Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 47
að Soffía sé komin á grafarbakkann.
Soffía I hlaut virðulega greftrun,
undirvagninn og hásingarnar voru
nýttar í heyvagn en hin heimasmíð-
aða yfirbygging var heygð og las
presturinn í Reykholti yfir henni.
„Já, þar á hún sinn grafreit,“ sagði
Guðni og telur hann að nú þurfi að
taka ákvörðun um hvort Soffía II
eigi að hljóta sömu örlög. Soffíu þrjú
er varla minnst á enda fremur ný-
tískulegur bíll sem er enn í notkun í
Skagafirði og ekki víst að hún beri
enn Soffíunafnið.
Sveitastúlkan Soffía
Það eru fimm ár síðan þau Guðni
og Soffía II sáust síðast og það var
ekki laust við að honum brygði í
brún að sjá ástandið á henni í dag.
Guðni stansar við er hann sér bílinn
fyrst, hann kastar á hana kveðju og
gengur síðan rakleiðis að dyrunum
og ýtir þeim opnum. Bíllinn er furðu
heillegur, það er ryð í gluggakörm-
um og ein rúðan er dottin út en
kramið virðist við fyrstu sýn vera
heillegt. Stýrið er að sjálfsögðu
hægra megin í bílnum enda var hún
smíðuð löngu áður en skipt var yfir í
hægri umferð á Íslandi eins og sést á
skrautlega munstruðu gólfteppinu.
Við hlið Soffíu á geymslusvæðinu í
Straumsvík stendur annar bíll frá
svipuðum tíma, sá er nefndur eftir
skapara sínum Bjarna í Túni og er
sýnu verr farinn enda er hann að
miklu leyti smíðaður úr timbri. Eftir
að við Guðni höfðum skoðað ástandið
á Soffíu, gengið hringinn í kringum
hana, klappað henni og litið inn í
hana spurði ég Guðna hvaða örlög
hann kysi helst fyrir hana Soffíu
sína.
– Ætti ekki einhver laghentur að
gera hana upp og hafa síðan til sýnis
á Árbæjarsafni sem dæmi um merk-
an kafla í samgöngusögu landsins?
„Hún ætti frekar heima uppi í
sveit,“ sagði Guðni, „hún er úr sveit
og þar á hún heima,“ bætti hann við.
Ekki öll von úti enn
Guðni hefur verið í sambandi við
Sverri Magnússon sem sér um Sam-
göngusafnið á Skógum og hugsan-
legt er að hún fái þar inni er fram
líða stundir. Safnið hefur til þessa
hvorki haft bolmagn til að gera
Soffíu upp né að hýsa hana en verið
er að athuga hvort það sé hægt að
skjóta yfir hana skjólshúsi.
„Það getur verið að það skapist
möguleiki á því, en það hefur ekki
verið hægt hingað til. Það fylgir því
mikil ábyrgð að taka við svona göml-
um gripum,“ sagði Sverrir í samtali
við Morgunblaðið. Samgöngusafnið
á Skógum er yfirfullt sem stendur
og það hefur ekki fjármagn til að
taka að sér nýja gripi. Sverrir sagði
að safnið þyrfti að koma sér upp
góðri skemmu til að geta hýst menn-
ingarverðmæti á borð við Soffíu og
Bjarna í Túni, landrými undir slíka
geymslu er til staðar en ekki fjár-
magn til byggingar og reksturs
skemmunnar. Safnið er með nokkra
óuppgerða merkisbíla í leigu-
geymslum og hefur ekki bolmagn til
að bæta við sig fleiri slíkum gripum
sem stendur. Sverrir sagði að fyrir
utan kostnaðinn þá væri leigu-
húsnæði ávallt ótryggur nætur-
staður og því hæpið að taka að sér
gripi sem safnið gæti síðan lent á
hrakhólum með.
Það er ljóst að það þyrfti að leggja
mikla vinnu í að gera hana Soffíu
upp og hið svokallaða forsetabílsmál
hefur opnað augu fólks fyrir þeim
kostnaði sem fylgir því að gera upp
svo gamla bíla frá grunni en Sverrir
á Samgöngusafninu sagði að forseta-
bíllinn hefði verið sérstaklega dýr og
að það þyrfti ekki að kosta svo mikið
að gera upp ódýrari bílategundir.
Einnig hefur verið viðruð sú hug-
mynd að nú losni rúmgott húsnæði á
svæði varnarliðsins í Keflavík þar
sem hægt væri að hýsa og jafnvel
gera Soffíu upp.
Við Guðni Soffíusmiður kveðjum
hinn sögufræga fjallatrukk í bili og
þótt hann segi það ekki í svo mörg-
um orðum er ljóst að honum þykir
miður að framtíð hennar Soffíu hans
skuli vera svona óljós.
Tryggur fararskjóti Soffía fór það sem hún var beðin um .
Fríður farkostur Soffía þótti skara framúr í fríðleik með rúnnaðar
og ávalar línur sem veita henni sígilt yfirbragð.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Útikerti eru oft staðsett
þannig að hætta er á að
yngsta kynslóðin rekist í
þau og að yfirhafnir
fullorðinna, sérstaklega
kápur og frakkar
fullorðinna sláist í loga
þeirra.
Munið að
slökkva á
kertunum