Morgunblaðið - 15.12.2006, Síða 12

Morgunblaðið - 15.12.2006, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÝMIS tæki á Keflavíkurflug- velli eru komin til ára sinna og hafa flugvallaryfirvöld þegar hafið at- hugun á því hverju þarf að kosta til við að endurnýja tækja- búnað. Aðflugs- ratsjá flugvallar- ins er til að mynda 27 ára gömul og snjóplógur sem notaður er við að hreinsa flugbrautir er um 50 ára gamall. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Björns Inga Knútssonar, flugvallarstjóra Keflavíkurflugvallar, á fundi Félags íslenskra atvinnuflug- manna um öryggismál Keflavíkur- flugvallar á Hótel Nordica í gær. „Ýmis búnaður og tæki eru komin til ára sinna og þess vegna erum við byrjaðir að skoða hverju þarf til að kosta til þess að öryggiskröfur þessa flugvallar mæti ströngustu kröfum nútímans,“ sagði Björn. Í samtali við Morgunblaðið sagði hann kostnað sem leggja þyrfti í á næstu 3–5 árum ekki undir einum milljarði króna. Tækjabúnaður frá varnarliðinu var í mörgum tilvikum leigður, fyrst til 11 mánaða en svo með möguleika á framlengingu í 4 ár. „Eini búnaður- inn sem við vitum til að þeir ætli sér að taka af landi brott eftir fyrstu 11 mánuðina er eldfuglinn svokallaði, þjálfunarbúnaður slökkviliðsmanna sem er mjög umhverfisvænn. Við þurfum að vinna í því að koma upp samsvarandi búnaði fyrir flugvöllinn eða komast að samkomulagi við Bandaríkjamenn um að fá þennan búnað keyptan,“ sagði Björn. Hann sagði að engin skerðing hefði orðið á þjónustu slökkviliðs flugvallarins við yfirtöku íslenskra stjórnvalda. „Ég er stoltur yfir að segja frá því að þessi yfirfærsla frá varnarliðinu var hnökralaus. Það urðu fáir varir við hana, það voru ekki lesendabréf í dagblöðum eða spjallað um þetta í fréttum um að þar væri óöld eða skálmöld í aðsigi eða í gangi. Með samstilltu átaki þessara starfsmanna, sem ég þakka mikið fyrir hvernig þeir tóku á þessu og þeirra fagfélagar, gekk þetta vel, öll- um til heilla.“ Staðsetning ekki fullnægjandi Skoðað hefur verið hvar staðsetja megi nýja slökkvistöð sem uppfyllir kröfur um viðbragðstíma, sagði Björn. Þetta væri vissulega fjárfest- ing en hana yrði einnig að líta á sem uppfærslu á búnaði sem kominn væri á aldur og öryggiskröfum í heild sinni. Staðsetning slökkvistöðvarinn- ar í dag væri ekki fullnægjandi gagn- vart flugstöð Leifs Eiríkssonar, í ljós hefði komið að slökkvibílar hefðu þurft að bíða við flugbraut ef vél hefði verið í aðflugi eða á leið í loftið. Björn sagði snjóruðningsbúnað á flugvellinum kominn til ára sinna, leit væri að öðrum alþjóðaflugvelli sem notaðist við 50 ára snjóplóg. Nýju tæki sem hefði verið á leigu hjá varn- arliðinu hefði hins vegar verið skilað þar sem það þótti ekki virka nægi- lega vel. Keyptur hefði verið nýr snjóplógur sem væntanlegur væri til landsins. „Eldfuglinn“ hverfur af landi brott Björn Ingi Knútsson Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is AÐEINS er spurning um hvenær, ekki hvort, samgönguráðuneytið tekur við rekstri Kefla- víkurflugvallar, segir Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra. Hann sagði á fundi með flug- mönnum í gær að hann ætlaði að beita sér fyrir því að norðaustur–suðvestur-flugbrautin á Keflavíkurflugvelli yrði opnuð á nýjan leik. Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) boðaði til opins fundar til að ræða málefni Keflavíkurflugvallar á Hótel Nordica í gær. Jó- hannes Bjarni Guðmundsson, varaformaður FÍA, sagði tilganginn með fundinum þann að ræða öryggismál Keflavíkurflugvallar áður en búið er að taka ákvarðanir um framtíð vallarins í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins. Í erindi sínu sagði Jóhannes nokkur atriði brenna á flugmönnum. Í fyrsta lagi mætti nefna það baráttumál til margra ára að opna á ný norðaustur–suðvestur-flugbrautina á Kefla- víkurflugvelli. Þörfin fyrir þessa flugbraut væri til staðar, t.d. fælist í því aukið öryggi, þar sem brautin væri opin mætti fækka þeim dög- um þar sem verið væri að lenda í allt að há- markshliðarvindi, jafnvel í hálku og skertum bremsuskilyrðum. „Nærtækt dæmi um gildi þessarar flug- brautar fengum við í haust þegar suðvestan- hvassviðri olli því að fjölmargar flugvélar urðu frá að hverfa. Þá stóð vindur næstum beint á braut 07/25 [norðaustur–suðvestur-brautina]. Vél í neyð hefði orðið að eiga við allt of mikinn hliðarvind á öðrum brautum,“ sagði Jóhannes. Í samtali við Morgunblaðið ítrekaði hann þessa skoðun og sagði að ekki væri á það bæt- andi fyrir flugvél í neyð að þurfa að fara lengri veg til lendingar, t.d. til Skotlands, eða lenda í óþarflega miklum hliðarvindi. Nauðsynlegt fyrir öryggið Jóhannes benti einnig á það í erindi sínu að nú væri allt útlit fyrir það að flugbraut á Reykjavíkurflugvelli með sömu stefnu yrði lögð niður. Þá væri augljóst að nauðsynlegt væri fyrir öryggi innanlandsflugs á Íslandi að braut í þessari stefnu sé til reiðu á suðvest- urhorni landsins. Það væri því skýr krafa flug- manna að brautin á Keflavíkurflugvelli yrði opnuð áður en brautinni á Reykjavíkurflugvelli yrði lokað. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði að undirbúa þyrfti opnun norðaustur–suðvest- ur-flugbrautarinnar. „Ég tel að það sé afar mikilvægt til að það sé sem mest öryggi í rekstri flugvallanna á Íslandi í heild. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram að um leið og ákvörðun verður tekin um breytingar á flug- brautinni á Reykjavíkurflugvelli þarf að opna brautina suðurfrá. Ég mun beita mér fyrir því sem samgönguráðherra að svo geti orðið.“ Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri Kefla- víkurflugvallar, benti á að kostnaður við að taka flugbrautina í notkun myndi að líkindum verða á bilinu 200–250 milljónir króna, sem yrði að koma úr ríkissjóði. Ástæðan fyrir þess- um kostnaði væri ekki slæmt ástand brautar- innar, þvert á móti væri hún í góðu ástandi, heldur það að rafmagnsleiðslur henni tilheyr- andi hefðu ekki verið endurnýjaðar þegar aðr- ar leiðslur voru endurnýjaðar fyrir nokkru og það þyrfti að gera áður en brautin verður tekin í notkun. Jóhannes Bjarni sagði mikilvægt á þessum tímamótum sem Keflavíkurflugvöllur standi á í dag að öryggi og þjónusta á vellinum yrði ekki síðri, og helst betri, en hún var í tíð varnarliðs- ins. Tryggja þyrfti að þjónusta og tími við hreinsun og hálkueyðingu yrði ekki lakari og óásættanlegt væri að dregið yrði úr kröfum og staðlar lækkaðir við þessa breytingu. Sömu kröfu ætti að gera til slökkviliðs flugvallarins, sem hefði hlotið fjölda viðurkenninga fyrir fag- mennsku og hátt þjónustustig. Samgönguráðherra fullvissaði fundarmenn um að öryggiskröfur á flugvellinum yrðu ekki minnkaðar. „Ég get fullvissað ykkur um að það verður í engu slakað á kröfum og búið áfram þannig um hnútana að slökkvilið og öll þjón- usta varðandi flugbrautir verður áfram í sam- ræmi við alþjóðlegar kröfur og staðla og þær kröfur sem við viljum að séu gerðar hvað þetta varðar.“ Starfshópur um framtíðarskipan Sturla upplýsti jafnframt á fundinum um að samgönguráðuneytið hefði skipað fulltrúa í starfshóp sem á að móta tillögur fyrir sam- gönguráðherra um framtíðarskipan flugvernd- armála á Keflavíkurflugvelli. Jafnframt sagði ráðherra stefnt að því að fimm manna nefnd sérfræðinga sem hafa mun það hlutverk að undirbúa færslu á stjórnun og rekstri Keflavík- urflugvallar frá utanríkisráðuneyti til sam- gönguyfirvalda lyki störfum fyrir lok febrúar á næsta ári. „Vinna við breytingu á framtíðarskipulagi stjórnsýslunnar á Keflavíkurflugvelli er því hafin og er þess vænst að með vorinu verði unnt að hrinda þeim breytingum í framkvæmd sem þegar hafa verið lagðar til eða koma til með að birtast í niðurstöðu starfshópsins og ákvarðanatöku í framhaldi af því,“ sagði Sturla. Hann sagði eðlilegt að starfsemi Keflavík- urflugvallar færðist til Flugmálastjórnar Ís- lands og Flugstoða ohf. eftir því sem við á. Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar hefði annast flest verkefni sem Flugmálastjórn Ís- lands hefði séð um annars staðar á landinu og oft hefði ábyrgð og framkvæmd skarast hjá stofnununum. „Þá hefur í raun verið rekin tvöföld yfir- bygging á sviði yfirstjórnar flugmála og visst óhagræði hefur fylgt þessari skörun þar sem einstaklingar og fyrirtæki þurfa að eiga sam- skipti við tvenn stjórnvöld vegna sama mála- flokks,“ sagði Sturla. Hilmar Baldursson, flugrekstrarstjóri Ice- landair, sagði á fundinum að félagið liti til þess með tilhlökkun að starfsemi Keflavíkurflug- vallar færðist til samgönguráðuneytisins. „Við lítum til þess mjög björtum augum og hljótum að horfa til þess að þar verði möguleiki á kostn- aðarlækkun og þá um leið betri þjónustu. Við vitum að það er tvíverknaður í kerfinu í dag.“ Morgunblaðið/RAX Flugbraut opnuð „Um leið og ákvörðun verður tekin um breytingar á flugbrautinni á Reykjavíkurflugvelli þarf að opna [norðaustur–suðvestur] brautina suður frá,“ sagði Sturla Böðvarsson. Aflögð flugbraut aftur í notkun Morgunblaðið/ÞÖK Öryggi óbreytt Íslenskir atvinnuflugmenn lögðu áherslu á að öryggi og þjónusta á Keflavíkur- flugvelli skertust ekki í framtíðinni frá því sem var meðan varnarliðið sá um þessi atriði. Í HNOTSKURN »Flugmenn lögðu áherslu á að flug-braut með stefnuna norðaustur– suðvestur verði opnuð að nýju, en henni var lokað fyrir nokkrum árum. »Samgönguráðherra ætlar að beitasér fyrir opnun brautarinnar áður en braut með sömu stefnu á Reykjavík- urflugvelli verður lokað. »Kostnaðurinn við að opna brautinagæti numið 200–250 milljónum kr. Félag íslenskra atvinnuflug- manna boðaði til fundar með ráðherra til að ræða stefnu og rekstur Keflavíkurflugvallar eftir brotthvarf varnarliðsins.                           

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.