Morgunblaðið - 01.12.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006 37
MÖRG undanfarin
ár hafa sveitarfélögin
verið rekin með halla
og aukið skuldir sínar.
Þótt nokkur viðsnún-
ingur hafi orðið í
rekstri þeirra á síðasta
ári á það fyrst og
fremst við þau sveit-
arfélög sem notið hafa
þenslunnar og upp-
gangsins í atvinnulíf-
inu, sem fyrst og
fremst á sér stað hér á
höfuðborgarsvæðinu
og nágrenni þess og á
Mið-Austurlandi. Víðast annars
staðar er engin þensla nema verð-
bólga, sem bitnar illa á öllum skuld-
settum sveitarfélögum.
Stór hluti þess fjárhagsvanda sem
sveitarfélögin eiga við að glíma er
byggðavandi. Þar sem þenslan er
mest hafa þau þurft að ráðast í gríð-
arlegar fjárfestingar til að mæta
íbúafjölgun og þörfum atvinnulífs.
Annars staðar glíma þau við aukinn
rekstrarkostnað sem hækkar hlut-
fallslega meira en tekjurnar.
En fleira hefur orðið til þess að
auka fjárhagsvanda sveitarfélag-
anna.
Skattheimta til hins opinbera, rík-
is og sveitarfélaga, hefur tekið mikl-
um breytingum á undanförnum ár-
um sem leitt hefur til óeðlilegs
misvægis og röskunar á jafnræði
ríkis og sveitarfélaga í skatttekjum.
Einkahlutafélögum hefur fjölgað
gríðarlega á undanförnum árum. Á
árinu 2004 fór fjöldi þeirra í fyrsta
sinn yfir 20.000 og á miðju þessu ári
eru þau um 25.600. Enn hraðari þró-
un hefur orðið í greiðslu fjármagns-
tekjuskatts. Á árinu 2003 námu
tekjur ríkisins af þeim skatti um 9
milljörðum króna en á árinu 2005
voru þær um 21,7 milljarðar króna.
Á því ári höfðu 6.600 fjölskyldur
hærri fjármagnstekjur en launa-
tekjur og 2.200 framteljendur höfðu
engar aðrar tekjur en fjármagns-
tekjur og greiða því ekkert útsvar.
Sveitarstjórnarmenn hafa ítrekað
vakið athygli á því, að þessar breyt-
ingar hafa leitt til skerðingar á
tekjum sveitarfélaganna en aukið
tekjur ríkissjóðs, og að þær sam-
ræmist ekki því sjónarmiði að jafn-
ræði þurfi að vera í skattgreiðslum
einstaklinganna til að fjármagna op-
inbera samfélagsþjónustu – bæði
ríkis og sveitarfélaga. Þróunin hefur
leitt til þess að vaxandi fjöldi ein-
staklinga með miklar tekjur greiðir
lítið og í sumum tilfellum ekkert til
þeirrar samfélagsþjónustu sem
sveitarfélögin veita, þótt þeir njóti
hennar með ýmsum hætti, ekki síður
en aðrir.
Tekið skal fram að ekki er við þá
einstaklinga að sakast sem nýta sér
hagfelldustu mögu-
leika skattkerfisins,
svo framarlega sem
þeir eru ekki misnot-
aðir. Það er misskipt-
ing skattteknanna milli
ríkis og sveitarfélaga
sem er óviðunandi og
hana verður að leið-
rétta.
Alþingi og rík-
isstjórn geta ekki leng-
ur horft fram hjá þessu
misræmi og á því verð-
ur að taka. Auðveld og
einföld leið til þess er
að veita sveitarfélögunum, frá og
með næstu áramótum, 15% hlutdeild
í fjármagnstekjuskattinum. Það er
sanngjörn og eðlileg krafa sveitarfé-
laganna.
Sanngjörn krafa sveitarfélaganna
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
fjallar um málefni sveitarfélaga » Það er misskiptingskattteknanna milli
ríkis og sveitarfélaga
sem er óviðunandi og
hana verður að leið-
rétta.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson Höfundur er borgarstjóri.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
5
9
8
Afl og hagkvæmni sameinast
Tækniundrið TDI® dísilvélin eyðir aðeins 4,9 lítrum
SkodaOctavia
Skoda Octavia með 1,9 lítra TDI® dísilvél
afsannar að afl og hagkvæmni fari ekki saman.
Vélin skilar 105 hestöflum en eyðslan er einungis
4,9 lítrar í blönduðum akstri á hverja 100 km.
Svo er Octavia TDI® einnig fáanleg fjórhjóladrifin
og meira en tilbúin í átök vetrarins. Hvort sem
hindrunin er háir snjóskaflar eða hátt
eldsneytisverð, þá ertu í toppmálum á Skoda
Octavia TDI®.
Í ágúst 2006 tókst Stefáni Ásgrímssyni, ritstjóra FÍB
blaðsins, að ná eyðslu bílsins í 3,63 lítra þegar hann
ók rúmlega hringveginn, alls 1.515 km, í áheita- akstri
HEKLU fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
GullnaStýrið
Skoda Octavia hefur meðal annars
hlotið Gullna stýrið, einhver
eftirsóttustu bílaverðlaun heims.
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband
á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið
maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á
reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Umsóknir um jólaúthlutun eru dagana
6., 13. og 14. desember.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b.