Morgunblaðið - 27.01.2007, Page 2
2 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
laugardagur
27. 1. 2007
börn
ERT ÞÚ SPÆJARI?
DULARFULLT DULMÁL Í VERÐLAUNALEIK VIKUNNAR » 2
Kristín Nanna gagnrýnir teiknimyndina Happy Feet » 4
Hvað á ég
nú að gera?
ÍR verður 100 ára á þessu ári og á að baki
glæsilega íþróttasögu. ÍR var fyrsta félagið
til að hefja frjálsíþróttaæfingar hér á landi
og útvega sér kastáhöld og stöng fyrir
stangarstökksæfingar og gerði þar með fé-
lagið að forystufélagi um frjálsíþróttir.
Einnig voru ÍR-ingar fyrstir til að halda
frjálsíþróttamót hér á landi. Þegar ÍR hóf
æfingar á Landakotstúninu vorið 1907 mun
fæstum hafa dottið í hug að það félag myndi
geta þjálfað liðsmenn sína í frjálsíþróttum
svo að þeir vektu á sér heimsathygli, eins og
þeir áttu seinna eftir að gera, en ÍR var fyrst
félaga til að senda keppanda á Ólympíuleika
árið 1912.
Morgunblaðið/Kristinn
Frjálsar Um síðustu helgi var haldið frjálsíþróttamót sem var tileinkað 100 afmælinu og hittum við fjöldann af efnilegum frjálsíþróttakrökkum.
Íþróttafélag Reykjavíkur 100 ára
Einungis fjórar smámyndir af átta passa nákvæmlega inn ístóru teikninguna. Sérðu hvaða smámyndir það eru?
Lausn aftast.
Hvað passar?
– En hvað það er dimmt í dag.
– Nei, það er ekkert dimmt, þú hefur bara gleymt að greiða
þér.
– Hvað kom fyrir bílinn hans
Friðriks?
– Honum var eitthvað illa
við ljósastaur um daginn.
Tveir Marsbúar lentu geim-
skipi sínu í Afríku og þegar
í stað söfnuðust forvitnir apar í kringum þessa óvæntu
gesti. Þá sagði annar geimfarinn: Þeir eru nú hreint ekki
eins kjánalegir og maður hafði haldið eftir að hafa hlustað
á útvarpsþættina þeirra.
Hnefaleikarinn kom öskureiður inn til læknisins og sagði:
Þú hefur snúið eyranu öfugt þegar þú saumaðir það aftur
á.
Læknirinn: Það gerir ekkert til. Næsta laugardagskvöld
verður það slitið af þér aftur og þá skal ég muna að sauma
það rétt á.
– Passaðu þig á baðvigtinni þarna, Nonni.
– Af hverju þarf ég að vara mig?
– Ég veit ekki nákvæmlega hvað hún gerir en mamma öskr-
ar alltaf þegar hún stígur upp á hana.
Skop
Krakkar!Við minn-um ykkur
á ljóðasamkeppn-
ina. Þemað er
kærleikur, vin-
átta eða fjöl-
skylda. Skila-
frestur hefur
verið fram-
lengdur til 3.
febrúar.
Í verðlaun eru
veglegar bóka-
gjafir.
Munið að láta
fylgja með upp-
lýsingar um fullt nafn, aldur,
heimilisfang og síma.
Ljóðin skal senda á:
born@mbl.is
eða
Samkeppni – Barnablaðið
Morgunblaðið
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Ljóðasamkeppni
Arnar Björn er mjög efnilegur íþrótta-strákur en hann fór örugglega öfugummegin fram úr í morgun. Hann getur
ekki með nokkru móti fundið hlaupabrautina
svo hann geti æft 400 metra hlaup. Hann finn-
ur hvorki kringluna sína né kúluna svo hann
getur hvorki æft kringlukast né kúluvarp. Það
vantar grind svo hann geti æft grindahlaup.
Hann hefur leitað um allt að slánni til að æfa
hástökk en finnur hana alls ekki. Eins er hann
búinn að týna bæði spjótinu sínu og stönginni
svo hann getur ekki æft spjótkast eða stang-
arstökk og svo finnur hann heldur enga sand-
gryfju svo það reynist honum erfitt að æfa
langstökk. Getur þú hjálpað honum að finna
þessi atriði á síðum Barnablaðsins.
Laugardagur 27. 1. 2007
81. árg.
lesbók
ÞORP JÓNS KALMANS
SUMARLJÓS OG SVO KEMUR NÓTTIN GERIST Í NÚTÍMALEGU
EN JAFNFRAMT FORNU UMHVERFI ÍSLENSKS SMÁÞORPS » 10
Kannski mætti reyna að fá Elton John á Visa-raðgreiðslum » 2
Leikhús á Íslandi forðast að einskorða sig viðverkefni til gulltryggðrar aðsóknar. Upp-færslur eru ekki réttlættar með aðsókn
einni saman.“ Þetta segir Gunnar Guðbjörnsson
óperusöngvari í svari sínu við ádeilu Árna Tóm-
asar Ragnarssonar á verkefnaval og stefnu Ís-
lensku óperunnar í seinustu Lesbók en Árni Tóm-
as hélt því fram að Óperan sýndi fyrst og fremst
fágæt verk í stað þess að sýna þekkt og vinsæl
verk.
Gunnar mótmælir þessu harðlega og segist
vona að Óperan fái að þróast hér sem listform en
ekki bara skemmtun: „Listum er nauðsynlegt að
þróast og takast á við áskoranir. Ef aldrei er veðj-
að á óþekktar stærðir sætum við endalaust uppi
með sömu listamennina og einsleita listsköpun.“
Hljómburður Tónlistarhúss góður
Stefán Hermannsson svarar gagnrýni Ólafs
Hjálmarssonar á Tónlistarhúsið en Ólafur hefur
haldið því fram í Lesbók að hljómburður verði
ekki eins og best verður á kosið í húsinu auk þess
sem illa hafi verið staðið að verki við undirbúning
byggingarinnar. Stefán vísar gagnrýni Ólafs á bug
og segir hljómburð verða eins og best verður á kos-
ið. Hann segir sömuleiðis að vel og eðlilega hafi ver-
ið staðið að undirbúningi byggingarinnar. » 3 og 8
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslenska óperan „Uppfærslur eru ekki réttlættar með
aðsókn einni saman,“ segir Gunnar Guðbjörnsson.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ampop Hljómsveitin hefur slegið í gegn hérlendis undanfarin ár en er nú á leið vestur um haf til að reyna fyrir sér. Arnar Eggert Thoroddsen ræðir við meðlimi sveitarinnar.» 4-5
Kvikmyndin Ba-
bel eftir
Mexíkóann Alej-
andro González
Iñárritu er lík-
leg til þess að
verða sigurveg-
arinn á Ósk-
arsverðlaunahá-
tíðinni í lok
febrúar en til-
nefningarnar
voru kynntar í
vikunni.
Þetta er mat
Björns Norðfjörð kvikmyndafræðings en hann
segir að baráttan á milli Clints Eastwoods og
Martins Scorsese eigi þó eftir að setja mestan svip
á hátíðina að þessu sinni en þeir eru báðir til-
nefndir til verðlaunanna fyrir myndir sínar Lett-
ers from Iwo Jima og The Departed. Björn telur
enn fremur að Little Miss Sunshine eigi enga
möguleika á því að hreppa verðlaunin sem
besta myndin en að hún gæti fengið verðlaun
fyrir besta handrit eins og myndir sjálfstæðu
framleiðendanna í Bandaríkjunum fá gjarn-
an. » 12
Eastwood gegn Scorsese Þeir
setja mestan svip á Óskarsverð-
launahátíðina.
Babel líklegustÓperan fái að
þróast sem listform laugardagur 27. 1. 2007
íþróttir mbl.is
! "#$%"$$&
íþróttir
Michel Platini felldi Lennart Johansson hjá UEFA >> 8
ALFREÐ ÆFUR VIÐ WENTA
NOTAÐI UPPLOGIN UMMÆLI SEM ÁTTU AÐ VERA FRÁ MÉR KOMIN
TIL ÞESS AÐ ÆSA UPP SÍNA MENN FYR- IR LEIKINN >> 4
Eftir Guðmund Hilmarsson
ummih@mbl.is
LANDSLIÐSMAÐURINN Hannes
Þ. Sigurðsson hefur fengið þau
kilaboð frá forráðamönnum
danska liðsins Bröndby að hann
þurfi að
leita sér að
nýju liði.
Hannes er
ekki inni í
myndinni
hjá Tom
Køhlerts,
nýráðnum
þjálfara
Bröndby,
sem tók við
liðinu fyrir
nokkru af
René Meu-
lensteen.
Umboðs-
maður Hannesar hefur þegar haf-
ð viðræður við önnur félög sem
vilja fá Íslendinginn í sínar raðir.
Danskt úrvalsdeildarlið og lið
frá Hollandi vilja Íslendinginn
,,Danskt lið sem leikur í úrvals-
deildinni hefur sýnt áhuga á að
á Hannes og þá er ég með í
höndunum tilboð frá hollensku
élagi,“ sagði Jim Solbakken, um-
boðsmaður Hannesar, í viðtali við
danska blaðið BT.
Hannes gekk til liðs við
Bröndby frá enska 1. deildarlið-
nu Stoke í lok ágúst. Hann hefur
eikið 14 leiki með Bröndby af 18
og hefur skorað í þeim tvö mörk
en keppni í dönsku úrvalsdeild-
nni hefst að loknu vetrarhléi í
mars.
Hannes er 24 ára gamall sókn-
armaður sem festi sig í sessi í A-
andsliðinu á síðasta ári og spil-
aði fimm af sex landsleikjum á
árinu.
Hann hefur leikið 9 landsleiki
og skorað í þeim eitt mark.
Hannes á
förum frá
Bröndby
Hannes Þ.
Sigurðsson
Eftir Ívar Benediktsson í Dortmund
iben@mbl.is
Vafi lék á því í gærkvöldi í herbúðum íslenska landsliðsins í handknattleik
hvort það gæti teflt fram Guðjóni Val Sigurðssyni í leiknum gegn Slóven-
um í Halle Westfalen síðdegis í dag. Guðjón Valur fékk þung högg á
framanvert hægra lærið í leiknum gegn Pólverjum á fimmtudag og leið
ekki vel í gær. Mikið mar er í vöðvanum. „Það er ekkert hægt að segja
um framhaldið hjá Guðjóni Val á þessari stundu. Það verður einfaldlega
skoðað skömmu fyrir leikinn gegn Slóvenum hvernig hans heilsa er,“
sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, við Morgunblaðið í
gær.
Guðjón Valur fór ekki með félögum sínum í íslenska landsliðinu í skoð-
unarferð um Bilefeld í gær. Gefið var frí frá öllum æfingum í gær, en þess
í stað æft árdegis í dag. Leikurinn gegn Slóvenum hefst kl. 17. Sú þjóð
sem vinnur í dag tryggir sér sæti í 8 liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Ekki þarf að fjölyrða um það ef til þess kemur að Guðjón Valur getur
ekki tekið þátt í leiknum enda hefur hann verið einn jafnasti og besti leik-
maður íslenska landsliðsins á mótinu. Ekkert skal þó útilokað og var Guð-
jón Valur í meðferð hjá nuddurum og lækni íslenska landsliðsins í allt
fyrrakvöld eftir viðureignina við Pólverja og í gærdag.
Logi er á batavegi
Logi Geirsson hlaut þungt högg á vinstri öxlina í fyrrgreindum leik
gegn Pólverjum. Logi fór í hljóðbylgjumeðferð hjá sérfræðingum þýska
liðsins Lemgo í gær, en hann er á mála hjá félaginu. Þetta er sömu sér-
fræðingarnir og aðstoðuðu Loga þegar hann fór úr axlarlið á sömu öxl í
lok nóvember.
„Logi er leikklár og verður að öllu forfallalausu með okkur gegn Sló-
venum,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ.
Morgunblaðið/Günther Schröder
Tveir góðir Logi Geirsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa staðið sig mjög vel í HM í Þýskalandi. Íslenska liðið verður ekki það sama án þeirra.
Vafi um Guðjón Val
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 36/38
Staksteinar 8 Bréf 36
Veður 8 Minningar 38/48
Viðskipti 18/19 Kirkjustarf 49/50
Erlent 20/21 Leikhús 58
Menning 22/23, 55/
60
Myndasögur 60
Akureyri 24 Dagbók 52/56
Árborg 24 Bíó 62/65
Suðurnes 25 Staður og stund 62
Landið 25 Víkverji 64
Daglegt líf 26/33 Velvakandi 64
Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66
* * *
Innlent
Kaupþing á nú um 200 milljónir í
evrum en átti aðeins 60 sl. haust.
Deildar meiningar eru um hvað
myndi gerast ef bankinn flytti að
öllu leyti eigið fé sitt og hlutafé yfir í
evrur. Vilja sumir meina að nú njóti
bankinn óbeinnar ríkisábyrgðar sem
myndi hverfa með upptöku evru og
hvað þá flutningi úr landi. Aðrir
segja krónuna vera bankanum fjötur
um fót. » Forsíða
Frjálslyndi flokkurinn heldur nú
landsþing sitt. Í setningarræðu for-
manns kom m.a. fram: „Varla er of-
mælt að segja að Ísland upplifi nú
aðstæður sem aldrei hafa komið upp
fyrr í sögu landsins þar sem mikill
fjöldi erlends fólks mun keppa við
Íslendinga um vinnu.“ Spennandi
kosningar um varaformannsemb-
ætti fara fram í dag. » Miðopna
Matvörumarkaðurinn er nú und-
ir smásjá hjá Samkeppniseftirlitinu.
Forstjóri stofnunarinnar segir at-
hugunina hafa byrjað um mitt síð-
asta ár en hún nær m.a. til smá-
söluverslunar og verðlagningar hjá
birgjum. » Baksíða
Heimilin í landinu borguðu 17,5%
meira í tryggingar í fyrra en árið áð-
ur. Á sama tíma tvöfaldaðist hagn-
aður tryggingafélaganna. Fram-
kvæmdastjóri FÍB segir þetta sýna
að ekki sé virk samkeppni á trygg-
ingamarkaði. » Baksíða
Landsbankinn stendur vel að vígi
samkvæmt uppgjöri. Fyrir utan
methagnað varð í fyrsta sinn meira
en helmingur tekna hans til erlendis.
Innlán viðskiptavina tvöfölduðust
líka milli ára en sparnaðarleiðin
Icesave hefur slegið í gegn hjá
Bretum. » 18
Erlent
John Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, segir að mengun og lofts-
lagsbreytingar verði eitt af stóru
málunum í þingkosningunum síðar á
árinu. » 20
Martti Ahtisaari, fyrrverandi
forseti Finnlands, hefur kynnt til-
lögur sínar um framtíð Kosovo og
njóta þær stuðnings Bandaríkjanna
og Bretlands. » 21
HAFÍSSPÖNG var landföst í mynni
Arnarfjarðar í gær og talið er mjög
líklegt að ís reki inn á Vestfirði í dag.
Veðurstofan sendi frá sér viðvörun
síðdegis í gær og benti á nálægð haf-
íss skammt undan Vestfjörðum. Sigl-
ingaleiðir á þeim slóðum voru sagðar
geta verið mjög varasamar og jafnvel
lokaðar litlum bátum.
Jón Þórðarson á Bíldudal, sem
m.a. sér um vefinn www.bildudalur-
.is, ók út í Selárdal við Arnarfjörð og
tók myndir af ísspönginni.
„Spöngin er nokkur hundruð
metra breið og autt þar fyrir utan,“
sagði Jón. „Að sjá yfir í Dýrafjörðinn,
að Svalvogum, er spöngin samfelld
og landföst þar og lokar alveg firð-
inum.“ Jón sagði að vegna þess hve
veðrið væri gott gætu stærri skip
komist í gegnum ísinn, en ekki plast-
bátar. Brimnes BA frá Patreksfirði
var að veiðum á Arnarfirði gær og
sagði Jón að báturinn hefði landað á
Bíldudal í gærkvöldi því hann komst
ekki út úr firðinum fyrir ísnum. Auk
Brimnessins landaði Höfrungur BA
einnig afla sínum í gærkvöldi og voru
bátarnir báðir með góðan afla. Jón
sagði að sér þætti einkennilegt hve
litlar fregnir hefðu verið af ísnum og
ekki orð um hann fram eftir degi í
gær í fjölmiðlum, hvorki í almennum
fréttum né veðurfréttum.
Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðing-
ur og dósent, vinnur að hafísrann-
sóknum við Jarðvísindastofnun Há-
skóla Íslands. Þar styðst hún m.a. við
radarmyndir úr ENVISAT-gervi-
tunglinu sem sýna legu hafíssins
hvernig sem viðrar og hvort heldur
er á nóttu eða degi. Hún sagði að hæð
sunnan við Ísland ylli sterkum suð-
vestlægum áttum og það skýrði hve
hratt hafísinn hefði nálgast landið.
Segja mætti að þetta væri fullkomin
uppskrift að hafískomu, en hafísinn
væri óvenju sunnarlega nú. Hægt
hefði verið í tæpa viku að sjá fyrir
hættuna á að hafísinn nálgaðist, en
ísrekið hefði orðið hraðara en hún
bjóst við. Ísinn er ekki samfelldur en
í honum eru þéttar spangir, sem geta
verið tugir kílómetra á lengd en jafn-
vel ekki nema einn kílómetri á
breidd. Ingibjörg sagði að sjóveður-
spár í gær reiknuðu með að ísinn ætti
eftir að færast enn nær um helgina
og líklegt væri að hann bærist inn á
firði.
Hafísspöng lokaði Arnarfirði
Horfur á að haf-
ísinn færist nær
landi um helgina
og inn á Vestfirði
Ljósmynd/Jón Þórðarson
Hafís Spöngin í Arnarfirði lá frá Selárdal, yfir í Sléttanes og Svalvoga í gær.
SKIPAFÉLÖGIN Samskip og Eim-
skip hafa tilkynnt verðhækkun á
fraktflutningum sínum frá 1. febrúar
næstkomandi. Á þetta er bent á vef
Neytendasamtakanna. Samskip
hækka sína gjaldskrá um 5% og
Eimskip um 4,5%. Þar segir einnig
að félögin leggi á sérstakt olíuálag,
2,75% hjá Samskipum og 2,68% hjá
Eimskipi.
Margir viðskiptavina skipafélag-
anna gagnrýndu á síðasta ári gjald-
töku þeirra er tekið var upp svonefnt
staðsetningargjald, sem var nokk-
urn veginn hið sama hjá félögunum.
Félag íslenskra stórkaupmanna,
FÍS, sendi inn erindi til Samkeppn-
iseftirlitsins, sem vísaði erindinu frá
og taldi félögin ekki hafa gerst brot-
leg við samkeppnislög. Engu að síð-
ur munu nokkur fyrirtæki hafa neit-
að að greiða þetta gjald.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri FÍS, segist í samtali
við Morgunblaðið telja að nú séu að-
stæður allt aðrar, miklar kostnaðar-
hækkanir hafi átt sér stað síðustu
mánuði og þróun launavísitölu,
gengis og fleiri þátta verið með þeim
hætti að fyrirtæki hafi orðið að velta
þeim kostnaði út í verðlagið. Hækk-
un skipafélaganna á sinni gjaldskrá
um 4–5% sé, miðað við þessa þróun, í
raun eðlileg. Fyrirtækin séu undir
stöðugum þrýstingi um að hagræða í
rekstri sínum. Því sé útilokað að ætla
að skipafélögin hafi átt með sér eitt-
hvert samráð að þessu sinni.
Verðbólga víðar en á Íslandi
Andrés segir það oft gleymast í
umræðunni hér á landi að verðbólga
sé í fleiri löndum en Íslandi. Víða sé
um 5% verðbólga í kringum okkur og
sú þróun skili sér í innflutningi til
landsins, sem og atburðir eins og
uppskerubrestur á ávöxtum. Nú sé
verð á ávaxtasafa að rjúka upp úr
öllu valdi á heimsmarkaði. Ekki
megi heldur gleyma miklum hækk-
unum á hrávörum eins og korni, kaffi
og sykri.
Skipafélögin hækka
gjaldskrána um 4,5–5%
Í HNOTSKURN
»Samskip og Eimskip hafatilkynnt verðhækkun á
fraktflutningum sínum,
4,5–5%.
»Margir viðskiptavinaskipafélaganna gagn-
rýndu á síðasta ári staðsetn-
ingargjald þeirra sem var
nokkurn veginn það sama.
»Framkvæmdastjóri FÍStelur útilokað að skipa-
félögin hafi átt með sér eitt-
hvert samráð nú.
ÍBÚAÞING var haldið í grunnskólanum á Eskifirði fyrr
í vikunni. Þar fengu allir bæjarbúar að koma hug-
myndum sínum á framfæri. Bæjarstjórnin mun síðan
nota ábendingarnar við gerð aðalskipulags Fjarða-
byggðar og eins til að forgangsraða umhverfisverk-
efnum sem ætlunin er að ráðast í á vori komanda.
Þrjár blómarósir bökuðu vöfflur fyrir fundargesti á
íbúaþinginu og fengu þær góðar undirtektir. Stúlk-
urnar heita, f.v.: Karen Elfa Jóhannsdóttir, Heiður Vil-
hjálmsdóttir og Aldís Einarsdóttir.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Blómarósir baka vöfflur