Morgunblaðið - 15.12.2006, Page 61

Morgunblaðið - 15.12.2006, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 61 dægradvöl Staðan kom upp á brasilíska meist- aramótinu.Andre Diamant (2396) hafði hvítt gegn Alexander Fier (2490). 43. Dxf7+! Kxf7 svartur hefði verið með tapað eftir 43... Kh8 44. Dc7 Bc6 45. h5 og 43... Kh6 44. Df4+ Kg6 45. Dg3+. 44. Rd6+ Kg6 45. Rxc4 Kh5 46. a5 Bb7 47. Kb3 Kxh4 48. Kxb4 Kg5 49. Kc5 Kf4 50. Kb6 Bd5 51. Rd6 e5 52. c4 e4 53. cxd5 e3 54. a6 e2 55. a7 e1=D 56. a8=D Db4+ 57. Rb5 og svartur gafst upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Giovanni Vescovi (2592) 8½ v. af 11 mögulegum. 2. Rafael Leitao (2601) 8 v. 3. Gilberto Milos (2563) 7½ v. 4. Herman Van Riemsdijk (2381) 7 v. 5. Felip El Deps (2325) 6½ v. 6.-7. Alexander Fier (2490) og James De Toledo (2376) 5½ v. 8.-9. Eduardo Limp (2416) og Diego Di Berardino (2370) 4½ v. 10. Andre Diamant (2396) 3½ v. 11. Jefferson Pelikan (2385) 3 v. 12. Jeffer- son Oliveira (2183) 2 v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Spuni í bakhönd. Norður ♠ÁD4 ♥ÁK4 ♦Á654 ♣D65 Vestur Austur ♠2 ♠K1083 ♥DG1063 ♥985 ♦D103 ♦G982 ♣10872 ♣93 Suður ♠G9765 ♥72 ♦K7 ♣ÁKG4 Suður spilar 6♠ Þessari slemmu er ætlað að vinnast: hvergi er svikkur nema í trompinu, en það skilar sér sjálfkrafa upp á einn taps- lag – sagnhafi svínar fyrst drottningunni og legan sannast þegar hann tekur ásinn næst. En bíðum við. Segjum að spaða- svíningin „heppnist“ og austur láti ÁTT- UNA undir drottninguna. Slíkur bak- handarblús gæti slegið sagnhafa út af laginu, einkum ef áttan fellur í léttri sveiflu. Grunlaus mun sagnhafi líta svo á að áttan sé blönk eða frá 108 tvíspili og fara heim á lauf til að spila spaðagosa. Þannig hyggst hann tryggja sig gagn- vart K10xx í vestur og reyna um leið við yfirslag ef austur á 108 tvíspil. Vissulega ógætilegt, því nóg er að spila smáu trompi í gegnum hugsanlegan fjórlit í vestur, en græðgin og trúgirnin verða mörgum að falli. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Krossgáta Lárétt | 1 flík, 4 grasflöt, 7 vesöldin, 8 hyggur, 9 skepna, 11 bráðum, 13 spotta, 14 sé í vafa, 15 þorpara, 17 sáru, 20 borðandi, 22 róin, 23 svæfla, 24 málmurinn, 25 hæsi. Lóðrétt | 1 svengdar, 2 land í Asíu, 3 brún, 4 vex, 5 bátagálginn, 6 veiða, 10 stundum þessi, stundum hinn, 12 veiðarfæri, 13 borða, 15 gagnslítil, 16 miskunnin, 18 sárum, 19 úrana, 20 atferlið, 21 keyrir. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 mergjaður, 8 rófur, 9 aldin, 10 ill, 11 sárar, 13 linna, 15 krans, 18 andar, 21 vin, 22 latti, 23 getan, 24 barningur. Lóðrétt: 2 elfur, 3 gerir, 4 aðall, 5 undin, 6 hrós, 7 enda, 12 ann, 14 inn, 15 köld, 16 aftra, 17 svinn, 18 angan, 19 duttu, 20 rann. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1 Stefán Jón Hafstein hefur fengiðleyfi frá borgarstjórn til að fara til starfa erlendis. Hvert er hann að fara? 2 Dorrit Moussaieff hefur verið út-nefnd kona ársins á Íslandi. Hver útnefnir? 3 Trausti Hafliðason hefur veriðráðinn ritstjóri Blaðsins. Hvaðan kemur hann? 4 Hver er helst talinn geta ógnaðforsetadraumum Hillary Clinton innan Demókrataflokksins? Svör við spurningum gærdagsins: 1. West Ham á í viðræðum við Alan Cur- bishley um að verða næsti knatt- spyrnustjóri félagsins. Hvaða liði stjórnaði hann áður? Svar: Charlton. 2. Kvikmyndin Börn er eftirsótt á kvikmyndahátíðir víða um heim. Hver leikstýrði myndinni? Svar: Ragnar Bragason. 3. Magnús Kristinsson og Kristinn Björnsson hafa fært eignir sín- ar í FL Group inn í Gnúp fjárfestingarfélag. Hver stjórnar félaginu? Svar: Þórður Már Jóhannesson. 4. Nýr rektor hefur verið ráðinn að Háskólanum á Bifröst. Hver er hann? Svar: Dr. Ágúst Einarsson. Spurt er… ritstjorn@mbl.is    GEISLADISKUR Halla Reynis, Fjögurra manna far“ vekur upp hjá mér blendnar tilfinn- ingar. Hér er nefnilega á ferðinni þjóðlagapopp- tónlist sem fer troðnar slóðir og er nokkuð vel samin, en einnig er hér um að ræða frekar ófrumlegan geisladisk sem er full-fyrirsjáan- legur á köflum. Það fer allt eftir því hvernig horft er á diskinn hvort hann telst vera góð vísa sem er ekki of oft kveðin eða klisja. Það sem er áberandi vel gert á disknum er boðskapur sumra textanna, og í lögum eins og „Sveitin mín heitir Breiðholt“, „Hér gerist aldr- ei neitt“ og „Gæðakapphlaupskynslóðin“ er Halli að vekja máls á græðgi og efnishyggju landans, sem svo sannarlega eiga alla athygli skilda. Hins vegar eru rímorð oft á þann veg að það kemur alls ekkert á óvart, og nokkurn veg- inn hægt að giska á hvernig textarnir þróast, jafnvel í fyrsta skipti sem hlustað er. Í „Gæða- kapphlaupskynslóðinni“ hefði Halli líka mátt sleppa því að nota línuna „Þú vilt ekki vakna“ endurtekið í viðlögum, en þá verður tenging hans við Bubba Morthens það raunveruleg að maður kemst ekki hjá að bera þá saman. Það er að öllum líkindum mjög erfitt að vera karlkyns trúbador á Íslandi í dag, öðruvísi en að vera einhvern tímann líkt við Bubba Morthens. Svo er það að líkja trúbadorum við Bubba í sjálfu sér stærsta klisjan af öllum, en samt er varla hægt að sleppa við það í þessu tilviki. Halli Reynis semur fín lög, ágætis texta, og hefur prýðilega rödd. Hann mætti hins vegar fara í saumana á textunum til að skerpa þá betur og mynda sér sinn eigin stíl, og skoða raddbeitingu sína nánar svo hann hljómi ögn meira eins og Halli og minna eins og Bubbi. Í bestu lögum disksins skín Halli Reynis í gegn með góðar vís- ur. Góðar vísur og klisjur TÓNLIST Geisladiskur Geisladiskur Halla Reynis, sem ber heitið Fjögurra manna far. Ellefu lög, heildartími 43.09 mínútur. Lög og textar: Halli Reynis, nema „Litla systir“ og „Fyrir fullt og allt“, lög: Halli Reynis/Örn Hjálmarsson, textar: Halli Reynis. Halli Reynis: Söngur, gítar, munnharpa, mandólín, raddir. Jón Skuggi: Kontra- bassi, raddir. Örn Hjálmarsson: Gítar, raddir. Erik Qvick: Trommur, ásláttur. Íris Guðbjartsdóttir: Söng- ur í „Draumalandið mitt“. Matthías Stefánsson: Fiðla. Brynjar Björnsson: Rödd í „Við mínar sálar- strendur“. Tekið upp í Stúdíó Ryki í ágúst og sept- ember 2006. Upptaka og hljóðblöndun: Albert Ás- valdsson. Mastering: Valgeir Sigurðsson, Greenhouse Studios. Útsetningar: Halli, Jón, Örn og Erik. Hönnun: Jóna Karen Wedholm. Ljósmyndir: Ein- ar Óli Einarsson. Músik gefur út 2006. Halli Reynis – Fjögurra manna far  Ragnheiður Eiríksdóttir FRIÐRIK Karlsson er margreyndur hljóð- færaleikari og tónsmiður og hefur gífurlega reynslu í að búa til hugleiðslutónlist. Sú tón- list hefur ákveðna sérstöðu, því þar er mark- miðið ekki í sjálfu sér að gera grípandi eða eftirminnilega tónlist, heldur í raun og veru þveröfugt: Að gera tónlist þar sem fólk slak- ar það vel á við að hlusta að það gleymir sér fullkomlega og jafnvel blundar. Móðir og barn er tvöfaldur geisladiskur, þar sem fyrri diskurinn heitir Móðir og inni- heldur þrjú ríflega tuttugu mínútna verk sem eru eingöngu spiluð. Síðari diskurinn heitir Barn og þar eru tíu barnalög sungin af Sesselju Magnúsdóttur, en undirspil og út- setningar eru í höndum Friðriks. Afskaplega mikill munur er á þessum tveimur diskum og verð ég að telja að betur hefði farið ef diskarnir hefðu komið út hvor í sínu lagi. Fyrri disk- urinn, Móðir, er nefni- lega hinn prýðilegasti og mjúkir tónarnir virka sem hið besta sálarfóður og maður finnur vöðvabólguna hreinlega leka úr herðunum. Síðari diskurinn er alls ekki að gera sig og tel ég rödd Sesselju spila þar inn í. Hún syngur á ljúfu og áreynslulausu nótunum en verður fyrir vikið svo ofboðslega væmin að það er eins og að drekka kaffibolla með tutt- ugu sykurmolum í. Maður nær ekki af sér sykurgrettunni og slakar því lítið á. Í raun og veru er þrekraun að ná að renna öllum diskinum í gegn án þess að gefast upp og í það skiptið sem ég hlustaði fyrir svefninn glaðvaknaði ég. Nú veit ég ekki hvort smábörn róast við að hlusta á diskinn, og fann ég ekkert barn til að prufa hann á, en móðir er ég og hann hefur ekki góð áhrif á mig sem móður. Ég mæli því eindregið með fyrri diskinum en get alls ekki mælt með þeim síðari. Mislagðar hendur TÓNLIST Geisladiskur Tvöfaldur geisladiskur Friðriks Karlssonar, sem ber heitið Móðir og barn. Þrjú lög og tíu lög, heildartími 60.09 mínútur og 37.12 mínútur. Allur hljóðfæra- leikur: Friðrik Karlsson. Söngur: Sesselja Magn- úsdóttir. Upptökur og hljóðblöndun: Friðrik Karlsson og Simon Strevens. Upptökur á söng: Óskar Ein- arsson. Umslag: Sýrland hönnun. Sena gefur út 2006. Friðrik Karlsson – Móðir og barn  Ragnheiður Eiríksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.