Morgunblaðið - 03.03.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 31
ytast bæði samfélag okkar
mbandið sjálft og því eru
ðanir um breytta stefnu
r nú. Við höfnum því að Ís-
hrekja sig til aðildar vegna
dræða eða uppgjafar. Við
ð skapa okkur örlög sem
g frjáls þjóð,“ sagði Jón.
Framsóknarmenn vera þá
ast vera og að þjóðin gæti
erkunum. „Við aðhyllumst
samvinnu og þjóðlega fé-
élagshyggja okkar er ekki
r þjóðhyggja og á rætur í
dinga fyrir þjóðfrelsi, end-
framförum. Við leggjum
eg, félagsleg og mannúðleg
ginu. Við teljum mikilvægt
sanngirni ráði úrslitum um
ðin nýtur ávaxtanna af
talífi og markaðshagkerfi
jafnframt að markaðslög-
úta mannúðlegum, siðferði-
nningarlegum skilmálum,
m manngildi ofar auðgildi,“
ætti við að hugsjónir Fram-
s væru tengdar lífsbaráttu
da segjum við gjarnan að
ónir í vinnufötum.“
mikilvægi Framsóknar-
skýrara ef horft væri til
a flokka í að ryðjast inn á
miðjuna. „Sem fyrr verðum við að að-
greina okkur vel sem Framsóknarmenn í
kosningabaráttunni. Stjórnarsamstarfið
hefur gengið ágætlega en það liggur fyrir
að áherslur stjórnarflokkanna eru ólíkar.
Og ekki fer á milli mála að margt er til
ágreinings milli okkar og annarra flokka.
En bæði frá hægri og vinstri eru menn að
laumast inn á miðjuna og blekkja fólk til
fylgilags við sig með fagurgala,“ sagði Jón
og taldi fylgi Framsóknar ráða úrslitum
varðandi hvernig stjórn eða stjórnar-
stefna verði hér á landi.
Jón sagði Framsóknarflokkinn standa
öðrum flokkum framar í að bjóða konum
og ungu fólki forystuhlutverk. Hann sagði
kynjahlutföll á framboðslistum fokksins
vera næsta jöfn og flokkinn samanstanda
af fólki af öllum stigum þjóðfélagsins.
„Við höfum nú þegar náð árangri sem við
óskum að aðrir nái einhvern tíma líka,“
sagði Jón og uppskar lófatak frá áheyr-
endum.
Jón lagði áherslu á að á Íslandi væri
kraftmikið og vel menntað fólk sem sækti
fram á öllum sviðum. „Við eigum að skapa
ytri skilyrði til sóknar á öllum sviðum. Við
sjáum gríðarlega möguleika í samfélagi
framtíðarinnar, samfélagi jafnra tæki-
færa. Við framsóknarmenn erum á leið-
inni þangað – verið með okkur á miðj-
unni,“ sagði Jón að lokum.
t.a.m. vera áfram í
eigu þjóðarinnar.
„Þetta er önnur
stefna en Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur.“
Guðni sagði að færi
Framsóknarflokk-
urinn illa í komandi
kosningum myndi
upplausn blasa við.
„Ísland er á grænu
na,“ sagði Guðni og sagði
r að það væri hættuleg
og stöðvunar ef sósíal-
éðu ríkjum í bæði Vinstri
mfylkingu, kæmust til
ri auðvitað hræðilegt ef
ð svonefnda, fólkið, sem
fir kaffibolla í snakki á
næði hér völdum og
gði Guðni.
t umbótaafl
álanna
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
n hafa náð árangri í jafnréttismálum sem hann óski þess að aðrir nái
karla í ríkisstjórn og jafnt hlutfall á framboðslistum.
» Félagshyggja okkar er
ekki sósíalísk heldur
þjóðhyggja og á rætur í
baráttu Íslendinga fyrir
þjóðfrelsi, endurreisn og
framförum.
» Við framsóknarmenn
leggjum ákaflega þunga
áherslu á að staðið verði við
það ákvæði í samstarfs-
samningi ríkisstjórn-
arinnar sem kveður á um
sameign þjóðarinnar á auð-
lindum.
» Við höfnum því að Ís-
lendingar láti hrekja sig
til aðildar vegna einhverra
vandræða eða uppgjafar.
Við eigum sjálf að skapa
okkur örlög sem metn-
aðarfull og frjáls þjóð.
ið
kinn
EFNAHAGSLEG velgengni Íra á
síðustu tveimur áratugum hefur vakið
heimsathygli. Eftir áralanga baráttu við
þrálátt atvinnuleysi og hallabúskap náðu
Írar góðum tökum á efnahagsmálum
sínum undir lok níunda áratugar lið-
innar aldar. Upp frá því hefur öflugur
hagvöxtur lyft þeim í röð tekjuhæstu
þjóða. Síðustu fimmtán ár-
in hafa Írar náð meiri hag-
vexti en nokkur önnur
þjóð innan OECD. Hag-
vöxtur hefur verið jafn og
árviss frá aldamótum, á
bilinu 4–6% ár hvert, og
horfur eru óbreyttar að
þessu leyti næstu árin.
Það er sérlega athygl-
isverður árangur.
Bæði Írar sjálfir og aðr-
ir sem fylgst hafa með
málum nefna einkum
tvennt sem skýrt geti
írska efnahagsundrið,
annars vegar aðild Írlands
að Evrópusambandinu og
evrusvæðinu og hins vegar
reglulega samninga
stjórnvalda og aðila á
vinnumarkaði auk fulltrúa
frjálsra félagasamtaka.
Þeir samningar kveða á
um víðtækt samstarf um
efnahags- og félagsmál
sem Írar nefna Social
Partnership og líklega
mætti kalla þjóðarsátt-
arsamstarf á íslensku.
Um miðjan níunda ára-
tug liðinnar aldar var Ír-
land í kreppu, hneppt í
fjötra efnahagslegrar
stöðnunar, verðbólgu, við-
skiptahalla, hækkandi skatta og sívax-
andi skuldabyrði. Til þess að rjúfa þenn-
an vítahring gerði ríkisstjórnin
samkomulag við fulltrúa verkalýðs-
félaga, vinnveitenda og frjálsra fé-
lagasamtaka um endurreisn í efnahags-
málum sem hrint skyldi í framkvæmd á
árunum 1987 til 1990. Þetta var fyrsta
þjóðarsáttaráætlunin. Síðan hafa verið
gerðar fimm slíkar áætlanir sem vakið
hafa mikla athygli. Írska þjóðarsátt-
araðferðin við stjórn efnahags- og fé-
lagsmála hefur gefið góða raun.
Mikilvægur efniviður í þjóðarsátt-
arsamningana er sérstakt yfirlit um
ástand og horfur í efnahags- og fé-
lagsmálum sem Efnahags- og félags-
málaráð Írlands (National Economic
and Social Council, NESC) gefur út á
þriggja ára fresti í þessu skyni. NESC
hefur starfað allt frá árinu 1973, en hlut-
verk þess er að greina og lýsa meg-
instefnumálum sem stuðlað geti að hag-
kvæmri framvindu í þjóðarbúskapnum
og félagslegu réttlæti. Á síðari árum hef-
ur þjónustuhlutverk NESC við gerð
þjóðarsáttarsamninga (Social Partners-
hip Agreements) orðið æ mikilvægara.
Tveggja áratuga þjóðarsáttarsam-
starf hefur greitt fyrir því að víðtækt
samkomulag næðist um forgangsröð í
landsmálum. Það hefur lagt grunn að
öflugum hagvexti, stöðugleika í opinber-
um fjármálum, bættu skipulagi í þjóð-
arbúskapnum og stórbættum lífskjörum
almennings, bæði með lækkun skatta og
hjöðnun verðbólgu. Þjóðarsáttin hefur
haft í för með sér virkar samræður og
samstarf aðila á ólíkum sviðum þjóðlífs-
ins sem orðið hefur öllum til gagns.
Mikið vatn hefur til sjávar runnið frá
því Írland var í efnahagskreppu á átt-
unda áratugnum, en enn treysta Írar á
þjóðarsáttina sem bestu leiðina til þess
að takast á við vanda samfélagsins á líð-
andi stund og í náinni framtíð. Síðasta
þjóðarsáttarsamkomulagið hefur yf-
irskriftina ‘Fram til 2016’. Þetta tíu ára
samkomulag var birt um mitt ár 2006.
Fram til 2016: Æviferilsaðferðin
Þessi síðasta þjóðarsátt er athygl-
isverð vegna þess meðal annars að þar
er tekið með nýstárlegum hætti á þeim
verkefnum á sviði efnahags- og félags-
mála sem við er að fást á næstu árum.
Athyglinni er beint að þeim vanda sem
hver einstaklingur glímir við á tilteknu
skeiði ævinnar. Í þessu felst að fjallað er
sérstaklega um málefni barna, unglinga,
fólks á starfsaldri, aldraðra og öryrkja.
Rík áhersla er lögð á að samþætta að-
gerðir á sviði efnahags- og félagsmála
fyrir hvert æviskeið. Æviferilsaðferðin
(life cycle approach) beinir athyglinni
sérstaklega að nauðsyn þess að opinber
þjónustu sé umfram allt sniðin að þörf-
um einstaklinga, en ekki bundin af
rótgróinni stofnanaskipan stjórnsýsl-
unnar. Þessi aðferð kann að leiða til um-
fangsmikilla breytinga á opinberri þjón-
ustu, og meðal annars af þeim sökum
þótti nauðsynlegt að ætla langan tíma til
að framkvæma áætlunina eða heilan
áratug. Viðfangsefnin eru ærin, því að
tekjuskipting á Írlandi er
ójafnari en í flestum öðrum
hátekjulöndum. Írar eru til
dæmis eftirbátar Norð-
urlandaþjóða í jafnréttis-
og félagsmálum. Því er
skiljanlegt að ætla þurfi
drjúgan tíma til þeirra
brýnu félagslegu umbóta
sem settar eru á oddinn í
þessari síðustu þjóðarsátt.
Í fyrsta kafla sam-
komulagsins er fjallað um
heildarstærðir þjóð-
arbúskaparins og horfur
tengdar þeim á árabilinu
fram til 2016 og um helstu
þætti í stjórn efnahags-
mála. Þar er kveðið skýrt á
um efnahagslegan stöð-
ugleika, samkeppnishæfni
atvinnuveganna og sjálf-
bæran hagvöxt. Litið er á
fjárfestingu í menntun og
rannsóknum og stuðning
við starfsmenntun og nýj-
ungar í atvinnulífinu sem
mikilvæga leið til framfara.
Sama gildir um aðgerðir til
þess að auka samkeppni á
innanlandsmarkaði á öllum
sviðum og umbætur í reglu-
skipan atvinnulífsins til ein-
földunar og aukins frjáls-
ræðis um leið og hagsmuna
neytenda sé gætt.
Í öðrum meginkafla samkomulagsins
er æviferilsaðkoman að efnahagslegum
og félagslegum viðfangsefnum næsta
áratugar kynnt til sögunnar. Þar er á at-
hyglisverðan hátt sett fram umbótaáætl-
un fyrir hvert æviskeið: barnsaldur,
æskuár, starfsár og elliár, auk þess sem
fjallað er sérstaklega um málefni ör-
yrkja. Í áætluninni eru sett sérstök
markmið tengd hverju æviskeiði og
verkefni hins opinbera og annarra skil-
greind svo að þeim megi ná. Æviferils-
aðferðin setur einstaklinginn og við-
fangsefni hans á hverju æviskeiði sem
fremstu viðmiðun allra stefnuákvarðana
í þjóðmálum. Þess er freistað að meta
hver vandi steðji að einstaklingum á
ólíkum tímum ævinnar og hverjum
stuðningi þeir þurfi á að halda frá sam-
félaginu til þess að sigrast á honum.
Þannig fái þeir tækifæri til þroska og
geti best notið hæfileika sinna.
Í sérstökum hluta samkomulagsins er
síðan fjallað um þróun launa á fyrstu ár-
um gildistímans og settur tölusettur
rammi um launabreytingar bæði á al-
mennum vinnumarkaði og í opinberum
störfum. Þessum launaramma er ætlað
að tryggja í senn sanngjarnar kjarabæt-
ur og stöðugleika í efnahagsmálum. Í
þessum þætti samkomulagsins er einnig
fjallað um margvísleg málefni sem
tengjast launamálum, svo sem lág-
markslaun, starfsmenntun á vinnustöð-
um, viðbótarmenntun starfsfólks, lífeyr-
ismál og æskilegt jafnvægi milli vinnu
og fjölskyldulífs.
Í írsku þjóðarsáttinni felst að aðilar á
vinnumarkaði og fulltrúar frjálsra sam-
taka á ýmsum sviðum taka þátt í mótun
stefnu á breiðu sviði þjóðmála ásamt
þingi og ríkisstjórn. Forsenda árang-
urríks samstarfs er ekki síst sú að við
sáttargerðina sé til fulltingis öflug stofn-
un sem undirbýr samningana með rann-
sóknum og tæknilegri útfærslu.
Þessu hlutverki gegnir NESC og
tengdar stofnanir. Í áranna rás hefur
myndast net stofnana í kringum þjóð-
arsáttarstarfið sem forsætisráðherrann,
Bertie Ahern, kallar reyndar með
nokkru stolti ‘þjóðarsáttarkerfið’ (Sys-
tem of Social Partnership). Þjóðarsáttin
hefur borið hróður Írlands víða. Vafa-
laust má draga gagnlegan lærdóm af
reynslu Íra í þessum efnum. Einkum
virðist athyglisverð æviferilsaðferðin við
mótun stefnu í efnahags- og fé-
lagsmálum sem beitt er þegar Írar horfa
fram til ársins 2016.
Írska þjóðarsáttin
Eftir Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson
» Þess erfreistað að
meta hver vandi
steðji að ein-
staklingum á
ólíkum tímum
ævinnar og
hverjum stuðn-
ingi þeir þurfi á
að halda frá
samfélaginu til
þess að sigrast á
honum.
Höfundur er fv. bankastjóri Norræna
fjárfestingarbankans, alþingismaður og
ráðherra.
Fjöldi ályktana liggur fyrir flokksþingi
Framsóknarflokksins um helgina en unn-
ið verður í fjórum hópum. Fyrsti hópuirnn
tekst á við málefni varðandi stjórn-
arráðið, dómsmál, innflytjendamál og
sveitastjórnarmál. Annar hópurinn fjallar
um atvinnu-, mennta- og byggðamál.
Þriðji hópurinn ræðir félags- og heilbrigð-
ismál og sá fjórði utanríkis- og umhverf-
ismál.
Skýrari stjórnskipan
„Framsóknarflokkurinn vill skýrari verka-
skiptingu í Stjórnarráðinu. Verkaskipting
ráðuneyta skal taka tillit til samfélags- og
atvinnuhátta og áherslna ríkisstjórnar á
hverjum tíma,“ segir í drögum að ályktun
um stjórnarráðið þar sem lögð er áhersla
á að ráðuneyti verði ekki fleiri en tíu. Þá
er einnig lagt til að ráðherrar gegni ekki
þingmennsku til að skerpa enn frekar
skilin á milli framkvæmda- og löggjaf-
arvalds.
Efling sveitarstjórn-
arstigsins
Í ályktunum sem liggja fyrir þinginu er
lögð mikil áhersla á að efla sveitarstjórn-
arstigið og m.a. lagt til að heilsugæsla,
málefni aldraðra og fatlaðra og fram-
haldsskólar verði flutt til sveitarfélag-
anna. „Sveitarstjórnarstigið á að vera
sterkt og veita íbúum sínum fjölbreytta og
öfluga nærþjónustu og stuðla að heil-
brigðu samfélagi,“ segir í drögum að
ályktun.
Íslenskukunnátta lykill-
inn að samfélaginu
„Innflytjendur eiga að geta aðlagast ís-
lensku samfélagi og nýta hæfileika sína
til fullrar þátttöku í síbreytilegu samfélagi
sem er stöðugri þróun. Kunnátta í ís-
lensku er lykillinn að samfélaginu, en
áherslu á íslenskumá þó ekki nota sem
tylliástæðu til þess að skerða réttindi,“
segir í ályktun um málefni innflytjenda.
Þar er jafnframt sagt að Íslendingar eigi
að leggja sitt af mörkum við að bjarga
flóttafólki frá hörmulegum aðstæðum í
samræmi við alþjóðasáttmála og lagt til
að atvinnuleyfi verið gefið út til ein-
staklinga fremur en atvinnurekenda að
því gefnu að viðkomandi hafi tryggt sér at-
vinnu. Þá er lögð áhersla á að styrkja
stöðu kvenna af erlendum uppruna, t.d.
þegar skilnaður verður vegna heimilis-
ofbeldis.
Skólaskylda frá 5-18 ára
Í ályktunum um menntamál er lagt til að
skólaskylda hefjist við fimm ára aldurs og
nái fram til 18 ára aldurs í samræmi við
sjálfræðisaldur. Leikskólinn verði gjald-
frjáls og samvinna leikskólakennara og
kennara í yngri deildum aukin. „Auka þarf
sveigjanleika grunnskólastigsins með
einstaklingsmiðað nám að leiðarljósi þar
sem hæfileikar hvers og eins fái notið
sín. Kennslan skal mæta þörfum bæði
innfæddra og aðfluttra Íslendinga.
Tryggja þarf nemendum með annað móð-
urmál en íslensku, allt frá leikskóla,
kennslu í íslensku og aðlögun að ís-
lensku samfélagi,“ segir jafnframt í álykt-
un um grunnskólastigið. Þá er lögð
áhersla á að allir geti lagt stund á fram-
haldsnám og mælst til þess að skráning-
argjald í ríkisreknum háskólum sé haldið í
lágmarki og að Lánasjóður íslenskra
námsanna tryggi fjárhagslegt öryggi lán-
þega sinna.
Á að tryggja fæðuöryggi
„Íslenskur landbúnaður á áfram að fram-
leiða holl matvæli fyrir íslenska þjóð með
hóflegum kostnaði og tryggja með því eft-
ir föngum matvælaöryggi og fæðuöryggi
þjóðarinnar. Eitt markmið landbún-
aðarstefnunnar er að treysta búsetu á
landsbyggðinni. Þá er landbúnaðarstefn-
unni ætlað að viðhalda mikilvægum hluta
af menningararfleifð þjóðarinnar,“ segir í
drögum að ályktun um landbúnaðarmál
þar sem jafnframt er lögð áhersla á að
gerð verði ítarleg athugun á kostnaði ís-
lenskra búvara frá haga til maga og leita
leiða til að lækka sem flesta kostn-
aðarliði.
Jafnrétti og 12
mánaða fæðingarorlof
Þá liggja fyrir drög að ályktun um jafnrétt-
ismál þar sem m.a. er lagt til að lengja
fæðingarorlof í 12 mánuði. „Tryggja þarf
jafnan rétt kvenna og karla á öllum svið-
um samfélagsins. Að einstaklinga eigi
jafnan möguleika á að njóta eigin atorku
og þroska hæfileika sína óháð kynferði,“
segir í drögunum.
Helstu ályktanir