Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 49
menning
Hoffmannsgallerí er alls ekk-ert gallerí heldur baragangurinn þar sem skrif-
stofur Reykjavíkurakademíunnar
er að finna, í húsnæði hennar við
Hringbraut. Þarna eru reglulega
haldnar myndlistarsýningar og
þegar þær eru skoðaðar skapar
það alveg sérstakt andrúmsloft að
sjá og heyra út undan sér fræði-
menn við störf og spjall.
En hver var hann þessi Hoff-mann sem gangurinn í
Reykjavíkurakademíunni kennir
sig við? Í grein sem Ólafur J. Eng-
ilbertsson skrifar í veftímaritið
Kistuna árið 2005 kemur fram að
Pétur Hoffmann Salómonsson hafi
reist sér skúr í Selsvörinni, rétt hjá
þar sem Reykjavíkurakademían er
til húsa, og búið þar 1948–60. Í
Selsvörinni voru einnig ruslahaug-
ar borgarinnar. Hoffmann gerði út
á hrognkelsi og ruslið á haugunum
og kallaði ströndina Gullströndina
því þar fann hann bæði mynt og
heiðurspeninga. Sú nafngift gekk
ennfremur aftur í sýningunni Gull-
ströndin andar, lifandi listsýningu
sem haldin var í JL-húsinu við
Hringbraut 1982. Þeir sem hafa
áhuga á ævi Hoffmanns geta leitað
uppi ævisögu hans, ritaða af Stef-
áni Jónssyni, sem gefin var út af
Ægisútgáfunni árið 1963.
Nú hefur verið sett upp sýning áganginum sem byggist á
tengslum orða og mynda. Sýning-
arstjórar eru þeir Davíð Stef-
ánsson og Kristinn G. Harðarson
og bæði myndlistarmenn og ljóð-
skáld eiga þar verk, m.a. nokkrir
myndlistarmenn sem markvisst
hafa notað texta í verkum sínum,
eins og Þorvaldur Þorsteinsson,
Ásta Ólafsdóttir og Hlynur Halls-
son sem öll nálgast viðfangsefnið á
ólíkan máta. Þorvaldur veltir fyrir
sér ímynd Akureyrar, Ásta teng-
ingu íslensks samfélags og ein-
staklingsins innan þess við hinn
stóra heim og Hlynur setur fram
hugmyndir sínar um tengsl lífs og
listar. Hreinn Friðfinnsson sýnir
fallegt verk sem speglar viðfangs-
efnið skemmtilega og eftir-
minnilega. Ljóðmyndir Óskars
Árna Óskarssonar eru bæði húm-
orískar og óræðar, til dæmis átti
ég erfitt með að lesa úr myndinni
Þórbergur Þórðarson skoðar Sí-
ríus þó að aðrar væru augljósar
eins og Jarðarför í rigningu. Sýnd
eru ljóð úr bókum Gyrðis Elíasson-
ar frá 1984 og ’85 sem endurspegla
áhuga hans á myndlist og á þeim
tíma á eins konar konkretljóðum.
Eftirminnilegt er þar ljóð hans
byggt á málverki eftir Scheving.
Davíð Stefánsson sýnir verk í anda
Hoffmanns, fundið umferðarskilti
undir titlinum Hið fundna vill líka.
Sýningin segir ekki mikið umtengsl orða og mynda í íslensk-
um listheimi svona almennt eða í
gegnum tíðina og það fer ekki mik-
ið fyrir henni, en hún gefur engu
að síður örlitla innsýn í það hvern-
ig íslenskir listamenn og ljóðskáld
hafa nálgast viðfangsefnið og
óhætt er að mæla með innliti á
hana.
Í Reykjavíkurakademíunni má
einnig sjá sýninguna Bókalíf, bók-
verk eftir Unni Guðrúnu Óttars-
dóttur.
Skörun tveggja heima
AF LISTUM
Ragna Sigurðardóttir
»Hoffmann gerði út áhrognkelsi og ruslið á
haugunum og kallaði
ströndina Gullströndina
því þar fann hann bæði
mynt og heiðurspen-
inga.
ragnahoh@simnet.is
Bókverk Unnur Guðrún Óttarsdóttir sýnir um þessar mundir bókverk á
myndlistarsýningunni Bókalíf í Reykjavíkur Akademíunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Orðlist Af sýningunni Að mynda orð
Fréttir
í tölvupósti
SKRIFSTOFU- OG ÞJÓNUSTUHÚSNÆÐI ÓSKAST
– KAUP EÐA LEIGA –
Eignamiðlun ehf. hefur verið beðið um að útvega viðskiptavin
sínum ca 1.000 fm húsnæði. Eignin má skiptast á tvær hæðir en
best væri ef allir fermetrarnir væru á einni hæð. Skilyrði er að
eigninni fylgi 40-50 bílastæði. Hverfin sem koma til greina eru
101, 103, 105 og 108. Önnur hverfi koma ekki til greina.
Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson, lögg. fasteignasali.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Mjög vel skipulögð og björt 142 fm neðri
sérhæð í þríbýlishúsi á þessum eftirsótta
stað í Hlíðunum auk 16,0 fm þvottaherbergis og geymslu. Hæðin
skiptist m.a. í stórt hol, stórar samliggjandi stofur með fallegum
rennihurðum, 3 herbergi, stórt eldhús með góðum borðkrók og
flísalagt baðherbergi. Nýtt eikarparket á öllum gólfum nema á
baðherbergi. Útgengi á suðursvalir úr stofu og úr hjónaherbergi.
Um er að ræða eftirsótta eign á eftirsóttum stað. Stutt í skóla
og leikskóla. Verð 43,9 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 16-18
Verið velkomin.
Skaftahlíð 13
Neðri sérhæð í þríbýlishúsi
Opið hús í dag frá kl. 16-18
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
„ÞETTA verður alls konar músík,“
lofar hinn viðkunnanlegi stórsöngv-
ari Raggi Bjarna. „Það verður hopp-
að fram og til baka milli stíla á svið-
inu. Við flytjum þarna
söngleikjamúsík, gömul dægurlög
og bara rokk og allar græjur.“
Umræðuefnið eru tvennir tón-
leikar með Ragga sem fram fara í
Háskólabíói í dag. Tilefnið er ærið:
Raggi hefur nú glatt landann með
söng og sinni léttu lund í rúma hálfa
öld. Það verður því í engu til sparað
við að gera tónleikana sem eft-
irminnilegasta. „Þarna verður sextíu
manna kór og um fjörutíu manna
hljómsveit með meðlimum úr Sin-
fóníunni og nokkrum stórsveit-
arstrákum. Síðan mun Eivör Páls-
dóttir syngja og við dúetta saman,
sem er sérstaklega gaman fyrir
mig,“ segir Raggi og leggur mikla
áherslu á að heiðurinn sé allur sinn.
Félagi Ragga úr hinni fornfrægu
Sumargleði, Þorgeir Ástvaldsson,
verður svo eins konar sögumaður á
tónleikunum. „Það verður bara eitt-
hvað létt,“ áréttar Raggi og hlakkar
augljóslega til að heyra hvað vinur
sinn hefur að segja. „Hann hefur
vafalaust úr nógu að spila,“ segir
hann kíminn en tekur fyrir að hann
hafi einhverju að kvíða í þeim efnum.
Sumargleðin stendur upp úr
Þorgeir ætti svo sannarlega að
luma á sögum um Ragga þar sem
þeir voru saman í Sumargleðinni í
fimmtán ár ásamt fleiri lands-
kunnum skemmtikröftum. Raggi
segir að að öðrum tímabilum ólöst-
uðum standi tíminn með Sumargleð-
inni óneitanlega upp úr.
„Það var ansi magnað tímabil. Við
ferðuðumst um landið á hverju
sumri í fimmtán ár. Aðsóknin var
ótrúleg og viðtökurnar sömuleiðis.
Fólk beið eftir þessu, fór ekki í sól-
arlandaferðirnar fyrr en við höfðum
komið við,“ segir Raggi dreyminn og
hlær við tilhugsunina.
„En það sem stendur mest upp úr
er fólk. Bæði allir þeir sem ég hef
haft tækifæri til að vinna með og all-
ir þeir sem hafa stutt mig í gegnum
tíðina, hlustað á mig og svona. Það
er það sem er manni efst í huga,
þakklæti fyrir allan stuðninginn og
allan vinskapinn.“
Þrátt fyrir langan feril er Raggi
hvergi nærri hættur. „Ég er að
vinna jólaplötu ásamt Gunnari Þórð-
arsyni. Þetta verður alíslensk jóla-
plata og allt splunkunýtt. Ég er ein-
mitt að fara í upptöku á morgun. Það
verður spennandi að sjá hvernig fólk
tekur því, þegar það er ekkert
„White Christmas“.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Að í hálfa öld Raggi Bjarna hefur sungið sig inn í hug þjóðarinnar.
Bara rokk og allar græjur
Sjá viðtal við Ragga Bjarna á Vef-
varpi mbl.is á slóðinni:
http://mbl.is/mm/frettir/
frett.html?nid=1256435
VEFVARP