra-
sveitartónleikum
Bára
Sigurjónsdóttir
ÓPERUKÓR Hafnarfjarðar
syngur í Hafnarborg í kvöld.
Dagskrána kallar kórinn
Haustfagnað, og á efnisskránni
verður bæði íslensk og erlend
tónlist. Verk Jóns Ásgeirs-
sonar verða í öndvegi meðal
þeirra íslensku, en óperukórar
eru að sjálfsögðu uppistaða er-
lenda hlutans. Óperukórinn
var stofnaður árið 2000 og eru
söngfélagar nú vel á áttunda
tuginn. Markmið kórsins hefur frá upphafi verið
að sérhæfa sig í flutningi á vínar- og óperutónlist.
Stjórnandi er Elín Ósk Óskarsdóttir en Peter
Máte er píanóleikari kórsins.
Óperutónleikar
Jón Ásgeirsson og
óperukórar
Elín Ósk
Óskarsdóttir
FYRSTU tónleikar Bang
Gang í Bandaríkjunum verða
haldnir í kvöld í Getty-safninu
í Los Angeles. Mun þetta vera
í fyrsta skipti sem íslensk
hljómsveit heldur tónleika í
þessari virtu listamiðstöð. Ís-
lenska útgáfufélagið From
Nowhere Records er nú að
undirbúa fyrstu útgáfu sína í
Bandaríkjunum og verður
hljómsveitin Bang Gang
fyrsta útgáfuverkefni félagins. Er stefnt að því að
gefa út fyrstu plötu hljómsveitarinnar í byrjun
næsta árs. Getty-safnið var stofnað árið 1974 af ol-
íukónginum J. Paul Getty.
Tónleikar
Bang Gang spilar í
Getty-listasafninu
Barði
Jóhannsson
Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson
olafurgudsteinn@googlemail.com
UNDANFARNA daga hefir hljóm-
sveitin Hellvar verið á stuttri og
snarpri tónleikferð í austurhluta
Berlínar, einkum þó í Prenzlauer
Berg, þar sem fjórir af fimm tón-
leikum hennar fóru fram. Segja má
að í Berlín sé sveitin á heimavelli,
þar sem hún var einmitt stofnuð þar
haustið 2004 af Heiðu og Elvari er
þau bjuggu þar um hríð. Þreytti
sveitin og þar sína fyrstu tónleika.
Allajafna er sveitin einnig skipuð
bassaleikaranum Flosa Þorgeirs-
syni, sem var þó fjarri góðu gamni
nú. Þannig voru þessir tónleikar í
tvennum skilningi afturhvarf til for-
tíðar, þótt auðvitað sé markmiðið
varla að upplifa nostalgíu hjá jafn
ungri sveit og Hellvar er.
Upphaflega átti sveitin einvörð-
ungu að spila á einum tónleikum,
sem voru hugsaðir sem eins konar
kynningartónleikar fyrir sveitina.
En meðlimum þótti það ótækt og
notuðu sambönd sín í Berlín til að
koma á fleiri tónleikum sem þau
héldu í samvinnu við bandarísku
hljómsveitina Zahnarzt. En Heiða
og Elvar kynntust einmitt söngvara
þeirrar sveitar á sínum tíma í Berlín.
Undirritaður var viðstaddur
tvenna af þessum tónleikum; 11.
október, er sveitin spilaði á NBI í
Kulturbrauerei Prenzlauer Berg, og
12. október á Schokoladen í Mitte. Á
fyrrnefnda kveldinu, sem að sögn
meðlima var mikilvægasta kveldið
fyrir þau bransans vegna (kynning-
artónleikarnir), spilaði sveitin ein.
Óhætt er að segja að yfir kveldinu
hafi ríkt samkynhneigð slagsíða, þar
sem uppistaða viðstaddra var, líkt
og Berlínarbúinn og Íslendingurinn
Hrafnkell (Melli) komst að orði,
tuttugu og eins árs „elektró“ homm-
ar.
Og þar sem Hellvar spilar einkar
rafskotna tónlist átti það því vel við.
Málið var bara hvernig þeim yrði
tekið þar sem sagan segir að
„elektró“ hommar séu allajafna afar
kröfuharðir er kemur að raftónlist.
Það er skemmst frá því að segja að
tónleikarnir heppnuðust vel, þrátt
fyrir vandræði með tölvuna, sem
plagaði tónleikahaldið frá byrjun og
leiddi af sér langar pásur milli laga.
Það vandamál leysti Heiða þó með
því að segja sögur og fá tónleika-
gestina til að reka upp stuðóp. All-
tént var þarna fjöldinn allur af fólki
sem dillaði sér ótt og títt við hljóma
sveitarinnar, þannig að óhætt er að
segja að kynningarstarfið hafi geng-
ið vel. Í það minnsta má telja líklegt
að samkynhneigðir Berlínarbúar
kaupi þær geislaskífur er sveitin
kemur til með að senda frá sér í
framtíðinni.
Seinni hljómleikarnir voru af öðru
sauðahúsi og fóru fram í einkar
pönkaralegum húsakynnum, þar
sem „gerðu það sjálfur“ andi svífur
yfir vötnum, enda kannski ekki
skrýtið þar sem Heiða og Elvar eru
bæði meðlimir í pönksveitinni Dys.
Fyrir vikið voru hljómleikarnir laus-
ari í reipunum og meiri partíbragur
yfir kveldinu hvað nánd sveitar við
áhorfendur varðaði, enda endaði
kveldið með því að Hellvar og Za-
hnartz, sem einnig spilaði á þessu
kveldi, fóru upp á svið og tóku sam-
an spuna í lokin …
Segja má að í hverri viku fari fram
listviðburðir hér í borg þar sem Ís-
lendingar koma við sögu, enda er
borgin, eða allavega hluti hennar, að
verða eins konar framlenging af
listasenunni á Íslandi. Færist það og
í vöxt að íslenskar hljómsveitir
bregði sér hingað til að spila á
nokkrum tónleikum eða svo. Það er
enda ekki eins erfitt og halda mætti
að skella upp tónleikum hér í borg,
nóg er af stöðunum. Málið er nokk-
urn veginn bara það að koma sér
upp samböndum, sem ætti að vera
hægur vandi á okkar net-orgíu tím-
um og láta svo slag standa. Það
gerði alltént Hellvar.
Rafskotin Hellvar í Berlín
Tónleikar Heiða og Elvar í hljómsveitinni Hellvar í banastuði í Berlín.
TENGLAR
..............................................
http://www.myspace.com/
hellvarmusic
http://www.myspace.com/zahnarzt
http://www.neueberlinerinitiative.de
http://www.schokoladen-mitte.de
SVEITASÖNGV-
ARINN Johnny
Cash hlaut við-
urnefnið svart-
klæddi mað-
urinn, vegna
þess að hann
þvertók fyrir að
skarta rín-
arsteinum og
öðru glysi í höll
sveitasöngsins, Grand Ole Opry.
Í nýrri ævisögu um Cash: Johnny
Cash: The Biography, þykir höf-
undurinn, Michael Streissguth
draga upp sérstaklega raunsanna
mynd af þessum ástsæla sveita-
söngvara, sem lést fyrir fáeinum
árum. Streissguth leggur sérstaka
áherslu á þá togstreitu sem Cash
átti í alla sína tíð, þar sem kristilegt
uppeldi, erfiðar fjölskyldu-
aðstæður, músík og mannlegur
breyskleiki tókust á.
Gagnrýnandi New York Times,
Douglas Brinkley segir bók Streiss-
guths taka fyrri ævisögum um
Cash Svartklæddi maðurinn, frá
1975 og Cash, frá 1997 langt fram.
Hann segir að í þeim sé krítað afar
liðugt um ýmis atriði en Streiss-
guth afhjúpi margar þeirra goð-
sagna sem umlukt hafi Cash og líf
hans.
Brinkley segir ævisöguna þó
ekki standast bókmenntalegan
samanburð við sambærilegar ævi-
sögur snilldarpennanna Peters Gu-
ralnick um Elvis Presley og Elijas
Wald um blúskónginn Robert John-
son, en góðu heilli komist hún aldr-
ei á plan poppskríbenta tónlistar-
tímaritanna Rolling Stone og Spin.
„Samt sem áður nálgast Streiss-
guth viðfangsefni sitt stundum eins
og vandfýsinn fræðimaður, fjötr-
aður í minnismiðana sína. Þó er
ótrúlegt hversu mikið hann hefur
grafið upp af áður óbirtu efni, og
það er frábært.“ Þessu til árétt-
ingar vitnar Brinkley beint í orð
höfundarins: „Það hefði mátt búast
við því að kröfur frægðarinnar,
þokumóða eiturlyfjafíknar, eða
skortur á grunnmenntun hefðu
sljóvgað bitið í penna Cash, en stað-
reyndin er sú að hann notaði tíma
sinn á hótelherbergjum, í flug-
vélum, heima og víðar, til að skrifa
löng bréf sem sýna hann sem djúpt
hugsandi mann; bréf um trú, ástina
á lífinu, reiðina innra með honum,
og hugmyndir að verkefnum í tón-
listinni.“ Da Capo Press gefur út.
Goðsagnirn-
ar um Cash
afhjúpaðar
Ævisaga svartklædda
sveitasöngvarans
Johnny Cash
LANDSSAMTÖK hátíða og menn-
ingarviðburða, LHM, hafa verið
stofnuð en tilgangur samtakanna er
að vera málsvari félagsmanna gagn-
vart opinberum aðilum sem öðrum
og gæta hagsmuna þeirra. Samtökin
eiga að vera sameiginleg rödd allra
sem standa að eða skipuleggja há-
tíða- og menningarviðburði á Ís-
landi.
Skipulagning og tímasetningar
viðburða mikilvæg
Júlíus Júlíusson, einn af forsvars-
mönnum samtakanna, segir að
stofnaðilar séu um 60 talsins.
„Þarna eru innanborðs helstu hátíð-
ir, stórar sem smáar. Við erum kom-
in með á skrá yfir 200 hátíðir og
menningarviðburði og þar eru
íþróttaviðburðir ekki meðtaldir,“
segir Júlíus.
Hann segir að tilgangurinn með
samtökunum sé ekki síst sá að
skipuleggja tímasetningar hátíða og
menningarviðburða þannig að þeir
rekist ekki hver á annan og að gefa
stjórnendum þeirra tækifæri til
þess að bera saman bækur sínar.
LHM stendur fyrir haustfundi í
Reykjavík sem kallast Haustlaukur
og vorfundi á landsbyggðinni sem
kallast Vorbræðingur. Með fund-
unum er markmiðið að skapa sam-
bönd og persónuleg tengsl milli fé-
lagsmanna og gefa þeim tækifæri til
að miðla af reynslu sinni og skiptast
á upplýsingum.
Júlíus segir að LHM sé ætlað að
stuðla að samþættingu og betri nýt-
ingu fjármagns, efla fagmennsku í
viðburðastjórnun og það verði meðal
annars gert með námskeiðahaldi.
LHM stefnir jafnframt að því að til
verði gagnagrunnur sem nýst geti
félagsmönnum og utanaðkomandi
aðilum þar sem við á. Ennfremur
eiga samtökin að standa fyrir upp-
lýsingagjöf fyrir innlenda og er-
lenda ferðamenn.
„Við erum núna að fara af stað
með það að kynna samtökin fyrir
öllum þeim sem geta gengið í þau.
Þeir sem þar eiga heima eru skipu-
leggjendur og stjórnendur hátíða og
viðburða. Við héldum aðalfund um
síðustu helgi þar sem farið var yfir
árið og síðan stendur til að opna
heimasíðu þar sem fram kemur
meðal annars viðburðalisti. Það hef-
ur mikið verið spurt um hann og
nauðsynlegt að hafa hann á einum
stað. Samvinna og samskipti er
meginmálið með samtökunum sem
og miðlun þekkingar og upplýs-
inga.“
Hann segir það afar mikilvægt í
starfi samtakanna að miðla upplýs-
ingum um viðburði í þeim tilgangi
að draga úr hættu á því að margir
skipuleggi viðburði á sama tíma.
„Það kom til dæmis fram á fund-
inum hjá okkur að sumir af smærri
skipuleggjendunum höfðu áhyggjur
af aðsókn á sína viðburði en þegar
málið var skoðað nánar kom í ljós að
nokkrir viðburðir voru á sama tíma.
Við vonum að við náum að vinna
betur saman og dreifa viðburðunum
betur öllum til hagsbóta.“
Menning | Landssamtök hátíða og menningarviðburða formlega stofnuð
Yfir 200 viðburðir
komnir á skrá hjá
LHM nú þegar
Morgunblaðið/Jim Smart
Viðburðir Landsamtök hátíða og menningarviðburða ætla að beita sér fyr-
ir miðlun þekkingar og upplýsinga á sviði viðburðastjórnunar.