Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 49
haustönn 2006. Um-
sjón með námskeið-
unum er í höndum
miðstöðvar símennt-
unar í Hafnarfirði.
Fjölbreytt þjónusta
og upplýsingar
Í lok árs 2005 voru
gefnir út upplýs-
ingabæklingar um þá
þjónustu sem í boði er
hjá bænum auk ann-
arra hagnýtra upplýs-
inga. Bæklingurinn
var þýddur á ensku, pólsku, rúss-
nesku og víetnömsku. Nú þegar er
búið að dreifa honum inn á heimili
pólskra og rússneskra innflytjenda
auk þess sem hann liggur frammi
hjá ýmsum þjónustustofnunum. Að
auki hefur kynningarrit um leik-
skóla Hafnarfjarðar og umsókn-
areyðublöð verið þýdd á fimm
tungumál.
Mikil áhersla er lögð á móttöku
grunnskólabarna og er öflug mót-
tökudeild starfandi við Lækjarskóla.
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar hefur
unnið tillögur um fyrirkomulag
móðurmálskennslu fyrir innflytj-
endabörn og eru þær nú til með-
ferðar við gerð fjárhagsáætlunar
Hafnarfjarðar 2007. Í upphafi verð-
ur hugað að stærsta hópnum, pólsk-
um börnum, en um leið er ætlunin
að kanna um niðurgreiðslur vegna
tungumálanámskeiða hjá Háskóla
Íslands fyrir aðra hópa.
Upplýsingamiðlun í útvarpi
Hafnarfjarðarbær hefur átt gott
samstarf við Alþjóðahús á sl. árum
og styður við starfsemi þess með ár-
legum fjárframlögum í formi þjón-
ustusamnings. Nýjasta samstarfs-
verkefni Hafnarfjarðarbæjar og
Alþjóðahúss er útvarp fyrir innflytj-
endur en fjölmiðladeild Flensborg-
arskólans í Hafnarfirði á jafnframt
aðild að því verkefni. Um er að ræða
tilraunaverkefni fram á næsta vor
sem er ætlað að auka upplýs-
ingaflæði og fræðslu til erlendra
íbúa Hafnarfjarðar og tryggja betur
aðlögun þeirra að íslensku sam-
félagi.
Útsendingar hófust 1. nóvember
sl. og eru á tíðninni 96,2 sem tekur
til Hafnarfjarðar auk þess sem hægt
verður að hlusta á útvarpið í gegn-
um vefveitu Hafnarfjarðar. Þættir
verða sendir út 4 sinnum í viku og
eru frá 18.00 til 18.30 alla daga nema
þriðjudaga. Að loknu reynslu-
tímabili þarf að gera úttekt á því
hvernig til hafi tekist. Ef vilji er til
að halda áfram með verkefnið í ljósi
reynslunnar þá er mikilvægt að
skoða möguleikana á því að fá fleiri
aðila til liðs við verkefnið, s.s. önnur
sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki.
Markmiðið er að stækka útsending-
arsvæðið þegar fram líða stundir
svo að fleiri erlendir íbúar á Íslandi
eigi kost á að hlusta á
þessar útsendingar.
Ekkert framlag
frá ríkisvaldinu
Mikil aukning hefur
verið á fjölda innflytj-
enda á Íslandi á sl. ár-
um, m.a. vegna mik-
illar eftirspurnar
atvinnulífsins eftir
vinnuafli. Heilu fjöl-
skyldurnar flytjast bú-
ferlum frá fjarlægum
löndum og það er gríð-
arlega mikilvægt að stjórnvöld bjóði
þessum nýju íbúum sértæka þjón-
ustu sem er nauðsynleg til að
tryggja aðlögun og jöfn tækifæri.
Sveitarfélög hafa mörg hver lagt
sitt af mörkum í þessu sambandi en
aðgerðarleysi ríkisvaldsins hefur
vakið athygli og undrun. Það er al-
gjörlega óásættanlegt að sveit-
arfélög ein standi undir þjónustu við
innflytjendur. Það er skoðun und-
irritaðs að ríkisvaldið verði að vakna
til lífsins og marka heildstæða
stefnu og tryggja fjármagn til mála-
flokksins. Hafnarfjarðarbær hefur
tekið af ábyrgð á þessu verkefni og
við munum áfram leggja okkar af
mörkum til að sinna því sem best má
verða.
Höfundur er bæjarstjóri.
Lúðvík Geirsson
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 49
Lyngás - 210 Garðabær
Til leigu bjart og rúmgott skrifstofuhúsnæði við Lyngás í Garðabæ. Nánari lýsing: Komið er inn í
dúklagðan stigagang sem er samnýttur með einum öðrum leigjanda. Til hægri þegar upp er komið er
gengið inn í umrætt skrifstofurými, sem skiptist í 5 einingar: Litla geymslu, þrjár góðar bjartar skrif-
stofur og lítið rými sem mætti nýta sem kaffiaðstöðu. Öryggiskerfi er í húsinu.
Barbara Wdowiak
Löggiltur leigumiðlari
barbara@rentus.is
S. 440 6020/664 6020
Fiskislóð - 107 Reykjavík
Til leigu glæsilegt húsnæði sem býður uppá mikla möguleika . Um er að ræða tvö bil á jarðhæð um
95 fm og tvö bil á efri hæð um 83 fm. Húsnæðið er allt nýlega tekið í gegn. Möguleiki að gera íbúð-
ir á efri hæðum. Steinteppi á gólfum, stórir gluggar. Sérinngangur í allar einingar.
Halldór Jensson
halldor@rentus.is
Viðskiptastjóri
s. 840 2100/440 6014
Fiskislóð - 107 Reykjavík
Til leigu 699,1 fm atvinnuhúsnæði á Fiskislóð. Húsnæðið skiptist í stóran sal með tveimur innkeyrslu-
dyrum. Á efri hæð eru skrifstofur. Góð aðkoma og næg bílastæði. Hagstæð leiga. Laust strax.
Halldór Jensson
halldor@rentus.is
Viðskiptastjóri
s. 840 2100/440 6014
Hlíðasmári -201 Kópavogur
Til leigu nýtt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á jarðhæð í Hlíðasmára í Kópavogi. Um er að ræða
449,5 fm og 417,6 fm. Gegnheilt eikarparket á gólfum, stórir gluggar. Laust strax
Halldór Jensson
halldor@rentus.is
Viðskiptastjóri
s. 840 2100/440 6014
Síðumúli - 108 Reykjavík
Til leigu mjög gott 605,8 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð við Síðumúla í Reykjavík. Eignin skiptist í 14
skrifstofurými, rúmgóða móttöku, stóran sal, fjórar snyrtingar, ræstikompu og geymslur. Vínildúkur á
gólfum. Tveir inngangar. Möguleiki á að skipta í tvær einingar. Næg bílastæði.
Halldór Jensson
halldor@rentus.is
Viðskiptastjóri
s. 840 2100/440 6014
Rentus leigumiðlun Laugavegi 97 101 Reykjavík
Sími 440 6100 Fax 440 6101 www.rentus.is
OPIÐ HÚS
DÍSABORGUM 3
Björt og falleg 96,2 fm 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, stórum afgirt-
um sólpalli og miklu útsýni á barnvænum stað. Húsið er klætt að utan með varanlegum
hætti og stendur innst í lokaðri húsagötu. Íbúðin er laus strax. Verð 24,9 m.
Eignin verður sýnd milli kl. 14 og 16 í dag, sunnudag.
Haukanes - Sjávarlóð
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Vel staðsett 402 fm einbýlishús á 1500 fm sjávarlóð. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist þannig:
Á efri hæð er forstofa, hol, gestasnyrting, þrjú herbergi, þrjár stofur, eldhús, búr, snyrting og
baðherbergi. Tvöfaldur bílskúr. Á jarðhæð er hol, gestasnyrting, 4-5 svefnherbergi, bátaskýli og stór
útgrafin rými sem nýtast sem hobbýherbergi, þvottahús, baðherbergi og geymslur. Húsið er í
upprunalegu ástandi. V. 86,0 m. 6179
Falleg og vönduð íbúð á 1. hæð með
stórum svölum ásamt tröppum niður í sérgarð sem er með sólpalli og afgirtur með
skjólgirðingum. Íbúðin skiptist í forstofu, sérþvottaherbergi, stofu, eldhús með borð-
króki, gang, baðherbergi og tvö stór svefnherbergi. Íbúðin er sólarmegin. V. 21,9 m.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Funalind - Með sérgarði