Morgunblaðið - 15.12.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 51
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Auglýsing um deiliskipu-
lag í Skorradalshreppi,
Borgarfjarðarsýslu
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi
fyrir 37 frístundahús í landi Hálsa . Tillagan nær
til 27 hektara lands.
Tillagan er í samræmi við svæðaskipulag norð-
an Skarðsheiðar 1997-2017.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmál-
um liggur frammi hjá oddvita á Grund, Skorra-
dal, frá 15. desember 2006 til 12. janúar 2007 á
venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 26. janúar 2007
og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds
frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Bækur til sölu
Skýrslur um landshagi á Íslandi I-5. Fréttir frá Íslandi 1871-90.
Hundabærinn, Dagur Sig. Íslenska alfræðiorðabókin 1-3. Saga
Eyrarbakka. Íslenskur söguatlas 1-3. Skútuöldin 1-5. Ættir Aust-
firðinga 1-9. ó.b. Íslandshandbókin 1-2. Fuglar í náttúru Íslands.
Fluguhnýtingabókin 1979. Blöndal Íslensk-dönsk. Ævisaga Kjar-
vals 1-2. Frank Ponzy Ísland á 18. og 19. öld. Íslensk myndlist
1-2 Bj. Th. Íslenskir sjávarhættir 1, 2, 4, 5. Mikines 1990. Biskupa-
sögur 1-2, Sögufélagið. Sturlunga 1-2 Vigfússon. Hringur
Jóhannesson. Íslensk list, 16 ísl. Þjóðsagnabók Ásgríms.
Þjóðsögur Jóns Árnasonar 1-6. Landið þitt Ísland 1-6. Grjót,
Kjarval. Stokkseyringasaga 1-2. Saga mannkyns 1-15.
Sléttuhreppur. Ættir Síðupresta. Nokkrar Árnesingaættir.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Félagslíf
I.O.O.F. 1 18712158 Jv.
EDDA 6006121519 I Jf.
Njörður 6006121519 I Jf
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Þríeykið Gunnlaugur Sævarsson /
Karl G. Karlsson / Hermann Frið-
riksson átti besta endasprettinn í
Aðaltvímenningunum og stóð uppi
sem sigurvegari að lokum og er tví-
menningsmeistarar BH 2006-2007.
Keppnin var jöfn allan tímann, sér-
staklega veittu Atli og Hafþór þeim
harða keppni.
Efstu pör:
Gunnlaugur Sævarsson -
Hermann Friðriksson/Karl G. Karlsson 64
Atli Hjartarson- Hafþór Kristjánsson 56
Friðþjófur Einarss. - Guðbr.Sigurbergss. 36
Erla Sigurjónsd. - Sigfús Þórðarson 6
Guðlaugur Sveinss. - Halldór Þorvaldss. 4
Besta kvöldskorið fengu:
Gunnl. Sævarsson - Karl G. Karlsson 29
Atli Hjartarson - Hafþór Kristjánsson 17
Erla Sigurjónsd.- Sigfús Þórðarson 11
Friðþjófur Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. 4
Næsta mánudag er hefðbundið
jólasprell en síðan verður gert hlé á
vetrardagskránni fram yfir áramót.
Fimmtudaginn 28. des. er áætlað að
halda jólamót BH og Sparisjóðs
Hafnarfjarðar. Nánar síðar.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 12. des. var spilað á
14 borðum.
Meðalskor var 312. Úrslit urðu
þessi í N/S:
Ólafur Ingvars. – Sigurberg Elentínus. 400
Friðrik Hermannss. – Eyjólfur Ólafss. 365
Magnús Halldórss. – Magnús Oddsson 357
Pétur Antonss. – Jóhann Benediktsson 348
A/V:
Nanna Eiríksdóttir – Kristín Jóhannsd. 350
Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 346
Kristján Björnsson – Júlíana Sigurðard. 346
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 338
Þá er lokið stigakeppninni á
þriðjudögum. Efstir urðu:
Ragnar Björnsson 128
Ólafur Ingvarsson 110
Sigurberg Elentínusson 110
Björn Björnsson 109
Oliver Kristófersson 108
Verðlaun fyrir stigakeppnina
verða afhent þriðjudaginn 19. des.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
FRÉTTIR
HUGARAFL fær jólakortastyrk
Opinna kerfa í ár, en Opin kerfi
hafa árlega styrkt gott málefni í
stað þess að senda jólakort til við-
skiptavina. Hugarafl var stofnað í
júní 2003 af fólki í bata, sem átt hef-
ur við geðræna erfiðleika að stríða,
og iðjuþjálfum með víðtæka reynslu
af geðheilbrigðismálum.
Markmið Hugarafls er meðal
annars að vinna að verkefnum sem
geta bætt geðheilbrigðisþjónustu,
skapað hlutverk og unnið gegn for-
dómum með sýnileika og stuðlað að
atvinnusköpun með því að þróa
þjónustu út frá reynslu, segir í
fréttatilkynningu. Nánari upplýs-
ingar um starfsemina má finna á
heimasíðu félagsins www.hug-
arafl.is.
Styrkurinn er HP Compac-far-
tölva og HP Photosmart-prentari.
Á myndinni eru, frá vinstri, Gylfi
Árnason, forstjóri Opinna kerfa, og
Auður Axelsdóttir og Trausti Rún-
ar Traustason frá Hugarafli.
Hugarafl fær jólakorta-
styrk Opinna kerfa
Jólakortastyrkur Opin kerfi styrkja málefni Hugarafls nú í ár.
FERÐAFÉLAG Íslands og Spari-
sjóður Reykjavíkur standa fyrir sól-
stöðugöngu á Esjuna sunnudaginn
17. desember.
Mæting verður við bílastæðið við
Mógilsá á sunnudaginn kl. 10.15.
Þar er sameinast í bíla og ekið að
Esjubergi þaðan sem gengið er á
Kerhólakamb og þaðan yfir í Þver-
fellshorn og gengið niður hefð-
bundna leið að bílastæði og bílar
sóttir. Gera má ráð fyrir að ferðin
taki 4–5 klst. Þátttakendur þurfa að
vera vel búnir, í góðum hlífðarfatn-
aði og góðum gönguskóm og hafa
með sér ísbrodda og ísexi.
Að venju í sólstöðugöngu taka
allir með sér sýnishorn af jóla-
bakkelsinu og gefa að smakka,
ásamt því að hafa með sér nesti og
heitt kakó.
Fararstjóri í ferðinni er Þórhall-
ur Ólafsson. Þátttaka er ókeypis –
allir velkomnir.
Sólstöðuganga á Esjuna
SAMTÖK um betri byggð hafa sent
frá sér ályktun þar sem segir:
„Samtök um betri byggð skora
enn og aftur á sveitarstjórnir á höf-
uðborgarsvæðinu að þær beiti sér
með afgerandi hætti fyrir því að
þjóðvegir í grennd við borgina verði
fullgerðir sem fyrst og eigi síðar en
fyrir árslok 2012 skv. tillögu sam-
takanna, sem kynnt var 23. október
2006.
Samtökin telja miður að í kjölfar
hörmulegra umferðarslysa nýverið
sé komin upp samkeppni milli lands-
hluta um aðgerðir, annars vegar á
Suðurlandsvegi og hins vegar á
Vesturlandsvegi.
Umtalsverður hluti þeirra þjóð-
vegakafla, sem um er rætt, liggur
innan höfuðborgarsvæðisins og
meiri hluti vegfarenda kemur það-
an. Samtök um betri byggð undrast
því ærandi þögn sveitarstjórnanna
um þessar mikilvægu stofnæðar,
þögn um svo mikilsverða hagsmuni
íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Sam-
tökin telja að það sé einmitt hlutverk
höfuðborgarbúa að hafa forgöngu
um að öllum þjóðvegum að og frá
borginni sé komið í mannsæmandi
horf eins fljótt og kostur er með
samræmdum og skilvirkum hætti.“
Þjóðvegir við
borgina verði
fullgerðir
ÁRÉTTAÐ skal að vínvara sú sem
seld er í Hagkaupum og nefnd var
sósa og kryddblanda með 10–40%
áfengisstyrkleika í frétt Morg-
unblaðsins í gær, heitir réttu nafni
vín til matargerðar og er kryddað
að því marki að varan er ódrykkjar-
hæf.
Árétting
SÖNGKONURNAR og systurnar
Guðrún Árný og Soffía Karlsdætur
koma fram í Galleríi Thors, Linnet-
stíg 2, Hafnarfirði á laugardaginn,
16. desember, klukkan 13–17.
Þær hafa báðar nýverið gefið út
geisladiska og munu flytja tónlist af
þeim. Diskur Soffíu heitir Wild hors-
es en diskur Guðrúnar Árnýjar Eilíft
augnablik og munu systurnar árita
diskana í galleríinu.
Systrasöngur
í Galleríi Thors
Ljósmynd/Hilmir Heiðar Lundevik
Systur Guðrún Árný og Soffía.
JÓLAPAKKAMÓT Taflfélagsins
Hellis verður haldið í tíunda sinn
sunnudaginn 17. desember nk. í
Ráðhúsi Reykjavíkur og hefst
klukkan 13.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, setur
mótið og leikur fyrsta leik þess.
Mótið hefur áunnið sér fastan sess
í skáklífi landsmanna en margir
ungir og efnilegir skákmenn og
skákkonur hafa stigið sín fyrstu
skákskref á Jólapakkamótinu.
Tefldar verða 5 umferðir með 10
mínútna umhugsunartíma á mann.
Jólapakkar í verðlaun fyrir 3 efstu
sætin í hverjum flokki. Auk þess
verður happdrætti um 3 jólapakka í
hverjum aldursflokki fyrir sig. Í
lokin verður svo risahappdrætti þar
sem öflugar skáktölvur verða með-
al vinninga.
Upplýsingar um skráningu má
nálgast á www.hellir.com.
Telft Frá jólapakkamóti Hellis 2005 en það verður nú haldið í tíunda sinn.
Jólapakkamót Hellis
HUGURAX styrkir árlega góð-
gerðar- eða líknarmálefni með fjár-
styrk í stað þess að senda jólakort
til viðskiptavina fyrirtækisins. Í ár
var ákveðið að styrkurinn, að upp-
hæð 300.000 kr,. skyldi renna til
Hetjanna, félags langveikra barna
á Norðurlandi. Hetjurnar eru aðild-
arfélag Umhyggju, sem eru regn-
hlífarsamtök fyrir foreldrafélög
langveikra barna á Íslandi.
Það er von starfsmanna Hugar-
Ax að þessi styrkur muni efla
starfsemi félagsins og styrkja það í
að sinna sínu mikilvæga hlutverki í
framtíðinni, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar styrkurinn var afhentur í ár-
legu jólaboði HugarAx í starfsstöð
fyrirtækisins á Akureyri. Á henni
sjást Helga Árnadóttir, markaðs-
stjóri HugarAx, Páll Freysteinsson,
framkvæmdastjóri HugarAx og
Sveina Páls, formaður Hetjanna.
HugurAx styrkir Hetjurnar
STYRKTARFÉLAGI krabbameins-
sjúkra barna var nýlega færður
styrkur að upphæð kr. 600.000 frá
Tax Free á Íslandi.
Fyrirtækið Tax Free sér um end-
urgreiðslu á virðisaukaskatti til ferða-
manna sem hafa keypt varning á Ís-
landi. Í mörgum tilfellum ákveður
fólk að taka ekki við endurgreiðslunni
og hefur því þá verið gefinn kostur á
að láta féð renna til SKB. Frá árinu
2002 hafa safnast 500.000 krónur með
þessum hætti en 5 starfsmenn Tax
Free ákváðu að bæta við þá upphæð
og greiddu 20.000 krónur hver, segir í
fréttatilkynningu.
Það var Ingi Þór Arnarson fram-
kvæmdastjóri Tax Free sem afhenti
styrkinn ásamt Guðmundi Friðrik
Sigurðssyni.
Styrkur afhentur SKB