Morgunblaðið - 03.03.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 03.03.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞAÐ ER ekki laust við að Framsókn hafi hleypt lífi í þingheim í vikunni og reyndar svo miklu að stjórnarand- stæðingar tókust á loft seinni part fimmtudags. „Þetta gæti leitt til stjórnarslita,“ pískruðu menn spenntir sín í milli. Fjörið hófst á miðvikudag þegar félagsmálaráðherra tilkynnti hækk- un á íbúðalánum úr 80% í 90% og um leið að hámarkslánsfjárhæð yrði 18 milljónir króna í stað 17. Þetta var eitt af helstu kosningaloforðum Framsóknarflokksins og ekki seinna vænna að efna það. „Þú verður að spyrja félagsmálaráðherra um það. Þetta er hans mál,“ sagði Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, inntur eftir viðbrögðum í morgunútvarpi Rásar 1 sl. fimmtudag. Þingmenn Sjálfstæðisflokks eru mishrifnir af þessu föndri framsókn- armanna og halda að það geti komið illa niður á efnahagsástandinu. Kurrið í sjálfstæðismönnum minnkaði ekki þegar leiðtogar Fram- sóknarflokksins og ráðherrar, Jón Sigurðsson og Guðni Ágústsson, lýstu því skýrt yfir að Framsókn myndi ganga fast fram í að fá Sjálf- stæðisflokk til að standa við stjórn- arsáttmálann og setja inn ákvæði í stjórnarskrá þess efnis að auðlindir sjávar væru sameign þjóðarinnar. En stjórnarandstæðingar sperrtu eyrun. Samfylkingin hefur lagt mikla áherslu á að fá þetta ákvæði inn í stjórnarskrá en ekki náðist sam- komulag um það í stjórnarskrár- nefnd sem skilaði af sér nýverið. Sjálfstæðisflokkurinn var á móti. Áður hafði verið samið um að stjórnarskrárnefnd myndi engu skila af sér nema í fullu samráði og leiddi það til þess að samstaða náðist að- eins um eina breytingu. Sjálfstæð- ismenn eru í sjálfu sér ekki á móti sameignarákvæðinu en eru hræddir við orðalag greinarinnar enda ljóst að a.m.k. hluti stjórnarandstöðunnar vill með þessu ákvæði ná í gegn breytingum á fiskveiðistjórnarkerf- inu. Þó verður að teljast ólíklegt að Halldór Ásgrímsson hafi haft það í huga þegar hann og Davíð Oddsson gengu frá stjórnarsáttmálanum á sínum tíma og Framsókn leggur raunar áherslu á að styrkja enn frek- ar löggjafarvald Alþingis í þessum efnum. Framsókn þurfti líka að fara upp á afturfæturna í umræðum um Íraks- stríðið sl. fimmtudag en stjórnarand- staðan þreytist ekki á að kalla eftir afsökunarbeiðni af hálfu leiðtoga flokksins. Stuðningur við Íraks- stríðið var ekki að frumkvæði Fram- sóknar á sínum tíma en flokkurinn hefur engu að síður þurft að taka ábyrgð á því að leiðtoginn skuli hafa látið hafa sig út í það. Athygli vakti að sjálfstæðismenn voru víðs fjarri í þessum umræðum sem og þeim fyrr- nefndu. Það er gömul saga og ný að Fram- sókn reyni að skilja sig frá Sjálfstæð- isflokknum rétt fyrir kosningar og Jón Sigurðsson áréttaði það enn frekar í stefnuræðu sinni á flokks- þingi Framsóknar sem hófst í gær og heldur áfram í dag. Sjálfstæðismenn halda þó ró sinni enn sem komið er en þó er ólíklegt að allir þingmenn flokksins sýni jafn mikla þolinmæði og fyrir fjórum árum. Sjálfstæð- isflokkurinn hefur enda þegar komið sínum stærstu málum í gegnum þingið og hörð afstaða Framsókn- arflokksins hefur orðið til þess að sumir spá því að ríkisstjórnarsam- starfi gæti verið slitið nú á loka- sprettinum. Framsóknarflokkurinn hefur allt að vinna enda hefur hann komið illa út úr skoðanakönnunum undanfarið. Þar sem undirrituð er stundum dálít- ið „svag“ fyrir pólitískum tískubylgj- um hefur hún áður gerst sek um að spá Framsóknarflokknum dauða. Sá fjöldi fólks sem sækir flokksþing Framsóknar nú um helgina sýnir þó að flokkurinn er sannarlega ekki dauður úr öllum æðum og ætlar sér stóra hluti í vor. Markmiðið er fylgið á miðjunni og til þess er teflt fram bæði unnum og óunnum verkum. Á næstu dögum mun ráðast hversu hátt kurrið verður í sjálf- stæðismönnum fyrir sólóleikjum Framsóknar undanfarna viku og á meðan höldum við sem fyrir utan stöndum áfram að skella fram spám og samsæriskenningum um það sem verður. Líf og fjör í Framsókn ÞINGBRÉF Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is AUGLÝSINGAR Icelandair, sem Íslenska auglýsingastofan gerði fyr- ir félagið, sigruðu í fjórum flokkum af fjórtán á uppskeruhátíð íslensks auglýsingafólks í gær, Lúðrinum, at- hyglisverðustu auglýsingum ársins 2006. Ímark stendur að Lúðrinum. VR og Fíton sigruðu í tveimur flokkum sem báðir eru svonefndar almannaheillaauglýsingar, annars vegar í ljósvakamiðlum og hins veg- ar í prentmiðlum. „Góð hugmynd frá Íslandi“ Icelandair og Íslenska auglýs- ingastofan hlutu verðlaun í flokki dagblaðaauglýsinga, sjónvarps- auglýsinga, tímaritaauglýsinga og auglýsingaherferða. Í þremur fyrst- nefndu flokkunum var um að ræða auglýsingar sem nefnast „Góð hug- mynd frá Íslandi“. Auglýsinga- herferðin kallast hins vegar „Hug- urinn ber þig hálfa leið“. Almannaheillaauglýsingarnar sem VR og Fíton voru verðlaunuð fyrir eru annars vegar „Dapurlegt eftirmæli“ fyrir ljósvakamiðla og auglýsingin „Hvíldartími“ fyrir prentmiðla. Glitnir og Jónsson & Lemacks sigruðu í flokki útvarpsauglýsinga með auglýsingunni „Peningar kaupa ekki hamingjuna“. Iceland Airways tónlistarhátíðin og Jónsson & Lemacks hlutu verð- laun fyrir athyglisverðasta vegg- spjaldið en heiti þess er „Reykja- vík“. Athyglisverðasta umhverfisgraf- íkin var valin „Bláfjöll 30 km“ sem Ó! gerði fyrir Skíðasvæði höfuðborg- arsvæðisins. Móðir náttúra og Fabrikan voru verðlaunuð fyrir athyglisverðustu vöru- og firmamerki en heiti þess er „Móðir náttúra“. Athyglisverðasti markpósturinn var valinn „Þú fellur í stafi“, sem Ennemm vann fyrir Alfesca. Í opnum flokki fengu Egill Skalla- grímsson og Fíton verðlaun fyrir „Brennivín í lopapeysu“. Landsbankinn hlaut verðlaun fyr- ir athyglisverðustu vefauglýsinguna, „Landsbankadeildina“. Að síðustu fengu Trygginga- miðstöðin og Íslenska auglýs- ingastofan verðlaun fyrir viðburð sem var „Tryggingamiðstöðin 50 ára – skautasvell“. Tilnefndar voru alls 70 auglýs- ingar til verðlaunanna en innsend- ingar voru 470 talsins. Icelandair og Ís- lenska með mest Morgunblaðið/Árni Sæberg Verðlaunin Alls voru veitt 14 verðlaun í jafnmörgum flokkum þegar Lúð- urinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, voru afhent í gærkvöldi. FORSVARSMENN sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í kringum Skerjafjörð hafa ákveðið að skoða kosti þess að vernda náttúrufar Skerjafjarðar og nágrennis á vett- vangi Sambands íslenskra sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu. Fram kemur að í þessari vinnu verði tekið mið af sérstöðu svæð- isins með tilliti til lífríkis, jarð- myndana, útivistar og menning- arminja, en jafnframt þurfi að taka mið af aðalskipulagi sveitarfélag- anna hvað varði t.d. hafnaraðstöðu og byggingarhverfi sem þegar hafa verið skipulögð innan fyrirhugaðs verndarsvæðis eða fyrirætlanir eru uppi um að rísi þar. „Sérstaða svæðisins er m.a. fjöl- breytt fuglalíf sem þrífst á svæðinu allan ársins hring og hefur al- þjóðlegt verndargildi. Svæðið gegnir mikilvægu hlutverki varð- andi skuldbindingu Íslendinga um verndun svæða fyrir fugla sem staldra við á farleiðum sínum yfir Ísland vor og haust, því eins og kunnugt er safnast mikill fjöldi margæsa og rauðbrystinga saman á svæðinu og safnar orku til að ljúka flugi sínu á milli vetrarstöðva og varpstöðva,“ segir meðal annars. Vilja vernda Skerjafjörð HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt manni 620 þúsund króna bætur úr ríkissjóði vegna líkams- tjóns af völdum þess að hluti eyra hans var bitinn af. Bæturnar nema 2⁄3 hlutum af tjóni mannsins en þriðjunginn þarf hann að bera sjálfur. Maðurinn var á leið frá skemmtistað í miðborg Reykjavík- ur sumarið 2004 og lenti í götu- slagsmálum með þeim afleiðingum að hann var bitinn. Dómurinn taldi að eyrnabitið væri þess eðlis að það gæti ekki verið refsilaust samkvæmt hegn- ingarlögum. Því væri fullnægt skil- yrðum laga um að greiða skuli tjónþola bætur sé ekki vitað hver tjónvaldur er, hann sé ósakhæfur eða finnist ekki. Dómurinn taldi einnig að mað- urinn hefði með hegðun sinni í um- rætt sinn sett sjálfan sig í hættu á að verða fyrir höggum, spörkum og pústrum og þar með meiðslum sem slíkum átökum fylgi. Horfa yrði til þess, að mjög væri ein- staklingsbundið og í raun ófyr- irsjáanlegt hvaða aðferðum menn beita í götuslagsmálum, eins og þeim sem maðurinn tók þátt í. Þótt þannig væri ekki algengt að menn bitu hver annan í áflogum yrði slík afleiðing ekki talin algerlega ófyr- irsjáanleg eða fjarlæg, ekki síst þegar ölvun væri áberandi. Málið dæmdi Skúli Magnússon héraðsdómari. Bryndís Guðmunds- dóttir héraðsdómslögmaður flutti málið fyrir manninn og af hálfu stefnda flutti málið Guðrún Mar- grét Árnadóttir hæstaréttar- lögmaður. 620 þúsund fyr- ir eyrnabitið BORGARRÁÐ frestaði á fimmtu- dag afgreiðslu tillögu Vinstri grænna um að láta kanna hvort unnt sé að rifta samningi Reykja- víkur og Kópavogs vegna lagn- ingar vatnsleiðslu í Heiðmörk, sem undirritaður var í september í fyrra. Að sögn Björns Inga Hrafns- sonar, formanns borgarráðs, var tillagan fyrst kynnt á fundi ráðsins. „Þetta mál er í ákveðnum farvegi hjá borginni. Borgarritari og borg- arskipulag hafa farið með þetta mál. Það hefur ekki verið metið rétt að fara þá leið sem þessi tillaga gerir ráð fyrir.“ Borgin kanni hvort rifta eigi samningi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.