Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 41

Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 41 menning Grand Rokk 19:30 Hot Pants 20:15 Múgsefjun 21:00 Retro Stefson 21:45 Sprengjuhöllin 22:30 Lokbrá 23:15 Weapons 00:00 Lada Sport Pravda – Airwaves bar 20:00 Electroll – Dj set 23:00 Terrordisco – Dj set Gaukurinn 19:30 Led by a Lion 20:15 Cynic Guru 21:00 The Telepathetics 21:45 Noise 22:30 We are Scientists (US) 23:30 Dikta 00:15 Númer Núll Nasa 20:00 Spaceman 20:45 Kenya Nemor 21:30 DJ Platurn (US) – Dj set 22:00 Bent 22:45 Fræ 23:30 Original Melody 00:15 Forgotten Lores Pravda – Airwaves club 21:00 Thugs on Parole 21:40 Raychem 22:20 Ultra Mega Technobandið Stefán 23:00 Airloop 23:40 The Zuckakis Mondeyano Project 00:20 The Handsome Public (US) Dagskrá miðvikudagsins Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SPRENGJUHÖLLIN hefur nú verið virk í ca eitt ár. Ræturnar má þó rekja aftur til haustsins 2004, að sögn Bergs Ebba Benediktssonar, gítarleikara og söngvara. Hljómsveitin leikur hressilegt popprokk, með skírskotun til sjöunda áratugarins, nýbylgju tíunda áratugarins og ærslagangi listarokkara. A.m.k. segir svo á heimasíðu Iceland Airwaves og þar kemur og fram að sveitin búi yfir „klassískri“ upp- setningu, þ.e. hljómborði, trommum, bassa og tveimur gíturum. Syngja allir „Það var fyrir réttu ári að það komst mynd á sveitina,“ útskýrir Bergur. „Hitt hafði verið meira svona gutl. Við vorum í mesta lagi að glamra á kassagítara í partíum. Þannig að fyrsti mánuðurinn fór í það að læra að spila saman sem hljómsveit. Við syngjum allir, þrír okkar eru sérstaklega frekir á það enda erum við athyglissjúkir með afbrigðum. Mér finnst það flott, einhverra hluta vegna er ekki gert mikið af þessu í dag en kannski er þetta að breytast. Bergur segir að síðasta ár hafi verið gjöfult, sam- starfið gangi vel og hlutirnir þróist fram á við, hægt og bítandi. „Við erum kannski ekki best spilandi hljóm- sveitin í dag, þ.e. tæknilega séð, en okkur gengur afskaplega vel að semja.“ Af hverju? Bergur segist ekki í vafa um að þeir félagar gætu í dag skotið út plötu sem væri vel yfir meðallagi. „Maður er orðinn svolítið kokhraustur, ég við- urkenni það,“ segir hann. „En svona er þetta bara. Það eina sem vefst fyrir okkur er aðferðafræðin og ég býst við því að við tökum ekki nema hluta upp í hljóðveri en ætli við hefjumst ekki handa snemma á næsta ári.“ Bergur segir að lokum að Airwaves sé merkilegt fyrirbæri. „Þetta er ótrúleg hátíð. Það er stórundarlegt þegar maður hugsar um þetta, að pönkið kom fjór- um árum of seint til Íslands, og Rikshaw voru tveimur árum of seinir með breiðskífuna sína. Í dag koma „hipsterar“ í hundraðavís til Íslands til að sjá það nýjasta. Þetta hefur algerlega snúist við. Hve- nær gerðist þetta og af hverju?" Tónlist | Sprengjuhöllin spilar á opnunarkvöldi Airwaves Hipsterar í hundraðavís Ljósmynd/Leó Stefánsson Sprengjuhöllin Sveitin stefnir að útgáfu á fyrstu plötu sinni á næsta ári. Sprengjuhöllin spilar á Grand Rokk í kvöld klukk- an 21.45. www.icelandairwaves.is www.myspace.com/ sprengjuhollin Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ULTRA Mega Techno bandið Stefán er skipað fimm grallaraspóum sem kalla ekki allt ömmu sína hvað tón- listarbransann varðar. Sveitin hafn- aði í öðru sæti Músíktilrauna í ár og fóru langt á gríðarlega öflugri og skemmtilegri sviðsframkomu. Tón- listin kæruleysislegt, partívænt teknósull og látalæti meðlima á sviði með ólíkindum. Á myspace síðu sveitarinnar (myspace.com/umtbs) má meira að segja lesa lýsingu með- lima, þar sem þeir telja að í það heila sé fólk engan veginn hrifið af sveit- inni, þó að einhverjir hafi þó hrifist með. Blaðamaður hringdi í Sigurð Ásgeir Árnason, leiðtoga Stefáns, og svör hans fóru hressilega á sveig við það sem kalla mætti „hefðbundið“ hljómsveitarviðtal. Band með hjarta „Við spilum á Pravda klukkan 22.30,“ segir Sigurður og er auðheyr- anlega mikið niðri fyrir. „Þetta er svona mesta vitleysiskvöldið, mesta stuðflippið. Ég hlakka til að sjá sveit- ir eins og Thugs on Parole og The Handsome Public. Það verður gam- an að sjá þarna fulltrúa frá Kerrang og Rolling Stone og hver veit hvað gerist? Þessi bransi er fyrst og fremst heppni, sjáðu t.d. We Are Sci- entists! Við erum fimmfalt betri en það markaðsframleidda band. Við erum ekta band. Við erum band með hjarta. Við erum Stefán.“ Sigurður tekur sig þvínæst til og útskýrir sögu sveitarinnar fyrir blaðamanni. „Þetta er nú svo merkilegt, að við vitum varla hvenær bandið var stofn- að. Áður en við vissum af vorum við farnir að spila saman. En Stefán varð annars til úti á Borgarspítala. Þar vorum við allir fimm saman, komnir í aðgerð vegna mjólkuróþols. Við vor- um allir skornir upp af manni sem heitir Stefán, og þaðan er nafn sveit- arinnar komið. Þetta var hræðilegt. Svo þegar við vöknuðum, fundum við að við vorum ekki sömu mennirnir lengur. Það var eitthvað breytt. Við vissum að okkar hlutverk nú væri að „transa“ heiminn og bjarga honum frá tónlistarlegum viðbjóði.“ Snjóboltaáhrif Sigurður segir að næst verði stefnt á Eurovision og meðlimir séu þegar farnir að pakka niður hlýjum fötum, enda fer næsta keppni fram í Finn- landi. „Við erum með þjóðina á okkar bandi. Við erum Stefán. Annað hvort er fólk vaskar, pjakkar, lallar eða trallar. Eða Stefán.“ Blaðamaður spyr: „Þið eruð vænt- anlega allir í menntaskóla. Og mjög svo væntanlega í MR?“ „Við erum allir í menntaskóla já" segir Sigurður og bregður ekki svip. „En við erum allir í einhverjum skítaskólum. Nema ég, sem er í Kvennó. Við erum á fyrsta og öðru ári en við erum yfirþroskaðir. Við er- um þroskaðri en Busted.“ Sigurður segir þá að músík geri menn glaða. „Manstu þegar þú varst barn?,“ spyr hann blaðamann. „Já.“ „Manstu þegar þú hnoðaðir snjó- bolta og settir inn í frysti? Af hverju gerðir þú það?“ „Líklega til að meiða einhvern...“ „Einmitt. Til að valda sem mestum sársauka. Við erum búnir að hnoða svona snjóbolta inni í okkur og við ætlum að bomba honum framan í fólk í kvöld; þokkalegur klumpur sem fer í smettið á áhorfendum og þessum fulltrúum frá Rolling Stone og Kerrang.“ Ég þakka Sigurði að lokum kær- lega fyrir hressandi og einkar frum- legt spjall. „Já, ég meina, fólk er alltaf í sama farinu. Það er alltaf þetta: „Það er gaman að koma til Íslands, við hlökk- um til að spila“ og eitthvað svoleiðis kjaftæði. Við erum frumlegir. Fólk segir að við séum geðveikir en þetta er ekkert egóflipp. Við meinum það sem við segjum. Fólk er aldrei með neitt efni. Við erum með efni, við er- um með forsíður.“ Eitthvað að lokum Sigurður? „Við erum guðir.“ Tónlist | Ultra Mega Technobandið Stefán leikur á Airwaves í kvöld Kynntust á Borgarspítalanum Sjúklingar Félagarnir í U.M.T.S. eiga það sameiginlegt að berjast við mjólkuróþol. Ultra Mega Technobandið Stefán leikur á Pravda í kvöld kl. 22.20 AIRWAVES tónlistarhátíðin hrekkur í gang í kvöld og það með látum því segja má að mið- vikudagurinn sé nú fullgildur Airwaves-dagur – í kvöld koma fram 29 listamenn og hljómsveitir á fimm stöðum; Grand Rokk, Pravda – Airwa- ves bar, Gauknum, Nasa og Pravda – Airwaves club. Obbinn af listamönnunum er íslenskur, en þó erlendir listamenn inn á milli. Eftirfarandi listamönnum / hljómsveitum ættu menn helst ekki að missa af: Bent – Nasa kl. 22:00 Rottweilerhundurinn Ágúst Bent Sigberts- son, sem allir kalla einfaldlega Bent, notar tón- leika sína í kvöld til að kynna væntanlega skífu, Rottweilerhundur. Hann hefur löngu sannað sig sem snjall textasmiður og fyrirtaks rappari með XXX Rottweilerhundum og Bent & 7Berg en kemur fram einn síns liðs á fyrstu alvöru sóló- tónleikunum. We are Scientists – Gauknum kl. 22:30 Undanfarna mánuði hefur gengið manna á milli útgáfa bandarísku rokksveitarinnar We are Scientists á lagi Sigur Rósar „Hoppípolla“ þar sem þeir félagar ganga svo langt að syngja textann upp á íslensku án þess þó að kunna málið. Upptakan sýnir mönnum tvennt – We are Scientists kann að meta Sigur Rós og þeir Keith Murray, Chris Cain og Michael Tapper taka sjálfa sig ekki nema miðlungi alvarlega. Plötur þeirra eru einmitt dæmi um slíkt, upp- fullar með galgopahætti og fjöri, en þó ekkert dellumakarí, heldur framúrstefnulegt rafmagn- að nýpopp. Dikta – Gauknum kl. 23:30 Í sumar og haust hefur Dikta lagt land undir fót og meðal annars leikið á tónleikum vestan hafs og austan. Í þeirri tónleikaför var sveitin að kynna plötuna Hunting for Happiness sem kom út fyrir tæpu ári og obbinn af tónleika- dagskránni er af þeirri plötu ef að líkum lætur, þó þeir Diktumenn hafi lofað að eitthvað myndi heyrast af nýjum lögum í bland. Forgotten Lores – Nasa kl. 0:15 Það er enn í minnum haft þegar Forgotten Lores stálu senunni með mögnuðum tónleikum í Nasa á Airwaves fyrir tveimur árum. Þeir voru líka góðir á Gauknum í fyrra, en snúa nú aftur á Nasa – betra svið, betri ljós og betri hljómur. Ný plata er væntanleg á næstu vikum og líklegt að hún verði kynnt rækilega í kvöld. Ekki missa af þessu! Í dag er fyrsti dagur Airwaves tónlistarhátíðarinnar. Árni Matthíasson mælir með nokkr- um tónleikaatriðum. Hiphop Forgotten Lores spilar á Nasa kl. 0:15. ÞEGAR Morgunblaðið hafði sam- band við Hr. Örlyg sem stendur að Iceland Airwaves hátíðinni voru að- eins 400 miðar eftir hér á Íslandi en uppselt er orðið á hátíðina erlendis. Miði á Airwaves er í raun armband sem veitir aðgang að öllum tón- leikum hátíðarinnar. Miðaverð er 6.900 krónur, auk miðagjalds sölu- aðila sem er 460 krónur. Að gefnu tilefni skal það tekið fram að engin miðasala verður við einstaka atburði hátíðarinnar – ef frá er talin miðasala á viðburði í Iðnó og Pravda. Þar njóta handhafar Airwaves armbanda hins vegar for- gangs og hætt verður að selja inn ef sýnt þykir að slíkt þurfi til að tryggja aðgengi þeirra sem eru með armband. Miðaverð á Iðnó yfir Airwaves helgina er 1.500 krónur hvert kvöld, en 1.000 krónur á Pravda. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar á Laugavegi, í Kringlunni og Smáralind í Reykjavík og versl- unum BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Ekki selt á ein- staka viðburði Hrein snilld - Ghostigital. Airwaves | Aðeins 400 miðar eftir á hátíðina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.