Morgunblaðið - 27.01.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 27.01.2007, Síða 33
vafasömu hverfi. „Þegar ég hoppaði af vagninum rifnaði sandalinn minn. Ég tók því upp símann og hringdi í bróður minn en þá reyndist enginn af fjórum bílum heimilisins vera heima. Ég þurfti því að rölta á tánum heim í hitanum. Um fimm mínútna gang frá heimili mínu sá ég tvo stráka sem mér fannst mjög grunsamlegir. Ann- ar virtist vera að pissa og hinn að skýla honum en fyrsta hugsunin hjá mér var að nú væri ég að lenda í ráni aftur. Allt í einu voru þeir komnir nær og hvor á sína gangstéttina og ég vissi ekki fyrr en annar þeirra kýldi mig í andlitið, ýtti mér upp að vegg og skipaði mér að koma með símann minn. Svo fóru þeir. Þeir hafa tekið eftir því þegar ég tók upp sím- ann til að hringja í bróður minn því þeir báðu ekki um neitt annað.“ Þó að það hafi verið mikil viðbrigði fyrir Inga að koma úr örygginu á Ís- landi til Paraguay segir hann við- brigðin í raun hafa verið meiri þegar hann kom heim aftur. „Mér fannst al- veg fáránlegt að sjá lífsgæðin á Ís- landi og hvað vandamálin hér eru smávægileg – við erum ótrúlega heppin. Núna kann ég rosalega vel að meta að búa á Íslandi. Jafnvel fólk sem er í millistéttinni í Paraguay hef- ur ekki sömu tækifæri og við – vilji- það t.d. verða tónlistar- eða blaða- menn hefur það ekki möguleika á því. Hérna getur hver sem er orðið hvað sem er ef metnaður er til stað- ar.“ Ingi vonast til þess að fá tækifæri til að heimsækja Paraguay aftur. „Ég klára stúdentinn í vor og vona að eftir það fái ég tækifæri til að aka svolítið um Suður-Ameríku og enda svo í Paraguay,“ segir hann og von- ast til að fá einhvern íslenskra vina sinna með sér. „Það er svolítið skrýt- in reynsla að skilja bara eitt líf eftir og skipta yfir í annað.“ Hreysi Innan við 500 metrum fra ráðhúsinu í Asuncion er stórt fátækrahverfi sem liggur meðfram ánni Paraguay. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 33 Kominn er þorri, og veturinn víðs fjarri, eða svo virðist vera. Hér við Húnaflóann hefur varla sést snjór að kalla megi. Frostakaflar hafa komið, en yfirleitt stillt veður. Snjósleðar eru á lágu verði, og aðalskíðasvæði lands- manna eru okkur svo fjarri, að þetta tíðarfar hefur ekki truflað mannlífið að neinu marki.    Um áramótin tók Fæðingarorlofs- sjóður til starfa, opnuð var með við- höfn starfsstöð í fyrrum skrif- stofurými Kaupfélagsins, en það höfðu iðnaðarmenn héraðsins unnið hörðum höndum í nokkrar vikur við að breyta formföstu skrifstofurými í nýtísku skrifstofur. Vinnumálastofn- un er yfir sjóðnum og bauð til teitis í tilefni opnunarinnar. Mætti þar margt fyrirmanna í þessum mála- flokki og var mál manna að afar vel hefði tekist til með skipan mála. Níu manns vinna við sjóðinn og eru flestir með háskólamenntun. Forstöðu- maður Fæðingarorlofssjóðs er Leo Örn Þorleifsson.    Áþorranum er helst eftirvænting fólks hvernig til tekst með þorrablót- in. Haldin eru þrjú almenn þorrablót í héraðinu, auk ýmissa smærri blóta á vegum félagasamtaka. Á Hvamms- tanga er árlegt blót, sem um 300 manns sækja. Þar rís hæst leikinn annáll, þar sem tekið er fyrir bæjar- og mannlíf staðarins. Fá þar ýmsir nokkrar skrokkskjóður og verða um- ræðuefni fólks næstu vikurnar. Eng- inn meiðist þó að marki á þessari samkomu og finnst jafnvel betra að eftir þeim hafi verið tekið en að árið hafi liðið hjá í tilgangsleysi.    Mannlíf er gott í héraðinu og tiltrú fólks á búsetu hér virðist aukast. All- ar húseignir sem boðnar eru til sölu seljast, sumar á hærra verði en upp- haflega er auglýst. Er þetta nokkur nýlunda, því áður fyrr urðu seljendur oft að sætta sig við lækkun á verði eigna sinna. Erfiðlega gengur þó að fjölga íbúum héraðsins og eru ýmsir á þeirri skoðun að sárlega vanti íbúðar- húsnæði í héraðinu.    Búnaðarsamband Vestur-Húnvetn- inga og búgreinasambönd héraðsins héldu Agli Gunnlaugssyni fyrrum héraðsdýralækni heiðurssamsæti nú á dögunum, en hann lét formlega af því embætti á liðnu ári eftir 42 ára starf. Fjöldi bænda og annarra hér- aðsbúa heiðraði hann með komu á hófið, sem var haldið í Félagsheim- ilinu á Hvammstanga. Hlaut hann að gjöf listaverk unnið af Helga Björns- syni tréskurðarmanni úr Miðfirði. HVAMMSTANGI Karl Sigurgeirsson fréttaritari Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson Við Húnaflóann Þorrasól á Hvammstanga. úr bæjarlífinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.