Morgunblaðið - 27.01.2007, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Anna Þóra Guð-mundsdóttir
Harned fæddist í
Reykjavík 7. júlí
1939. Hún lést 9.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
mundur Ágústsson
bakarameistari og
skákmaður, f. 8.11.
1916, d. 17.10.
1983, og Þuríður
Ingibjörg Þórarins-
dóttir (Dóa), f. 18.4.
1915, d. 20.2. 2002.
Anna fluttist til Bandaríkjanna
ásamt fjölskyldu sinni árið 1964
og bjó þar til dauðadags. Systkini
Önnu eru: a) Þórarinn eðlisfræð-
ingur og kennari við Mennta-
skólann í Reykjavík, f. 4.5. 1936,
d. 6.8. 1991, kvæntur Sigríði
Steingrímsdóttur, f. 20.11. 1933,
Björk, f. 9.7. 2001, og Anna Elín,
f. 15.9. 2003. 2) Eva Georgsson
textílhönnuður í New York, f.
28.6. 1962, gift Nicholas Miliakos
framkvæmdastjóri í New York, f.
8.3. 1968. Börn þeirra eru Anna
Þóra, f. 28.9. 1998, og Zoe, f. 8.9.
2000. 3) Sverrir Ólafur
Georgsson kennslufræðingur, f.
27.7. 1970. 4) (Fóstursonur)
Georg Már Sverrisson húsasmið-
ur í Reykjavík, f. 9.11. 1956,
kvæntur Esther Helgu Ólafs-
dóttur, starfsmanni Kreditkorta
hf. í Reykjavík, f. 31.3. 1964,
börn þeirra eru Viktor, f. 10.12.
1987, Sverrir, f. 30.3. 1994, og
Eva Björk, f. 2.5. 1996. 5) Nancy
Harned Warner, f. 10.9. 1957,
gift Robert W. Warner, f. 14.6.
1957, börn þeirra eru Ingrid, f.
2.4. 1989, Kirsten, f. 26.9. 1991,
og Hannah, f. 8.1. 1998.
Anna lauk prófi í félagsfræði
frá Adelphi University í New
York 1983.
Anna Þóra verður kvödd
hinstu kveðju frá Rossmoor
Community Church, Monroe
Township í New Jersey í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
b) Edgar verkfræð-
ingur, f. 16.10. 1940,
kvæntur Hönnu Ei-
ríksdóttur, f. 26.7.
1941, c) Ágústa
Ph.D. prófessor við
HÍ, f. 2.7. 1945, gift
Jóni Braga Bjarna-
syni Ph.D prófessor,
og d) Steinunn, f.
20.10. 1950, d. 2.11.
2002, gift Guðmundi
Vikari Einarssyni
lækni, f. 8.2. 1949.
Eiginmaður Önnu
er Edwin Percy
Harned, fv. svæðisstjóri hjá IBM í
New Jersey, f. 29.7. 1930. Börn
þeirra eru: 1) María Anna
Georgsson, læknir í New Jersey
og sérfræðingur í melting-
arfærasjúkdómum, f. 20.9. 1960,
gift Pétri Hansson lögfræðingi, f.
27.6. 1958, börn þeirra eru Sara
Anna varð í öðru sæti í fegurð-
arsamkeppni Íslands árið 1957 og
tók þátt í keppninni um ungfrú
Evrópu í Tyrklandi sama ár. Þá var
hún ljósmyndafyrirsæta á Íslandi
og í Danmörku um tíma og starfaði
einnig sem flugfreyja.
Anna starfaði síðan sem ljós-
myndafyrirsæta í New York um
nokkurra ára skeið og prýddu
myndir af henni fjölda þekktra
tískublaða. Þá starfaði hún að vel-
ferðarmálum áfengissjúklinga og
átti stóran þátt í því að leggja
grunninn að nútímameðferð við
áfengissýki hér á Íslandi með því að
koma á ferðum Íslendinga til áfeng-
ismeðferðar á Freeport-sjúkrahús-
inu í New York.
Fyrir frumkvöðulsstarf sitt á
þessu sviði var hún sæmd ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
árið 1983. Anna lauk prófi í fast-
eignasölu frá Weidell í New Jersey
og starfaði ásamt Ed, manni sínum,
að fasteignasölu í New Jersey í
nokkur ár. Anna var vinmörg og
með eindæmum ræktarsöm við vini
sína sem og ættmenni. Anna
greindist með illvígan blóðsjúkdóm
fyrir 18 árum sem tókst að halda í
skefjum þar til fyrir fáeinum mán-
uðum að hann breyttist í bráðahvít-
blæði sem varð henni að aldurtila
langt fyrir aldur fram. Við gerum
orð Eds eiginmanns hennar að okk-
ar, en hann sagði að 20 ára hjóna-
band þeirra hefði jafnframt verið
ástarsamband hvern einasta dag.
Anna var umvafin aðstandendum
sínum til hinsta dags enda sagði
hún að ef ást gæti læknað þennan
sjúkdóm væri hún alfrísk fyrir
löngu. Við eftirlifandi systkini Önnu
og makar okkar getum ekki með
orðum þakkað henni ævilanga vin-
áttu og hjálpsemi sem aldrei bar
skugga á og biðjum guð að blessa
minningu hennar.
Edgar og Ágústa.
Anna Þóra móðursystir okkar
lést hinn 9. janúar sl. Við minnumst
hennar með söknuði og sorg og
samhryggjumst af öllu hjarta henn-
ar nánustu; Ed, Maju, Evu og
Sverri, mökum þeirra og barna-
börnum Önnu.
Anna var einstök og minningin
um hana mun alltaf lifa með okkur.
Hún er í minningunni eins og tígu-
legur fugl með gríðarlegt vænghaf.
Við vorum mörg sem fengum að
njóta skjóls vængjanna og fara á
flug með þessum fagra fugli.
Anna frænka var jákvæð,
skemmtileg og gefandi og naut þess
að taka þátt í lífi allra í kringum
sig. Hún var full af orku, elskaði að
bjóða fólki heim, flytja, endurskipu-
leggja heima hjá sér eða hjá öðrum.
Hún lifði lífinu lifandi og skapandi
fram á síðustu stund. Börnin henn-
ar sáu til þess að Anna fengi að
dreyma sína drauma fram að hinsta
augnabliki. Daginn áður en hún dó
var hún að tala um nýja húsið sem
þau Ed ætluðu að festa kaup á.
Hugurinn bar hana alltaf víða og
það var svo gaman að vera í kring-
um hana. Hún var sífellt að skipu-
leggja eitt eða annað, en var hins
vegar alveg sama þótt breytingar
yrðu á plönum. Hún var gædd ein-
stakri aðlögunarhæfni, skemmtileg-
ur eiginleiki sem einkennir systkini
hennar líka, og fyrir henni var allt
svo auðvelt.
Að missa nákomna frænku og svo
sterka fyrirmynd sem Anna var í
okkar huga er svo sárt, en minnir
um leið á hversu dýrmætt og stutt
lífið er og hve mikilvægt er að njóta
hvers augnabliks.
Með ást og söknuði,
Anna Theodóra og Þóra.
Látin er kær frænka og yndisleg
vinkona.
Það er tómlegt að hugsa til að
þess að síminn hringi ekki framar
með Önnu frænku handan línunnar.
Í hvert skipti sem við töluðum sam-
an urðu fjarlægðir að engu. Hún
hafði þau áhrif á mig að mér leið
betur og í lok hvers samtals fannst
mér ég tilbúnari að takast á við líf-
ið. Anna var einstök. Hún var ekki
einungis falleg og góð, heldur var
hún besti hlustandi sem ég hef
þekkt. Hún var næm, hafði ríka
kímnigáfu og var fljúgandi greind.
Áttum við ómældar ánægjustundir
þar sem við rifjuðum upp lífshlaup-
ið eða ræddum allt milli himins og
jarðar. Hún hafði stálminni og var
alltaf með á nótunum. Aldrei
þreyttist hún á að gefa góð ráð og
leita úrslausna, sama hver átti í
hlut. Greiðasemin var henni í blóð
borin og sú greiðasemi rann
áreynslulaust fram og án allra skil-
yrða. Vakandi og sofandi hjálpaði
hún hinum fyrstu Íslendingum sem
fóru í meðferð á Freeport og hún
aðstoðaði viðskiptavini sína þegar
hún var fasteignasali við atriði sem
fæstir hefðu látið sig nokkru varða.
Frændgarðurinn allur, þeir sem
minna máttu sín og vinir nutu einn-
ig hennar óþrjótandi umhyggju.
Þegar Magga dóttir mín fluttist til
Bandaríkjanna með fjölskyldu sína
var hún þeim dýrmætur stuðningur
og hjálparhella.
Anna fæddist á Vesturgötunni
þar sem hún ólst upp í glaðværum
systkinahópi. Hún átti góða for-
eldra og var líf og fjör á gestkvæmu
heimili. Eftir að hún fluttist til
Bandaríkjanna kom hún oft heim
og þá var eins og hún hefði aldrei
flust burtu því ræturnar voru djúp-
ar. Hafði hún unun af að rifja upp
bernskuna í bakaríisfjölskyldunni.
Móðir hennar og ég bjuggum síðar
í sama húsi og var samband þeirra
mæðgna alltaf náið. Önnu var vel-
ferð móður sinnar mikils virði og
fannst erfitt að vera ekki nær þegar
heilsu hennar hrakaði. Anna var
sjálf góð móðir og átti kærleiksríkt
samband við börn sín og fjölskyldu.
Hún naut barnabarnanna sem voru
henni gleðigjafar og vildi svo gjarn-
an fá að fylgjast með uppvexti
þeirra. Anna var hamingjusöm í
sínu einkalífi og hafði oft á orði við
mig hversu lífið væri henni gjöfult
en hún þekkti sannarlega lífið með
þrautum þess og sorgum. Börn
hennar hafa erft eiginleika móður
sinnar og umvöfðu þau hana ástúð í
veikindum síðustu vikna. Einnig
stóð Ed eiginmaður hennar við hlið
hennar sem klettur. Veit ég að það
var henni ómetanlegt. Anna þráði
lífið og trúði á mátt jákvæðrar
hugsunar.
Ed, Mæju, Evu og Sverri votta
ég ásamt börnum mínum einlæga
samúð. Missir þeirra er mikill.
Megi himnafaðirinn gefa þeim styrk
og kjark. Blessuð sé minning minn-
ar kæru frænku Önnu Þóru.
Sveindís Þórisdóttir.
Ég veit að harmatölur við brott-
för Önnu Þóru mágkonu minnar
eru gagnstæðar lífsmáta hennar.
Lífsgleði og kjarkur var henni í
blóð borinn. Hún lét sig varða fjöl-
skylduna, ræktaði stóran vinahóp
og studdi þá sem minna máttu sín.
Önnu Þóru fylgdi ferskur andblær
sem náði heimsálfanna á milli. Það
hefur verið okkur styrkur að eiga
hana að. Fundum við það síðast á
erfiðum tímum nú í sumar.
Með söknuði kveð ég mágkonu
mína og þakka henni samfylgdina.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helstu tryggð og vináttunnar ljós.
Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir.)
Ástvinum Önnu Þóru sendi ég
samúðarkveðjur.
Sigríður Steingrímsdóttir.
Á hillu einni á æskuheimili mínu í
Vesturberginu stóð mynd af þeim
systrum, Steinu, Gústu og Önnu
Þóru, ásamt forseta Íslands í þá
daga, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Engu líkara var en að Vigdís
væri fjórða systirin, svo vel féll hún
inn í hópinn. Allar voru þær ljósar
yfirlitum og skælbrosandi þar sem
þær héldu þétt hver utan um aðra
líkt og gamlar vinkonur úr mennta-
skóla.
Myndin var tekin árið 1983 við
móttökuathöfn á Bessastöðum í til-
efni afhendingar hinnar íslensku
fálkaorðu. Önnu Þóru hafði hlotnast
heiðurinn vegna frumkvæðis henn-
ar að hinum svonefndu Freeport-
ferðum fyrir áfengissjúklinga.
Þannig gafst ómældum fjölda Ís-
lendinga kostur á fyrsta flokks
meðferð við Freeport-sjúkrahúsið á
Long Island vegna áfengismisnotk-
unar, en fram að þeim tíma voru
engin viðvarandi úrræði til á Íslandi
við slíkri fíkn.
Sjálf minntist Anna aldrei á orð-
uveitinguna við mig eða önnur af-
rek sín yfirleitt enda lítið fyrir að
þenja sig. Af nógu var þó að taka.
Auk afraksturs Freeport-ferðanna
má nefna glæsilegan feril hennar
sem ljósmynda- og tískufyrirsæta í
New York á yngri árum og síðar
stórkostlegan árangur hennar sem
einn söluhæsti fasteignasali í New
Jersey-ríki. Í hátt á annan áratug
komst hún á hinn svokallaða milljón
dollara lista yfir dugmestu fast-
eignasala ríkisins.
Þó er rétt að taka fram að kraft-
ur Önnu var fremur drifinn áfram
af bjartsýni og jákvæðu hugarfari
en af eldmóð eða skefjalausum
metnaði. Vissulega vildi hún sjá ár-
angur af verkum sínum, en þá í því
skyni að láta gott af sér leiða frem-
ur en að koma sjálfri sér á ein-
hverja tinda. En Anna var ekki ein-
ungis athafnakona á sviði
áfengisvarna og fasteignaviðskipta.
Hún lét ekki síður til sín taka innan
fjölskyldunnar, enda vandasamt að
halda hópinn þegar heilt Atlantshaf
skilur á milli.
Eitt sinn áttum við fjölskyldan
leið vestur um haf. Lét ég þá Önnu
vita af komu okkar. Aðeins um hálf-
tíma síðar var hún tilbúin með full-
búna áætlun um hvernig við gætum
hitt nánast alla amerísku ætt-
ingjana á einni viku. Þannig tókst
okkur að hitta Sverri í Pennsylv-
aníu, Önnu sjálfa og Mæju í New
Jersey auk Evu, Önnu Tesu og
Þóru í New York. Anna hafði þá
skipulagt af herstjórnarlegri ná-
kvæmni allar tímasetningar, fjölda
gistinátta á hverjum stað auk hag-
kvæmasta ferðamátans í hvert sinn.
Auk þess að vera dugleg og dríf-
andi var Anna óvenjulega opin per-
sóna. Ef viðkvæm mál bar á góma
var næsta víst að Anna hafði frá
einhverju bitastæðu að segja. Vitn-
aði hún þá oft í ýmis persónuleg at-
vik úr eigin lífi. Fyrir vikið fór mað-
ur iðulega af hennar fundi nokkuð
upplýstari og stundum víðsýnni en
áður. Anna Þóra var lífsglöð kona
sem ávallt leit fram á veginn. Hún
var framtakssöm og fylgin sér en
gekk ætíð fram af opnum hug með
bjartsýni að leiðarljósi. Að hafa átt
frænku sem var jafn rík af lífsorku
og Anna Þóra er mislyndum bróð-
ursyni holl áminning um hvað já-
kvætt lífsviðhorf ræður miklu um
hvort lífið sé varðað stöðugum
hindrunum eða ótal spennandi
tækifærum til góðra verka.
Guðmundur Edgarsson.
Elsku Anna frænka, við þökkum
þér þá ástúð, hlýju og tryggð sem
þú hefur ávallt sýnt okkur. Þú munt
ætíð eiga sérstakan stað í hjarta
okkar.
Þínum anda ætíð fylgdi gleði
gamansemin auðnu þinni réði.
Því skaltu halda áfram hinum megin
með himnaríkisglens við mjóa veginn.
Ég vona að þegar lífi mínu lýkur
ég líka verði engill gæfuríkur.
Þá við skoðum skýjabreiður saman
og skemmtum okkur, já, það verður gam-
an.
(Lýður Ægisson.)
Agla Huld og Helga Dröfn.
Mig langar til að nota nokkur orð
til að minnast elskulegrar móður-
systur minnar, Önnu Þóru Guð-
mundsdóttur.
Anna var kona sem hefur snert
mörg hjörtu með sinni einstöku
hjálpsemi og dugnaður hennar í líf-
inu var fyrirmynd margra annarra.
Hún lét hindranir ávallt sem vind
um eyru þjóta, og náði flestum
þeim markmiðum sem hún setti sér.
Hún skilur eftir sig gott ævistarf,
bæði samfélagslega þegar litið er á
öll þau góðverk sem hún hefur unn-
ið í þágu þeirra sem átt hafa í erf-
iðleikum og eins þegar litið er á
yndislegu börnin hennar; Mæju,
Evu og Sverri og það fjölskyldulíf
sem hún, Ed og börnin sköpuðu.
Minningar mínar um Önnu
teygja sig langt aftur í bernsku
þegar við systurnar bjuggum með
foreldrum okkar í Bandaríkjunum.
Það var alltaf spennandi að vera
með Önnu og mikið fjör í kringum
hana. Hún var forvitin, leyndi ekki
skoðunum sínum, sýndi öllum
áhuga og var einstaklega fljót að
koma öllu í verk. Allt þetta gerði
hana að heillandi og skemmtilegri
manneskju. Þegar ég fór síðar í
nám til Bandaríkjanna studdi hún
mig með ráðum og dáðum og þar
sem ég hafði lítið farið að heiman
áður sá hún til þess að ég kæmi
mér vel fyrir á nýjum slóðum. Und-
anfarin ár fóru samskipti okkar
Önnu að mestu leyti fram símleiðis.
Samt sem áður náði hún að fylgjast
grannt með okkur Jóni og börn-
unum okkar og var mikið í mun um
að öllum liði vel.
Sambandið milli Önnu og systk-
ina hennar þeirra Þórarins, Edda,
Gústu og Steinu móður minnar var
einstakt. Hefur þetta samband
skapað sterk tengsl á milli okkar
systkinabarnanna sem tryggir góð-
ar samverustundir í framtíðinni og
skemmtilegar minningar og heldur
þeim sem farnir eru nær okkur.
Elsku Ed, Mæja, Eva, Sverrir,
Gústa og Eddi, megi guð styrkja
ykkur á þessum erfiðu tímamótum.
Hún Anna okkar verður alltaf lif-
andi í hjarta þeirra sem hana
þekktu.
Edda.
Sumarið 1973 situr feimin stúlka
aftur í bíl móðursystur sinnar.
Stúlkan dvelur hjá henni sumar-
langt. Leiðin liggur frá Bronx-
hverfi New York borgar út á Long
Island. Þangað er frænkan að flytja
með fjölskyldu sína. Stúlkan lítur út
um gluggann og sér í fjarska glæsi-
legar byggingar. ,,Anna Þóra,
hvaða stóru hús eru þetta? Þetta
eru Twin Towers!“ Og, sambærilegt
við þá, var allt í kringum yndislega
frænku mína glæsilegt og mikið, en
um leið sjálfsagt, eðlilegt og blátt
áfram. Hjartalag Önnu Þóru var
fallegt og hugprýði hennar einstök.
Þannig minnist ég elskulegrar
frænku sem ég kveð með virðingu.
Haustið 1969 tók Anna Þóra á
móti foreldrum mínum og þremur
börnum þeirra í New York. Hún
tók stórri fjölskyldu opnum örmum
og kom okkur af stað í nýrri borg.
Maja og Eva, dætur Önnu, og ég
gengum saman í PS 81, almennan
grunnskóla í Bronx.
Í skólanum á stúlkan litla, þá sex
ára, að kynna land og þjóð í ,,show
and tell“-tíma. Feimni stúlkunnar
er flestu yfirsterkara, þetta mun
hún aldrei gera! Anna frænka
kynnir því Ísland fyrir bekknum.
Það gerir hún af einlægni og virð-
ingu fyrir landi sínu og lítilli
frænku. Stúlkan fyllist stolti yfir
glæsilegri konu sem segir frá eld-
gosum, jöklum, ám og fjöllum,
löngum vetrum en snörpum sumr-
um á Íslandi. Bekkjarsystkinin
hlusta heilluð á og sjá, líkt og stúlk-
an, að innri fegurð frænkunnar er
jafn glæsileg og ytri ásjóna hennar.
Svo líður áratugur. Anna frænka
er í fríi á Íslandi. Fyrirvaralaust og
án málalenginga spyr hún unglings-
stúlku: ,,Ingibjörg, áttu kærasta?“
Feimna stúlkan er komin aftur,
hverfur inn í sig, roðnar og hugsar.
,,Af hverju þarftu að spyrja að
þessu?“ Unglingurinn játar en gerir
ekki meira en svo úr því að hún eigi
kærasta. Hann er þó hennar enn í
dag, fjórum börnum síðar.
Á þakkargjörðardag 1991 hringir
síminn hjá íslenskri fjölskyldu í
Seattle. ,,Ingibjörg mín, er kalkún-
ninn kominn í ofninn? Nei, nei, ég
ætla ekki að elda svoleiðis! Jú, elsk-
an mín þú verður að gera það, þetta
er svo stór hluti af amerískum kúlt-
ur. Á meðan þú býrð í Ameríku
þarftu að taka þátt í honum.“ Áður
en húsmóðirin veit af er hún búin
að kaupa kalkún og setja hann í
ofninn. Í hvívetna hefur ráðum
Önnu Þóru verið fylgt, en hún naut
þess að elda góðan mat og deila
með öðrum.
Nokkrum árum áður er ung kona
á leið ein inn í New York í fyrsta
skipti. ,,Mundu bara, Ingibjörg, ef
þú villist, haltu þá áfram að ganga
þar til þú veist hvar þú ert og láttu
engan sjá að þú sért hrædd!“ segir
Anna þegar við kveðjumst við lest-
ina. Þetta heillaráð hefur síðan nýst
mér í lífi og starfi og ég hef deilt
því með öðrum. Það verður vart
beðið um meira af kærri frænku.
Um leið og ég þakka fyrir samfylgd
Anna Þóra Guðmunds-
dóttir Harned