Morgunblaðið - 15.12.2006, Side 27
mælt með …
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 27
Aðventutónleikar í Skálholtskirkju
Laugardaginn 16. desember verða aðventutónleikar í
Skálholti kl. 14, 16 og 20.30. Þar koma fram m.a. Skál-
holtskórinn og Barna- og unglingakór Biskupstungna.
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Óskar Pétursson koma fram
með kórnum og hljómsveit Hjörleifs Valssonar leikur
undir. Hilmar Örn Agnarsson stjórnar. Heiðursgestur
tónleikanna er Gunnar Þórðarson. Það er tilvalið að fá
sér bíltúr í sveitina og eiga ljúfa stund í Skálholtskirkju.
Barcelona gegn Internacional
de Porto Alegre
Á sunnudagsmorguninn kl. 10.20 leikur Eiður Smári
Guðjohnsen til úrslita um heimsmeistaratitil félagsliða á
móti hinu brasilíska Internacional de Porto Alegre og
verður sýnt beint frá leiknum á Sýn. Bráðsnjallt væri nú
að gleyma öllum jólaundirbúningi um stund, kasta sér
upp í sófa og hvetja okkar mann.
Jólasýning í Þjóðminjasafni
Nú er í gangi jólasýning í Þjóðminjasafninu, nánar til-
tekið á Veggnum. Þar eru sýndar myndir tvíburabræðr-
anna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Tilvalið er
að brjóta upp verslunarleiðangurinn með því að kíkja á
sýninguna þar sem börn komast í jólaskap og bernskujól
hinna fullorðnu rifjast upp við skoðun myndasýning-
arinnar.
Dómkórinn syngur úti
Jólalegt er um að litast á Skólavörðustígnum og fullt
tilefni til að gera sér sérstaka ferð þangað á laugardag-
inn þegar Dómkórinn mun syngja jólalög úti við á Skóla-
vörðustíg 12 kl. 12.30. Nánast óhjákvæmilegt er að kom-
ast í rétta jólagírinn við blíðan söng Dómkórsins, vel
dúðaður með húfuna og vettlingana á sínum stað.
Elektrónískt
jólapartí á Barnum
Laugardagskvöldið 16.
desember verður ærleg
jólaveisla á Barnum þar
sem elektró-snúðurinn DJ
Jerry sér um að þeyta
skífum. DJ Jerry er Ís-
landsvinur með meiru og
hefur lofað að gera allt vit-
laust. Upphitun verður í
höndum DJ Casanova og
partíið hefst upp úr kl. 23.
Frítt er inn.
Hvar er jólaskapið?
Í útvarpinu hljóma jólalögin ótt og títt og rómantíkin í
textanum er þannig að um mann fer sæluhrollur. Svo er
haldið í bæinn og rómantíkin sem sungið er um er týnd
og tröllum gefin, allt einhvern veginn brjálað, fólk
stressað og flýtir sér eins og hver mínúta sé sú síðasta til
að klára það sem óklárað er. Því ekki að reyna að breyta
þessu, setjast niður heima við kertaljós með piparkökur
og súkkulaðidrykk við höndina, spjalla við heimilisfólk,
skrifa á jólakortin, eða hvað það er sem gera þarf, og
reyna að finna þessa margumsungnu rómantík jólanna?
Skautasvell á Ingólfstorgi
Hvernig væri nú að taka skautana með sér í versl-
unarleiðangurinn þannig að þegar allir eru orðnir
þreyttir á að versla má bregða skautunum á fætur sér og
renna sér af hjartans lyst á skautasvellinu á Ingólfstorgi.
Slíkt gæti sett skemmtilegan blæ á annars þreytandi
verslunarferð. Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 • www.damask.is • Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
Allt
á rúmið
Laugavegur 61 • Sími 552 4930
jonogoskar.is
P
IP
A
R
S
ÍA
6
0
9
1
2
Úrval
demantsúra
Eitt vandaðasta úr veraldar
Pöntunarsími
ÆVIMINNINGAR JÓHANNESAR ZOËGAhitaveitustjóra eru komnar út.
Í bókinni rekur Jóhannes uppvaxtarár sín á
Norðfirði og segir frá námsárunum á Akureyri og
í Reykjavík. Hann segir frá ýmsum ævintýrum frá
stríðsárunum í Þýskalandi, „njósnaferð“ og verkbanni
sem hann lenti í vegna ógætilegra ummæla um
ráðamenn. Þegar loftárásir hófust náði hann oftar en
einu sinni að bjarga húsi frá eyðileggingu með því
að slökkva í logandi sprengju. Hann og félagi hans
komust á ævintýralegan hátt til Danmerkur eftir
stríðslok. Eftir stríð markaði hann spor í söguna með
því að byggja upp Hitaveituna sem arðbærasta fyrir-
tæki landsins.
Bókin er 224 bls. að stærð, prýdd
fjölda mynda. Áætlað verð í bóka-
búðum er 3.500 krónur. Hægt er að
panta bókina með því að hringja í
síma 512 7575 eða senda tölvupóst
á póstfangið bj@heimur.is.