Morgunblaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
EKKI er hlaupið að því að gera friðarsúluna,
sem fyrirhugað er að reisa í Viðey, og segir
Árni Páll Jóhannsson, hönnuður verksins, að
hreina loftið geri verkið tæknilega erfitt.
Árni Páll hefur átt nokkra fundi með Yoko
Ono um gerð listaverksins. Hann segir mik-
ilvægt að komast að skynsamlegri niðurstöðu
sem allir sætti sig við. Hreina loftið setji strik
í reikninginn og hafa beri í huga að ljós verði
að lenda á einhverju til að það sjáist. Samt
séu til ýmsar aðferðir til að leysa vandamálið
og hafi hann farið um víðan völl í þeim til-
gangi, bæði hvað varðar efni og hönnun. „Við
Yoko höfum velt þessu mikið fyrir okkur í
eldhúskróknum hjá henni,“ segir hann.
Ein af hugmyndunum er að láta ljósið
lenda í örfínum vatnsúða.
Árni Páll leggur áherslu á að verkið verði
ekki orkufrekt og segir að Yoko leggi
áherslu á að það verði fínlegt og nátt-
úruvænt.
Úði Í Íslandsskálanum á heimssýningunni í
Hannover notaði Árni Páll vatnsúða.
Gerð friðar-
súlu erfið
Hafnarfjörður | Verið er að und-
irbúa mjög viðamikið steypuverk-
efni við norðurbakkann í Hafn-
arfirði, en á föstudag á að steypa
þar grunn undir bílakjallara og
fara um 1.300 rúmmetrar af
steypu í plötuna. Steypustöð BM
Vallá sér um verkið fyrir At-Afl
verktaka og notar til þess fjórar
steypustöðvar og 27 steypubíla en
ljúka á vinnunni á átta tímum.
Fyrirtækið At-Afl verktakar
sér um framkvæmdirnar við
bygginguna og segir Sigurþór Jó-
hannesson, stöðvarstjóri, að svona
stórar plötur séu ekki daglegt
brauð. Þykkt plötunnar verði mik-
il og áður þurfi að dæla gríðarlega
miklu magni af vatni úr grunn-
inum. „Það er dælt allan sólar-
hringinn þessa dagana,“ segir
hann og bætir við að steypt verði
á háfjöru frá klukkan 10 á föstu-
dagskvöld til sex morguninn eftir.
„Þetta er gríðarlega flókið verk-
efni,“ heldur Sigurþór áfram og
vísar meðal annars til mikilla
járnabindinga og jarðvegsskipta.
„Sjórinn er afskaplega erfiður
viðureignar.“
Þorsteinn Víglundsson, for-
stjóri BM Vallár, segir að líkja
megi þessu verkefni við brúar-
dekk á stórum mislægum gatna-
mótum. Í þau hafi farið 1.100 til
1.200 rúmmetrar af steypu en þá
hafi verið unnið lengur eða í 10 til
12 tíma. BM Vallá notar fjórar
steypustöðvar sínar á suðvest-
urhorni landsins í verkið og 27
steypubíla, en þeir koma m.a. frá
Reyðarfirði, Akureyri og Akra-
nesi. „Það er gaman að takast á
við svona verkefni,“ segir Þor-
steinn Víglundsson.
Viðamikið steypuverkefni
Um 1.300 rúmmetrar af steypu, fjórar steypustöðvar og 27 steypubílar í verkið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vatnsmagn Um 170 tonnum af vatni, aðallega sjó, er dælt úr grunninum á mínútu. Vatnsmagnið verður
aukið í 240 tonn á mínútu um helgina og kemur dælingin til með að standa í þrjá mánuði.
Í HNOTSKURN
» Um 1.300 rúmmetrar afsteypu fara í plötuna.
Fjórar steypustöðvar og 27
steypubílar verða á fullu við
verkið í átta tíma.
» Steypubílar koma m.a.frá Reyðarfirði og Ak-
ureyri vegna vinnunnar.
» Þetta er eitt viðamestaog erfiðasta verk sem
Al-Afl verktakar hafa séð
um, að sögn stöðvarstjóra.
Steypa Um 1.300 rúmmmetrar af steypu fara í plötuna í grunni bygg-
ingarinnar en þarna við sjóinn verða byggðar tvær íbúðablokkir.
SÚLAN EA 300 hóf í gær síðustu
síldarvertíðina, a.m.k. undir stjórn
núverandi eigenda, en skipið hefur
verið selt Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað og verður afhent í vor. „Við
erum að skríða
framhjá Sval-
barðseyrinni,“
sagði Bjarni
Bjarnason, skip-
stjóri, þegar
Morgunblaðið sló
á þráðinn til hans
í gærdag en þeir
eiga skipið sam-
an, hann og
Sverrir Leósson og hafa rekið síðan
1988. Þar áður átti skipið Leó Sig-
urðsson, faðir Sverris.
Nótin var tekin um borð í Súluna í
gær og síðan var lagt í hann. „Við
megum veiða 2.000 tonn en vitum
ekkert hvað vertíðin stendur lengi;
rennum algerlega blint í sjóinn með
það,“ sagði Bjarni. Svo vonast hann
auðvitað til þess að eitthvað veiðist á
loðnuvertíðinni áður en skipið verð-
ur afhent nýjum eigendum.
Bjarni hefur verið á Súlunni frá
1968 og skipstjóri síðan 1978. „Ætli
ég sé ekki búinn að fara marga
hringi í kringum hnöttinn á henni.“
Hann segir Súluna barn síns tíma,
skipið sé að komast á aldur enda bú-
ið að skila sínu. „Skipið er orðið 40
ára og eðlilegt að það geti ekki hald-
ið í við nýju skipin. En það hefur
alltaf gengið vel, hér hafa aldrei orð-
ið nein óhöpp eða slys – 7, 9, 13; og
vonandi verður svo áfram.“
Bjarni byrjaði snemma á sjó, enda
með sjómannsblóð í æðum; faðir
hans, Bjarni Jóhannesson, var skip-
stjóri árum saman og þess má geta
að bróðir Bjarna, Árni, var einnig
skipstjóri og er nú forseti Far-
manna- og fiskimannasambandsins.
„Ég fór beint í Stýrimannaskól-
ann eftir gagnfræðapróf og hef síðan
verið við þetta. Ég held ég hafi farið
á fyrstu vertíðina 7 ára gamall; var
þá í fóstri hjá pabba á gamla Snæ-
fellinu.“ Bjarni segir mikið hafa
breyst í gegnum árin. „Úthaldið var
miklu grimmara áður fyrr; þegar
veiðar voru óheftar var andskotast í
öllu en eftir að kvótakerfið var sett á
er allt orðið sérhæfðara. Hér áður
veiddum við þorsk, rækju og nánast
hvað sem er.“
Hann segir að vissulega hefði ver-
ið heppilegra að sækja sjóinn jafnar;
að hafa getað verið meira í landi áð-
ur fyrr en raunin var, þegar börnin
voru lítil. „Nú er tíminn rúmur en
börnin löngu flogin úr hreiðrinu.“
En barnabörnin bíða; Bjarni segir
að indælt verði að leika við þau þeg-
ar hann kemur í land.
Eða er hann ekki annars á leið í
land, þegar Súlan fer austur?
„Ég er ekkert viss um að ég sé
hættur, enda kornungur og hress
ennþá. Ég er að vísu fæddur á fyrri
helmingi síðustu aldar en reyndar á
síðasta ári þess helmings; árið 1949.“
Fór á fyrstu vertíðina sjö ára
með föður sínum á Snæfellinu
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Gert klárt! Nótin var tekin um borð í Súluna í gær og síðdegis var svo haldið áleiðis á miðin – á síðustu vertíðina.
Nótin var tekin um borð
í Súluna og haldið af
stað á síðustu vertíðina
TVEIR ungir menn voru í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í gær
dæmdir í skilorðsbundið fangelsi,
annar í fimm mánuði og hinn í þrjá,
fyrir fjárdrátt og hylmingu auk þess
sem þeim var gert að greiða sakar-
kostnað.
Annar mannanna var dæmdur
fyrir að hafa, á síðari helmingi ársins
2005, dregið sér vörur úr verslun þar
sem hann starfaði, fyrir tæpar 140
þúsund kr. og hinn fyrir að hafa
dregið sér vörur úr verslun sem
hann starfaði í, frá árinu 2003 þar til
síðla desember 2005, fyrir rúmar 670
þúsund kr. Báðir viðurkenndu brot
sín og hafa þegar greitt fullar bætur
fyrir tjónið sem þeir ollu.
Sá sem dró sér vörur fyrir hærri
upphæðina hlaut þriggja mánaða
dóm, en hinn fimm. Með þeim brot-
um sem sá var nú dæmdur fyrir rauf
hann skilorð dóms sem hann hlaut í
janúar 2005 fyrir líkamsárás.
Stal vörum
fyrir 670
þúsund kr.
Ragnheiður Ólafsdóttir, jarðfræð-
ingur og umhverfisstjóri Lands-
virkjunar, heldur í dag fyrirlestur á
Félagsvísindatorgi við HA. Hann
hefst kl. 12 í stofu L101 á Sólborg.
Ragnheiður ræðir um verkefnið
„Sjálfbær þróun á Austurlandi“
sem er samstarfsverkefni Lands-
virkjunar og Alcoa um sjálfbæra
þróun á Austurlandi. Verkefnið er
unnið með þátttöku samráðsaðila
víðs vegar úr þjóðfélaginu, bæði
þeirra sem hafa verið með og eru á
móti framkvæmdunum.
Sjálfbær þróun
á Austurlandi
♦♦♦
AKUREYRI