Morgunblaðið - 27.01.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 9
FRÉTTIR
LILJA Garðarsdóttir
skrifstofumaður lést á
líknardeild Landspítal-
ans í Kópavogi fimmtu-
daginn 25. janúar. Hún
var ekkja sr. Árna Bergs
Sigurbjörnssonar sókn-
arprests í Áskirkju í
Reykjavík sem lést 17.
september 2005.
Lilja fæddist 30. ágúst
1944 á Bíldudal, dóttir
hjónanna Unu Thorberg
Elíasdóttur og Garðars
Jörundssonar sjómanns
og ólst þar upp í stórum
og góðum systkinahópi.
Hún lauk prófi frá Núpsskóla og síðar
frá Húsmæðraskólanum í Reykjavík.
Þau sr. Árni Bergur gengu í hjóna-
band á miðju sumri 1965 og bjuggu
fyrst á Bíldudal en fluttust til Reykja-
víkur er hann hóf nám við guðfræði-
deild Háskóla Íslands.
Er hann hafði tekið
prestsvígslu 1972
fluttust þau til Ólafs-
víkur og störfuðu þar
til 1980 er þau urðu
prestshjón í Áskirkju í
Reykjavík. Þau hjónin
voru afar samtaka og
samrýnd og veitti
Lilja manni sínum
ómetanlegan stuðning
í hans margþætta og
erfiða starfi og var
jafnframt burðarás í
safnaðarlífi Áskirkju.
Lilja vann um 25 ára
skeið hjá Tollvörugeymslunni og síð-
ar hjá Eimskip.
Þau hjónin eignuðust þrjú börn,
Hörpu myndlistarmann, Magneu
flautuleikara og Garðar þyrluflug-
mann. Barnabörnin eru 10 talsins.
Lilja Garðarsdóttir
Andlát
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, héldu
fund í Brussel í gærmorgun og fjöll-
uðu þar einkum um aðstoð við Afg-
anistan. Lýstu Bandaríkjamenn því
yfir að þeir hygðust veita alls tæpa
11 milljarða dollara til að efla varnir
og uppbyggingu í landinu.
Valgerður Sverrisdóttir utanrík-
isráðherra sat fundinn í gær. „Öll
ríkin voru sammála um að aðstoða
afgönsk stjórnvöld við að byggja
upp eigin getu til að stjórna landinu,
um það var mikil samstaða,“ sagði
Valgerður. „Meira er nú rætt í
NATO um borgaralegt framlag en
áður og það má kannski segja að
Afganistan sé vendipunkturinn í
þeirri umræðu, í þessu felast tæki-
færi fyrir okkur Íslendinga til að
leggja meira af mörkum en áður.
Ég gerði grein fyrir áætlunum
okkar um aukin framlög til upp-
byggingar og endurreisnar í land-
inu. Við höfum boðist til að leiða yf-
irfærslu á Kabúl-flugvelli í hendur
heimamanna en sú aðgerð er ekki
hafin, hún er í undirbúningi. Við er-
um að undirbúa samstarf með Ung-
verjum um endurreisnarteymi og
höfum ákveðið að leggja fram fé í
vatnsaflsvirkjanir. Það er mín von
að friðargæsluliðar okkar í Afgan-
istan gætu um mitt þetta ár verið
orðnir um 25,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir.
Meira rætt um borg-
aralegt framlag en áður
Fundur Valgerður Sverrisdóttir sat fund Atlantshafsbandalagsins í Bruss-
el í gær. Hún segir mikið hafa verið rætt um borgaralegt framlag NATO.
HEILDARSAMTÖK aldraðra og
fatlaðra koma á engan hátt að und-
irbúningi framboða til Alþingis sem
kynnt hafa verið sem framboð ör-
yrkja og aldraðra. Hér á eftir fer yf-
irlýsing frá formönnum Landssam-
bands eldri borgara, Sjálfsbjargar –
landssambands fatlaðra og Öryrkja-
bandalags Íslands, þeim Ólafi Ólafs-
syni, Ragnari Gunnari Þórhallssyni
og Sigursteini Mássyni.
„Heildarsamtök aldraðra og fatl-
aðra koma á engan hátt að undirbún-
ingi framboða til Alþingis sem kynnt
hafa verið sem framboð öryrkja og
aldraðra. Samtök aldraðra og fatlaðra
starfa á þverpólitískum grundvelli að
hagsmunamálum félagsmanna sinna
og hafa engin áform uppi um framboð
til Alþingis í kosningunum í vor.
Undirritaðir leggja áherslu á kröf-
una um eitt samfélag fyrir alla sem og
kjörorðin ekkert um okkur án okkar
og hvetja á þeim grunni öryrkja og
aldraða til að vera virka þátttakendur
á vettvangi stjórnmálanna, hvar í
flokki sem þeir standa, og sinna þann-
ig borgaralegum réttindum og skyld-
um sem fullgildir þátttakendur í sam-
félaginu.“
Heildarsamtök koma
ekki að framboðum
SÍÐUMÚLA 11 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 575 8500 - www.fasteignamidlun.is
Pálmi Almarsson
lögg. fasteignasali
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
Brynjar Fransson
lögg. fasteignasali
Þór Þorgeirsson
lögg. fasteignasali
TRAUST, ÞEKKING, FAGMENNSKA OG REYNSLA ERU OKKAR LYKILORÐ
ERUM TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚNIR - 100 ÁRA SAMANLÖGÐ REYNSLA
Spennandi útsölufatnaður
enn meiri verðlækkun
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 51 s 561 1680
Útsala
Útsala
20%
auka
afsláttur
af
útsöluvöru
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
Viltu ver›a li›ugri?
Sex vikna yoganámskei› fyrir stir›a kroppa hefst
30. janúar. firi›judaga og fimmtudaga kl. 10
Kennari: Gu›mundur Pálmarsson.
B Ó K A B Ú Ð S T E I N A R S
Ú T S A L A
M Ö R G H U N D R U Ð E R L E N D I R T I T L A R
O p i ð l a u g a r d a g f r á k l . 1 2 - 1 8
M I K I L L A F S L Á T T U R
B e r g s t a ð a s t r æ t i 7 S í m i 5 5 1 2 0 3 0 F a x 5 6 2 6 4 3 0 s t e i n b o o k @ h e i m s n e t . i s
O p i ð v i r k a d a g a 1 3 - 1 8
1
0
1
0
.7
Laugavegi 40 - Sími 561 1690
RALPH
LAUREN
Útsala
Útsala
50%
afsláttur
af öllum
vörum
Kringlunni - sími 568 1822
www.polarnopyret.se
Meiri verðlækkun
50% afsl. af meðgöngufatnaði
50-70% afsl. af barnafatnaði
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
Byrjendanámskei› í yoga
Sex vikna byrjendanámskei› hefst 29. janúar.
Mánudaga og fimmtudaga kl. 16.40.
Kennarar: Talya Freeman og Gu›mundur Pálmarsson.
Fréttir
í tölvupósti