Morgunblaðið - 18.10.2006, Page 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðaustanátt
5-13 m/s. Víða
léttskýjað en
skúrir eða él aust-
antil. Norðaustan 8-13 með
kvöldinu. » 8
Heitast Kaldast
6°C 0°C
Í DAG hefst Airwaves-tónlistarhátíðin í átt-
unda skipti hér á landi. Í kvöld koma fram 29
listamenn og hljómsveitir á fimm stöðum í
höfuðborginni. Meirihluti listamannanna er
íslenskur en þó slæðast nokkrir erlendir inn á
milli á opnunardeginum.
Í Morgunblaðinu í dag er allt um Airwaves:
Dagskrá dagsins, hverju skal ekki missa af,
viðtal við Ultra Mega Technobandið Stefán
sem spilar á Pravda í kvöld og stuðsveitina
Sprengjuhöllina sem mun stíga á svið á
Grand Rokk auk fréttamola um hátíðargesti.
Mikill áhugi er á hátíðinni bæði hérlendis
sem erlendis, en uppselt er orðið á hátíðina
erlendis og aðeins 400 miðar eftir hérlendis
þegar blaðið fór í prentun. | 41, 45, 48
Airwaves-tónlistar-
hátíðin hefst í dag
Ljósmynd/Leó Stefánsson
Stuðband Sprengjuhöllin er ein þeirra
hljómsveita sem spila á Airwaves í kvöld.
MESTUR verðmunur var á blóðþrýstingslyf-
inu Amlo þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð á lyfseðilsskyldum lyfjum í ellefu lyfja-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu fyrir
skömmu.
Amlo 5 mg töflur, 100 stk., voru dýrastar á
3.325 krónur í Lyfjum og heilsu og ódýrastar
í Skipholtsapóteki á 2.144 krónur sem er
1.181 krónu verðmunur. Apótekin eru bæði
rekin af sama aðilanum en undir sitt hvoru
nafninu. Verðmunur á frumlyfi og sam-
heitalyfi með sömu verkun reyndist enn meiri
eða allt að 66%. Þá reyndist allt að 47% verð-
munur á svefnlyfinu Stilnoct, 10 mg töflum,
20 stk. Það kostaði 693 krónur þar sem það
var ódýrast í Lyfjaveri en 1.019 krónur þar
sem það var dýrast í Árbæjarapóteki.
Lyfjaver og Skipholtsapótek voru oftast
með lægsta verðið í könnun ASÍ en Lyf og
heilsa við Egilsgötu reyndist oftast með
hæsta verðið. Verðkannanir á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum eru unnar í samráði við
Landlæknisembættið. Lagðir eru fram lyf-
seðlar í apótekum en ekki er gefið upp að um
verðkönnun sé að ræða fyrr en lyfin hafa ver-
ið skrifuð út og verð prentað á pokamiða. | 23
Könnun sýnir allt að
55% verðmun á lyf-
seðilsskyldum lyfjum
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FIMMTÁN ára stúlka vissi vart hvaðan á
sig stóð veðrið þegar ókunnugir karlmenn
hófu að hringja í hana nú nýverið, með alls
kyns óhugnanleg tilboð. Bekkjarfélagi
stúlkunnar hafði þá sett persónuupplýs-
ingar og símanúmer hennar á íslenskan
einkamálavef.
Pilturinn bjó til einkamálaauglýsingu fyr-
ir hönd stúlkunnar, án hennar vitundar, á
skólatíma og svaraði morguninn eftir þeim
skilaboðum sem borist höfðu – 11–13 skila-
boð. Gaf hann þá m.a. upp símanúmer
stúlkunnar og viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Á einni klukkustund bárust stúlk-
unni símtöl frá ellefu karlmönnum og um
hádegisbil voru 58 svör komin við auglýs-
ingunni.
Í millitíðinni komst upp um málið og var
vefstjóra einkamálavefjarins gert að fjar-
lægja auglýsinguna. Í kjölfarið funduðu
skólastjórnendur með öllum aðilum málsins
en óvíst er enn hvort foreldrar stúlkunnar
munu kæra athæfið.
Ein tegund eineltis
Sífellt færist í vöxt að nemendur í grunn-
skóla hrelli skólasystkin sín með hjálp nets-
ins, og virðist sem yngri nemendur séu
fljótir að tileinka sér slíka siði. Skólastjóri
sem Morgunblaðið ræddi við sagðist þekkja
dæmi um einelti af þessu tagi alveg niður í
fjórða bekk. Hann segir mörg börn ekki
nægilega vel upplýst um hætturnar sem
leynast á netinu og oft vanti kærleika og
virðingu fyrir öðru fólki. Jafnframt telur
hann mikilvægt að lyfta umræðunni um
þessi mál hærra og fá foreldra til að taka
virkari þátt, ná sambandi við börnin og
finna út hvað þau séu að gera á netinu.
Með ódýrum myndavélasímum og
bloggvefjum virðist auðvelt að níða ein-
staklinga, og oft erfitt að hafa hendur í
hári þeirra sem leggja slíkt í vana.
Ábyrgð foreldra er mikil og á vefsvæði
SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni er
að finna margvíslegar upplýsingar fyrir
foreldra um örugga net- og farsímanotk-
un barna og unglinga.
Fékk ellefu símtöl á klukkustund
Fimmtán ára piltur setti upplýsingar um jafnaldra stúlku á einkamálavef
Morgunblaðið/ÞÖK
ÓLAFUR Tómasson, fyrrverandi
póst- og símamálastjóri, segist
ekki kannast við þá lýsingu fyrr-
verandi starfsmanns Símans að
setið hafi verið við tengivirki Sím-
ans og símtöl hleruð, eins og
Landssímamaðurinn mun hafa
greint Jóni Baldvini Hannibals-
syni frá fyrir skemmstu.
Ólafur á að baki áratugalangan
starfsferil hjá Pósti og síma og
hann var póst- og símamálastjóri
frá 1986 til 1996. Hann segir að
tengdar hafi verið línur fyrir lög-
regluna vegna hlerana, en aldrei
nema eftir dómsúrskurði og aldrei
nema út af fíkniefnum. Þessar lög-
legu hleranir hafi hann vitað um
en segist ekki geta hent reiður á
hvað menn hafi gert ólöglega.
Að sögn Ólafs kom fyrir að
símalínum sló saman og þá heyrðu
sumir símnotendur símtöl sem
þeim voru ekki ætluð. „Það upp-
lifðu flestir fyrir 20–30 árum að
það sló saman línum í gömlu sjálf-
virku stöðvunum,“ segir hann.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari,
sem hefur nú fyrirskipað rann-
sókn á meintum hlerunum í utan-
ríkisráðuneytinu, segir að al-
menningur muni fá upplýsingar
um niðurstöðu rannsóknarinnar
að henni lokinni. Hann segir það
alvarlegt sakarefni hafi símar
ráðuneytisins verið hleraðir, jafn-
vel þótt sök geti verið fyrnd í mál-
inu. Hugsanlegt er að við rann-
sókn málsins komist upp um brot
gegn landsstjórninni, landráð, en
Bogi staðfestir að slík brot fyrnast
ekki.
Í umræðum á Alþingi í gær
sagði Geir H. Haarde forsætisráð-
herra að þingmenn hefðu, líkt og
margir fjölmiðlamenn, ruglað
saman þeim málum er vörðuðu
kalda stríðið og þeim sem ríkis-
saksóknari hefði tekið ákvörðun
um að rannsaka. Sagðist hann
telja að búið væri að koma báðum
þessum málum í eðlilegan farveg.
Kannast ekki við að
símtöl hafi verið hleruð
Í HNOTSKURN
»Fyrrverandi póst -ogsímamálastjóri kannast
ekki við ólöglegar hleranir á
40 ára starfsferli sínum hjá
Símanum. Hinsvegar voru
löglegar hleranir í fíkni-
efnamálum stundaðar að
fengnum dómsúrskurði.
»Bogi Nilsson rík-issaksóknari tilkynnti í
fyrradag að hann hefði
ákveðið að efna til rann-
sóknar á ætluðum hlerunum
í utanríkisráðuneytinu. Rannsókn/26–27
VETUR er genginn í garð austur við Hálslón
Kárahnjúkavirkjunar, en tuttugu dagar eru
liðnir síðan byrjað var að safna vatni í lónið. Er
bjartsson og Dagbjartur Garðar Einarsson
voru á ferð við Kringilsárrana þegar Morg-
unblaðið bar að garði í gær. | 6
fylling Hálslóns nú hálfnuð. Viðar Hjálmtýs-
son, Þröstur Valdimarsson, Birgir Örn Ragn-
arsson, Ólafur Már Sævarsson, Einar Dag-
Morgunblðaið/RAX
Vetrarlegt um að litast við Hálslón