Morgunblaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.12.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2006 31 London en araleið er er tekinn í Inverness metra leið. ri leið yrði um Cantat ef streng- hafsbotni þessa, bil- andi. undur að að streng- eið en frá nda væri n að sjálf- ð útiloka neitt. Þá sagði hann að væntanlega myndi kosta um 300–400 milljónir að leggja varastreng þar um. Þó að Farice sé nýr af nálinni hef- ur verið rætt um þörf á þriðja sæ- strengnum í töluverðan tíma. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu 11. nóvember sagði Guðmundur, að jafnvel þótt varatengingu milli In- verness og London yrði komið á, væri öryggi sambandsins ekki nógu gott. „Og endanlega lausnin er ann- ar sæstrengur sem við erum að vinna að undirbúningi að og ég vona að ákvarðanir verði teknar um það á næstu mánuðum,“ bætti hann við. Um hálfu ári síðar, eða í júní 2006, skipaði samgönguráðherra starfs- hóp til að gera tillögu um hvernig mætti tryggja varasamband fjar- skipta við umheiminn og skila til- lögum um fjármögnun, eignarhald o.fl. Frá Suðurlandi til Írlands? Guðmundur var einn þeirra sem áttu sæti í starfshópi samgönguráð- herra. Hann sagði að bilunin sem varð í Cantat hlyti að styrkja menn í þeirri trú, að leggja yrði nýjan sæ- streng sem fyrst. Einkum hefði ver- ið rætt um að taka strenginn á land í Skotlandi eða Írlandi og tengingin við strenginn á Íslandi yrði einhvers staðar á Suðurlandi en af augljósum öryggissjónarmiðum kemur ekki til greina að strengurinn komi upp úr sjónum á sömu stöðum og hinir sæ- strengirnir. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins felst dýrasti kosturinn sem nefndur er í skýrslu starfs- hópsins í því að leggja sæstreng til Írlands með tengingu við Færeyjar. Þetta þykir þó um margt vera hent- ugur kostur því þá myndi streng- urinn ekki liggja um sama svæði og Farice. Einnig má gera ráð fyrir að menn sjái möguleika á því að tengj- ast sæstrengjum á vesturströnd Ír- lands sem liggja beinustu leið til Norður-Ameríku. Varasamband fyrir RHnet Eins og fram hefur komið urðu skólar og stofnanir sem tengjast Rannsókna- og háskólaneti Íslands (RHnet) netsambandslaus við um- heiminn þegar samband um Cantat 3 rofnaði á laugardagskvöld. Á sunnudagskvöld tókst að koma á bráðabirgðasambandi um báða leggi strengsins, þ.e. bæði til Am- eríku og meginlands Evrópu, en í gærmorgun rofnaði sambandið vestur um haf á nýjan leik. Að sögn Jóns Inga Einarssonar, framkvæmdastjóra RHnets, er net- samband komið í samt lag enda væri leiðin til Evrópu aðalgagna- flutningaleið fyrirtækisins. Þá stæði til að ræða við Farice hf. um að RHnet keypti varasamband um Farice til bráðabirgða. ryggt ng Morgunblaðið/Steinunn otkun nokkrum mánuðum seinna.   ! ÞEGAR Tony Blair, for-sætisráðherra Bretlands,kom til Gaza í fyrstuheimsókn sinni til svæð- isins árið 1998 var honum tekið með kostum og kynjum. Þegar hann hitti Mahmoud Abbas, forseta Pal- estínumanna í Ramallah í gær, eftir för sína til Íraks, voru væntingarn- ar öllu hófstilltari, enda mikið vatn runnið til sjávar á þessum átta ár- um. Sumt hefur þó ekki breyst. Blair er enn í hlutverki málamiðlarans og forsætisráðherra Ísraels og forseti Palestínu hafa neitað að ræðast við, þangað til nú. Talið er að skörung- urinn Blair eigi í mesta lagi átta mánuði eftir í embætti, hann víki úr stóli leiðtoga Verkamannaflokksins fyrir Gordon Brown fjármálaráð- herra í maí eða júlí á næsta ári. Þangað til er honum, líkt og Bill Clinton Bandaríkjaforseta var á síðasta ári sínu í embætti, mjög í mun að beita sér fyrir lausn á deilu Palestínumanna og Ísraela, sem hann telur lykilinn að því að koma á stöðugleika og friði í Mið-Austur- löndum – og Írak. Kom þetta við- horf Blairs skýrt fram í nýlegri ræðu hans um mikilvægi þess að taka upp „samræmda stefnu“ Vest- urlanda í málefnum heimshlutans. Skömmu eftir að Camp David- friðarviðræðurnar fóru út um þúfur í júlímánuði árið 2000 hófu herskáir Palestínumenn sína aðra vopnuðu uppreisn, Intifada. sem ekki sér fyrir endann á. Síðan hefur Hamas vaxið ásmegin á Gaza og Fatah-lið- ar eflst á Vesturbakkanum. Verkefnið sem Blair stendur frammi fyrir er því brýnt og ein- staklega vandasamt. Efnahagur palestínsku stjórnarinnar er væg- ast sagt í molum, atvinnuleysið 39 prósent á Gaza-svæðinu og sama hlutfall íbúa hefur ekki fengið greidd laun mánuðum saman vegna viðskiptaþvingana Ísraels og Vest- urveldanna gegn Hamas-stjórninni, sem neitar að viðurkenna Ísrael, eftir óvæntan sigur hennar í kosn- ingunum í janúar. Verstu átökin í áratug Spennan á Gaza hefur farið stig- vaxandi eftir að þrír synir hátt setts Fatah-liða, Baha Balousheh, voru skotnir til bana á mánudag í liðinni viku. Þannig var róstusamt á Gaza um helgina og sonur Haniyas á meðal þeirra sem særðust, þegar skotið var á bílalest forsætisráð- herrans, þar sem hann var á heim- leið með fullar hendur fjár frá vel- unnurum Hamas-stjórnarinnar í nokkrum arabaríkjum. Þá skutu vígamenn á bílalest Mahmouds Zahars, utanríkisráð- herra Hamas, og sprengjum var varpað á skrifstofu Abbas. Komið var á vopnahléi á milli fylkinganna á sunnudag en skærur héldu áfram fram eftir nóttu. Það var þó brothætt og í gær greindi AP-fréttastofan frá því, að grímu- klæddir byssumenn hefðu rænt bróður þingmanns Fatah á Gaza. Vonir um að friðarferlið í Palest- ínu kæmist í gang að nýju glæddust í nóvember, þegar Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, lýsti yfir vopnahléi á Gaza og vilja til að hefja viðræður að nýju, eftir að alþjóða- samfélagið hafði fordæmt árás Ísr- aelshers á íbúðarhús í bænum Beit Hanoun á Gaza. Síðan hefur brothætt eining Pal- estínumanna, sem þá ræddu um myndun þjóðstjórnar, rofnað og stuðningsmenn Hamas brugðist ókvæða við hugmyndum Abbas um að efnt verði til þingkosninga. Olmert stendur líka veikum fót- um eftir átök Ísraelshers við Hiz- bollah-hreyfinguna í Líbanon í sum- ar, þar sem Nassan Hasrallah, leiðtogi Hizbollah, lýsti yfir „sigri“ eftir mikla eyðileggingu í Beirút. Nýleg yfirlýsing Olmerts um kjarn- orkuvopnaeign Ísraela bætir ekki úr skák, nú þegar kröfur um afsögn hans verða sífellt háværari. „Mistökin hafa verið leiðrétt“ Olmert komst sem kunnugt er til valda eftir að Ariel Sharon, stofn- andi Kadima, fékk heilablóðfall í janúar. Eitt af síðustu embættis- verkum Sharons var einmitt að gefa fyrirskipun um einhliða brottflutn- ing Ísraela frá Gaza-svæðinu sem lið í áætlun um endanleg landamæri Ísraels fyrir árið 2010. Nú er sú áætlun farinn út í veður og vind og í gær köstuðu palestínsk börn steinum í átt að hermönnum Ísraelshers sem fylgdu ísraelskum fjölskyldum sem hyggjast setjast aftur að á Vesturbakkanum innan tíðar. „Mistökin við einhliða brott- flutninginn árið 2005 hafa verið leiðrétt,“ sagði Limor Har Melehk- Son, talskona ísraelska hópsins í samtali við AFP-fréttastofuna í gær. Á sama tíma hafa átökin á milli Fatah og Hamas um helgina – þau verstu í áratug – aukið á áhyggjur Ísraela, en eins og dagblaðið Je- rusalem Post hafði eftir Amir Pe- retz, hinum óvinsæla varnarmála- ráðherra Ísraels, á sunnudag, þá hafa herskáir Palestínumenn áður sameinast í árásum gegn Ísrael, eft- ir að hafa borist á banaspjót. Abbas vill hitta Olmert Verkefni Blairs sýnist því ærið, hann tók undir ósk Abbas um kosn- ingar innan þriggja mánaða í heim- sókn sinni til Ramallah í gær, áður en hann hélt til Jerúsalem til við- ræðna við ísraelska ráðamenn. „Ég mun ekki unna mér hvíldar eitt andartak,“ sagði Blair um við- leitni sína til að koma á friði. „Það er mikilvægt fyrir okkur [...] að vinna með þeim sem vilja tveggja-ríkja lausn – ísraelskt ríki og ríki Palestínumanna sem byggju hlið við hlið í friði.“ Við sama tilefni sagðist Abbas tilbúinn að hitta Olmert og eiga „samningaviðræður“ við Ísraela. En Olmert stendur eins og fyrr segir afar höllum fæti og er með öllu óvíst hvort stjórn hans, sem tollir saman vegna samstarfssamn- ings hans við smáflokkinn Yisrael Beitenu, undir forystu hins afar umdeilda Avigdors Liebermans, hafi nauðsynlegan slagkraft og um- boð til að þoka málum í átt til friðar. Yfirlýsingar Liebermans að und- anförnu hafa ekki borið þess merki að þar fari maður í sáttahug. Litlar væntingar í Ísrael Hugmyndir Abbas um kosning- ar, eftir að margra mánaða viðræð- ur um sameiginlega þjóðstjórn Fatah og Hamas runnu út í sand- inn, hafa gert meira til að sundra en sameina. Zahar sakaði forsetann um að gera tilraun til „valdaráns“, aðrir Hamas-liðar gengu lengra og sögðu hugmyndirnar jafngilda yfir- lýsingu um borgarastríð. Þá eru ýmis ljón í veginum fyrir því að forsetinn geti efnt til kosn- inga, deilt er um hvort stjórnar- skráin veiti honum rétt til slíkrar ákvörðunar og í gær lýstu palest- ínskir embættismenn yfir, að þeir þyrftu minnst 110 daga til að und- irbúa þingkosningar. Á hinn bóginn bendir ný könnun til, að yfir 60 prósent Palestínu- manna styðji hugmyndir forsetans um kosningar. Samkvæmt sömu könnun ynni Fatah þingmeirihluta ef gengið yrði að kjörborðinu í dag. Ahmed Yusuf, ráðgjafi Ismails Haniya, forsætisráðherra Hamas, telur þó, að ferskir vindar og nýtt frumkvæði kunni að fylgja Blair, sem telur vopnahléið á Gaza skapa svigrúm til viðræðna sem ekki megi láta úr greipum ganga: Næstu vik- ur muni skera úr um hvort hægt verði að koma á hófsamari bráða- birgðastjórn, sem væri samvinnu- fúsari við Vesturveldin en leiðtogar Hamas. Tónninn í ísraelskum fjölmiðlum um helgina var annar og sagði í fréttaskýringu dagblaðsins Haa- retz í gær, að stjórnmálaskýrendur hefðu bent á, að heimsókn Blairs sætti engum sérstökum tíðindum. Fylgi fylkinganna minnkar Ólgan og bræðravígin á undan- förnum vikum og mánuðum hafa dregið úr stuðningi við fylkingarnar tvær í Palestínu. Þannig mældist stuðningur við Hamas í könnun sem birt var á sunnudag 33 prósent og hafði þá minnkað um níu prósent frá því september. Samkvæmt sömu könnun dró mjög úr stuðningi við Fatah á sama tímabili, 40 pró- sent lýsa yfir stuðningi við hreyf- inguna samanborið við 55 prósent í september. Líkt og Hamas-stjórnin hefur Abbas ekki verið lengi í embætti. Hann var kjörinn forseti í jan- úarmánuði 2005, eftir að Yasser Arafat, leiðtogi Frelsishreyfingar Palestínu, PLO, féll frá og þykir andstaða Farouk Qaddoumi, eins helsta leiðtoga Fatah, við að efnt verði til kosninga sýna, að forsetinn þurfi einnig að ná fram sáttum í eig- in herbúðum. Stjórnmálaskýrendur eru sam- mála um að hvorug fylkingin vilji borgarastríð. „Enginn hefur áhuga á borgarastríði og enginn býr sig undir það, en hlutirnir gætu versn- að og þessar fylkingar misst stjórn- ina, og þá höfum við stríð án þess að vera undir það búin,“ sagði Said Zeidani, stjórnmálaskýrandi, sem er búsettur á Vesturbakkanum, í viðtali við blaðamann Christian Science Monitor. baldura@mbl.is Efi um að heimsókn Blairs ríði baggamuninn AP Leiðtogafundur Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ganga framhjá heiðursverði fyrir viðræður sínar um leiðir til að koma á friði í Ramallah á Vesturbakkanum í gær. AP Í vígahug Herskáir Palestínumenn í Fatah-hreyfingunni sýna stuðning sinn við Abbas í Jebaliya-flóttamannabúðunum á Gaza á sunnudag. Þótt tilboð Mahmouds Abbas um viðræður við Ísraela hafi glætt vonir um frið eru efasemda- raddirnar eftir sem áður háværar. Baldur Arn- arson rýndi í stöðuna sem er mjög eldfim. Í HNOTSKURN »För Blairs til Palestínu ertalin meðal síðustu mik- ilvægu erlendra heimsókna hans áður en hann lætur af embætti á næsta ári. » Ísraelski hermaðurinnGilad Shalit er enn í haldi herskárra Palestínumanna en ránið á honum leiddi til harðra átaka á Gaza í sumar.. »Haniya forsætisráðherrahefur sagt, að Hamas muni sniðganga kosning- arnar sem Abbas vill efna til. ímafyr- tapi þátt í itið er til af flutn- kun í dag rtækin ningu nýs . fyr- mhengi ð marg- e með því dastöðv- úndu frá 0 gígabit ki annað eta sinnt ningum í ja sæ- ð agnrýnt æmda- r á, að rspegla illjónir ir af lán- g?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.