Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 67
sporgöngumenn hafi beint og óbeint
sótt áhrif til hennar allt frá snill-
ingnum Hieronymus Bosch (1450–
1516) til samtímans.
Innan ramma hinnar fjölþættuerfðavenju miðalda er Ci-mabue talinn hafa búið yfir yf-irgripsmestu þekkingu sam-
tíðarmanna sinna, og í myndverkum
hans renna saman svo margir
straumar að ekki er mögulegt að
greina nein ein ríkjandi stílmörk.
Þannig var málarinn nátengdur hin-
um býzantíska tjáhætti en í verkum
hans má einnig greina áhrif frá mál-
aranum Duccio de Buoninsegna
(virkur 1278–1318), sem hélt stórt
verkstæði í Siena og var samtíð-
armaður Giottos. Buoninsegna var
upphafsmaður sérstaks gotnesks
skóla í Siena og var líkast til undir
frönskum áhrifum.
Auk þess má rekja slóðina til róm-
verskra málara sem studdust við síð-
rómanska antík, svo sem málarans
Pietros Cavellini og mótunarlista-
mannsins Nicolas Pisano. Cimabue
var þannig af gerð þeirra myndlist-
armanna sem soga til sín áhrif úr öll-
um áttum, samlaga um leið stílein-
kennum sínum.
Falslaus og einlægur trúarhiti var
helsta kennimark miðaldamálaranna,
streymir úr verkum þeirra og er lík-
astur svölum andvara á tímum auð-
hyggju, umbúða og glitfagurs yf-
irborðs. Fólk fór í guðshús til að tjá
himnaföðurnum, frelsaranum og
guðsmóðurinni ást sína og lotningu,
síður fyrir skinhelgi og skyldurækni.
Nú, á hinni helgu og ævafornu hátíð
vetrarsólhvarfa, mætti margur vera
þess minnugur, hvert sem trúarhit-
inn stefnir.
KOMIN er út
smáskífan Helga
himneska stjarna
sem hefur að
geyma samnefnt
lag. Ljóðið orti
Sigurbjörn Ein-
arsson, fyrrver-
andi biskup Ís-
lands, við lag
Steins Kárason-
ar.
Lagið er í tveimur útgáfum á hin-
um nýja hljómdiski; annars vegar í
útsetningu Atla Heimis Sveinssonar
og í flutningi Schola cantorum og
félaga úr Kammersveit Hallgríms-
kirkju undir stjórn Harðar Áskels-
sonar; hins vegar sungið af Hrólfi
Sæmundssyni bariton við orgelund-
irleik Steingríms Þórhallssonar
organista í Neskirkju.
Helga himneska stjarna var upp-
runalega frumflutt í messu í Dóm-
kirkjunni 13. júní 2004 undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar org-
anista. Síðan þá hefur það m.a. ver-
ið flutt í Neskirkju í Reykjavík, af
Þórbergi Jósepssyni í Sauðárkróks-
kirkju, í frímúrarahúsinu í Reykja-
vík og víðar.
Hin
himneska
stjarna á
disk
Sigurbjörn
Einarsson
Fáðu úrslitin
send í símann þinn