Morgunblaðið - 18.10.2006, Page 43

Morgunblaðið - 18.10.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 43 menning Ekki hefði mig órað fyrir þvíöll þau ár sem HeimsljósHalldórs Laxness varUppáhaldsbókin mín með stórum staf að aðrar bækur gætu öðlast sess við hliðina á henni. Svo fór þó með tímanum að Sjálfstætt fólk varð skæður keppinautur, og að lokum Brekkukotsannáll. Fyrsta skáldsagan sem hann sendi frá sér eftir Nóbelsverðlaunin 1955. Töfrar Brekkukotsannáls, þess- arar yfirlætislausu bókar, eru svo margslungnir að ungur og saklaus lesandi nemur þá líklega mjög ómeð- vitað. Forréttindi eru það þó að kynnast bókinni fyrst í því sæla ástandi. Og áhrifin þeim mun öflugri þegar lengra kominn lesandinn tek- ur bókina aftur til handargagns – hún er þá lesin í birtunni af fyrri kynnum, og í ljósi skýrari meðvit- undar um hvað það er sem gerir Brekkukotsannál svo fullkomna bæði fyrir höfuð og hjarta. Sú náð var líka yfir mér sem lengra komnum lesanda Brekku- kotsannáls að hafa þá kynnst ritgerð Sigfúsar Daðasonar, Athugasemdir um Brekkukotsannál, sem aðgengi- leg er í Greinasafni hans frá árinu 2000, upphaflega birt 1958. Þessi rit- gerð, eftir eitt höfuðskáld íslenskrar ljóðlistar á tuttugustu öld, um annað íslenskt höfuðskáld, er afrek í skarpri bókmenntalegri athugun og innsæi. Hér eru töfrar verksins magnaðir upp með því að beina ljósgeislum að kjarna þess, og laða fram innri ljóma, með þeim hætti sem er ein- ungis á færi snjallasta ljósameistara. Fyrir alla þá sem hafa gaman af bók- um hlýtur ritgerð Sigfúsar að vera unaðslestur, jafnvel þótt þeir hefðu aldrei heyrt talað um Brekkukots- annál. Fyrir þá sem eru innlifaðir ferðalangar í höfundarverki Hall- dórs Laxness verður ritgerð Sigfús- ar ómissandi leiðarlýsing um það töfraland, og gluggað í hana seint og snemma, ekki endilega í samhengi við yfirstandandi ferð. Athugasemdir Sigfúsar Daðason- ar um stíl Brekkukotsannáls hljóta nú að hafa öðlast klassískan sess í ís- lenskum bókmenntafræðum, svo sem þessi málsgrein: „Einhverjum kynni að virðast að þessi stíll sem ég hef leyft mér hér að kalla lágan stíl, sé um flest ómerkari og auðveldari en hinn „hái stíll“. Það væri þó mjög óvarlega ályktað. Mér er að vísu ljós sá geysilegi agi sem stílsköpun slík sem í Íslands- klukkunni og Gerplu hefur krafist, en mér er til efs að stíll Brekkukots- annáls sé öllu vandaminni. Vandinn felst í því að gera þann stíl svo úr garði að hann sé „lágur“ án þess að vera lágkúra (samkvæmt stílfræði Þórbergs Þórðarsonar). Og raunar held ég að sá vandi sé meiri á ís- lensku en flestum skyldum málum. Fáum íslenskum höfundum hefur tekist að skrifa þennan stíl; og kannski fáir reynt.“ Þá tekst Sigfúsi meistaralega að skilgreina form Brekkukotsannáls – sem hefur greinilega verið fundið upp svo úr verði nákvæmlega þessi bók. Sigfús vitnar í orð Garðars Hólm um söng sinn: „Hjarðljóð sungið af hetjutenór“. En skilgrein- ingu bókarinnar telur Sigfús vera þessi orð viðsnúin: Hetjukviða færð í búning hjarðljóðs. Og hann undir- strikar að nýjung listaverksins felist í þessu. „Hjarðljóð og hetjukviða sam- tvinnuð. Harmsagan í ljósi tærrar bernsku; hamingja bernskunnar í skugga örlaganornarinnar. Og nú sjáum við að stílblöndunin á rætur sínar í sjálfu eðli verksins. Skoðun Sigfúsar Daðasonar á efni Brekku- kotsannáls er umhugsunarefni. Samkvæmt henni hlyti Brekku- kotsannáll að eiga sérstakt erindi til Íslendinga á tímum Kárahnjúka- virkjunar og umræðunnar um fram- kvæmdina, ekki síst eins og hún fer fram í sölum alþingis. Sigfús lítur svo á að Brekkukotsannáll sé framar öllu öðru bókin um mátt borgarastétt- arinnar (tákn hennar er Gúðmúnsen kaupmaður) til að slá ryki í augu al- þýðu og nota sér góðlyndi hennar og trúgirni. Þetta efni hafi þegar verið tekið til meðferðar í Atómstöðinni, og ekki sé jafnvel fjarri sanni að segja að Brekkukotsannáll sé að þessu leyti útlegging á einni máls- grein í Atómstöðinni er svo hljóðar: „Auðvitað skipuðu þeir okkur í lögreglunni að hafa til táragasið og annað sælgæti handa fólkinu, sagði hann. En fólkið gerði ekki neitt. Fólkið er börn. Því er kent að glæpa- mennirnir búi við Skólavörðustíg en ekki Austurvöll. Það linast kanski í þeirri trú stund og stund, en þegar stjórnmálamenn eru búnir að sverja nógu oft og húrra nógu lengi, þá fer það að trúa aftur. Fólk hefur ekki ímyndunarafl til að skilja stjórn- málamenn. Fólk er of saklaust.“ Undir lok ritgerðar sinnar telur Sigfús að svo geti farið að mörgum muni sjást yfir hve stóra gjöf Halldór Kiljan Laxness hafi gefið okkur með þessari bók. Þau orð eru rituð 1958. Og það er spurning hvort Brekku- kotsannáll sé farinn að njóta þeirrar hylli sem hann ætti skilið, næstum hálfri öld eftir að bókin kom út. En eins og Sigfús segir: „… og margar mjög miklar bækur eru þannig gerðar að öldum saman hætta menn ekki að brjóta heilann um hvert sé hið raunverulega gildi þeirra. Ætli það séu ekki hin frjóustu rit?“ steinunn@mac.com Brekkukotsannáll – Sigfús um Halldór » „Ekki hefði mig óraðfyrir því öll þau ár sem Heimsljós Halldórs Laxness var Uppáhalds- bókin mín með stórum staf að aðrar bækur gætu öðlast sess við hliðina á henni.“ Áhugaverð Sigfús Daðason skrifaði ritgerð um Brekkukotsannál. BÓKMENNTIR Steinunn Sigurðardóttir Morgunblaðið/ Einar Falur Uppáhaldsbók Halldór Laxness ritaði marga góða bókina um ævina. Ég get ekki sungið, dansað,teiknað né spilað á hljóð-færi, ef undan er skilið blokkflautunám í barnaskóla. Ég er ekki það sem kallast listræn og ef ég yrði beðin um að túlka málverk á vegg brygðist mér lík- lega bogalistin í augum þeirra listrænu. Ég skil ekki list og tel mig ekki þurfa þess til að njóta hennar og ég tel mig heldur ekki þurfa að fara inn á listasöfn eða tónleikasali til að upplifa hana. Ég er nefnilega á þeirri skoðun að hvergi sé eins mikil list, feg- urð og sköpun og í lífinu sjálfu.    Þótt ég hafi mjög gaman af þvíað fara á tónleika eða á lista- söfn þá fer ég oftar í göngutúra, því ekkert er eins stórkostlegt og náttúran sjálf og þá er ég ekki að tala um að það þurfi að ferðast upp á hálendi til að upplifa hana heldur er nóg að rölta út á Æg- isíðu, þar sér maður ólíka mynd á hverjum degi. Að ganga um götur Reykjavík- ur býður líka upp á undraverðar upplifanir, sama gamla gatan getur breyst með smá víðsýni. Með því að horfa upp, í staðinn fyrir beint áfram eða niður á fæt- urna, getur gefið allt aðra mynd af götunni og oft óvænta sýn. Ég man enn þá þegar ég uppgötvaði Laugaveginn fyrir ofan sjónlínu, það var allt annar Laugavegur, venjulegt hús verður kannski gullfallegt ef horft er uppeftir því. Mannlífið er líka list, að sitja á kaffihúsi og fylgjast með fólki er áhugaverðara en mörg kvik- myndin, hver manneskja er sín eigin listasmíð. Við erum allt- af að skapa list í daglegu lífi og getum upplifað hana alls staðar. Hver húsgluggi er t.d. rammi ut- an um listaverk, við sköpum hvern glugga með vali á gard- ínum og blóma- pottum og hver gluggi getur ver- ið upplifun fyrir þann sem geng- ur hjá. Það er líka löngu kunn staðreynd að fögur fjallasýn er mikið meira virði en málverk uppi á vegg. Fal- lega lagað lauf- blað sem maður rekst á á förnum vegi gleður hjartað oft meira en uppstilltur tilbúningur. En til að upplifa um- hverfið af opnum hug þarf fólk að vera óhrætt við að undrast og gleðjast yfir því sem það sér, og svo er líka stundum gott að leyfa sér bara að upplifa í staðinn fyrir að reyna strax að skilja.    Að mínu mati þarf maður ekkiað fara inn á söfn og sali til að upplifa list, þótt það sé alltaf gaman, heldur nægir að fara í gegnum daginn með víðsýni og sjá listina í lífinu sjálfu. ingveldur@mbl.is Listin í lífinu sjálfu » „Ég er nefnilega áþeirri skoðun að hvergi sé eins mikil list, fegurð og sköpun og í lífinu sjálfu.“ Fegurð Litadýrð náttúrunnar á Þingvöllum að hausti. AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir Morgunblaðið/ÞÖK Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í Fossvogi. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA EINBÝLISHÚS SSVOGI ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.