Morgunblaðið - 03.03.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 51
menning
AMERÍSKI leikritahöfundurinn og
leikarinn Tracy Letts skrifaði Killer
Joe árið 1993. Það er sýnt á Ed-
inborgarhátíðinni skömmu síðar og
sagt að það hafi haft áhrif á ungt leik-
húsfólk á Bretlandi og þróun þar-
lendrar leikritunar. En „film noir“,
John Steinbeck, jafnvel Tennessee
Williams ganga aftur í þessu verki
þar sem áhorfendur eru látnir hafa
það óþvegið.
Sagan gerist meðal hvíts tötralýðs
í Bandaríkjunum og segir þar af fjór-
um fjölskyldumeðlimum sem búa í
húsvagni einhvers staðar í Texas.
Chris, sonurinn, er í „djúpum skít“
og þarf að grafa upp 20.000 dollara til
að borga eiturlyfjamafíunni. Hann
gerir þá djöfullegu áætlun að láta
myrða móður sína og fyrri konu föð-
urins, sem hann hefur frétt að sé líf-
tryggð fyrir 50.000 dollara. Faðirinn
Anselm tekur þátt í brallinu. Chris
ræður til verksins þaulvanan at-
vinnumorðingja, Joe, sem hefur það
sem aukastarf til hliðar við að-
aldjobbið í löggunni. Chris getur ekki
borgað honum fyrirfram svo Joe
kemur með þá uppástungu að hann
fái systurina, hina „hreinu mey“ Dot-
tie, sem tryggingu fyrir greiðslunni
og þar með vindur sagan sig áfram
með spaugilegum, rómantískum og
ofbeldisfullum afleiðingum.
Stefán Baldursson hefur valið
skemmtilega leið að verkinu, í stað
kómískrar stílfærslu kýlir hann nat-
úralismann í botn. Leikstíllinn er
framan af eins og staðið sé fyrir
framan sjónvarpsvélar, lágstilltur.
Djöfullegt plottið í upphafi ósköp
eðlilegt og smávægilegt. Andlit leik-
aranna afhjúpa ekki hvað fer fram
hið innra, viðbrögð, gjörðir koma því
á óvart, framvinda atburða-
rásarinnar flettir ofan af eymdinni
inni fyrir. Allt er hér unnið af mikilli
nákvæmni og ofbeldið sem skellur yf-
ir í seinni hlutanum, kynferðisleg
niðurlæging með kjúklingalæri,
slagsmálasenur, glettilega vel út-
færðar.
Leikstíllinn einfaldar að vísu per-
sónusköpunina en þó vinna allir leik-
ararnir ákaflega vel innan hans.
Þröstur Leó Gunnarsson túlkar föð-
urinn Anselm sem útbrunninn og
eintóna, beinir þeirri litlu orku sem
hann á eftir að sjónvarpsskerminum.
Chris verður í höndum Þorvaldar
Davíðs Kristjánssonar svolítið
heimskur strákur, ruglaður af fíkn
og tekst að kveikja samúð hjá áhorf-
andanum. Unnur Ösp Stefánsdóttir
leikur Dottie sem gengur líkt og í
svefni gegnum lífið og er skemmtileg
andstæða við spillt umhverfið; alvar-
leg, stóreygð, fallega hæg er Unnur
Ösp í trúverðugri einfeldni sem af-
hjúpar auðvitað ætíð sannleikann;
vantar hins vegar eða kannski er
ekki unnin út sú kynferðislega út-
geislun sem þessi stúlka þarf að hafa
og þar hjálpar ekki búningurinn sem
gerir hana fremur að íslenskri lág-
launamenntakonu en amerískri töt-
rastelpu. Sömu sögu er að segja af
Maríönnu Clöru Lúthersdóttir sem
leikur Shörlu, seinni eiginkonu An-
selms. Ekki tekst að afbyggja glæsi-
leika þeirrar leikkonu með búningum
og gervi og er hún oft, þótt hún geri
flest ákaflega vel svo sem túlkun nið-
urlægingarinnar eftir kjúklinga-
klámið, svolítið eins og utanveltu
millistéttarkona meðal þessa tötra-
lýðs. Búningar og gervi karlanna
(Filippía Elísdóttir) eru hins vegar
ákaflega trúverðugir og einkum
leigumorðingjans Joes, sem Björn
Thors leikur í Sam Shepard-stíl, af
kómískri mýkt sem ég hef ekki séð til
hans áður og dregur af einstakri lip-
urð upp jafnt spaugilegar sem aumk-
unarverðar og grimmar hliðar á per-
sónunni.
Vyutas Narbutas býr auðvitað
ekki til natúralíska leikmynd heldur
stílfærðan ljótleika; pallur gengur
fram í salinn sem áhorfendur sitja
umhverfis á þrjá vegu, í bakgrunni
hár veggur þakinn plakötum og
myndum af íkonum ameríska menn-
ingariðnaðarins allt frá Elvis Presley
til Jesú Krists. Í fjölda af natúral-
ískum leikmunum er vísað til hús-
vagnsins með því að undirstöður
undir borð, (bíl)stóla og pall eru ým-
ist dekk eða felgur. Lárus Björnson
lýsir vel að vanda og strópóljós og
tónlist gera skiptingar að uppbroti
milli atriða.
Sagan sem er sögð er ekki illa
smíðuð, þótt lausnin sé snubbótt og
ekki sviðsvæn. Verkið samt og mór-
allinn nokkuð þreytt einkum eftir
sýningu LR á Ófögru veröld og
Svarta kettinum hjá LA í vetur, en
einnig vegna þess að þessari veröld
hvíts tötralýðs er búið að lýsa svo oft
fyrir okkur í sjónvarpi og í kvik-
myndum. Þar að auki líkamnar sig
græðgi og ofbeldi einna skýrast nú
um stundir í snyrtilegum jakkafata-
mönnum og það því ekki beinlínis
rökrétt að leita hins dæmigerða í
græðgi og ofbeldi (eins og verkið
reynir að gera) hjá tötraborgurum.
Þá takmarkar einnig þessa sýningu
að hér er millistéttarfólk að skapa
heim sem því er víðs fjarri fyrir
áhorfendur úr millistétt – í samfélagi
þar sem nálægðin er mikil. Því verða
sumir hlutir er snerta borðhald,
reykingar, kynhvöt og nekt persón-
anna of oft smáir, stundum nánast
penir, menn forðast klám.
Áhorfendur fögnuðu ákaflega í
lokin og það var full ástæða til því hér
vönduðu sig allir allan tímann og
megasjónvarpsnatúralismi leikstíls-
ins er vissulega eitthvað nýtt á ís-
lensku sviði.
Ekkert klám
Í botn „Stefán Baldursson hefur valið skemmtilega leið að verkinu, í stað
kómískrar stílfærslu kýlir hann natúralismann í botn,“ segir m.a. í dómi.
LEIKLIST
Skámáni
Eftir Tracy Letts í þýðingu Stefáns Bald-
urssonar. Leikstjóri: Stefán Baldursson.
Leikmynd: Vytautas Narbutas. Búningar:
Filippía Elísdóttir. Lýsing: Lárus Björns-
son. Leikarar: Björn Thors, Marianna
Clara Lúthersdóttir, Þorvaldur Davíð
Kristjánsson, Þröstur Leó Gunnarsson og
Unnur Ösp Stefánsdóttir.
Litla sviðið, Borgarleikhúsi, fimmtudag-
inn 1. mars kl. 20.
Killer Joe
María Kristjánsdóttir
nefnist Skuggar ástarinnar og er
steinþrykk eða litografía.
Í Skuggum ástarinnar tvinnast
saman fegurð og grimmd, mýkt og
harðneskja og ég er ekki frá því að
í verkinu felist ívið meiri frásögn
en oftast er í verkum Braga. Og ef
ég leyfi mér kannski að oftúlka
svolítið að þá hvarflar að mér að
listamaðurinn hafi verið snortinn af
da Vinci lykli Dans Browns og heil-
FÉLAGIÐ Íslensk Grafík er fag-
félag grafíklistamanna á Íslandi. Á
vegum félagsins er rekið verkstæði
og sýningarsalur í Tryggvagötu 17
í Reykjavík. Árlega gefur einhver
útvalinn listamaður og meðlimur í
félaginu grafíkverk sem er selt á
hóflegu verði til svokallaðra Graf-
íkvina sem er félagskapur áhuga-
manna um grafík. Þessi háttur á
fjáröflun hefur verið síðan 1994 og
reið þá Bragi Ásgeirsson á vaðið.
Bragi er nú myndlistarmaður árs-
ins hjá Grafíkvinum og Félaginu
Íslensk Grafík í annað sinn.
Á vetrarhátíð um helgina sem
leið var opnuð sýning eða kynning í
Grafíksafninu á verkum sem hafa
verið gerð fyrir Grafíkvini þessi 13
ár og er nýtt verk Braga Ásgeirs-
sonar þar í aðalhlutverki. Verkið
ögum kvenleika (The sacret fem-
inine) sem fjallað er um í bókinni.
Heilagur kvenleiki tengist „móð-
urgyðjunni“ sem er að finna í
mörgum birtingarmyndum og í
flestum trúarbrögðum heimsins.
Konan sem gyðjumynd hefur líka
gegnum tíðina verið viss staðall
fyrir fegurð í listum. Í skuggum
ástarinnar birtist konan sem tær,
formfögur og saklaus á meðan
karlmaðurinn stendur í púlti, hvass
og árásargjarn, þrumandi yfir
múginn. Hér er karlmaðurinn siða-
postuli sem svertir gyðjuna með
krossinn að vopni, er þó í raun að
sverta krossinn sjálfan, en kross
var einmitt táknmynd karlgoða áð-
ur en kaþólskan gerði hann að
megintákni kristninnar.
Bragi er lipur teiknari og nýtur
sín því vel í litógrafíu. Hann nær
að tefla fram andstæðum í mynd-
málinu jafnt sem í teikningunni
sem skerpir þá frásögnina enn
frekar.
MYNDLIST
Grafíksafnið
Opið fimmtudag til sunnudags frá 14–18.
Sýningu lýkur 4. mars. Aðgangur ókeypis.
Bragi Ásgeirsson
Morgunblaðið/Ásdís
Lipur „Bragi er lipur teiknari og
nýtur sín því vel í litógrafíu.“
Jón B.K. Ransu
Heilagur kvenleiki
KAMMERHÓPURINN Nordic Affect
heldur tónleika í Bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins í dag kl. 17. Tónleikarn-
ir eru þeir fyrstu í fyrirhugaðri tón-
leikaröð hópsins í Þjóðmenningar-
húsinu sem styrkt er af
Reykjavíkurborg, Glitni, Minning-
arsjóði Margrétar Björgólfsdóttur,
Tónlistarsjóði og Menningarsjóði
FÍH.
Tónleikarnir bera yfirskriftina
„Girni og viður“ og leikin verður
hljóðfæratónlist frá barokk-
tímabilinu, allt frá hinum fram-
úrstefnulegu strengjaverkum Marini
og Merula til eins frægasta flautu-
verks sögunnar, h-moll svítunnar eft-
ir J.S.Bach. Kammerhópurinn er sá
fyrsti hérlendis sem er skipaður fólki
sem hefur sérhæft sig í flutningi tón-
listar á upprunaleg hljóðfæri. Að-
gangseyrir er 2.000 kr., 1.500 fyrir
námsmenn. Nánari upplýsingar eru
á www.thjodmenning.is.
Girni og viður
Morgunblaðið/Golli
Nordic Affect Kammerhópurinn heldur í dag sína fyrstu tónleika í fyr-
irhugaðri tónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu.
EINBÝLI Á SELTJARNARNESI ÓSKAST
Fjárhagslega mjög traustur aðili hefur óskað eftir því við
Eignamiðlun ehf. að við útvegum honum einbýlishúsi á
sunnanverðu Seltjarnarnesi. Verðuhugm. allt að 200 millj.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
lögg. fasteignasali.
Sverrir
Kristinsson
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST
500-800 fm skrifstofuhúsnæði óskast sem fyrst til kaups.
Staðsetning mætti gjarnan vera Múlahverfi eða Borgartún.
Fleiri staðsetningar koma jafnvel til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
Sinni einkum eftirfarandi sviðum sálfræði:
Taugasálfræðilegri greiningu, endurhæfingu og vitsmuna-rækt;
Klínískri sálfræðimeðferð að meðtalinni tilfinningamiðaðri
atferlismeðferð - TAM (dialectical behavior therapy) við
persónuleikaröskunum, þunglyndi og kvíða;
Viðtalsmeðferð og sjálfsstyrkingu fyrir konur og eldra fólk
Dr. Þuríður J. Jónsdóttir
Sérfræðingur í klínískri sálfræði: Sérgrein taugasálfræði
Viðtalsbeiðnir í símum 699-4611, 562-1776, 551-4611 og
í tölvupóstföngum rurij@simnet.is - ruri@fsa.is
Hef opnað aftur sálfræðistofu mína að
Suðurgötu 12, 101 Reykjavík
Dr. Þuríður J. Jónsdóttir
!
"#
!"