Morgunblaðið - 27.01.2007, Qupperneq 32
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
I
ngi Már Úlfarsson kann vel
að meta lífsgæðin á Íslandi,
sennilega betur en flestir
jafnaldrar hans hérlendir.
Ársdvöl hans í Paraguay
leiddi honum fyrir sjónir hversu gott
Íslendingar hafa það í raun.
Ingi er nýkomin heim eftir að hafa
verið skiptinemi í Paraguay síðasta
árið. „Ég vildi breyta til og kynnast
Suður-Ameríku og fór sem skipti-
nemi. Þar sem skólinn var svolítið
eins og að fara aftur í tíunda bekk
skrópaði ég þar af leiðandi að mestu
og vann í staðinn á dagheimili fyrir
fátæka krakka, sem annað hvort eru
munaðarlausir eða eiga foreldra sem
fara illa með þá.“
Ingi bjó hjá vel stæðri fjölskyldu
sem m.a. hefur svolítið af þjón-
ustufólki. „Nærri allar fjölskyldur
eru með a.m.k. eina þjónustukonu,
enda nóg af fólki til að sinna slíkum
störfum. Það er mikil stéttaskipting
og spilling í Paraguay.“
Á dagheimilinu vann Ingi í sjálf-
boðavinnu með börnunum, sem voru
fimm, sex ára og upp í 14 ára.
„Dæmigerður dagur hjá mér gekk
þannig fyrir sig að ég hjálpaði börn-
unum með heimavinnuna sína eftir
hádegi, ef þau á annað borð sóttu
skóla. Eftir það voru allir drifnir út í
fótbolta. Svo var borðað, tannburstað
og farið í sturtu og kannski föndrað
og leikið sér áður en krakkarnir fóru
heim aftur. Í rauninni fólst mikilvæg-
asti hluti starfsins í að sýna krökk-
unum umhyggju. Þau þurftu bara að
finna að manni var ekki sama.“
Hann segir flest barnanna eiga
til fólk sem hikar ekki við að stinga
mann fyrir 50 kall en ég varð ekki
var við það. Gullna reglan er einfald-
lega að passa sig.“
Sjálfur lenti hann tvívegis í því að
vera rændur úti á götu, en slíkt er
ekki óvenjulegt í Asuncion ef marka
má Inga. Í fyrra skiptið var hann á
leið í strætóskýli ásamt fimm vinum
sínum eftir skemmtun um miðja nótt
þegar þrír ókunnir strákar gáfu sig á
tal við þá. „Ég var að horfa í aðra átt
en þegar ég leit við var búið að stilla
öllum vinum mínum upp við vegg og
einn aðkomustrákanna var að miða
byssu á mig. Hann sagði mér að fara
upp að veggnum sem ég gerði og svo
rændu þeir okkur koll af kolli. Hins
vegar voru þeir orðnir eitthvað
stressaðir þegar kom að mér svo þeir
létu sér nægja símann minn og hlupu
svo í burtu.“
Ingi viðurkennir að þetta hafi ver-
ið óþægileg upplifun. „Hins vegar
hugsaði ég allan tímann að þeir hefðu
enga ástæðu til að skjóta neinn. Þar
fyrir utan var ekki einu sinni víst að
þetta hafi verið alvöru byssa. Þeir
litu a.m.k. ekki út fyrir að vita hvað
þeir væru að gera.“
Vandamálin á
Íslandi smávægileg
Tíu mánuðum síðar endurtók leik-
urinn sig þegar strætisvagn sem Ingi
tók fór ekki þá leið sem hann ætlaði
og hann þurfti að ganga frá götu-
horni að öruggri aðalgötu í heldur
Morgunblaðið/G.Rúnar
Frost Ingi Már Úlfarsson er kominn heim til Íslands úr hitanum í Paraguay.
Um leið og rignir
myndast allt að metra-
djúpar ár á götunum,
oft straumharðar...
Fátækt Börnin sem Ingi annaðist á dagheimilinu búa flest við erfið kjör.
Skrýtið að skilja eitt líf eftir
borginni er annað hvort ekki til stað-
ar eða virkar ekki. Um leið og rignir
myndast allt að metradjúpar ár á
götunum, oft straumharðar þannig
að þær geta beinlínis verið hættu-
legar. Það eru dæmi um að þær taki
bíla hreinlega með sér.“
Fátæktinni í borginni fylgir það að
mikið er um þjófnaði en Ingi gerir
ekki mikið úr hættunni sem því
fylgir. „Menn þurfa bara að vita hvað
þeir eru að gera og ekki labba á viss-
um stöðum á vissum tímum. Þarna er
litla eða enga framtíð fyrir sér. „Sum
hafa ekki gert annað alla sína ævi en
að selja bingó á götunni og fyrir
marga af þessum krökkum er það
framtíðin líka – að selja eitthvert
drasl á götunni til að eiga fyrir mat.“
Byssu miðað á hópinn
Ingi bjó í höfuðborginni Asuncion
sem er gerólík Reykjavík og öðrum
vestrænum borgum að hans sögn.
„Ég hef heyrt henni lýst sem borg
sem gleymdist í tímanum. Þrátt fyrir
að vera höfuðborg landsins er hún
einhvern veginn hálfdauð og menn-
ingarlífið er mjög lítið. Hún er líka
mjög skítug og andrúmsloftið
óhreint. Göturnar eru meira og
minna ónýtar, því holræsakerfið í
ferðalög
32 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 530 1500 • husakaup@husakaup.is
Sjáumst í sólskinsskapi
Úttekt að verðmæti kr. 600.000,-
hjá Harðviðarval
Þvottavél & þurrkari að verðmæti kr. 300.000,-
frá Eirvík
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Við erum í sólskinsskapi og gefum þeim sem tryggja sér íbúð
að Hallakri 2 eða 4 fyrir 20. febrúar, myndarlegan kaupauka að andvirði kr. 900.000,-