Morgunblaðið - 18.10.2006, Síða 45

Morgunblaðið - 18.10.2006, Síða 45
Unsound, Innersleeve og Indigoeru hættar við að spila á Airwaves. Í þeirra stað koma Pa- noramix og Royal Fortune. Enn er verið að vinna í að fá þriðju sveitina. Yfir 300 ís- lenskar hljóm- sveitir sóttu um að koma fram á Airwaves-hátíðinni í sumar. Rúmlega 100 þeirra komust í gegnum umsóknarferlið og munu spreyta sig um helgina á Iceland Airwaves 2006.    Tilraunaeldhúsið mun í fyrstasinn verða með eigið kvöld á Airwaves-hátíðinni í ár. Til- raunastjórinn Kira Kira og félagar hafa hóað í skemmtilega dagskrá á Iðnó á laugardagskvöldið þar sem fram koma Siggi Ármann, Ólöf Arn- alds, Evil Madness, Borko, Joseph Marzolla frá Frakklandi og Kira Kira sjálf. Kvöldið nær eflaust há- punkti á miðnætti þegar Stórsveit Nix Noltes stígur á svið.    Drum & bass og jungle verða alls-ráðandi á Breakbeat.is kvöldi á Pravda á fimmtudagskvöld. Segja má að auk Icelandair sé Breakbeat- .is eina „apparatið“ sem tengst hefur Iceland Airwaves-hátíðinni frá upp- hafi, enda er stemningin á þessum kvöldum einstök. Þau eru löngu búin að festa sig í sessi bæði hjá erlend- um og innlendum hátíðargestum en í ár mun breski harðhausinn Amit, sem m.a. hefur gefið út hjá Metal- headz útgáfu Goldie, sjá um fjörið.    Blaðamenn breska verðlaunarits-ins Clash Magazine eru komnir í hörkugír fyrir Airwaves, hlakka mikið til Clash-kvölds hátíðarinnar og segja að Hairdoctor sé með því flottara sem þeir hafi heyrt. Þó ekki flottari en Hairdoctor Airwaves- bolurinn sem er búinn að slá í gegn í Bretlandi og víðar. Kira KiraRoyal Fortune Airwaves- molar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 45 dægradvöl 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. cxd5 exd5 6. Bg5 h6 7. Bh4 Bf5 8. e3 Rbd7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3 Be7 11. O-O O-O 12. Rd2 He8 13. f3 c5 14. Bf2 a6 15. e4 cxd4 16. Rxd5 Rxd5 17. exd5 Rf6 18. Dxd4 Dxd5 19. Hfd1 Df5 20. Rc4 Hac8 21. b3 Bc5 22. Dd3 Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu í Fügen í Austurríki. Rússneski stórmeistarinn Evgeny Najer (2.648) hafði svart gegn Birni Þorfinnssyni (2.317) sem tefldi fyrir Taflfélagið Helli. 22. … He1+! og hvítur gafst upp þar sem hann tapar drottningunni eftir 23. Hxe1 Dxd3. Hellir lenti í 27.–32. sæti á mótinu af 56 keppnisliðum. Árangur liðsins var eins við mátti búast en stórmeistarinn Hannes Hlífar (2.551) stóð sig best liðs- manna og samsvaraði frammistaða hans 2.668 stigum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 hengingaról, 4 spakur, 7 afhendi, 8 með- ulin, 9 dýrbít, 11 hluta, 13 reykir, 14 grunar, 15 ein- lægni, 17 snjólaust, 20 fálm, 22 hnikar, 23 við- urkennir, 24 flokk, 25 ná- skyldar. Lóðrétt | 1 uppgerð- arveiki, 2 endurtekið, 3 fæðir, 4 grunnflötur, 5 asna, 6 stelur, 10 skora á, 12 nöldur, 13 gruna, 15 þoli, 16 ósætti, 18 kven- dýrið, 19 hreinar, 20 klif- ur, 21 skaði. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kindarleg, 8 vinnu, 9 móður, 10 nes, 11 rjúka, 13 arinn, 15 svöng, 18 skúra, 21 ryk, 22 ruddi, 23 eilíf, 24 hrikalegt. Lóðrétt: 2 innbú, 3 druna, 4 romsa, 5 eyðni, 6 sver, 7 hrun, 12 kyn, 14 rík, 15 sori, 16 öldur, 17 grikk, 18 skell, 19 útlæg, 20 alfa. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1 Ríkissaksóknari hefur ákveðiðrannsókn á hlerunarmálinu. Hvaða embætti hefur verið falin rannsóknin? 2 Prestar virðast ætla að hafa nógað gera 7. júlí 2007. Hvað hefur fólk í huga? 3 Sena hefur keypt Consert ehf.Hver átti Consert? 4 Sænski menningarmálaráðherr-ann Cecilia Stegö Chilo þurfti að segja af sér, m.a. fyrir að skulda af- notagjöld ríkisfjölmiðilsins. Hvað skuldaði hún mörg ár? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Steingerðar leifar risastórra skriðdýra frá tímum risaeðlanna fundust nýlega. Hvar fundust þær? Á Svalbarða. 2. Ís- lenskur tennisspilari leikur sem atvinnu- maður í íþrótt sinni. Hvað heitir hann? Arn- ar Sigurðsson. 3. Mikið hneykslismál skekur Ísrael. Forseti landsins, Moshe Katsav, er borinn þungum sökum. Hverjar eru þær? Nauðganir og kynferðislegt of- beldi gagnvart konum. 4. Grazyna Maria Okuniewska gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Hvar er hún upp- runnin? Póllandi. Spurt er… ritstjorn@mbl.is Evrópubikarinn. Norður ♠G8 ♥10973 ♦93 ♣ÁD653 Vestur Austur ♠ÁD1054 ♠K96 ♥G8 ♥D4 ♦84 ♦KG1052 ♣K872 ♣G94 Suður ♠732 ♥ÁK652 ♦ÁD76 ♣10 Suður spilar fjögur hjörtu. Þjóðverj- ar unnu Evrópubikarinn með sigri á Hollendingum í úrslitaleik, en fulltrúar Íslands í sveit Eyktar enduðu í 5. sæti. Spil dagsins er frá viðureign Þjóðverja og Ítala í undanúrslitum. Fjögur hjörtu virðist léttunnið spil, en Alfredo Ver- sace ruglaðist rækilega í ríminu. Mich- ael Gromöller í vestur hafði sagt spaða og austur tekið undir litinn. Gromöller valdi undarlegt útspil – spaðadrottn- ingu! Drottningin átti slaginn og Gro- möller spilaði aftur spaða á kóng aust- urs í öðrum slag, sem skipti svo yfir í tígulgosa. Versace taldi víst að austur hefði byrjað með ÁK í spaða og ætti varla meiri styrk. Hann fór því upp með tígulás, tók ÁK í hjarta og dúkkaði tíg- ul. Vörnin svaraði með spaða og nú varð Versace að taka laufás til að komast heim, en þegar tígulkóngurinn féll ekki þriðji vantaði einn slag. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is „FATLAÐA sýningargripi,“ segir Berglind Nanna Guðmundsdóttir (Mbl. 15.10.06) að ég hafi kallað hana og aðra fatlaða er fram koma í sýningu Einleikshússins, Þjóðarsálinni. Þetta er ekki sann- leikur. Umfjöllun mín um sýn- inguna var í formi sex spurninga um leikhús og beindist til ábyrgð- armanna sýningarinnar, aðeins í einni spurningu kemur orðið fatl- aður fyrir og hún er svohljóðandi: „Víst þykir mannslífið lítilsvirði á Íslandi en nær ímyndunarafl ís- lensks leikhússfólks ekki lengra eða treystir það ekki ímyndunar- afli áhorfandans meira en svo að það þurfi að gera fatlað fólk að sýningaratriði, áhættuatriði, inn- an um spúandi vatnsslöngur og hlaupandi hesta – til þess að leggja áherslu á það?“ Orðið sýningaratriði merkir ekki í íslensku máli sýning- argripur og rétt að upplýsa að Þjóðarsálin er byggð upp af fjölda laustengdra sjálfstæðra sýning- aratriða líkt og sirkus. Spurning mín snýst um þær aðferðir sem notaðar eru í sýningunni. En til- finningin að baki var vissulega að mér féll ekki að sitja í leikhúsi, þessum griðastað ímyndunarafls- ins, og þurfa að óttast raunveru- lega um varnarlausar manneskjur í hjólastólum og á hjólaborðum á sviðinu. Orðin „aumingi“ og „vanviti“ er ekki fremur en „fatlaðir sýning- argripir “ að finna í umsögn minni, né annað það sem Berglind Anna fullyrðir að ég hafi sagt og hugsað. Ég tel að affarasælast sé í bar- áttunni gegn fordómum líkt og í umræðu um íslenskt leikhús að reyna að halda sig við sannleik- ann. María Kristjánsdóttir, leiklistargagnrýnandi. Sannleikurinn er sagna bestur   

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.