Morgunblaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 33 áhugamál eins og spilamennsku, ferðalög bæði innanlands og utan. Hvað varðar spilamennskuna, sem oftast var bridge, gat pabbi rifjað upp spil sem hann spilaði mörgum árum áður, slíkt var minni hans og oft var erfitt að hugsa hvernig komið var fyrir honum hvað minnið varðar. Hann tók þátt í mörgum mótum og átti mikið af verðlaunagripum. Við hjónin og börnin okkar áttum margar góðar stundir með pabba og Jóhönnu. Við ferðuðumst mikið með þeim. Eftir að pabbi missti Jóhönnu brast eitthvað hjá honum og átti hann stundum frekar erfitt með að sætta sig við að vera einn. Alltaf var hann um- burðarlyndur og ljúfur við alla hvort sem það voru vinnufélagar eða starfs- fólkið á hjúkrunarheimilinu Skjóli þar sem hann dvaldi síðustu árin. Allir voru á einu máli að hann hefði góða nærveru og með létta lund. Það var ekki hægt annað en að þykja vænt um pabba. Far þú í friði, kæri pabbi. Guðjón H. Bernharðsson. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson) Guðmundur Ísak og Emil Ísak Jónssynir. Ég fékk þær slæmu fréttir á fimmtudagsmorgni að hann afi minn væri látinn. Ég á margar góðar minningar um afa minn. Hann var alltaf svo hress og einstaklega skemmtilegur. Kvöldið áð- ur en hann dó var ég einmitt að rifja upp þegar ég hitti hann síðast. Öll jólaboðin eru mér sérstaklega minnisstæð sem voru alltaf haldin á jóladag heima hjá afa og Jóhönnu. Þar var alltaf boðið upp á hangikjöt og meðlæti. Þar var alltaf spiluð fé- lagsvist á nokkrum borðum. Ég hlakkaði alltaf rosalega til að fara í þetta jólaboð. Svo var alltaf spil- að fram eftir nóttu. Afi var mikill og góður spilamaður. Eftir að Jóhanna dó og afi varð sjúk- lingur, hafa synir hans skipst á að halda jólaboðin og vonandi höldum við þessari góðu hefð áfram. Þessi jól verða skrítin án hans afa því hann hélt alveg uppi fjörinu og það var svo auðvelt að hlæja með honum. Ég á margar fleiri góðar minningar um hann. Ég fór oft til hans í Espi- gerðið þar sem hann bjó með henni Jó- hönnu sinni. Við krakkarnir fengum oft að gista hjá þeim og vorum við búin að eignast vini í blokkinni og vorum mikið frammi á gangi að leika okkur. Svo tóku þau okkur alltaf með á jólaskemmtanirnar uppi á Landspít- ala þar sem Jóhanna vann. Afi minn vann sem þingvörður og mér fannst alltaf jafn gaman að fylgj- ast með í sjónvarpinu ef afi mundi birt- ast á skjánum sem gerðist nokkuð oft. Að lokum kveð ég þig, elsku afi minn. Ég veit að þú ert á góðum stað með henni Jóhönnu þinni. Kveðja. Guðbjörg Guðmundsdóttir. Við kveðjum bróður okkar með blöndu af sorg og ákveðnum létti. Með sorg, því að hann var okkur kær, ætíð léttur í lund þótt margt blési á móti í lífinu. Síðustu æviárin var heilsan þrotin og engin framtíð nema dvöl á heilsuhæli. Það var því ákveðinn léttir að hann fékk hvíldina. Benni kvæntist mjög ungur ágætri konu, Guðrúnu Guðjónsdóttur, og eignuðust þau þrjá mannvænlega syni. Því miður entist hjónabandið ekki. Þau skildu. Benni var aðeins 18 ára gamall, þegar hann kvæntist og þurfti því að fá sérstaka undanþágu. Síðari kona hans var Jóhanna Kjart- ansdóttir röntgenhjúkrunarkona. Hjónaband þeirra var farsælt. Jó- hanna lést fyrir nokkrum árum. Síðustu æviárin hefur heilsufarið verið þungur baggi hjá Benna. Það or- sakaði sífellda dvöl á spítala eða heilsuhæli. Hann tók því með stakri hugprýði. Árni og Júlíus. ✝ Aðalsteinn Ei-ríksson fæddist í Villinganesi í Tungusveit í Skagafirði 13. sept- ember 1919. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Skagfirð- inga á Sauðárkróki 2. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Eiríkur Jón Guðnason, f. 25. maí 1875, d. 21. febr. 1949, bóndi í Villinganesi, og kona hans, Petrea Einarsdóttir, f. 24. okt. 1897, d. 27. mars 1946. Alsystir Aðalsteins var Guðrún Eiríka, f. 2. október 1915 (látin) og hálfbræður hans (samfeðra) Sigurður, f. 12. ágúst 1899 (lát- inn), og Guð- mundur Zophonías, f. 21. nóv. 1903 (látinn). Aðalsteinn vann við búskapinn í Villinganesi við hlið foreldra sinna og systur og tóku þau systkinin við búinu eftir lát for- eldra sinna en Guð- rún lést 2003. Aðalsteinn bjó í Villinganesi ásamt frænda sínum Sig- urjóni Valgarðssyni þar til hann flutti á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki 2001. Aðalsteinn var jarðsunginn frá Goðdalakirkju þriðjudaginn 18. október. Þeim fækkar þeim Íslendingum, sem fæddir voru á fyrri hluta síðustu aldar, þeim sem ólust upp við strit og basl þess tíma sem þá var. Engin kynslóð hefur lifað aðra eins breyt- ingatíma og haft frá jafnmörgu og merkilegu að segja og þessir fulltrú- ar liðinnar tíðar. Samfélagið verður fátækara með hverjum og einum sem yfirgefur okkur. Einn þeirra var Aðalsteinn Eiríksson frá Villinga- nesi eða Alli í Nesi eins og hann var gjarnan kallaður. Alli var á deildinni minni eins og ég kallaði deild 6 á dvalarheimilinu á Sauðárkróki þetta sumar sem ég vann þar, Alli var fljótur að kynna sér þessa nýju starfsstúlku og spurði mikið um fólk- ið á Skaganum en auðvitað vissi Alli allt um mig og mína ætt og fannst það mjög gott að ég væri komin á Skagann aftur. Í þessu spjalli okkar fann ég fljótt að Alli hafði reynt og séð ýmislegt, hann fylgdist vel með því sem var að gerast í kringum hann og hafði auk þess mjög gaman af að spjalla um heima og geima. Ég sá Alla síðast í maí í vor þegar við Lionskonur heimsóttum dvalar- heimilið og áttum góða stund með heimilisfólkinu, þar sem var sungið, spilað og meira að segja dansað, en þá fékk ég tækifæri til að spjalla að- eins við Alla sem þá var kominn í hjólastól, en lét það ekki aftra sér frá því að mæta á staðinn og taka þátt í skemmtuninni eins og kraftar leyfðu og ég er viss um að hann hefði jafn- vel fengið sér snúning ef hann hefði bara treyst fótunum. Dauðinn kemur manni ætíð á óvart jafnvel þótt aldurinn færist yf- ir og leiða megi að því líkum að stutt sé til þess að lífi ljúki. Vegferð Alla er lokið og mikið er ég fegin að hann fékk að fara með þeim hætti sem hann vildi, hægt og hljóðlega og ég er viss um að hinum megin hefur honum verið vel fagnað af vinum og ættingjum sem farið höfðu á undan og mikið hefur nú þurft að spjalla. Mig langar að kveðja þig, Alli minn, með þessu fallega ljóði sem ég veit ekki hver orti en passar þér alveg ágætlega. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld, á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér, ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng, ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Vertu sæll, góði vinur, og þakka þér þessa stuttu en afar ánægjulegu samfylgd. Sigrún M. Gunnarsdóttir. Aðalsteinn Eiríksson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, CECILÍA KRISTJÁNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði, sem lést á St. Franciskusspítalanum Stykkishólmi sunnudaginn 15. október, verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 21. október kl. 14.00. Kristín Jeremíasdóttir, Sigurður Kristjánsson, Svandís Jeremíasdóttir, Ágúst Sigurðsson, Áslaugur Jeremíasson, Unnur Magnúsdóttir, Kjartan Jeremíasson, Laufey Jeremíasdóttir, Stefán Björgvinsson, Þórdís Jeremíasdóttir, Gunnlaugur Þorláksson, Hulda Jeremíasdóttir, Ásgeir Valdimarsson, Ásta Jeremíasdóttir, Þorlákur Þorleifsson, Sæunn Jeremíasdóttir, Magnús Höskuldsson, Dagný Jeremíasdóttir, Sigurður Þorkelsson, barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, HÖRÐUR SVEINSSON, lést mánudaginn 16. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elín Kristinsdóttir og fjölskylda. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, LT. COL. FREDERICK M. DIENER, lést í Albuquerque, New Mexico, Bandaríkjunum, föstudaginn 13. október. Rannveig Sveinsdóttir Diener, Kristina Clendenin, Bruce Clendenin, Steven Train, Crystal Clendenin. Útför konu minnar, VALGERÐAR ÓSKARSDÓTTUR, Prestastíg 4, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 10. október, verður gerð frá Grafarvogskirkju næstkomandi fimmtudag, 19. október, og hefst athöfnin kl. 13.00. Þeim sem kynnu að vilja minnast hennar er bent á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut. Gissur Ó. Erlingsson. Fósturmóðir mín, tengdamóðir og amma, RAGNHILDUR SIGURJÓNSDÓTTIR, Stigahlíð 75, (áður Stórholti 35), verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 20. október kl. 13.00. Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir, Kristinn Tómasson, Ögmundur Kristinsson, Þorkell Kristinsson, Ragnhildur Kristinsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, JARÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Fannborg 3, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum mánudag- inn 16. október. Útförin verður auglýst síðar. Einar Árnason, Helga Einarsdóttir, Karl M. Kristjánsson, Arna Einarsdóttir, Konráð Konráðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Alúðarþakkir fyrir hlýju og vinsemd við andlát og útför VALDIMARS JÓNSSONAR skipstjóra, Vesturgötu 15a, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja fyrir frábæra umönnun og hlýju á liðnu árum. Guð blessi ykkur öll. Árnína Jónsdóttir, Jón Kristinn Valdimarsson, María Loftsdóttir, Margrét Lilja Valdimarsdóttir, Karl Hermannsson, Þórður Gunnar Valdimarsson, Erna Valdís Valdimarsdóttir og afabörnin. Okkar ástkæri EYJÓLFUR VALGEIRSSON áður bóndi á Krossnesi í Árneshreppi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. október kl. 13.00. Hildur Eyjólfsdóttir, Úlfar Eyjólfsson, Oddný S. Þórðardóttir, Petrína S. Eyjólfsdóttir, Fríða Eyjólfsdóttir, Árni E. Bjarkason, Valgeir A. Eyjólfsson, Kolbrún Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.