Morgunblaðið - 03.03.2007, Qupperneq 48
|laugardagur|3. 3. 2007| mbl.is
staðurstund
Hlustendur og þátttakendur í
útvarpsþættinum Orð skulu
standa yrkja að þessu sinni um
klámráðstefnuna aflýstu. » 50
útvarp
Raggi Bjarna fagnar í dag hálfr-
ar aldar söngafmæli sínu og
blæs til tvennra stórtónleika í
Háskólabíói. » 49
tónlist
María Kristjánsdóttir fjallar um
sýninguna Killer Joe sem frum-
sýnd var í Borgarleikhúsinu síð-
astliðinn fimmtudag. » 51
dómur
Girni og viður er yfirskrift tón-
leika kammerhópsins Nordic
Affect sem fram fara í Þjóð-
menningarhúsinu í dag. » 51
tónlist
Angelina Jolie og Brad Pitt
hyggjast nú ættleiða sitt þriðja
barn og í þetta sinn er stefnan
tekin á Víetnam. » 57
fólk
Miklar vonir hafa veriðbundnar við Jakobín-urínu, allt frá þvísveitin bar sigur úr
býtum í Músíktilraunum í mars ár-
ið 2005. Hljómsveitin hefur vakið
töluverða athygli erlendis og spilað
á fjölmörgum tónleikum og tónlist-
arhátíðum á erlendri grundu, þrátt
fyrir að hafa ekki gefið út eina ein-
ustu plötu. Það stendur hins vegar
til bóta í sumar þegar frumburður
sveitarinnar lítur dagsins ljós.
Hljómsveitin kom heim frá Bret-
landseyjum á miðvikudaginn, en
þar hafði hún dvalið í tæpa tvo
mánuði. Fyrst var hún í upptökum
í Wales, en fór svo í tónleika-
ferðalag um Bretland. „Upptök-
urnar hófust í Wales 4. janúar og
stóðu yfir fram í lok janúar,“ segir
Gunnar Ragnarsson söngvari. „Svo
fórum við á tónleikaferðalag og
spiluðum á tónleikum í Skotlandi,
Englandi og Wales. Þetta voru
nokkuð margir tónleikar, ég er ekki
alveg með töluna en þetta var alla-
vega tveggja stafa tala.“
Tókst ætlunarverkið
Gunnar segir að bæði tónleika-
ferðalagið og upptökurnar hafi
gengið vel, og að þetta hafi allt
saman verið hið mesta fjör. „Við
erum mjög ánægðir með upptök-
urnar og okkur tókst að klára allt
sem við ætluðum að taka upp.
Núna eigum við bara eftir svona
viku í hljóðblöndun, og þá er platan
tilbúin,“ segir hann, en alls tóku
þeir félagar upp ein 15 lög. „Við
ætlum hins vegar ekki að nota þau
öll, þetta verður líklega 11 eða 12
laga plata.“
Aðspurður segir Gunnar að á
plötunni verði bæði nýtt og eldra
efni. „Þetta elsta er alveg tveggja
ára, þetta er sem sagt efni sem við
höfum samið á seinustu tveimur ár-
um,“ segir hann.
Nafnlausa platan
Það var upptökustjórinn Stan
Kybert sem stjórnaði upptökum á
nýju plötunni en 12 Tónar munu
gefa hana út hér á landi. Ekki er
hins vegar alveg víst hvaða fyr-
irtæki muni gefa hana út erlendis.
Gunnar segir að ef allt gangi að
óskum muni platan koma út
snemma í sumar. „Ég mundi segja
í maí eða júní,“ segir hann, og bæt-
ir því við að engar ákvarðanir hafi
verið teknar varðandi nafn nýju
plötunnar. „Allavega ekkert sem
við viljum gefa út,“ segir hann í
léttum dúr.
Þrátt fyrir að vera nýkomnir úr
tónleikaferðalagi um Bretlands-
eyjar segir Gunnar að þeir muni
fylgja plötunni eftir með annarri
ferð um Bretland í maí. Engar
ákvarðanir hafi hins vegar verið
teknar um tónleika hér á landi, og
því ljóst að aðdáendur Jakobín-
urínu á Íslandi verða að kross-
leggja fingur og vona það besta.
Frumburðurinn varð til í Wales
Hljómsveitin Jakobínarína er nýkomin heim frá Bretlandseyjum þar sem hún tók upp nýja plötu og fór að því loknu í tónleika-
ferðalag. Jóhann Bjarni Kolbeinsson heyrði í Gunnari Ragnarssyni, söngvara sveitarinnar, af þessu tilefni.
www.myspace.com/jakobinarina
Ljósmynd/Gareth Drake
GUÐRÚN Kristjánsdóttir myndlistarkona
opnar sýningu á verkum sínum í Ásmund-
arsal og Gryfju Listasafns ASÍ í dag.
Guðrún hefur fengist við flatarafst-
raksjónir úr landslagi og sökkt sér ofan í
birtubrigði landsins í röð mynda þar sem
sjóndeildarhringurinn, skil himins og lands
eða hafflatar er myndefnið, auk mynda þar
sem fjallshlíðarnar fylla upp í myndflötinn.
Þær síðastnefndu hafa breyst ört frá því að
skrá fleti í landslaginu og skafla í hlíðum yfir
í munstur snjóa við leysingar, eins og segir í
tilkynningu.
Á þessari sýningu beitir hún öllum þessum
aðferðum til að teikna heildstæða og umlykj-
andi mynd, eins konar umhverfi, þar sem
áhorfandanum er sökkt inn í veröld þessara
veðurskrifuðu forma. Þessi skrift verður að
vísu ekki lesin eins og bók en krefst þó vissu-
lega eins konar læsis sem felst einmitt í þeirri
samþættingu náttúrupplifunar og afstrakt
hugsunar sem Guðrún ræktar með sér og
hjálpar okkur til að skilja þegar við gaum-
gæfum verk hennar. Sýningin stendur til 25.
mars en þann 11. fer fram listamannaspjall
þar sem Guðrún ræðir um verk sín og leiðir
gesti um sýninguna. Í Arinstofu stendur yfir
sýning franska listamannsins Etienne de
France. Sýningin er hluti af frönsku menn-
ingarhátíðinni Pourqui Pas?
Af birtubrigðum
og landslagi
Morgunblaðið/G.Rúnar
Myndlist Guðrún Kristjánsdóttir sýnir verk sín í listasafni ASÍ