Morgunblaðið - 03.03.2007, Síða 24

Morgunblaðið - 03.03.2007, Síða 24
|laugardagur|3. 3. 2007| mbl.is daglegtlíf Í miðju iðnaðarhverfi við Sundin blá býr listamannaparið Birgir Snæbjörn Birgisson og Sigrún Sigvaldadóttir. » 28 lifun Í sögu gallabuxnanna og ann- ars gallafatnaðar endurspegl- ast baráttu- og uppreisnarandi mannskepnunnar. » 26 tíska Hann er stútfullur af fordómum ogbölvaður þumbi í mannlegum sam-skiptum. Hann er erfiður en líkadálítið feiminn og rómantískur inn við beinið. Hann er snobbaður en ef maður skoðar undir yfirborðið þá leynist þar mjúkur maður. Svo er hann náttúrlega svakalega sexí,“ segir Lúðvík Snær Hermannsson um hroka- gikkinn herra Darcy sem hann leikur í sýning- unni Hroki og hleypidómar sem Kvennaskólinn frumsýnir á miðvikudaginn í Tjarnarbíói. Lúðvík er á lokaárinu sínu í Kvennó og hefur tekið þátt í öllum leiksýningum skólans. „Ég er með leiklistarbakteríu og stefni á Leiklist- arskólann hér heima á Íslandi eða úti í Lond- on.“ Andrea Elín Vilhjálmsdóttir leikur hitt aðal- hlutverkið, ungfrú Elísabetu Bennet. „Ég er ekki frá því að ég eigi þó nokkuð sameiginlegt með henni Elísabetu. Hún er mjög sjálfstæð og stendur fast á sínu. Hún er sérstök manneskja og hefur gaman af því að ögra fólki og hún fer stundum yfir strikið, sérstaklega miðað við það sem tíðkaðist um konur á þeim tíma sem leik- ritið gerist. Hún er með heilmikla hleypidóma þó að hún vilji ekki viðurkenna það. Lúðvík er allur marinn og blár því Elísabet lemur hann duglega í hverri sýningu. En þau kyssast líka mikið, þetta eru heitar ástríður,“ segir Andrea og hlær. Þau Andrea og Lúðvík hafa bæði séð bíó- myndina en auk þess hefur Andrea séð sjó- varpsþættina og Lúðvík hefur lesið söguna. „Þó að þetta gerist á átjándu öldinni þá á þetta fullt erindi í dag því að mannfólkið breyt- ist ekkert, það er alltaf að glíma við sömu grundvallarvandamálin.“ Andrea segir að frumsýningarspennan magnist með hverjum deginum en hún er á öðru ári í Kvennó og er þó nokkuð sviðsvön. „Ég lék í skólaleikritinu í fyrra en auk þess hef ég tekið þátt í námskeiðum í Borgarleikhúsinu og verið með í Möguleikhúsinu.“ Rúmlega þrjátíu krakkar leika í sýningunni og Sigrún Sól Ólafsdóttir sér um að leikstýra þessum stóra hóp, en hún sá líka um leikgerð- ina. Fjögurra manna hljómsveit var sett saman fyrir sýninguna sem spilar „life“ á hverri sýn- ingu og tónlistin var frumsamin sérstaklega fyrir leikritið. khk@mbl.is Morgunblaðið/Golli Aðsvif Hin kauðska ungfrú Debough er hér gripin af skrautlegum hópi vinkvenna sinna í einu af geðshræringarkastinu. Skrautlegt Grímur og æpandi litir setja svip á sýninguna. Ástartaktar Elisabeth lætur líða yfir sig svo hún falli í faðm Darcys. Tveir þverhausar Þegar saman koma hroki, hleypidómar og misskilningur er næsta víst að útkoman verður skrautleg. Kristín Heiða Kristinsdóttir leit við á æfingu hjá Kvennó sem frumsýnir í næstu viku rómantískan gamanleik um tilfinningabrölt og samskipti kynjanna sem byggður er á sívinsælli sögu Jane Austin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.