Morgunblaðið - 03.03.2007, Page 22
22 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Huglist Finnur Ingi Daníelsson og Sigurður Línberg sýna báðir verk.
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
GEÐFATLAÐIR sem búa á áfanga-
heimilum og í þjónustuíbúðum á Ak-
ureyri opna í dag listsýningu í Rós-
enborg, gamla barnaskólanum, og
þar kennir ýmissa grasa.
„Þetta er í fyrsta sinn sem áfanga-
heimilin eru sýnileg út á við, sem
mér finnst mikilvægt. Við bökkum
hvert annað dálítið upp og erum
mjög stolt af því að geta staðið sam-
an,“ sagði Finnur Ingi Daníelsson,
einn þeirra sem eiga verk á sýning-
unni, þegar Morgunblaðið leit þar
við í gær. Listamennirnir eru 12.
Lengi í listinni
Margir íbúanna hafa lengi fengist
við listsköpun og eiga því orðið mikið
safn verka. Sú hugmynd kom upp á
haustdögum að þeir settu upp sýn-
ingu og undirbúningur hefur staðið
yfir síðan.
Á sýningunni verður myndlist,
handverk, ljóð, tónlist, leirlist, gler-
list og fleira. Finnur Ingi og Sig-
urður Línberg voru að leggja loka-
hönd á að setja upp verk sín í gær.
Sýningin ber nafnið Huglist - Óð-
ur til augna og eyrna og við opn-
unina verður einmitt flutt samnefnt
lag eftir Atla Engilbertsson, en hann
leikur á trommur og syngur, Finnur
Ingi leikur á gítar og Sigurður á
bassa – sem hann lék á í fyrsta skipti
fyrir mánuði, en hefur verið fljótur
að læra, ef marka má taktana sem
hann sýndi á æfingunni í gær.
Að sýningunni lokinni ætla lista-
mennirnir að halda áfram með Hug-
list sem hóp; „þetta verður sjálf-
stætt félag okkar, óháð öllum
fagaðilum,“ sagði Sigurður. Þeir
voru sammála um að auðveldara
væri fyrir þá, sem ættu við geðræn
vandamál að stríða, að koma fram
sem hópur en að einstaklingarnir
sýndu hver í sínu lagi.
Þeir Finnur segjasta hafa fundið
fyrir fordómum á þann hátt að sumir
beri ekki virðingu fyrir list þeirra
þar sem hún sé unnin af geðsjúku
fólki. „Það er hópur fólks með geð-
ræn vandamál sem á verkin á sýn-
ingunni, og það er alls ekki og má
ekki vera leyndarmál, en listina þarf
ekki að skoða með það í huga.“
Þeir segja reyndar langflesta
ánægða með framtakið og Finnur
Ingi leggur áherslu á að listsköpunin
sé mjög uppbyggjandi. Flest verka
hans á sýningunni eru frá síðustu 3-4
árum; eftir þá hugarfarsbreytingu
sem nauðsynleg er til þess að geta
náð bata, eins og hann tekur til orða.
Tómar reiðiskálar!
Báðir fengust þeir við listsköpun á
árum áður en gerðu hlé á henni í
nokkur ár. Elsta mynd Sigurðar á
sýningunni er frá 1997, „en eftir að
ég byrjaði aftur vorið 2006 vinn ég á
allt öðrum grunni. Það er hægt að
segja að verkið mitt frá 97 sé eftir
mann sem er illa við allt í kringum
sig, en [leir]skálarnar sem ég sýni
núna eru tómar reiðiskálar!“ Hann
er sem sagt hættur að vera reiður.
„Erum mjög stolt af því
að geta staðið saman“
Í HNOTSKURN
»Sigrún Björk Jak-obsdóttir, bæjarstjóri á
Akureyri, opnar sýninguna í
Rósenborg formlega kl. 14 í
dag. Sýningin verður opin alla
daga kl. 14 -18 til 17. mars.
Geðfatlaðir opna
listsýningu í
Rósenborg dag
UM 100 keppendur tóku þátt í Ís-
landsmóti barna og unglinga í list-
hlaupi á skautum á Akureyri. Kepp-
endur voru frá Birninum,
Skautafélagi Reykjavíkur, auk
Skautafélags Akureyrar. Keppt var í
A- og B-flokkum og efstir urðu:
8 ára og yngri, B
1. Hrafnhildur Birgisdóttir SA, 2.
Guðrún Brynjólfsdóttir SA, 3. El-
ísabeth Tinna Arnarsdóttir, Birn-
inum, og Auður Ilona Henttinen,
Birninum.
10 ára og yngri, B
1. Elfa Rut Gísladóttir, Birninum, 2.
Hugrún Maríusardóttir, SR, 3. Júlía
Grétarsdóttir, SR.
12 ára og yngri, B
1. Sylvía Ösp Guðmundsdóttir, Birn-
inum, 2. Aldís Rúna Þórisdóttir, SA,
3. Þórunn Jörgensen, Birninum.
Drengir, 13 ára og yngri
Lars Davíð Gunnarss., Birninum.
14 ára og yngri, B
1. Tinna María Daníelsdóttir, SR, 2.
Bríet Magnúsdóttir, SR, 3. Sandra
Ósk Magnúsdóttir, SA.
15 ára og eldri, B
1. Sigrún Björgvinsdóttir, Birninum,
2. Ragnhildur Eik Árnadóttir, SR, 3.
Elín Björg Jónsdóttir, SR.
8 ára og yngri, A
1. Þuríður Björg Björgvinsdóttir,
Birninum, 2. Bríet Savarsd. Guð-
jónsdóttir, Birninum.
10 ára og yngri, A
1. Sunna Hrund Sverrisdóttir, Birn-
inum, 2. Urður Ylfa Arnarsdóttir,
SA, 3. Birta Rún Jóhannsdóttir, SA.
12 ára og yngri, A
1. Íris Lóa Eskin, Birninum, 2. Ásdís
Sigurbergsdóttir, Birninum, 3. Sig-
fríð Gyrðisdóttir, Birninum.
Novice
1. Sigrún Lind Sigurðardóttir, SA, 2.
Nadía Jamchi, SR, 3. Dana Rut
Gunnarsdóttir, SR.
Junior 1. Audrey Freyja Clarke, SA,
2. Íris Kara Heiðarsdóttir, SR, 3.
Hildur Ómarsdóttir, SR.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Flott mót Þetta er B-hópur Skautafélags Akureyrar sem keppti á mótinu.
Hundrað krakkar
kepptu í listhlaupi
Selfoss | „Við erum mjög ánægð
með að vinna að þessu verkefni hér í
Árborg og sérstaklega er ánægjuleg
sú nýjung að handsala víðtækt sam-
starf við Sjóvá Forvarnahús sem
leiðir af sér sérstaka einbeitingu að
forvörnum. Það hefur verið sýnt
fram á það að með átaki í forvörnum
hefur náðst mikill árangur,“ sagði
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, eftir
undirritun samnings milli Sjóvár og
Sveitarfélagsins Árborgar um vá-
tryggingar í kjölfar útboðs þar sem
tilboð Sjóvá var lægst.
Samningurinn um vátryggingar
nær til allra stofnana og fyrirtækja
sveitarfélagsins og er gildistími hans
fimm ár. Samningurinn tekur til
allra vátryggingaviðskipta Árborgar
svo sem brunatrygginga húseigna,
húseigenda- og lausafjártrygginga
og ábyrgðartrygginga bifreiða auk
slysatrygginga starfsmanna og
skólabarna.
„Við erum mjög ánægð með þetta
nýja samstarf og horfum með eftir-
væntingu til nýja forvarnarverkefn-
isins. Við viljum að Árborg verði í
forystu í forvörnum fyrir börn og
unglinga. Í hraðri uppbyggingu er
nauðsynlegt að vera vel vakandi í
þessum efnum,“ sagði Ragnheiður
Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborg-
ar.
Stofnanir njóta leiðsagnar
Við undirritun vátryggingasamn-
ingsins var einnig handsalað sam-
komulag um frekara forvarnasam-
starf á milli Árborgar og Sjóvár
Forvarnahúss. Samstarfssamning-
urinn um forvarnir tekur meðal ann-
ars til tjónagreiningar, áhættuskoð-
ana og öryggis skólabarna og hefur
það að markmiði að minnka líkur á
hvers konar tjónum eða koma í veg
fyrir tjón á eignum sveitarfélagsins
sem og hjá íbúum þess.
Við undirritunina kom fram að
stofnanir sveitarfélagsins munu
njóta leiðsagnar Sjóvár Forvarnar-
húss varðandi forvarnir og fyrir-
byggjandi þætti gagnvart óhöppum
og slysum.
Áhersla lögð
á forvarnir
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Handsal Þór Sigfússon, Ragnheið-
ur Hergeirsdóttir og Herdís
Storgaard handsala samninga.
Í HNOTSKURN
»Samstarfssamningur Ár-borgar og Sjóvár um for-
varnir tekur meðal annars til
tjónagreiningar, áhættuskoðana
og öryggis skólabarna og hefur
það að markmiði að minnka líkur
á hvers konar tjóni eða koma í
veg fyrir tjón á eignum sveitarfé-
lagsins sem og hjá íbúum þess.
Eftir Sigurð Jónsson
Flóahreppur | Nemendur í Flóaskóla luku í gær um-
ferðarátaksviku með glæsibrag og sýndu afrakstur
vinnu sinnar á umferðarhátíð í skólanum. Var for-
eldrum boðið að heimsækja skólann af þessu tilefni og
fleiri gestum. Sveitarstjóri Flóahrepps afhenti skól-
anum viðurkenningu og nemendur léku á hljóðfæri.
Flóaskóli er í samstarfi við Grundaskóla á Akranesi,
móðurskóla umferðarfræðslu, og er leiðtogaskóli fyrir
Suðurland í umferðarfræðslu. Að frumkvæði skólans
vinnur Vegagerðin nú að því að setja upp merkingar á
Villingaholtsvegi til að minna vegfarendur á að aka
varlega við skólann. Allir grunnskólar á Suðurlandi
geta leitað til Flóaskóla vegna umferðarfræðslu. Frið-
geir Hákonarson frá Umferðarstofu sagði markmiðið
með umferðarfræðslu vera að skila einstaklingum út í
samfélagið með rétt viðhorf til umferðarinnar.
Ingvar Guðmundsson, lögreglumaður á Selfossi, hef-
ur aðstoðað nemendur Flóaskóla við umferðarátakið
og fögnuðu nemendur honum vel þegar hann ávarpaði
þá en tveir lögreglumenn á Selfossi sinna umferð-
arfræðslu í skólum. Flóaskóli stefnir að því að gefa öll-
um nemendum reiðhjólahjálma fyrir vorið.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sýndu afraksturinn á umferðarhátíð
ÁRBORGARSVÆÐIÐ