Morgunblaðið - 15.12.2006, Side 46

Morgunblaðið - 15.12.2006, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gísli Ólafssonfv. yfirlögreglu- þjónn á Akureyri fæddist á Sand- hólum í Eyjafirði 23. júní árið 1910. Hann andaðist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 4. desember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Gíslason bóndi og Sigríður Jónsdóttir, þau eignuðust átta börn saman en tvö þeirra létust á unga aldri. Gísli lifði systkini sín. Gísli missti föður sinn 11 ára gamall. Hann ólst upp til 18 ára aldurs í Eyjafirði en flutti þá ásamt móður sinni til Akureyrar og bjó þar til æviloka. Gísli byrj- aði á því að aka vörubíl er hann fluttist til Akureyrar, hóf síðan störf hjá BSA um það bil er suð- urferðir hófust og vann þá við fólksflutninga til Reykjavíkur í ævintýralegum ferðum. Hann hóf störf hjá lögreglunni árið 1940 og sá þá jafnframt um sjúkraflutninga. Gísli gerðist ökukennari og í einni slíkri kennslustund kynntist hann Evu Sigurrós Hjálmarsdóttur, f. 17.10. 1917, d. 15.10. 1980, en þau giftust árið 1949. Dóttir þeirra er Sigríður, gift Einari S. Bjarnasyni, þau eiga tvær dætur, þær eru Eva Hrund, gift Árna Kár Torfasyni, dóttir þeirra er Hildur Sigríður og Tinna Rún, sambýlismaður Viðar Helgason. Gísli var um tíma varðstjóri og yfir- varðstjóri í lögregl- unni á Akureyri en gerðist yfirlög- regluþjónn árið 1955 og gegndi því starfi þar til hann lét af störfum um sjötugt. Gísli var jafnframt yfirlög- reglustarfinu stefnuvottur og sá um jarðskjálfta- mælana á Akur- eyri. Gísli vann ásamt fleirum að samantekt Vestur-íslenskra æviskráa. Almannavarnir voru mótaðar fyrir Norðurland undir hans for- göngu. Hann stofnaði við annan mann flugskóla Akureyrar en einnig var hann einn af stofn- endum Flugfélags Akureyrar, sem síðar varð Flugfélag Ísland og varð við samruna síðar að Flugleiðum. Gísli var heiðurs- félagi Oddfellowreglunnar á Ís- landi, Lögreglufélags Akureyr- ar, Flugmálafélagsins, Vélflug- félags Akureyrar. Hann var sæmdur gullmerki Rauða kross Íslands, Erindrigmedalje H.M. Kong Olav V. Noregskonungs og sæmdur riddarakrossi Hinnar ís- lensku fálkaorðu hinn 14. okt. 1984, auk þess sem hann hlaut margar aðrar viðurkenningar fyrir margvísleg störf í þágu samfélagsins. Útför Gísla verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Fögur lífsbók vinar míns og tengdaföður fyllir hugann þegar ég lít til baka þau tæplega þrjátíu og sjö ár sem leiðir okkar Gísla hafa náð saman. Það voru mér forrétt- indi að kynnast honum. Hann var hugljúfur, viljasterkur og einlægur maður sem auðvelt var að ræða við um hvaðeina. Hann bjó á heimili okkar hjóna í liðlega tuttugu ár og bar aldrei skugga á milli okkar. Hann var minn besti vinur, auk þess sem hann var ómetanlegur dætrum mínum sem sáu góða fyr- irmynd í afa og gátu leitað til hans öllum stundum með sín litlu og stóru mál sem vandlega voru ígrunduð og oftast fundin sameig- inleg lausn á. Þegar hugurinn reikar nú til baka þá minnist ég þess tíma áður en Gísli missti eiginkonu sína Evu Sigurrós. Það voru notalegir tímar sem maður átti þegar maður kom í heimsókn til þeirra í Ásveginn. Þá sá ég vel hvernig Gísli bar sig að í verki. Hann hafði einstæða hæfi- leika við að ná árangri í starfi sínu með vinsamlegum og virðulegum samskiptum við aðra. Auk þess sá maður að hann var sérstaklega vandvirkur við að taka ljósmyndir, bæði í vinnu sinni og tómstundum. Hann starfaði að mörgu og var skemmtilega upptekinn í starfi sínu og var þá vinalegur húmor sjaldan langt undan. Eftir að Gísli missti eiginkonu sína flutti hann inn á heimili okkar hjóna og tók virkan þátt í heimilishaldinu og sá iðulega um elskulega umönnun dætra minna. Stundum á sumrin fórum við í ferðalög og þá gjarnan eitthvað erlendis. Vekja þær stundir skemmtilegar minningar sem oft var hægt að rifja upp með skemmtilegum ljósmyndum. Gísli var einstaklega laginn, pössunar- samur og skipulagður við að halda saman samtímaminningum á líð- andi stund og njótum við fjölskyld- an þess í dag. Gísli var mjög dag- farsprúður maður sem bar mikla virðingu fyrir vinsamlegri og kær- leiksríkri framkomu, sannleikurinn hafði mikið gildi í huga hans. Í þessu var hann mín besta fyrir- mynd. Gísli var ekki gefinn fyrir að troða skoðunum sínum upp á aðra, heldur kunni hann að læða að manni athugasemdum ef honum fannst við eiga og þá gjarnan vel ígrundað. Gísli var vinmargur og vinsæll og hafði frá mörgu skemmtilegu að segja, enda lifði hann einstaka ævi. Fyrri hluta ævinnar var hann æv- intýramaður og tók þátt í byrjun tæknibyltingar á fyrri hluta síð- ustu aldar, á þeim tíma er bíllinn kom til sögunnar og flugið. Hann lét mikið að sér kveða í þeim mál- um. Hann eignaðist marga vini í Vesturheimi enda ferðaðist hann þvert og endilangt bæði um Kan- ada og Bandaríkin og keyrði þá ásamt fleirum við söfnun á efni í Vestur-íslenskrar æviskrár. Á þessum ferðum sínum gerði hann sér far um að kynnast því hvernig lögreglan starfaði á þessum stöð- um. Þetta átti eftir að reynast hon- um vel er hann tók við starfi sem yfirlögregluþjónn á Akureyri. Hann starfaði sem ökukennari, stofnaði flugskóla ásamt öðrum, vann við veðurathuganir, jarð- skjálftamælingar og sjúkraflutn- inga og ásamt fleirum vann hann að því að kaupa fyrstu sjúkraflug- vélina hingað til Akureyrar. Má segja að hann hafi rutt brautina fyrir Almannavarnir hér á Akur- eyri og vildi að hér yrði varastöð fyrir landið allt. Hann var ásamt fleirum hugmyndasmiður að því að byggja lögreglustöðina á Akureyri jafn myndalega og raun varð á. Hann annaðist skipulag og um- sýslu þeirrar framkvæmdar frá byrjun til enda. Hann átti auðvelt með að fá til liðs við sig menn til að gera þyrluflugvöll við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri sem allir gerðu það í sjálfboðavinnu. Gísli starfaði í mörgum félögum. Má þar nefna Rauða kross Íslands, Odd- fellowregluna, Flugsögufélagið, Félag lögreglumanna og áfram mætti lengi telja. Alls staðar var Gísli virkur og heiðraður með virt- um. Gísli náði að eldast með reisn. Fögur mynd og söknuður sest í hugann ásamt þakklæti fyrir það að hafa haft hann að nánum vini. Gísli var hið stóra tré í skógi mann- kærleikans sem gott var að leita sér skjóls við. Megi sá sem öllu ræður taka á móti honum, veita honum skjól og náðugan frið í faðmi vina. Einar S. Bjarnason. Elsku afi, nú ertu farinn yfir til hinna englanna. Við systur fyll- umst stolti þegar við hugsum til þín. Þú átt litríkan og árangurs- ríkan feril að baki og fórst í gegn- um lífið með kærleikann að leið- arljósi. Það var sama hvar þú komst við, alltaf stóðst þú upp úr sem leiðtogi og varst umvafinn væntumþykju. Við systur vorum þess heiðurs aðnjótandi að fá að alast upp með þér og eiga þig sem þriðja foreldri. Það var okkur mikil blessun og hrein guðsgjöf. Við systurnar vorum einmitt að rifja upp þann góða sið þinn að koma inn til okkar fyrir svefninn til þess að bjóða góða nótt og klæða okkur í hlýja ullarsokka. Þetta eru stundir sem okkur þykir vænt um að rifja upp. Það var sama hvað maður hafði gert af sér eða hvernig lá á manni, alltaf gat maður leitað til þín, elsku afi. Þú dæmdir aldrei heldur varstu alltaf til staðar. Þér var ávallt mikið í mun að öllum liði vel og að fjölskyldan stæði þétt saman. Við fjölskyldan höfðum ávallt þann góða sið að eyða sunnudags- kvöldunum saman í Grenilundinum og voru það okkur öllum mjög dýr- mætar stundir. Þá var mikið hlegið og spjallað um heima og geima. Þú hafðir alveg einstakan húmor sem þú hélst allt undir það síðasta. Þú náðir alltaf að koma með ótrúlega hnyttin tilsvör þegar síst var von á og eru til minningar um margar stundir þar sem fjölskyldan bók- staflega grét úr hlátri vegna orð- heppni þinnar. Eitt af þínu gildum var að dæma ekki aðra og aldrei heyrði maður þig tala illa um nokkurn mann. Þú varst réttsýnn með eindæmum, eljusamur, gjafmildur og barst kærleika til náungans. Sýna það mörg verk þín í gegnum tíðina. Þú hafðir einstaka sýn á lífið, tókst ekkert sem sjálfsagðan hlut og varst einstaklega þakklátur. Það var ólýsanlegt að horfa á hversu mikið þú yngdist upp við að eignast fyrsta langafabarnið, hana Hildi Sigríði. Hún var greinilega ljósið í lífi þínu síðasta eina og hálfa árið og sá maður þig stundum finna barnið í sjálfum þér þegar hún var nærri. Það var fallegt að sjá hana kveðja þig í hinsta sinn. Kyssti þig á vangann, sagði „afi lúlla“ og vinkaði bless. Það var eins og hún vissi að þú værir farinn frá okkur. Við vorum mjög lánsamar að fá að hafa þig meðal okkar eins lengi og raun bar vitni. Við vitum að þú fórst sáttur og hamingjusamur. Þú talaðir óspart um hvað þú taldir þig vera lánsaman hvað varðar fjöl- skyldu og lífshlaup. Þú hefur verið okkur systrum ómetanleg gjöf sem verður okkur veganesti í gegnum lífið. Fyrir það erum við afar þakk- látar. Væntumþykjan streymdi frá þér, bæði í orðum og verki. Þú varst kletturinn í lífi okkar og svo sannarlega fyrirmynd. Þó þú sért farinn til hennar ömmu er þó víst að þú verður aldrei langt undan. Við vitum að þú átt bæði eftir að fylgja okkur í gegnum hamingjuna og styðja okkur í erfiðleikum. Minning þín á eftir að ylja okkur um hjartarætur um ókomna tíð. Við kveðjum þig með ást og sökn- uði. Eva Hrund og Tinna Rún. Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að Gísli var orðinn 86 ára gamall þegar ég kynntist honum. Hann var ótrúlega vel á sig kom- inn, ók ennþá bíl, sentist með stefnur og hafði nóg fyrir stafni. Ég hafði kynnst Evu dótturdóttur Gísla og úr varð að ég flutti inn á heimili fjölskyldunnar í Grenilundi og á neðri hæðina þar sem Gísli hafði skrifstofu. Maður fylltist lotningu við að koma inn á skrifstofuna til Gísla. Fjöldi heiðursmerkja á veggjum fyrir vel unnin ævistörf, m.a. fyrir lögregluna, Rauða krossinn og Oddfellow. Það var gott að koma til Gísla og alltaf gaf hann sér góðan tíma til að spjalla, spyrja hvernig fjölskyldunni liði, fara yfir ætt- fræðina og ræða um daginn og veg- inn. Á þessum 10 árum sem ég þekkti Gísla hafði hann margvísleg áhrif á mig og með lífssýn sinni, jákvæðni og bjartsýni gaf hann mér gott veganesti til framtíðar. Hann sagði lykilinn að því að komast áfram í lífinu vera að koma vel fram við annað fólk enda var hann vina- margur og ávallt reiðubúinn að rétta hverjum sem var hjálpar- hönd. Hann fylgdist vel með því hvernig mér gekk í námi og starfi og veitti mér oft hvatningu til þess að gera enn betur og ná góðum ár- angri. Það voru þung skref fyrir mig eitt sinn að ganga inn á skrifstof- una til Gísla og tilkynna honum að ég hafði runnið til í hálku á bílnum hans sem ég hafði að láni, lent í árekstri og skemmt bílinn. Gísli sá að mér var brugðið og brást vel við eins og við var að búast af honum. Þakkaði fyrir að ég hafði ekki slas- ast og gaf mér föðurleg ráð hvað varðaði akstur við erfiðar aðstæð- ur, enda kynnst ýmsu á ferðum sínum fyrir BSA á fyrri tíð. Ég minnist þess hversu gaman Gísli hafði af því að fara í bíltúra með okkur Evu eftir að hann ákvað sjálfur að leggja inn ökuskírteinið sitt og hætta að keyra. Það lifnaði yfir Gísla þegar við keyrðum Eyja- fjarðarhringinn og hann rifjaði upp minningar úr æsku og sagði okkur sögur frá gömlum dögum sem oft á tíðum voru skemmtilegar en einnig átakanlegar er rifjaðist upp fyrir honum fátæktin, þegar hann var að alast upp ásamt átta systkinum, sem fóru hvert sinn veg eftir að faðir þeirra féll frá, þegar Gísli var einungis ellefu ára gamall. Gísli lærði fljótt, þá ungur, að bjarga sér og flutti á unglingsárum til Akur- eyrar þar sem hann átti eftir að setja mark sitt á bæjarlífið. Gísli hélt heilsunni og reisn allt til loka. Fylgdist vel með fréttum og gat ávallt bent á spaugilegar hliðar lífsins þegar því var að skipta. Undir það síðasta, þegar ljóst var hvert stefndi, sagði Gísli aðspurður hvernig hann hefði það, að sér liði sem hann æki utan vegar í vondu skyggni. Gísli var lagður af stað í síðustu bílferðina hérna meg- in, áleiðis til Evu konu sinnar, sem hann hafði beðið svo lengi eftir að hitta á ný. Ég sé hann fyrir mér, þar sem hann situr við stýrið, í sínu fínasta pússi, glaður í bragði að venju. Úrræðagóður kemst hann klakklaust aftur upp á veginn og um leið rofar til og Gísli ekur til móts við birtuna í faðm konu sinn- ar og ástvina. Ég kveð Gísla með söknuði og þakklæti. Árni Kár. Það var í byrjun mars 1964 að ég fékk skilaboð frá Gísla að heim- sækja hann eitt kvöld í Ásveginn. Ég vissi þá hvað stóð til en hann hafði komið þeim skilaboðum til mín að hann vantaði ungan lög- regluþjón í lögregluliðið á Akur- eyri. Ég var yfirspenntur þegar ég fór þangað heim og Gísli bauð mér til stofu, en þar hafði Eva kona Gísla sett kaffi og kökur á borð. Gísli gekk hreint til verks og sagði mér að hann vantaði lögregluþjón og hann hafði greinilega skoðað fortíð mína og taldi hana nægilega góða til að komast í lögregluna. Gísli dró ekkert úr því við mig hverjar væru skyldur góðs lögregluþjóns og brýndi hann mjög fyrir mér að þeim yrði að hlýða. Hann sagði t.d. að lögregluþjónn væri þjónn fólks- ins og þannig yrði ég að akta allt fólk. Ég man eftir því að þegar við Gísli höfðum spjallað saman góða kvöldstund og rætt um lögreglu- starfið og allar þær skyldur sem því fylgdu, stundi ég því upp, sem var þó ofarlega í huga mér, hver launin væru fyrir þetta mikilvæga starf. Því gat Gísli hins vegar ekki svarað en taldi að þau væru góð. Hjá honum var lögreglustarfið æðra en launin. Eftir þetta viðtal var teningun- um kastað og ég byrjaði að vinna hjá Gísla nokkrum dögum síðar. Fyrsti vinnustaðurinn var gamla lögreglustöðin við Smáragötu. Sama vor og ég byrjaði var hins vegar byrjað að byggja nýja lög- reglustöð við Þórunnarstræti og var sú bygging Gísla mjög hjart- fólgin. Sem yfirlögregluþjónn var Gísli dagvinnumaður hjá lögreglunni og mætti hann alltaf kl. 9.00. Þegar hann mætti var aðeins einn lög- reglumaður að störfum og milli þess manns og Gísla urðu fljótlega líflegar umræður. Gísli ræddi ekki um venjuleg dægurmál á vinnutím- anum. Þá voru rædd lögreglumál og varnamál en þau voru Gísla einnig hjartfólgin. Fyrir ungan lögreglumann var það eins og besti skóli að umgang- ast Gísla. Hann gaf sér nægan tíma til að ræða við sína menn, leiðbeina þeim í starfi og ekki stóð á því að hann brýndi fyrir okkur skyldur lögreglumanna. Skyldurnar fannst honum alltaf mikilvægari en rétt- indin sem starfinu fylgdu. Gísli lét af störfum fyrir aldurs sakir þann 31. desember 1980, eftir fjörutíu ára starf hjá Lögreglunni á Akur- eyri. Eftir að Gísli lét af störfum var hann tíður gestur á lögreglu- stöðinni og áttum við eftir að eiga margar ánægjustundir saman. Í nokkur haust fórum við Gísli ásamt Þorsteini Péturssyni og Elíasi heitnum Elíassyni sýslumanni saman í fjallaferðir, og þá voru heimsóttir fjallaskálar eins og Landakot, Laugafell og Nýidalur. Þetta voru dagsferðir en fróðlegar og skemmtilegar. Gísli var heiðraður á margan hátt fyrir sín lögreglustörf. Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Ísl. sæmdi hann riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu og hann var heiðursfélagi í Lögreglufélagi Ak- ureyrar. Hann var einn af stofn- endum Félags yfirlögregluþjóna og var heiðraður af þeim. Þá var hann sæmdur þjónustuorðu Noregskon- ungs og svo mætti lengur telja. Ég þakka Gísla góða vináttu í tæpa hálfa öld. Lögreglumenn á Akur- eyri þakka góða viðkynningu og við sendum fjölskyldu Gísla samúðar- kveðjur. Ólafur Ásgeirsson. Með Gísla Ólafssyni er genginn heilsteyptur og vandaður maður. Maður kærleika og umhyggju, trú- ar og vonar. Gísli var maður hinna gömlu og góðu gilda lífsins þar sem treysta mátti orðum manna. Hann var framsýnn maður og forvitinn um allar nýjungar og sífellt að leita sér þekkingar. Flestir minnast hans sem yfir- lögregluþjónsins, sem gleymdi aldrei reisn og virðingu mannsins frammi fyrir regluverkinu. Þannig var hann mannvinur, sem hlúði að þeim er minna máttu sín og náði með sinni hlýju og gefandi persónu að laða fram kosti manna. Það var gott að fá að vera í lög- regluliðinu hans og hann var góður húsbóndi. Gísli ígrundaði málin og lét fremur bíða svars en að ana að einhverju. Hann var hugsjónamað- ur um uppbyggingu lögreglunnar á Akureyri og það veit ég fyrir víst, að stundum greiddi hann fyrir mál- um með fjármunum úr eigin vasa fremur en að verk stöðvuðust. Þeg- ar fyrsta skóflustungan að nýrri lögreglustöð við Þórunnarstræti var tekin var ekki margt um mann- inn. Við bræðurnir vorum þar ásamt tveimur leikfélögum, öðling- num Bjarna Rósantssyni bygg- ingameistara, Jóni Tómassyni gröfumanni og Gísla, sem myndaði atburðinn. Aðrir háir herrar áttu þá ekki heimangengt. En Gísli kom verkinu áfram og lögreglustöðin reis og það fyrst og síðast fyrir þrautseigju hans. Ég átti því láni að fagna að eiga Gísla og eiginkonu hans Evu og Sigríði dóttur þeirra og hennar fjölskyldu að vinum. Gísli fagnaði með minni fjölskyldu öllum áföng- um lífsins og hann lét hvatning- arorð fylgja umhyggju sinni. Það eru ekki nema nokkrar vikur síðan hann, í síma, talaði við okkur feðg- ana, svona rétt til að heyra hvernig við hefðum það. Gísli var áhugamaður um ólíka þætti mannlífsins. Hann var áhugaljósmyndari, flugáhugamað- ur, umsjónarmaður jarðskjálfta- Gísli Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.