Morgunblaðið - 15.12.2006, Blaðsíða 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Hæg norðlæg
átt og dálítil snjó-
koma eða él á
Norður- og Aust-
urlandi. Annars úrkomulít-
ið og víða bjart veður. » 8
Heitast Kaldast
0°C -12°C
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
Engin jól án fleirra!
„ÉG hafði ungur áhuga á að
verða atvinnumaður í hand-
knattleik, en það fór ekkert
að ganga hjá mér í hand-
boltanum fyrr en á eldra ári
í þriðja flokki. Þá fór ég að-
eins að geta lyft mér upp og
kastað boltanum að mark-
inu utan við punktalínuna,“
segir Guðjón Valur Sigurðs-
son, leikmaður þýska hand-
knattleiksliðsins Gummers-
bach og einn fremsti hornamaður heims. Það
voru hins vegar ekki allir vongóðir um að
draumar Guðjóns myndu rætast. „Einn góður
knattspyrnuþjálfari sagði við mig þegar ég var
í yngri flokkunum að ég yrði aldrei neitt á
íþróttasviðinu, myndi aldrei ná árangri. Orð
sem þessi sátu í mér og hvöttu mig til þess að
berjast áfram við að ná settu marki,“ segir
Guðjón og að árangur í íþróttum sem og öðru í
lífinu náist ekki án þess að leggja hart að sér.
„Ég hef alltaf æft mikið, gerði það einnig á
meðan ég bjó heima … ég hef aldrei haft neitt á
móti því að æfa.“ | Íþróttir
Guðjón Valur
Sigurðsson
Stefndi ungur
í atvinnu-
mennsku
„ÞETTA verður örugglega mjög gaman og
það er mikill heiður að fá tækifæri til þess að
spila með Sinfóníuhljómsveitinni,“ segir
Hulda Jónsdóttir, 15 ára gamall fiðluleikari,
sem leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit-
inni á tvennum jólatónleikum hennar á morg-
un, laugardag. Hulda nemur fiðluleik undir
handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur kons-
ertmeistara og er í diplómanámi í Listahá-
skólanum, en hún er yngsti nemandinn sem
tekinn hefur verið inn í skólann frá upphafi.
Hún byrjaði að læra á fiðlu þegar hún var
fjögurra ára gömul.
Hún æfir sig á fiðluna fimm til sex tíma á
dag alla daga vikunnar. Hún segist aldrei
hafa fengið leið á fiðlunni. Það hafi komið
dagar er hún var lítil þegar hana langaði ekki
til að æfa sig, en hana hafi aldrei langað til að
hætta náminu. Hulda stefnir á framhaldsnám
í fiðluleik í Bandaríkjunum að loknu náminu í
Listaháskólanum.
Á tónleikunum leikur hún Polonaise brill-
ante op. 4 eftir Henryk Wieniawski, en mörg
önnur verk eru á efnisskránni.
Morgunblaðið/RAX
Bogfimi Hulda Jónsdóttir er yngsti nemandi
Listaháskólans frá upphafi.
Mikill heiður að
fá þetta tækifæri
Í DAG verður opnuð sýning í Listasafni Ís-
lands þar sem gefur að líta verk eftir franska
málara á borð við Oskar Kokoschka, André
Lhote, Malbert Marquet, Merie Laurencin,
Auguste Renoir og Louis Valtat að ógleymd-
um Henri Matisse, en þetta mun vera í fyrsta
sinn sem verk eftir Matisse eru til sýnis hér á
landi.
Sýningin er hugsuð sem forsmekkurinn af
því sem koma skal á franskri menningarhátíð
sem hefst hér á landi í lok febrúar á nýju ári.
Sýningin ber yfirskriftina Hví ekki? –
Franskt vor á Íslandi og stendur fram til 13.
maí.
Sýningarstjóri er Olivier le Bihan, sem
jafnframt er safnstjóri Fagurlistasafnsins í
Bordeaux, þaðan sem myndirnar koma.
Í samtali við Morgunblaðið sagði le Bihan
verk sýningarinnar frá áhugaverðum tíma í
myndlistinni í Frakklandi, þegar fauvismi
þróaðist úr impressjónisma.
„Fauvisminn var í stuttu máli ídealísk sýn á
upphafningu litanna,“ sagði le Bihan.
Þó ferðalög með sýningu á borð við þessa
séu viðamikil segir le Bihan gaman að kynna
franska list með þessum hætti.
Auk þess á hann sína persónulegu teng-
ingu við Ísland, en frændi hans var sá eini
sem lifði af þegar rannsóknarskipið Pour-
quoi-Pas? strandaði hér við Íslandsstrendur
árið 1936, þá 14 ára.
„Ég þekkti hann vel meðan hann var á lífi
og enn eru til í fórum fjölskyldumeðlima ljóð
á bæði frönsku og íslensku sem skipverjar
skiptust á við Íslendinga,“ upplýsir sýning-
arstjórinn le Bihan. | 20
Upphafning litanna
Sýning Ólafur Kvaran, Halldór J. Kristjánsson, Nicole Michelangeli, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Olivier le Bihan.
Morgunblaðið/Sverrir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt
MS svf., sameinað fyrirtæki
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík
og Mjólkurbús Flóamanna, til að
greiða Sigurbirni Hjaltasyni tæp-
lega 1,6 milljóna króna inneign í
séreignasjóð. Lögmaður Sigur-
björns telur að á milli fjögur og
fimm hundruð einstaklingar geti
verið í sömu sporum.
Sigurbjörn stundaði mjólk-
urbúskap á Kiðafelli í Kjós frá
1983 til 2001 og var félagsmaður í
Mjólkursamsölunni í Reykjavík.
Árið 1994 var samþykktum MS
breytt og m.a. komið á fót sér-
eignasjóði. Framlög í sjóðinn
voru færð á sérstakan reikning
hvers mjólkurframleiðanda og
átti að greiða inneignina til
mjólkurframleiðanda þegar hann
hætti framleiðslu, en hún var
annars ekki kræf. Féð skyldi þá
renna til MS að tíu árum liðnum
eftir að félagsaðild lauk.
Í mars árið 2002 var samþykkt
að breyta samþykktum fyrirtæk-
isins þannig að ef framleiðandi
hætti ætti að greiða honum að
fullu hlutdeild hans í sjóðnum,
eigi síðar en í júlí árið á eftir.
Sigurbjörn hætti framleiðslu
árið 2001 og var honum send
ávísun að fjárhæð er nam tæpum
228 þúsund krónum í júní árið
eftir sem svaraði til inneignar
hans.
Þegar MS sendi ávísunina var
ekki búið að tilkynna breyting-
arnar til samvinnufélagaskrár og
því hafi í raun eldri samþykktir
gilt, um að inneignin mætti
standa í allt að tíu ár.
Fyrir Sigurbjörn hafði það þá
þýðingu að hann átti inneign sína
í séreignasjóðnum þegar fór fram
sértækt endurmat á séreigna-
hlutum árið 2004 en við það voru
teknar um 550 milljónir kr. af
óbundnu fé og færðar á séreigna-
reikninga til hækkunar á inneign
þeirra sem eftir áttu í sjóðnum.
Fleiri bændur kunna að vera í
sömu sporum og Sigurbjörn en
félagsmönnum fækkaði úr 1.346 í
upphafi árs 2002 í 769 í lok ársins.
„Það gætu verið á bilinu 400–500
aðilar í sömu stöðu,“ segir Sig-
urbjörn Magnússon, lögmaður
Sigurbjörns, og bætir við að hann
telji þá eiga siðferðislegan rétt á
því að fá sína innstæðu bætta, en
hvert tilvik verði þó að skoða sér-
staklega.
Fleiri í sömu sporum?
MS greiðir fyrrum mjólkurframleiðanda 1,6 milljónir kr. úr séreignasjóði
Í HNOTSKURN
»Hæstiréttur sneri viðdómi héraðsdóms
Reykjavíkur frá mars sl.
»Dómurinn komst aðþeirri niðurstöðu að þar
sem MS hafði ekki tilkynnt
breytingar á samþykktum
til samvinnufélagaskrár
hefðu eldri samþykktir gilt.
»Þar af leiðandi hafðistefnandi fullan rétt á
að neita ávísun frá MS og
halda inneign sinni.